Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 9
BÖRKUR NK kom til hafnar í
Neskaupstað í fyrrakvöld með um
1.100 tonn af kolmunna. Með
þeim farmi hefur fiskimjölsverk-
smiðja Síldarvinnslunnar á staðn-
um tekið á móti 200 þúsund tonn-
um af hráefni það sem af er árinu
og mun það vera mesta magn sem
ein verksmiðja hérlendis hefur
tekið á móti á einu ári.
Aflinn skiptist í 113 þúsund
tonn af kolmunna, 63 þúsund tonn
af loðnu og 24 þúsund tonn af síld
og síldarafskurði. Þess má geta
að Börkur, sem fyllti upp í 200
þúsund tonnin í gær, hefur borið
að landi um eina milljón og þrjá-
tíu þúsund tonn af fiski á þeim
rúmlega 30 árum sem liðin eru
síðan Síldarvinnslan keypti hann
til landsins, eða síðan í febrúar
1973.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Strákarnir í vaktherbergi bræðslunnar hafa brætt 200 þús. tonn á árinu.
200 þúsund
tonn í
bræðslu það
sem af er ári
VÁKORT af suður- og vesturströnd
Íslands var kynnt á vegum bráða-
mengunarnefndar Umhverfisstofn-
unar í gær en á slíkt kort er safnað
saman upplýsingum um náttúrufar
og önnur verðmæti sem gætu verið
í hættu ef til mengunarslyss kemur.
Kristján Geirsson, verkefnisstjóri
hjá Umhverfisstofnun, kynnti vá-
kortið en upplýsingar þess eru
einnig gagnlegar vegna skipulags-
mála og framkvæmda og nýta má
þær einnig t.d. í rannsóknum á líf-
ríki við ströndina.
Á fundinum var einnig kynnt
verkefni um dreifingu olíumengun-
ar í hafi samkvæmt niðurstöðum
reklíkans, sem Anna Fanney Gunn-
arsdóttir hefur unnið. Þá fór og
fram umræða um þessi atriði svo og
um fyrstu skref við viðbrögðum.
Bráðamengunarnefnd umhverf-
isráðuneytisins hefur unnið að gerð
kortsins sem nær milli Öndverðar-
ness á Snæfellsnesi og Víkur í Mýr-
dal. Hugmyndin er að gefa út vá-
kort af öðrum hluta
strandlengjunnar en þetta svæði
var tekið fyrir fyrst þar sem fara
saman mikil umhverfisleg og fjár-
hagsleg verðmæti og meiri áhætta
en annars staðar þar sem þarna er
aðal siglingaleiðin til og frá landinu,
m.a. með olíu og önnur hættuleg
efni.
Eins og fyrr segir eru á vákorti
upplýsingar um náttúruverðmæti
og annað sem gæti verið í hættu ef
mengunarslys verður. Einnig hefur
verið reynt að skrásetja hugsanlega
mengunarþætti á viðkomandi haf-
og landsvæði og í þriðja lagi eru
tengdar saman upplýsingar um
veðurfar, strauma, samgöngur, við-
bragðsaðila, sérfræðinga og stofn-
anir. Kristján Geirsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að með
vákortinu megi því betur samhæfa
aðgerðir vegna hugsanlegra meng-
unarslysa, því sé ætlað að verða
megin stuðningstæki viðbragðs-
aðila við skipulag aðgerða.
Verður áfram í þróun
Kristján segir að nokkur atriði
vanti enn á vákortið, t.d. um fuglalíf
úti á hafi. Varpsvæði og hegðan
fugla á landi og við strönd sé al-
mennt nokkuð þekkt en ekki sé
mikil vitneskja um fugla á sjó sem
gætu t.d. orðið fyrir mengun. Einn-
ig sagði Kristján vanta betri kort af
fyrstu metrum lands út frá strönd-
inni, til væru landakort og síðan
sjókort sem taka við á 6 m dýpi en
þarna á milli vantaði frekari kort-
lagningu.
Lagt er til að hlutast verði til um
kortlagningu strandsvæða frá 15 m
dýpi og upp að 10 til 15 metra hæð
yfir meðalsjávarmáli.
Stefnt er að frágangi vákortsins
um áramótin og síðan að gerð vá-
korta fyrir aðra hluta strandlengj-
unnar. Með fyrsta kortinu hefur að-
ferðafræði verið þróuð og sagði
Kristján kort sem þessi þurfa að
vera í stöðugri þróun þar sem sífellt
bættist við þekkinguna. Segir hann
að bráðamengunarnefndin muni
hvetja til þess að viðeigandi aðilar
muni halda áfram þeirri vinnu sem
hafin er.
Vákort af suður- og vesturströndinni kynnt
Skipuleggja viðbrögð
við mengunarslysum
Morgunblaðið/Jim Smart
Kynninguna um vákort sátu m.a. fulltrúar ráðuneyta, sveitarstjórna, hafna,
lögregluembætta, olíufélaga og stofnana sem fjalla um mengunarvarnir.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Klapparstíg 44,
s. 562 3614
Nýtt útlit
í stáli
Froðuþeytari
fyrir
cappucino
Verð 2.995
Gylltar jólaskyrtur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Ullar-„duffle coats“
Opið sunnudag 13-17
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Bolir, peysur, peysusett
Buxnadragtir frá st. 34
Opið í dag kl. 10-16
Litla JÓLABÚÐIN
Grundarstíg 7, 101 Reykjavík, sími 551 5992
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 11-16 og sun. kl. 13-16.
Augabrúnaplokkari
þessi góði
nú á tilboði kr. 1390
áður kr. 1990
CHANGE • Smáralind • Sími 517 7007
Brjóstahaldarar
í stærðum 70A-100H.
Úrval af fallegum sloppum
og náttfatnaði.
Glæsilegur undirfatnaður
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
50% afsláttur af leikföngum
Ný
blússusending
v/Laugalæk • sími 553 3755