Morgunblaðið - 29.11.2003, Side 14
ÍVAN grimmi hefur um margra alda skeið verið
álitinn einn versti fanturinn í sögu Rússlands,
blóði drifinn harðstjóri sem myrti son sinn, stofn-
aði fyrstu öryggissveitir lögreglunnar og tók síð-
an sjálfur þátt í voðaverkum þeirra. Því fer þó
fjarri að allir Rússar minnist Ívans með skömm.
Þjóðlagasöngkonan Zhanna Bichevskaya er í
hópi aðdáenda Ívans grimma, sem var uppi 1530–
1584. Hún syngur nú fátt annað en hugljúfar ball-
öður er heiðra minningu keisarans fyrrverandi og
í þætti sínum í rússneska ríkisútvarpinu talar hún
fyrir því að rússneska rétttrúnaðarkirkjan taki Ív-
an í dýrlingatölu.
Á nýjasta hljómdiski sínum lýsir Bichevskaya
Ívani sem hugrökkum bardagamanni er þjónaði
kirkjunni og vann að því að „útrýma óvinum Rúss-
lands“. „Menn hafa kallað hann trúvilling,“ segir
Bichevskaya, „en hann er dýrlingur.“
Bichevskaya er ekki eini aðdáandi Ívans
grimma í Rússlandi og hópur fólks hefur und-
anfarið þrýst á rétttrúnaðarkirkjuna að taka Ív-
an, sem talinn er hafa látið drepa þúsundir
manna, í dýrlingatölu.
„Við teljum ekki að hægt sé að hlæja að þessum
kröfum,“ segir Sergei Chapnin, ritstjóri kirkjurits
rétttrúnaðarkirkjunnar rússnesku. „Við lítum svo
á að um alvarlegt vandamál sé að ræða fyrir kirkj-
una. Hópur fólks hefur uppi áróður í þessa veru
og þúsundir manna trúa honum. Þetta ógnar því
einingu kirkjunnar.“
Segir hugmyndina „brjálæði“
Vekur einmitt eftirtekt hversu mikið kirkjan
leggur á sig til að þagga niður í þeim röddum sem
vilja að Ívan verði tekinn í tölu dýrlinga. Alexí II
patríarki, æðsti yfirmaður rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar, hefur t.a.m. fordæmt hugmynd-
ina opinberlega og sagði hann „brjálæði“ að ætl-
ast til að kirkjan legði að jöfnu „morðingja og
píslarvotta, saurlífisseggi og dýrlinga“.
Vinnur nefnd á vegum kirkjunnar nú að því að
setja á blað helstu heimildir um voðaverk Ívans;
þannig að hægt verði að sýna fram á að hann hafi
engan veginn hagað sér eins og dýrlingur á með-
an hann lifði.
Fylgjendur Ívans hafa þegar náð þeim árangri
að telja kirkjuna á að taka Nikulás II. Rússlands-
keisara í dýrlingatölu. Þetta gerðist árið 2000 en
hugmyndin um Nikulás, sem var tekinn af lífi í
byltingunni 1917, þótti fjarstæðukennd aðeins
nokkrum árum fyrr, enda var síðasti keisari
Rússaveldis þekktur fyrir gyðingahatur sitt og
fyrir að hafa lagt blessun sína yfir hreinsunar-
aðgerðir gegn gyðingum.
„Aðdáendur Ívans telja að upphafning Nikulás-
ar II. gefi þeim ástæðu til að vonast eftir að Ívan
grimmi fái sömu meðferð,“ segir Vladislav Tsyp-
in, trúabragðafræðingur og meðlimur í dýr-
linganefnd kirkjunnar. „Þeir eiga hins vegar fátt
sameiginlegt. Nikulás II. var fórnarlamb ógn-
arstjórnar á meðan Ívan grimmi lagði á ráðin um
ógnarstjórn.“
Sannarlega gefur hin skrifaða saga ekki tilefni
til þess að ætla að Ívan eigi skilið að verða út-
nefndur dýrlingur. Hann er þekktastur fyrir að
hafa stýrt þjóð sinni út í 24 ára langt stríð við Pól-
verja og Svía sem tapaðist. Hann kom jafnframt á
fót öryggislögreglu sem stóð fyrir fjöldamorðum í
borginni Novgorod, þáverandi stjórnarsetri keis-
arans, árið 1570. Árið 1581 stakk hann síðan son
sinn, Ívan, til ólífis.
Tsypin bendir á ýmislegt fleira sem er þess eðlis
að eðlilegra mætti teljast að Ívan grimmi hlyti
ævarandi fordæmingu kirkjunnar fremur en hitt.
Ívan kvæntist t.a.m. sjö sinnum (rússneska rétt-
trúnaðarkirkjan leyfir aðeins fjögur hjónabönd)
og er talinn hafa fyrirskipað morð á ýmsum þeim
sem mótmæltu ógnarstjórn hans.
„Goðsögn, þjóðsögur og lygar“
Aðdáendur Ívans hafna hins vegar allri sagn-
fræðilegri gagnrýni. Á einni netsíðu sem tileinkuð
er Ívan er rætt um meinta grimmd hans sem „goð-
sögn, þjóðsögur og lygar“ sem andstæðingar
Rússlands, kaþólikkar, gyðingar og aðrir hafi
dreift út. Ívans eigi að minnast sem fyrsta rúss-
neska keisarans, sem lítilláts munks sem á sínum
efri árum iðraðist synda sinna.
Söngkonan Bichevskaya hefur lítið álit á Alexí
patríarka og segir kirkjuna á endanum munu
verða að láta undan óskum fjöldans. Hún segist fá
„fullt af bréfum“ frá hlustendum í hvert sinn sem
hún nefni Ívan á nafn. „Fólk þakkar mér fyrir,
biður mig um að senda sér helgimyndir og bænir
til Ívans grimma,“ segir hún.
Þetta er annars ekki í fyrsta skipti sem gerð er
tilraun til að senda Ívan í „endurhæfingu“. Þegar
ógnarstjórn Jósefs Stalíns stóð sem hæst, á fjórða
og fimmta áratug síðustu aldar, reyndi Stalín að
stuðla að persónudýrkun á Ívani hinum grimma.
Rituð voru ný og vinsæl rit um hetjudáðir Ívans,
þar sem lögð var áhersla á áhuga hans á andans
málum og tilraunir til að sameina sundraða yfir-
stéttina undir einni stjórn. Engan þarf að undra
að margir þeirra, sem vilja að Ívan verði tekinn í
dýrlingatölu, eru jafnframt á þeirri skoðun að
Stalín verðskuldi sömu upphefð.
The Washington Post/Susan B. Glasser
Þjóðlagasöngkonan Zhanna Bichevskaya syngur
nú fátt annað en hugljúfar ballöður er heiðra
minningu Ívans grimma.
Moskvu. The Washington Post.
Vilja að Ívan grimmi verði
tekinn í tölu dýrlinga
’ Á einni netsíðusem tileinkuð er
Ívani er rætt
um meinta
grimmd hans
sem „goðsögn,
þjóðsögur og
lygar“. ‘
Listamaðurinn
Svetlana Chirkova
hefur gert þessa
mynd af Ívani
grimma.
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FORSÆTISRÁÐHERRA Taívans
sagði í gær að hann kynni að reyna
að fá þing eyjunnar til að afnema ný
lög sem heimila þjóðaratkvæða-
greiðslu en koma í veg fyrir að
stjórnin geti borið tillögu um sjálf-
stæðisyfirlýsingu undir þjóðar-
atkvæði á friðartímum.
Samkvæmt nýju lögunum getur
forseti Taívans aðeins efnt til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um sjálfstæði
eyjunnar reyni kínversk stjórnvöld
að sameina Taívan og Kína með her-
valdi.
Í lögunum er hins vegar ákvæði
um að þegar innrás er ekki yfirvof-
andi geti aðeins þingið og almenn-
ingur óskað eftir þjóðaratkvæða-
greiðslu. Þingið fær einnig vald til að
hafna tillögum um þjóðaratkvæða-
greiðslu á friðartímum um viðkvæm
mál eins og formlega sjálfstæðisyf-
irlýsingu, breytingar á fána eyjunn-
ar eða nafni hennar.
Kínverjar hafa
„miklar áhyggjur“
Áður en lögin voru samþykkt í
fyrradag hótuðu kínverskir ráða-
menn „hörðum viðbrögðum“ ef þing
Taívans samþykkti „lagalegan
grundvöll“ fyrir sjálfstæði eyjunnar.
Viðbrögð þeirra við samþykkt lag-
anna voru hins vegar varfærnisleg í
gær og þeir höfðu ekki í frammi
neinar hótanir. Þeir sögðu aðeins að
kínverska stjórnin hefði „miklar
áhyggjur“ og fylgdist „grannt með
þróun mála“.
Leiðtogar kínverska kommúnista-
flokksins segja að Taívan sé enn
hluti af Kína þótt flokkurinn hafi
aldrei stjórnað eyjunni frá því að
hann komst til valda á meginlandinu
árið 1949. Þeir hafa oft hótað Taívön-
um innrás lýsi þeir formlega yfir
sjálfstæði.
Chen Shui-bian, forseti Taívans,
vildi að þingið setti skýr lög sem
myndu gera stjórninni kleift að bera
tillögu um sjálfstæðisyfirlýsingu
undir þjóðaratkvæði. Stjórnarand-
staðan var hins vegar andvíg því.
Hún er með nauman meirihluta á
þinginu og er hlynnt því að Taívan
sameinist Kína þegar fram líða
stundir.
Áfall fyrir forsetann
Yu Shyi-kun, forsætisráðherra
Taívans, kvartaði yfir því í gær að
lögin væru mjög mótsagnakennd og
veittu þinginu of mikið vald til að
hafna þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann
sagði að stjórnin væri að íhuga þann
möguleika að óska eftir því að lögin
yrðu afnumin. Verði það gert þarf
þingið að greiða aftur atkvæði um
lögin innan hálfs mánaðar og að
minnsta kosti 112 þingmenn af 223
myndu þurfa að samþykkja afnám
laganna.
Nokkur dagblöð á Taívan túlkuðu
lögin sem áfall fyrir forsetann og
sögðu að það yrði mjög erfitt, jafnvel
ógjörningur, að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um sjálfstæði eyjunn-
ar.
Forsetinn sagði þó að nýju lögin
væru mjög söguleg og mörkuðu
tímamót í baráttu stjórnarinnar fyr-
ir auknu lýðræði. Hann hét því að
„fjarlægja erfiðleikana og hindran-
irnar“ sem kæmu í veg fyrir að
stjórnin gæti efnt til þjóðaratkvæða-
greiðslu á friðartímum.
„Mikilvægur varnagli“
Stjórnarandstæðingar sögðu að í
nýju lögunum væri „mikilvægur var-
nagli“ sem hindraði þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði þegar innrás
væri ekki yfirvofandi. Samkvæmt
lögunum á að stofna um 20 manna
þingnefnd sem á að fjalla um allar
tillögur varðandi þjóðaratkvæða-
greiðslu. Að minnsta kosti 75% þing-
mannanna 223 þurfa að samþykkja
tillögurnar áður en þeim er vísað til
nefndarinnar.
Nokkrir þingmenn, sem eru
hlynntir sjálfstæðisyfirlýsingu, mót-
mæltu lögunum. Einn þeirra hélt á
spjaldi í þinghúsinu með áletruninni:
„Þingið er löggjafarstofnun kín-
verskra stjórnvalda.“
Lög sem heimila þjóðaratkvæðagreiðslur á Taívan en þingið fær vald til að hindra þær
Stjórnin kann
að reyna að
afnema lögin
Reuters
Taívanskir þingmenn fagna eftir atkvæðagreiðslu á þingi Taívans um lög sem heimila þjóðaratkvæðagreiðslur.
Taipei. AP, AFP.
BRESKI Íhaldsflokkurinn er
nú sá flokkur landsins sem
mests fylgis nýtur, ef marka
má skoðanakönnun er birt var
í gær.
Þessi niðurstaða þykir
nokkur tíðindi og fallin til að
styrkja stöðu Michaels How-
ards sem tók við embætti
flokksleiðtoga fyrr í mánuðin-
um.
Samkvæmt könnun The
Daily Telegraph styðja 38%
kjósenda nú Íhaldsflokkinn.
Næstur kemur Verkamanna-
flokkur Tonys Blairs forsætis-
ráðherra en í þriðja sæti eru
Frjálslyndir demókratar. Þeir
njóta nú stuðnings 19% kjós-
enda og hafa tapað fjórum
prósentustigum frá síðustu
könnun sem gerð var í liðnum
mánuði. Sveiflan í fylginu er
sú að Íhaldsmenn hafa bætt
við sig fjórum prósentustigum
sem þeir taka frá Frjálsynd-
um þar eð fylgi Verkamanna-
flokksins er óbreytt.
Þegar spurt var hver
flokksleiðtoganna væri hæf-
astur til að fara með embætti
forsætisráðherra varð Tony
Blair efstur með 31% fylgi.
Næstur kom Howard með
27%, fimm prósentustigum
meira en Iain Duncan Smith,
fyrrum leiðtogi íhaldsmanna.
Tæplega 2.000 manns tóku
þátt í könnuninni.
The Daily Telegraph sem
er hallt undir Íhaldsflokkinn
telur könnunina til marks um
að Howard og menn hans séu
komir í sóknarstöðu í bresk-
um stjórnmálum. Það megi
teljast fréttnæmt.
Breskir
íhalds-
menn
í sókn
Lundúnum. AFP.