Morgunblaðið - 29.11.2003, Blaðsíða 41
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 41
TILFINNINGARNAR sem heltaka
ástfangið fólk eru áþekkar vímu eit-
urlyfjaneytenda. Þetta kemur fram í
breskri læknarannsókn.
Dr. John Marsden, forstöðumaður
National Addiction Center við
Maudsley-
sjúkrahúsið í
Lundúnum, segir
að komið hafi á
daginn að eiturlyf
á við kókaín leysi náttúrulega efnið
dópamin úr þeim hluta heilans sem
stjórnar nautnum. Það sama gerist
við þá andlegu tilfinningu sem fylgir
því að verða ástfanginn, dópamín
leysist úr læðingi úr nautnamiðstöð
heilans og margt í hegðan og fari
ástfangins fólks svipi mjög til hegð-
unar þeirra sem taka eiturlyf á borð
við kókain.
„Fólk verður t.d. andstutt og
finnst hjartað taka kipp. Það fær
einnig fiðring í magann. Það er
vegna þess að
nautnamið-
stöð heilans
sendir adrenalín til líkamans, sem
örvar blóðflæðið, en vegna ástands-
ins álítur heilinn að meira blóðs sé
þörf en venjulega á tilteknum
svæða, s.s. í kynfærum, og stýrir því
meira blóði þangað, á kostnað ann-
arra svæði eins og
magans. Því fylgir
umrædd fiðrilda-
tilfinning, sem
„dópistar“ finna
iðulega einnig. Hins vegar hefur
kókaínið aukaverkanir sem ást-
fangið fólk fær ekki, dópistar eiga
það t.d. til að þjást af ofsóknarbrjál-
æði, kvíða, hjarta- og öndunartrufl-
unum og getuleysi.“
Þráhyggjan
Marsden kemur fram í nýrri heim-
ildarmynd BBC sem fjallar um þessi
mál. Þar kemur einnig fram dr. Hel-
en Fisher við Rutgers-háskólann í
New York. Hún segir að eftir því
sem ástarsambandið þróist haldi
samsvörunin við eiturlyfjatöku
áfram. „Á fyrsta stigi þess að verða
ástfanginn fer öll orka og öll hugsun
einstaklings í að hugsa um mótaðil-
ann. Að vinna hylli hans, ást hans
og tryggð og verja helst öllum
stundum með viðkomandi. Þeg-
ar frá líður, og sambandið
breytist, koma fram ávana-
einkenni, þau hin sömu og ein-
kenna eiturlyfjaneytandann.
Ef mótaðilinn vill t.d. hitta
annað fólk eða breyta sam-
bandinu í veigamiklum atriðum,
fer heilinn umsvifalaust í vörn og
pumpar út meira dópamíni sem
jafnvel fær viðkomandi til að
þarfnast mótaðilans meira en
nokkru sinni fyrr. Þetta er
svipað því og að koma í veg
fyrir það sem eiturlyfja-
neytandi þekkir sem frá-
hvarfseinkenni. Nið-
urstaðan er að taumlaus ást
geti verið varhugaverð.
ÁSTIN|Fólk verður andstutt, fær fiðring í
magann og finnst hjartað taka kipp
Elskendur í vímu
Kókaín hefur aukaverk-
anir sem ástfangna
fólkið finnur ekki
Fyrsta stig:
Öll orka og öll hugsun
einstaklings fer í að
hugsa um mótaðilann. Reuters
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
ATVINNA
mbl.is