Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Jólaskeið
Ernu
kr. 6.500
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Landsins
mesta úrval
Fallega
íslenska silfrið
DÚFURNAR í Bagdad líta greini-
lega svo á að stór bronsstytta af
fyrrverandi einræðisherra lands-
ins, Saddam Hussein, sé þeirra
eign. Styttan er ein af fjórum á
þaki geysimikillar hallar í borg-
inni sem landstjóri Bandaríkja-
manna í Írak, Paul Bremer, hefur
notað sem aðalstöðvar sínar. En
nú er verið að færa þær á brott og
notaðir til þess öflugir kranar
enda hver stytta nokkrir metrar á
hæð og þung eftir því. Gera má
ráð fyrir að málmurinn verði
bræddur upp.
Reuters
Saddam verður
bræddur upp
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur staðfest að
hann muni á morgun hitta að máli þá
sem standa að Genfarfrumkvæðinu
svonefnda, óopinberri friðaráætlun
fyrir Mið-Austurlönd, þrátt fyrir að
ísraelsk stjórnvöld séu mótfallin
slíkum fundi.
Aðstoðarforsætisráðherra Ísraels
sagði á þriðjudaginn að Powell væri
„að gera mistök“ með því að ræða við
aðila Genfarfrumkvæðisins, en Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
hefur sagt að það gangi gegn hags-
munum Ísraels.
„Ég skil ekki hvers vegna ég eða
nokkur annar í stjórn Bandaríkj-
anna ætti að gefa frá sér tækifæri til
að ræða við fólk sem hefur hug-
myndir varðandi friðarumleitanir,“
sagði Powell. „Ég mun funda með
mönnum sem eru á öndverðum
meiði, þ. á m. þeim sem lögðu fram
tillögurnar í Genf.“
Powell bætti því við að þetta væri
ekki á nokkurn hátt til marks um að
Bandaríkjamenn hefðu látið af ein-
dregnum stuðningi sínum við Ísraela
eða Vegvísinn svonefnda, alþjóðlega
friðaráætlun sem bæði Ísraelar og
Palestínumenn hafa lýst sig sátta
við.
Genfarfrumkvæðið er afrakstur
þriggja ára samningaviðræðna fyrr-
verandi sáttafulltrúa Ísraela og Pal-
estínumanna sem hafa hist að eigin
frumkvæði en ekki sem fulltrúar
ríkja sinna. Voru friðartillögur
þeirra lagðar fram við hátíðlega at-
höfn á mánudaginn í borginni sem
þær eru kenndar við.
Helstu höfundar Genfarfrum-
kvæðisins eru Yossi Beilin, fyrrver-
andi ráðherra í Ísrael, og Palestínu-
maðurinn Yasser Abed Rabbo. „Þeir
munu eiga fundi með ýmsum emb-
ættismönnum í Washington,“ sagði
Powell. „Ég býst við að í þessum við-
ræðum fái ég tækifæri til að tala við
þá. Það verður líklega á föstudag-
inn.“
Talsmaður Bandaríkjaforseta dró
í gær úr mikilvægi Genfarfrum-
kvæðisins og sagði, að Ísraelsstjórn
og heimastjórn Palestínumanna
yrðu að eiga hlut að máli í friðarum-
leitunum ættu þær að skila árangri.
Í Genfarfrumkvæðinu er gert ráð
fyrir að landamæri Ísraels og vænt-
anlegs ríkis Palestínumanna verði
mjög lík landamærum Ísraels fyrir
stríðið 1967 og fengju Palestínu-
menn samkvæmt því megnið af Vest-
urbakkanum og Gazasvæðinu, auk
hluta af Jerúsalem. Þá er kveðið á
um mjög takmarkaðan rétt Palest-
ínumanna til að snúa aftur til land-
svæða sem þeir voru hraktir frá í
styrjöldinni sem braust út 1948–49 í
kjölfar stofnunar Ísraelsríkis.
Powell hittir
höfunda Genfar-
frumkvæðisins
Ísraelar segja slíkan fund vera
„mistök“ hjá ráðherranum
Marrakesh, Jerúsalem, Washington. AFP, AP. APYossi Beilin (t.v.), fyrrverandi dómsmálaráðherra í stjórn Ísraels, og Yass-
er Abed Rabbo, fyrrv. ráðherra upplýsinga- og menningarmála í Palest-
ínustjórn, kynna Genfarfrumkvæðið á fundi í Washington í gær.
Skólum lokað í Montpellier
Sigurður Árni Sigurðsson kennir
öðru hverju við listaháskóla í Mont-
pellier og kom þangað um sl. helgi.
„Það rigndi mikið í gær [á þriðju-
dag] og það voru stöðugar þrumur og
eldingar um nóttina, stöðug rigning
en ekki mjög hvasst. Einu sinni hætti
allt í einu að rigna í hádeginu og sólin
skein, þetta var eins og á Íslandi! En
rétt á eftir kom ný demba. Tilkynnt
var í morgun að fjórða stigs aðvörun
gilti í héraðinu umhverfis Montpel-
lier, þeir segja að þetta veðrakerfi
hringsóli um svæðið hér í Suður-
Frakklandi, hvað eftir annað.
En ég fékk mér morgunmat og
lagði af stað. Ég geng í skólann og
VITAÐ er að minnst fimm hafa týnt
lífi í Marseille-héraði í sunnanverðu
Frakklandi en geysileg flóð hafa verið
þar undanfarna daga. Ríkisstjórnin
hélt bráðafund og lýst var yfir neyð-
arástandi á Marseille-svæðinu. Karl-
maður drukknaði í undirgöngum í
Marseille, annar féll í flauminn í Or-
ange og kona fórst er hún reyndi að
aka um brú sem hafði verið lokað.
Einnig drukknaði kona í bíl sínum í
Lyon og karlmaður fórst í Marseille.
Loka þurfti um hríð tveim kjarn-
orkuverum vegna þess að brak og
rusl virtist ætla að stífla rásir fyrir
kælivatn. Stór tré hafa rifnað upp
með rótum, járnbrautasamgöngur
liggja niðri og víða hefur vatnselgur-
inn gripið bíla og þeytt þeim af veg-
unum.
Veðurfræðingar í Frakklandi segja
að óvenjuleg skilyrði hafi valdið rign-
ingunni og rokinu en spáð var að vind-
hraði yrði allt að 150 kílómetrar á
klukkustund fram á fimmtudag.
stoppa alltaf á miðri leið á kaffihúsi og
fæ mér þar kaffibolla. En ég hefði
þurft stígvél núna til að komast inn
þótt þetta sé á jarðhæð, ekki í kjall-
ara. Þarna sveifluðu menn vatnsföt-
um til að reyna að bjarga málunum,
straumurinn var svo mikill í vatninu
fyrir utan að það flæddi inn.
Ég hélt áfram og ætlaði niður
tröppur en þar var kominn foss! Ég sá
að lítið síki var orðið eins og jökulfljót,
vatnið kolmórautt. Trjádrumbar voru
á fleygiferð niður með vatninu.“
Skólanum var lokað um hádegið.
Sigurður sagði að stöðugt væru flutt-
ar tilkynningar frá yfirvöldum í út-
varpi og sjónvarpi þar sem fólk væri
beðið um að halda sig heima og alls
ekki hreyfa bílana sína enda væru
víða slæmar umferðarteppur á þjóð-
vegunum. Einnig væri fólk beðið um
að fara ekki í skólana til að ná í börn-
in, séð yrði um þau. Loks væri mönn-
um ráðlagt að færa sig til öryggis upp
á efri hæðir í húsum sínum.
Áfram spáð flóðum
í Suður-Frakklandi
Vitað að minnst
fimm hafa farist í
flóðunum
L
y Tong, fyrrverandi orrustu-
flugmaður í Suður-Víetnam, hefur
verið óþreytandi í baráttu sinni
gegn þeim illu öflum, sem hann
kennir við kúgun og einræði. Fyrir
þremur árum mátti hann samt gera nokkurt hlé
á þessu einkastríði sínu en þá var honum stung-
ið í fangelsi í Taílandi fyrir að hafa rænt flugvél
og dreift andkommúnískum áróðri yfir Ho Chi
Minh-borg, sem áður hét Saigon, í S-Víetnam.
Í augum þúsunda aðdáenda sinna er Ly, sem
er 55 ára gamall, mikil hetja en komm-
únistastjórnin í Víetnam kallar hann „hættu-
legan, alþjóðlegan hryðjuverkamann“ og
flokksbræður hennar á Kúbu segja hann „brjál-
æðing, ruglaðan dópista og ósvífinn málaliða“.
Það var eftir að Ly hafði dreift áróðursmið-
unum sínum yfir Havana.
Í Taílandi líta stjórnvöld á Ly sem vandræða-
mann, sem ekki sé alveg heill á geði, og kalla
uppátæki hans í besta falli hjákátleg.
Ly segir aftur á móti, að sér standi á sama um
lof eða last. Allt, sem hann vilji, sé að berjast
gegn kommúnismanum.
Bréf frá Ronald Reagan
„Ég berst fyrir frelsi og reyni því að leggja
mitt af mörkum,“ sagði hann í viðtali við frétta-
mann AP-fréttastofunnar nýlega en búist er við,
að dómur verði kveðinn upp yfir honum síðar í
þessum mánuði. „Ég þoli alls ekki, að fólk skuli
búa við slæmar aðstæður,“ sagði hann og sýndi
ýmis hvatningarbréf, sem hann hefur fengið um
dagana, meðal annars frá Ronald Reagan, fyrr-
verandi Bandaríkjaforseta.
Ly barðist með Bandaríkjamönnum í Víet-
namstríðinu en á síðustu dögum þess var flug-
vélin hans skotin niður og hann fangelsaður af
Norður-Víetnömum. Tókst honum að flýja 1980
og komast yfir alla Suðaustur-Asíu til Singa-
pore. Fyrir aðstoð bandaríska sendiráðsins þar
fékk hann hæli í Bandaríkjunum. Fyrir honum
er þó baráttunni gegn kommúnismanum ekki
lokið.
Ly fór í sína fyrstu áróðursferð yfir Víetnam
1992 en þá tók hann völdin í farþegaflugvél
skömmu eftir að hún fór frá Bangkok í Taílandi.
Þóttist hann vera með sprengju innanklæða og
neyddi áhöfnina til að fljúga yfir Ho Chi Minh-
borg. Þar kastaði hann út 50.000 áróðursmiðum
og síðan sjálfum sér á eftir í fallhlíf. Ætlaði hann
sér að vera í fararbroddi fyrir uppreisninni, sem
áróður hans átti að koma af stað.
Uppreisnin lét þó á sér standa og 1993 var Ly
dæmdur í 20 ára fangelsi. Hann var látinn laus
sex árum síðar og fór þá til Bandaríkjanna þar
sem hann lagði á ráðin um nýtt uppátæki. Það
var að taka flugvél á leigu á Miami og dreifa
áróðursmiðum yfir Havana. Í þeim hvatti hann
Kúbverja til að steypa Fidel Castro. Var hann
handtekinn er hann kom aftur til Miami en
sleppt án ákæru.
Rán eða ekki rán?
Hinn 17. nóvember árið 2000 kom Ly á flug-
völl í hafnarbænum Hua Hin í Taílandi og leigði
þar tveggja hreyfla vél með kennara. Er hún
var komin á loft settist hann sjálfur við stjórn-
völinn og beindi fluginu yfir Ho Chi Minh-borg
og dreifði yfir hana áróðursmiðum í annað sinn.
Segist hann ekki hafa beitt flugkennarann valdi
heldur mútað honum til að hjálpa sér með
10.000 dollurum, 750.000 ísl. kr.
Meginákærurnar á Ly eru tvær, annars veg-
ar flugrán og hins vegar að hafa flogið út úr taí-
lenskri lofthelgi án leyfis. Við þeirri fyrri getur
legið dauðadómur en 10 ára fangelsi við þeirri
síðari.
Ly hefur tvisvar sinnum farið í hungurverk-
fall í fangelsinu, í fyrra sinnið til að mótmæla
ákærunum og í það síðara til að krefjast þess, að
Bandaríkjamenn réðust inn í Írak til að „frelsa
kúgað fólk“.
Ly er einhleypur en kallar sjálfan sig „alþjóð-
legan föður“ vegna þess, að hann á þrjú börn í
þremur löndum. Nýtur „hetjuskapur“ hans mik-
illa vinsælda meðal þúsunda Víetnama erlendis,
sem margir flýðu kommúnistastjórnina í landi
sínu, og hafa þeir fjölmennt við réttarhöldin yfir
honum í Taílandi. „James Bond Víetnams“ er
hann stundum kallaður í þeirra hópi.
Þegar Ly var spurður hvað hann ætlaði að
gera ef hann yrði sýknaður brosti hann breitt og
sagði: „Fara til Bandaríkjanna og undirbúa
nýja ferð.“
Í einkastríði gegn
kommúnismanum
Dómur yfir „James
Bond Víetnams“ vænt-
anlegur í Taílandi
Rayong. AP.
’ Ég þoli alls ekki að fólkskuli búa við slæmar
aðstæður. ‘
Ly Tong var á sínum tíma orrustuflugmaður
og barðist fyrir stjórn Suður-Víetnams.