Morgunblaðið - 11.12.2003, Page 1

Morgunblaðið - 11.12.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 336. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Halda jól á fjöllum uppi Massimo-fjölskyldan eyðir jólum á Kárahnjúkum Austurland Viðskipti | Kaupthing Bank Sverige skilar hagnaði í ár Vísitala neysluverðs hækkar umfram spár Úr Verinu | Sandhverfueldi vex fiskur um hrygg  Rækjurisi verður til á Húsavík. Viðskipti og Úr verinu í dag TALSMAÐUR Bandaríkjastjórnar varði í gær þá ákvörðun hennar að banna fyrir- tækjum í Frakklandi, Þýskalandi, Rúss- landi og Kanada að bjóða í verk í Írak. Sagði hann, að þau væru fjármögnuð fyrir bandarískt fé og því aðeins fyrir fyrir- tæki í þeim ríkjum, sem stutt hefðu innrásina og sent þangað herlið. Viðbrögð við ákvörðun Banda- ríkjastjórnar hafa verið ákaflega hörð. Þýska stjórn- in sagði hana „óá- sættanlega“ og aðstoðarforsætis- ráðherra Kanada, John Manley, sagði, að hér eftir yrði erfitt „að rökstyðja frekari framlög til uppbyggingarinnar í Írak“. „Eðlilegt og rétt“ Herve Ladsous, talsmaður franska utan- ríkisráðuneytisins, sagði, að verið væri að kanna hvort ákvörðun Bandaríkjastjórnar stæðist alþjóðalög og Sergei Ívanov, varn- armálaráðherra Rússlands, gaf í skyn, að ekki yrði lengur tekið í mál að umbreyta rúmlega 590 milljarða kr. skuld Íraks- stjórnar við Rússa. Írakar skulda öðrum ríkjum meira en 9.000 milljarða ísl. kr., ekki síst í Frakklandi og Þýskalandi auk Rúss- lands. Scott McClellan, talsmaður Bandaríkja- stjórnar, sagði, að það væri „eðlilegt og rétt“ að banna fyrirtækjum í þeim ríkjum, sem andvíg hefðu verið Íraksstríðinu, að bjóða í verk í Írak en Paul Wolfowitz, að- stoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkja- stjórnar, rökstyður ákvörðunina með því, að hún verði til að hvetja önnur ríki til að senda herlið til Íraks. Margir fréttaskýrendur og sérfræðingar í bandarískum málefnum sögðu í gær, að Bandaríkjastjórn hefði hunsað tækifæri til að „draga úr spennunni, jafnt milli ríkis- stjórna sem samfélaga“. Þess í stað hefði hún kynt á ný undir ágreiningnum um Íraksmálin. Ríki andvíg Íraksstríði útilokuð Washington. AP, AFP.  Ákvörðun/18 Hryðjuverkum í Írak var mótmælt í Bagdad í gær. Bandaríkjastjórn segir ákvörðunina „eðlilega“ HÁTTSETTUR, bandarískur emb- ættismaður hefur tilkynnt rúss- nesku stjórninni, að Bandaríkja- stjórn stefni að því að koma upp herstöðvum í Austur-Evrópu og í sovétlýðveldunum fyrrverandi. Kom þetta fram á fundi með Marc Grossman, einum af aðstoð- arutanríkisráðherrum Bandaríkj- anna, og fulltrúum rússneska varnarmálaráðuneytisins, öryggis- stofnana og herráðsins. Eru Rússar sagðir hafa brugðist þunglega við tíðindunum en Grossman vildi ekki stað- festa, að Bandaríkjastjórn hygðist koma upp herstöð í Póllandi og Azerbaídsjan. Safar Abiyev, varnar- málaráðherra Azerbaídsjans, staðfesti hins vegar í gær, að viðræður ættu sér stað um aðstöðu fyrir Bandaríkjaher í landinu. Sergei Ívanov, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði í gær á fundi með starfsbræðrum sínum í sovétlýðveld- unum fyrrverandi, að ekki yrði fallist á bandarískar herstöðvar við landamæri Rússlands. Talið er, að þetta mál muni spilla enn samskiptum Rússa og Bandaríkjamanna en þau hafa versnað mjög að undanförnu. Bandarískur her í austurveg Marc Grossman Moskvu. AFP. LAGÐAR eru til viðamiklar breyt- ingar á fyrirkomulagi eftirlauna æðstu handhafa framkvæmda- valds, löggjafarvalds og dómsvalds í frumvarpi allra flokka sem lagt var fram á Alþingi í gærkvöldi. Skv. frumvarpinu er einnig lagt til að formenn stjórnmálaflokk- anna sem ekki eru jafnframt ráð- herrar fái 50% álag á þingfarar- kaup. Álag á þingfararkaup formanna þingflokka, varaforseta Alþingis og formanna þingnefnda hækkar úr 15% í 20%. Gerð er sú grundvallarbreyting að eftirlaunagreiðslur fyrir æðstu störf í þjóðfélaginu verða framveg- is greiddar beint úr ríkissjóði í stað lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Í greinargerð segir að í ljósi þess að réttur til lífeyrisgreiðslna skv. frumvarpinu sé nokkru betri en al- mennt tíðkast verði iðgjaldahlut- fallið hækkað úr 4% af föstum launum í 5% af heildarlaunum. Réttindaávinnsla alþingismanna verður jöfn á hverju þingári, þ.e. 3% af þingfararkaupi. Réttinda- ávinnsla ráðherra verður óbreytt 6% á hverju ári í embætti en há- markseftirlaunahlutfallið hækkar í 70%. ,,Myndaður er sérstakur rétt- ur fyrir alþingismenn og ráðherra, sem gegnt hafa forustuhlutverki í stjórnmálum um langan tíma, til að hverfa af vettvangi þjóðmála og fara á eftirlaun fyrr en annars er heimilt í stað þess að leita sér starfs á vinnumarkaði. Eru mörkin sett við alþingismenn sem setið hafa sextán ár hið minnsta á Al- þingi og ráðherra sem gegnt hafa embætti í a.m.k. sex ár,“ segir m.a. í greinargerð. Lagt er til að fyrrverandi alþing- ismaður geti átt rétt á eftirlaunum ef hann lætur af þingmennsku og er fullra sextíu ára. Hafi hann átt sæti á Alþingi í samtals sextán ár eða lengur lækkar hins vegar það aldursmark um fimm ár „og síðan til viðbótar um sem svarar helm- ingi þingsetutíma hans sem er um- fram sextán ár. Aldursmarkið get- ur þó ekki lækkað um meira en tíu ár samkvæmt þessum tölulið.“ Eftirlaun fyrir æðstu störf í þjóðfélaginu framvegis greidd úr ríkissjóði Flokksformenn fái 50% álag á þingfararkaup JÓLIN eru forn hátíð og eiga sér rætur langt aftur fyrir daga kristninnar. Flest trúarbrögð og menningarheimar halda upp á það þegar daginn fer aftur að lengja, en hvergi er þessi hátíð mikilvægari en á norðurslóðum þar sem vetur eru dimmir og kaldir. Næstu dagar eru þeir dimmustu á árinu en eftir 10 daga fer sól að hækka á lofti. Mikið sjónarspil var á himni í gær og Keilir eins og ör á miðri mynd. Morgunblaðið/Kristinn Sjónarspil ljóssins á dimmum dögum SAMKVÆMT frumvarpinu er sett sérákvæði um eftirlaun for- sætisráðherra. Hafi hann gegnt embættinu í a.m.k. eitt ár öðlast hann rétt til eftirlauna samkvæmt sama hlutfalli og forseti Íslands. Í frumvarpinu segir að eðlilegt sé að um fyrrverandi forsætisráð- herra gildi sérregla sem sé nokkru hagstæðari en fyrir aðra ráðherra þar sem hann er á hverj- um tíma hinn pólitíski leiðtogi þjóðarinnar. Eftirlaun hans verða 60% af heildarlaunum, þ.e. ráð- herralaunum og þingfararkaupi á hverjum tíma. Hafi hann gegnt embættinu lengur en eitt kjör- tímabil verða eftirlaunin 70% og 80% hafi hann gegnt því lengur en átta ár. Forsætisráðherra fái sama hlut- fall eftirlauna og forseti Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.