Morgunblaðið - 11.12.2003, Síða 27
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 27
Reykjanesbær | Jólamót eldri borg-
ara í billjarði var haldið í félags-
miðstöðinni Fjörheimum í gær.
Margir þátttakendur voru með við-
eigandi höfuðföt í tilefni dagsins.
Sextán eldri borgarar tóku þátt í
mótinu og fleiri komu til þess að
fylgjast með og hvetja sitt fólk. Á
hæla Valdimars varð Jón Olsen í
öðru sæti og Gunnar Jónsson í því
þriðja. Veitt voru jákvæðniverð-
laun. Nafn Jóhanns Alexanders-
sonar kom upp úr pottinum þegar
dregið var úr nöfnum allra. Ekki
þótti fært að gera öðruvísi upp á
milli fólks því allur hópurinn er
með jákvæðnina í fyrirrúmi.
Valdimar best-
ur í billjarði
Njarðvík/Grindavík | Kvennakór
Suðurnesja og Karlakór Keflavík-
ur halda sameiginlega aðventutón-
leika í Ytri-Njarðvíkurkirkju í
kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 og í
Grindavíkurkirkju sunnudaginn
14. desember kl. 20. Á efnis-
skránni eru mestmegnis klassísk
jólalög.
Kórarnir hafa báðir yljað Suð-
urnesjamönnum og fleirum um
hjartarætur um langt árabil með
söng sínum. Mikil gróska er í
starfi þeirra, segir í fréttatilkynn-
ingu um tónleikana. Kvennakór
Suðurnesja varð 35 ára snemma á
þessu ári, nú eru 50 ár liðin frá því
Karlakór Keflavíkur var stofnaður.
Hélt karlakórinn stórtónleika af
því tilefni ásamt Karlakórunum
Fóstbræðrum og Þröstum. Einnig
tók Karlakórinn þátt í karlakóra-
móti á Selfossi í haust. Kvennakór
Suðurnesja hélt tónleika ásamt
Lögreglukór Reykjavíkur í októ-
ber. Loks er þess getið að Karla-
kór Keflavíkur fékk menningar-
verðlaun Reykjanesbæjar 2003 við
athöfn í síðasta mánuði.
Kórarnir tveir hafa nokkrum
sinnum haldið sameiginlega tón-
leika, síðast fyrir sjö árum.
Sameiginleg-
ir aðventu-
tónleikar
Suðurnes | Kvenfélögin í Keflavík,
Njarðvík, Sandgerði, Garði og Vog-
um hafa tekið höndum saman um
söfnun til handa fjölskyldum og ein-
staklingum sem hafa úr litlu að spila
fyrir jólin. Hugmyndin er að standa
svipað að málum og hjá Mæðra-
styrksnefnd í Reykjavík.
Félagsmálastjórinn í Reykja-
nesbæ, Hjördís Árnadóttir, hvetur fé-
lagasamtök, verslunareigendur, aðra
atvinnurekendur og einstaklinga á
Suðurnesjum að leggja sitt af mörk-
um til að sem flestir íbúar svæðisins
geti átt möguleika á áhyggjulitlum
jólum í ár. Tekið er fram að æskilegt
er að framlög séu í formi matar,
gjafakorta eða peninga. Ekki er tekið
við fatnaði því Suðurnesjadeild
Rauða kross Íslands annast fatasöfn-
un. Þeim sem vilja leggja eitthvað af
mörkum er bent á að hafa samband
við forsvarsmenn kvenfélaganna,
Ragnhildi Ragnarsdóttur, Sjöfn Ol-
geirsdóttur, Helgu Valdimarsdóttur,
Hönnu Helgadóttur, Valdísi Sigurð-
ardóttur eða Sylvíu Hallsdóttur.
Tekið verður við umsóknum um að-
stoð í Svarta pakkhúsinu við Hafn-
argötu í Keflavík næstkomandi
mánudag og þriðjudag, milli klukkan
13 og 18. Umsóknirnar verða síðan af-
greiddar á sama stað á Þorláksmessu,
milli klukkan 14 og 19.
Í tilkynningu frá félagsmálastjór-
anum er jafnframt vakin athygli á
hægt verður að gefa jólapakka tvo
næstu laugardaga. Eftir hádegið
báða dagana er Reykjaneshöllin opin
og þar er unnt að koma þar fyrir við
jólatré pökkum til barna, til dæmis til
10 ára drengs eða 5 ára stúlku. Verð-
ur þeim síðan úthlutað. Hjördís Árna-
dóttir hvetur foreldra til að leyfa
börnum sínum að taka þátt í þessu,
það gæti orðið besta jólagjöfin sem
þau gefi í ár.
Styðja fjöl-
skyldur fyr-
ir jólin
Sofnaði í bílnum | Lögreglumenn
óku snemma í gærmorgun fram á
kyrrstæða bifreið á vegarslóða sem
liggur út af Garðvegi við Gufuskála.
Bifreiðin var í gangi og maður sof-
andi í henni.
Var maðurinn vakinn og reyndist
hann vera með greinilegum áfeng-
isáhrifum, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar. Var hann handtekinn
og færður á lögreglustöð vegna
gruns um ölvunarakstur og síðan í
fangageymslu.