Morgunblaðið - 11.12.2003, Síða 29
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 29
Kárahnjúkum | Þótt ung séu að ár-
um, um þrítugt, hafa Carmen og
Franceschi Massimo varið jólum
víða um heim, í Rússlandi, Nepal,
Indlandi og Kína, svo eitthvað sé
nefnt.
Franceschi hefur unnið fyrir
Impregilo S.p.A. síðustu fimm árin
og stjórnar nú gangatæknideild
fyrirtækisins við Kárahnjúka.
Hann kom í marsbyrjun og var einn
af þeim fyrstu sem mættu til starfa
á vegum fyrirtækisins.
Kárahnjúkar, Nepal og Rússíá
Carmen kom í maí til Íslands og
bjó fyrstu tvo mánuðina á Egils-
stöðum. „Hún fylgir mér yfirleitt á
verkstaði,“ segir Franceschi. „Já,
ég hef búið í Nepal, Rússlandi, Ind-
landi og Kína,“ segir Carmen og
hefur gaman af að kynnast nýjum
löndum, þó að á köflum sé það einn-
ig erfitt. „Það er mjög jákvætt að
hafa fjölskylduna hjá sér á verk-
stað,“ segir Franceschi. „Það auð-
veldar alla hluti og langur aðskiln-
aður er vondur.
Í Nepal vorum við í býsna líkum
aðstæðum og hér,“ segir Franc-
eschi. „Auðvitað er hlýtt þar og
kalt hér, en við vorum fjarri
mannabyggðum, næsta borg var
þriggja tíma akstur í burtu og veg-
irnir hræðilegir og aðstæður oft
erfiðar í fjöllunum. Búðir okkar í
Nepal voru byggðar við betri að-
stæður og voru tilbúnar þegar við
komum á staðinn. Hérna hefur okk-
ur verið hrókað til eftir því sem
búðirnar hafa byggst upp á síðustu
mánuðum. Í búðunum í Nepal var
sundlaug og góð félagsaðstaða þar
sem menn hittust mest um helgar
og á hátíðum. Hver fjölskylda hafði
lítinn garð með blómum. Í Rúss-
landi voru aðstæður gjörólíkar. Þar
vorum við inni í St. Pétursborg og
hver fjölskylda hafði íbúð út af fyr-
ir sig. En þar var að vísu öllum skít-
kalt. Mér sýnast aðstæður við
Kárahnjúka blendingur af þessu
tvennu, við erum hér á reg-
infjöllum og hér er kalt.“
Þetta er eðlilegt líf
„Það sem ég er í raun að segja er
að við lifum eðlilegu lífi. Þetta er
hvorki útlegð né aðstæður mann-
skemmandi. Þrátt fyrir að enn sé
verið að ljúka uppbyggingu búð-
anna og félagsaðstaðan, eða klúbb-
urinn, sé ekki tilbúin og verði það
sjálfsagt ekki fyrir jól er gott að
vera hér og ekki undan neinu að
kvarta. Við hlökkum þó til þegar
félagsaðstaðan öll og verslunin
verða tilbúin, því Carmen er hér
frá morgni til kvölds með drenginn
og ekki mikið við að vera. Það tek-
ur stundum á en mun breytast.
Carmen segist hitta aðrar mæð-
ur í fjölskyldubúðunum daglega
þar sem börnin leika sér saman og
mæðurnar taki sér ýmislegt fyrir
hendur. Tvisvar í viku fer smárúta
með þær sem vilja niður í Egils-
staði, þar sem konurnar versla til
heimilisins og gera sér dagamun
með börnin.
Tíu börn eru nú í Kárahnjúkum,
Matteo það yngsta og hið elsta
þrettán ára. „Hann hittir önnur
börn og líður ekki af einangrun að
neinu leyti,“ segir Carmen.
„Við berum engar áhyggjur fyrir
vetrinum. Við höfum læknisþjón-
ustu og fólk allt í kringum okkur,
góða vistarveru og gott atlæti.“
Gott inni og vont úti
Þau búa í rúmlega 60 fm íbúðar-
einingu vestast í Laugarásþorpinu.
Íbúðin skiptist í agnarsmátt and-
dyri, stofu, rúmgott eldhús, bað-
herbergi, tvö svefnherbergi og
geymslu og þvottahús. Í veggjum
eru lakkaðar masónítplötur og
dyra- og gluggakarmar úr dökku
járni. Gólfin eru dúklögð og hlýtt
inni. Íbúðin er vel búin húsgögnum
og býsna notaleg. Sjónvarpið malar
á einhverri ítalskri tískustöð og
reykelsisangan flýgur létt um loft-
ið. Útsýnið er hins vegar slæmt, því
maður horfir annaðhvort beint á
ryðgaða gáma eða í vegginn á
næstu silfurlitu íbúðaröð. Þau
Franseschi og Carmen verða dálít-
ið íbyggin á svip þegar spurt er um
lekavandamál í þeirra íbúð, segja
snöggt að gert sé jafnóðum við það
sem þurfi og það sé ekki vandamál.
Heima er þar sem
fyrirtækið er að störfum
Franseschi er frá þorpi nærri
Feneyjum en Carmen frá Sikiley,
þótt hún hafi frá unga aldri alist
upp í sama þorpi og hann. Þau
sakna fjölskyldna sinna á Ítalíu og
segja að nú sé að verða heilt ár síð-
an þau sáu foreldra sína síðast. En
eins og þeir sem lengi hafa unnið
hjá Impregilo segja verður Ítalía
kannski ekki endilega „heima“
heldur hver sá staður sem fyr-
irtækið er með framkvæmdir á í
það sinnið.
Jólasveinninn kemur
á aðfangadagskvöld
Franseschi þarf að vinna um jól-
in, því jarðgangavinnan heldur
áfram yfir hátíðarnar og hann þarf
því að vera á staðnum. Hann segir
þá sem hafa fjölskylduna hjá sér
gjarnan beðna að vinna opinbera
frídaga, meðan hinir fara flestir til
heimahaga hingað og þangað í ver-
öldinni. Þau ætla hins vegar með
Matteo litla í frí til Ítalíu fljótlega á
nýju ári.
„Við hittum áreiðanlega jóla-
sveininn 24. desember og hann gef-
ur börnunum gjafir. Við setjum
þær undir jólatréð og eftir mat og
drykk opnum við þær kringum
miðnættið.“ Þau eru ekki búin að
koma sér saman um hvað á að vera
í matinn, kannski fínt tortellini,
kannski eitthvað annað, en áreið-
anlega panettoni, sú fræga ítalska
sælkerakaka. Og sjálfsagt svína-
kjöt á gamlárskvöld, en þá verða
hátíðahöld og menn skjóta upp rak-
ettum.
„Venjulega myndu fjölskyldurn-
ar skipuleggja hátíðarhald vegna
jólanna og annan gleðskap í sam-
eiginlegri félagsaðstöðu, en þetta
árið verðum við kannski meira í
vistarverum okkar,“ segir Carmen.
Hún unir sér vel í sínum nýja
veruleika á íslenskum fjöllum, þessi
litla ítalska fjölskylda. Matteo litli
valsar um alsæll með lítið íslenskt
leikfang sem datt inn úr dyrunum
um leið og blaðamaður. Sem boðinn
er velkominn í kaffi á heimili
ítölsku hjónanna hvenær sem hann
verður á ferðinni.
Þau hlakka til að halda jól í
Kárahnjúkum með Matteo litla
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Við helgiathöfn í aðkomugöngum 1 á degi Heilagrar Barböru. Franceschi og Carmen Massimo með Matteo litla.
Hjónin með Matteo
litla á milli sín.
Matteo er aðeins
rúmlega fjórtán
mánaða gamall.
Carmen móðir hans
lætur vel af lífinu í
Kárahnjúkum.
Hjónin Carmen og
Franceschi Massimo
ætla að verja jólahá-
tíðinni ásamt fjórtán
mánaða gamla
drengnum sínum,
honum Matteo, í
Kárahnjúkavirkjun
þetta árið. Steinunn
Ásmundsdóttir leit
inn hjá þeim í gær.
LANDSVIRKJUN og Ferðafélag
Fljótsdalshéraðs hafa gert með sér
samning um eflingu ferðamennsku
og útivistar á svæðinu umhverfis
Snæfell.
Í fréttatilkynningu frá Lands-
virkjun segir að virkjunarfram-
kvæmdir við Kárahnjúka hafi í för
með sér aukna umferð ferðamanna
um svæði þar sem Ferðafélag
Fljótsdalshéraðs hafi skála sína.
Muni fyrirtækið á næstu árum að-
stoða félagið vegna viðhalds á Snæ-
fellsskála og mæta hugsanlegu
rekstrartapi af þjónustu Ferða-
félagsins við ferðamenn á svæðinu.
Þá gerir samningurinn ráð fyrir
samstarfi um eflingu ferðamennsku
og útivistar á Snæfellssvæðinu.
Landsvirkjun hleyp-
ur undir bagga með
Ferðafélaginu
Horft til Snæfells.
Nýr þjálfari | Á komandi keppn-
istímabili mun Vladan Tomic frá
Svartfjallalandi þjálfa og spila með
meistaraflokki karla hjá Umf.
Leikni. Tomic lærði knatt-
spyrnuþjálfun við Íþróttaháskólann
í Belgrad og hefur leikið sem at-
vinnumaður í Júgóslavíu og á
Möltu.