Morgunblaðið - 11.12.2003, Síða 30
LANDIÐ
30 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Dalvík | Knattspyrnukonan Elsa
Hlín Einarsdóttir frá Dalvík stundar
nám í Auburn-háskóla í Montgom-
ery í Alabama í Bandaríkjunum.
Elsa er að nema sálarfræði en henni
var boðin námsvist við skólann og
skólastyrkur sakir hæfileika hennar
í knattspyrnu og á heimasíðu skól-
ans er farið mjög lofsamlegum orð-
um um frammistöðu hennar á knatt-
spyrnuvellinum.
Hún var m.a. valin nýliði ársins
(Freshman of the Year) en valið
stendur milli skóla í þremur ríkjum
Bandaríkjanna.
Elsa lék í markinu hjá Breiðabliki
í úrvalsdeild kvenna sl. sumar, og
hafði áður leikið með Val í Reykjavík
og Þór á Akureyri.
Hvers vegna nám í Bandaríkj-
unum?
„Ég hef alltaf verið staðráðin í því
að fara í nám erlendis eftir mennta-
skóla. Helga Ósk Hannesdóttir sem
lék með mér með Breiðabliki sl.
sumar er einnig í þessum skóla og
hún stakk upp á því að ég kæmi líka
því þjálfarinn hjá skólaliðinu væri að
leita að markmönnum. Mér fannst
þetta kjörið tækifæri og ákvað að slá
til.
Aðstoðarþjálfarinn kom til Ís-
lands til að sjá mig spila. Hann skoð-
aði einkunnir mínar úr grunnskóla
og menntaskóla og þar með var
draumurinn orðinn að veruleika. Ég
fékk fullan skólastyrk og fór út 15.
ágúst.“
Hvernig gengur fótboltinn?
„Fótboltinn gengur ágætlega.
Fyrsta æfingin var þó hrikaleg! Það
var rosalega heitt í veðri og þjálf-
arinn vildi sjá hverjir hæfileikar
mínir væru í markinu. Hann lét
stelpurnar skjóta á mig samfleytt í
einn og hálfan klukkutíma í steikj-
andi hita og miklum raka. Hann var
víst farinn að halda að það myndi
líða yfir mig. Ég vildi ekki kvarta,
þannig að ég þraukaði út æfinguna
en ég var farin að sjá vatn og sturtu í
hillingum.
Við æfum sex sinnum í viku auk
þess sem við keppum einu sinni til
tvisvar í viku. Við ferðumst með rútu
í leiki og það hefur komið fyrir að við
höfum þurft að sitja í allt að níu tíma
í rútu til að komast í leik.“
Fyrsta keppnistímabilið
„Fyrsta keppnistímabilinu hjá
mér lauk fyrir rúmlega skömmu, en
þá tók við önnur keppni sem kallast
„Conference“. Við unnum hana og
komumst í „Region“ en það er
keppni til að komast í „National“
sem haldin er í Kaliforníu og er aðal-
málið. Þangað fara öll bestu liðin,
eða þau lið sem hafa unnið allt, og
við vonumst til að komast þangað.“
Nýliði ársins
Það hlýtur að vera óhætt að segja
að Elsu Hlín hafi gengið meira en
ágætlega í fótboltanum, því hún var
valin „nýliði ársins (Freshman of the
Year), en það val nær yfir alla skóla í
þremur ríkjum; Georgíu, Alabama
og Karólínu.
Elsa Hlín vildi nú ekki gera mikið
úr þessu, en viðurkenndi þó að þetta
væri rétt, og þegar hún var spurð
nánar út í framann í fótboltanum
kom fram að í þessum þremur ríkj-
um eru einnig valin úrvalslið, 1 og 2
(Soccer All-Conference Team) og er
valið í þau lið eftir að fyrsta tíma-
bilinu er lokið. Elsa Hlín og Helga
Ósk ásamt fjórum öðrum stelpum úr
þeirra liði voru valdar í úrvalslið 1.
Þá var ein úr liðinu valin í úrvalslið
2.
Hinn 13. október var Elsa Hlín
síðan valin leikmaður vikunnar
(Player of the Week) og það val nær
einnig til áðurnefndra þriggja ríkja.
„Ég verð heima á Íslandi á sumrin
og ætla að spila fótbolta þar. Hvort
það verður með Breiðabliki eða ekki
er óráðið ennþá því samningur minn
við liðið rennur út um áramót. En ég
ætla mér að spila fótbolta áfram.“
Elsa Hlín Einarsdóttir gerir það gott í bandarísku háskólaknattspyrnunni
Morgunblaðið/Guðmundur Ingi
Elsa Hlín Einarsdóttir með viðurkenningarnar.
Var farin að sjá vatn
og sturtu í hillingum
Stykkishólmur | Með tilkomu
nýrra orkulaga verða miklar
breytingar á starfi Rafmagnsveitu
ríkisins um áramótin. Umdæmis-
skrifstofa Rariks á Vesturlandi
sem er í Stykkishólmi verður lögð
niður.
Í Stykkishólmi hafa heimamenn
ekki tekið þessum breytingum
fagnandi. Fólk hefur áhyggjur af
því að vægi skrifstofunnar í
Stykkishólmi fari minnkandi og
óttast að það fjari undan starf-
seminni hér á næstu árum.
Tryggi Þór Haraldsson, sem nú
gegnir starfi forstjóra Rariks,
segir að íbúar Stykkishólms þurfi
ekki að óttast afleiðingar breyt-
inganna. Í Stykkishólmi verði rek-
in starfsstöð sem hefur umsjón
með dreifikerfi Rariks á Vestur-
landi og ekki er ætlunin að fækka
starfsfólki í Stykkishólmi. „Það
varð að endurskoða rekstur Rar-
iks þegar ný orkulög koma til
framkvæmdar. Í lögunum er opn-
að fyrir samkeppni sem tekur
gildi frá 1. janúar 2005,“ segir
Tryggvi Þór. Orkulögin kveða á
um að skipta upp sérleyfisþáttum
og samkeppnisþáttum.
Miklar skipulagsbreytingar
gerðar um allt land
Hér um að ræða gífurlegar
breytingar á rekstri Rariks sem
kostar miklar skipulagsbreyting-
ar. Fyrirtækið er að fara að taka
þátt í samkeppni og þarf að standa
sig á þeim vettvangi. Starfseminni
verður skipt upp á landsvísu og
starfsstöðvar settar upp í hverjum
landshluta.
Að sögn Tryggva Þórs verður
engum starfsmanni sagt upp
vegna breytinganna og enginn
þarf að flytjast til í starfi. Í Stykk-
ishólmi munu starfsmennirnir
starfa í mismunandi deildum og
hefur hver deild sinn yfirmann,
sem flestir verða í Reykjavík.
Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri
sagðist ekki geta annað en tekið
undir áhyggjur manna af fækk-
andi atvinnutækifærum á lands-
byggðinni, og þá sér í lagi þeim
stöðum sem flokkast ekki sem
kjarnabyggðir. „Það hljóta allir að
sjá og skilja sem það vilja, að auð-
vitað er hægt að vinna opinber
störf í Stykkishólmi eins og í
Reykjavík eða Akureyri í þessum
bransa svo dæmi sé tekið,“ segir
Óli Jón. Hann segir ennfremur að
það sé ljóst að þéttbýlisstaðir á
Rarik-svæðinu séu einir að taka
þátt í að greiða félagslegan þátt í
rekstri dreifbýliskerfisins. Úttekt
hefur verið gerð á þessum kostn-
aði sem mun vera um 500 milljónir
á ári.
Hjá fyrirtækinu starfa 11
manns í Stykkishólmi og er starf-
semi Rariks í Stykkishólmi því
mikill styrkur fyrir byggðarlagið.
Hér er búið að byggja upp góða
aðstöðu og fjárfesta í góðum
starfsmönnum. Það er von heima-
manna að stjórnendur Rariks sjái
sér hagi í því að efla frekar starf-
semina í Stykkishólmi, en að
draga úr henni.
Umdæmisstjóri Rariks á Vest-
urlandi hefur verið síðustu ár
Björn Sverrisson.
Umdæmisskrifstofa Rariks í Stykkishólmi lögð niður
Stjórnunarstöðum fækkar
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Rarik hefur byggt upp myndarlega aðstöðu undir starfsemi sína í Stykkishólmi. Umdæmisskrifstofan á
Vesturlandi hefur verið hér til húsa mörg undanfarin ár. Um áramótin mun verða þar breyting á.Skagaströnd | Aðalheiður Þorleifsdóttir, 91
árs gömul húsmóðir frá Akureyri, afhenti
Hólaneskirkju höfðinglega gjöf á aðventu-
kvöldi í kirkjunni 7. desember síðastliðinn.
Gjöfin var ljósprentað eintak af Guðbrands-
biblíu í vönduðu og fallegu bandi.
Biblían, sem Aðalheiður afhenti formanni
sóknarnefndar, Lárusi Ægi Guðmundssyni, er
eintak númer 314 af 500 Biblíum sem ljós-
prentaðar voru og gefnar út á árunum 1956-
57. Er hér um að ræða ljósprentun af frum-
útgáfu Biblíunnar sem fyrst var gefin út af
Guðbrandi Þorlákssyni Hólabiskupi árið 1584
en þá voru einungis prentuð 500 eintök. Lárus
þakkaði þennan mikla hlýhug sem kirkjunni
er sýndur með þessari gjöf og sagði að bókinni
yrði gert hátt undir höfði í kirkjunni þar sem
hún yrði höfð til sýnis í framtíðinni.
Aðalheiður sem varð 91 árs í nóvember síð-
astliðnum sagði fréttaritara að bókin væri
gefin í Hólaneskirkju vegna þess að syni henn-
ar, Pétri Eggertssyni, hefði farnast vel á
Skagaströnd. Pétur hefur búið á Skagaströnd
í áratugi og er nú forstöðumaður dvalarheim-
ilisins Sæborgar. Aðalheiður, sem er ern og
glæsilegur fulltrúi sinnar kynslóðar, sagðist
telja að lykillinn að langlífi og góðri heilsu
væri að hlífa sér ekki við vinnu í lífinu heldur
ganga heldur af þrótti og gleði að hverju
verki.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Lárus Ægir Guðmundsson sóknarnefndar-
formaður ásamt Aðalheiði Þorleifsdóttur eft-
ir afhendingu gjafarinnar. Hjá þeim stendur
séra Magnús Magnússon sóknarprestur með
Guðbrandsbiblíuna í höndum.
Hólaneskirkju
færð Guð-
brandsbiblía
Siglufjörður | Nýlega
var Sögufélag Siglu-
fjarðar endurvakið,
en félagið hefur legið
í dvala síðustu ára-
tugi. Í stjórn voru
kosin: séra Sigurður
Ægisson formaður,
Sigurður H. Sigurðs-
son og Jóna Kr. Ás-
mundsdóttir, Hannes
Baldvinsson og Páll
Helgason.Ljósmynd/Steingrímur Kristinsson
Sögufélag Siglufjarðar vakið til lífsins