Morgunblaðið - 11.12.2003, Qupperneq 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 57
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi er varð
á frárein frá Bíldshöfða að Höfða-
bakka fimmtudaginn 4. desember
klukkan 13:30. Þar lentu saman rauð
Honda Accord og appelsínugul
Iveco-sendibifreið frá Reykjavíkur-
borg. Þeir sem upplýsingar geta
veitt um mál þetta eru vinsamlega
beðnir að hafa samband við lögregl-
una í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
Séra George og Sigríður Ingv-
arsdóttir frá Caritas, hjálparstofnun
Kaþólsku kirkjunnar, komu færandi
hendi til Mæðrastyrksnefndar og af-
hentu henni 200.000 kr. til hjálpar-
starfsins.
Á myndinni eru frá vinstri: Sigríð-
ur Ingvarsdóttir, formaður Caritas,
Hildur G. Eyþórsdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur,
Áslaug Brynjólfsdóttir frá Félagi
framsóknarkvenna, séra George í
stjórn Caritas og Aðalheiður Frantz-
dóttir, formaður Kvenfélags Al-
þýðuflokksins.
Caritas styrkir Mæðrastyrksnefnd
Haraldur Jónasson / Hari
Mæðrastyrksnefnd fær framlag frá Kaþólsku kirkjunni.
♦ ♦ ♦
FYRIR skömmu afhentu ættingjar
Þórarins Sigurðssonar, sem lengi bjó
á Kópavogshæli, Öryrkjabandalagi
Íslands eina
milljón króna að
gjöf. Þórarinn
fæddist 8. nóv-
ember 1919 og
lést 10. apríl
1988. Sjóðinn
stofnaði Stein-
unn Sigurðar-
dóttir, systir
Þórarins, til
minningar um
bróður sinn.
Sjóðurinn var stofnaður til styrktar
íbúum þeim sem bjuggu á Kópavogs-
hæli. Vegna breyttrar stefnu í mál-
efnum hælisins ákvað stjórn sjóðsins
að leggja hann niður. Var þess óskað
að sjóðurinn rynni til kaupa eða
byggingar á íbúð handa andlega fötl-
uðu fólki og að nafns Þórarins yrði
þar getið.
Þegar Kópavogshæli var stofnað
árið 1952 varð Þórarinn fyrsti heim-
ilismaðurinn þar og undi jafnan hag
sínum vel. Hann hafði með höndum
ýmis störf á hælinu og setti mikinn
svip á umhverfi sitt. Hann var alla tíð
afar nákvæmur og samviskusamur
við þau verk sem hann tók að sér,
segir í tilkynningu.
Garðar Sverrisson, formaður Ör-
yrkjabandalags Íslands, veitti fénu
móttöku.
ÖBÍ
afhent
stórgjöf
Þórarinn
Sigurðsson
NÝLEGA óskaði Stanfords, sem er
elsta og þekktasta ferðabókaversl-
unarkeðja á Bretlandi, eftir að fá
ársrit Icelandic Geographic til sölu
og dreifingar. Verður ritið selt í
verslunum Stanfords í London,
Bristol og Manchester; þ. á m. í
ferðabókaverslun Stanfords í Cov-
ent Garden.
Icelandic Geographic kom fyrst út
sumarið 2002. Í Icelandic Geograph-
ic 2003 eru greinar um Vestmanna-
eyjagosið 1973 og lífið í Eyjum, um
náttúruperluna Mývatn og um ís-
lenskt fuglalíf, m.a. með myndum af
íslenska fálkanum og úr eyjunni
Skrúð. Einnig er í ritinu fjallað um
örlög þýskra skipbrotsmanna á
Skeiðarársandi fyrir 100 árum og
Magnús Magnússon skrifar um
nokkra helstu vettvangsstaði Íslend-
ingasagnanna.
Íslenskt tímarit
selt hjá Stanfords
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut 54
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
Barnaskór ökkla
Litur: Svartur og drapplitur
St. 27-38
Verð áður 3.995
Verð nú 1.995
Ath! Tilboðið gildir
einnig í Steinari Waage
Síminn hefur lækka› stofngjöld heimilissíma og ISDN um allt a› helming.
Heimilissími ISDN Ver›:6.900 kr.Ver›:3.900 kr.
Ver› á›ur: 7.000 Ver› á›ur: 12.900
• Númerabirtir (50 númer)
• Símaskrá (20 númer)
• Hle›sla allt a› 150 klst. í bi›
• Taltími allt a› 12 klst.
• Dregur 50-300 metra
• Hægt a› tengja aukahandtæki
• 20 mismunandi hringingar
• Klukka/vekjaraklukka
• Endurval (10 númer)
• S‡nir lengd samtals
Panasonic TCD-652
Glæsileg jólagjöf
tveir fyrir einn
Allt a›
helmings-
lækkun á
stofngjöldum
heimilissíma
1.000 kr. færast mána›arlega á
símreikning næstu 12 mánu›i.
Léttkaupsútborgun 1.990 kr.
Ver› 13.990 kr.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
S
Í
A
/
N
M
1
0
8
5
1
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
mbl.isFRÉTTIR