Morgunblaðið - 11.12.2003, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 11.12.2003, Qupperneq 67
þeim til sín,“ segir Eli íbygginn, sem hefur greinilega einhvern tímann not- að þessa tækni. „Myndin er líka fyndnari en marg- ir halda en hún er fyndin á þann hátt að það er aldrei verið að gera grín að myndinni eða aðstæðum heldur er húmor til að létta á spennunni. Það þarf smápásu til að þurrka svitann úr lófunum eftir að hafa haldið lengi ut- an um stelpuna við hliðina á þér.“ Myndin hefur gengið ótrúlega vel. Kostnaðurinn við myndina var 1,5 milljónir dala, sem er bara lítið brot af því sem Hollywood-myndir kosta en hún var tekin upp á 24 dögum. Þrátt fyrir þetta fór myndin beint í þriðja sætið yfir vinsælustu mynd- irnar í Bandaríkjunum þegar hún var frumsýnd, aðeins Einu sinni var í Mexíkó (Once upon a Time in Mex- ico) með Johnny Depp og Eld- spýtumennirnir (Matchstick Men) með Nicholas Cage voru fyrir ofan. Ævintýrið hófst á kvikmyndahátíð- inni í Toronto þar sem hún sló í gegn. Nú er svo komið að myndin hefur þénað 22 milljónir dala í Bandaríkj- unum og er búist við því að það komi í kassann 40–60 milljónir dala á al- þjóðavísu og allt að 80 til 90 milljónir dala þegar mynddiskaútgáfan er talin með. Hagnaðurinn er því mikill en Eli hefur greinilega ekki ofmetnast og ætlar að halda sínu striki. Vissulega eru tækifærin fleiri og það er ým- islegt í bígerð. Hann er að vinna að mynd fyrir stórt stúdíó, minni óháða mynd og svo enn minni hryllings- mynd auk þess að vera að fara yfir mörg handrit. Hann vill veg hryllingsmyndanna sem mestan. „Velgengnin sendir skýr skilaboð um að það er hægt að búa til hryllingsmynd fyrir lítinn pening sem gengur vel. Vonandi fara þá fleiri að gera hryllingsmyndir,“ segir Eli. „Það var bara komið að mér en ég hef lagt hart að mér mjög lengi.“ Myndin fór síðan á fleiri hátíðir og ekki ómerkari leikstjórar en David Lynch og Richard Kelly (Donnie Darko) hafa hrósað honum. „Við er- um að skrifa mynd saman núna sem Richard framleiðir og ég leikstýri, hún heitir The Box“, segir Eli. Quent- in Tarantio kom að sjá hana og lofaði. „Hann hefur minnst á hana í viðtölum og bauð mér í mat heim til sín og á frumsýninguna á Bana Billa (Kill Bill) og kynnti mig sem „framtíð hrollvekjunnar“,“ segir Eli sem fékk líka boð í mat hjá leynifélaginu The Masters of Horror. „Á nokkurra mánaða fresti hittist félagið og skil- yrðin eru að maður verður að hafa leikstýrt hryllingsmynd til að vera með. Það hefur alltaf verið draumur minn að hitta þessa menn og þarna var ég, sat til borðs með öllum helstu hryllingsmyndaleikstjórnunum.“ Peter Jackson, leikstjóri Hringa- dróttinssögu, er líka aðdáandi og fékk Eli leyfi til að nota nafn hans á kynn- ingarspjöld vegna myndarinnar þar sem hann lofar hana í hástert. Vill gera mynd á Íslandi „Þetta er maraþon, mig langar að leikstýra eins lengi og ég held meðvit- und,“ segir hann en eitt af því sem hann langar til að gera er að taka upp mynd á Íslandi. „Mig langar að taka mynd hér. Landslagið er ótrúlegt,“ segir Eli og nefnir að staðir á borð við Dyrhólaey, Vík og Svartifoss í Skaftafelli, Jökulsárlón og Vatnajök- ull séu í miklu uppáhaldi. Eli hefur búið í Los Angeles í fimm ár og heldur aftur þangað eftir Ís- landsdvölina. „Mér finnst gott að ljúka þessu hér þar sem þetta byrj- aði. Ég er búinn að vera á ferðinni í ár að kynna myndina en held nú heim og fer að sinna öðru.“ Þess má geta að í Kofakvilla eru ýmsar tilvísanir í þekktar hryllings- myndir sem harðir aðdáendur þess- ara mynda ættu að hafa gaman af. „Þá vita þeir að mér er ekki sama. Ég er ekki að gera þetta fyrir peningana. Fólk kemur auga á kjaftæði í mílu- fjarlægð.“ „Fólk heillast oft af hinu ógeðfellda,“ segir Eli Roth sem verður viðstaddur frumsýningu á mynd sinni hér á landi í kvöld. Kofakvillinn (Cabin Fever) er frumsýnd í Háskólabíói í kvöld og verður tekin til almennra sýn- inga á morgun. www.cabinfevermovie.com www.flesheatingbacteria.net ingarun@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 67 Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 12-14 Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880. Nú er kalt Jólagjöfin hennar fæst hjá okkur NÝ JÓLASENDING - RÖNDÓTTIR SÍÐIR BOLIR - SVARTIR ALITE JAKKAR - DOPPÓTT PILS - LANGERMABOLIR Á 990,- - ANGORUPEYSUR - O.FL. SPENNANDI JÓLAVÖRUR Casey kjóll kr. 3990 Laugavegi 95 - Kringlunni - Smáralind MYND Eric Rochant, Harður heimur (Un monde sans pitié) frá 1989 verður sýnd á vegum Alli- ance og Filmundurs í kvöld og á sunnudag. Myndin fjallar um Hippo, náunga á fertugsaldri sem býr í París þar sem hann deilir íbúð með bróður sínum Xavier, mennta- skólanema sem selur fíkniefni þeg- ar tækifæri býðst. Hippo má muna sinn fífill fegurri, er atvinnulaus og stendur á sama um allt. Hann verður ástfanginn af Nathalie, bráðgáfaðri námsmey sem er mjög vinnusöm, en hann tekur því illa að allt snúist um nám hennar og að þau verði að miða fundi sína við námskröfur hennar. Myndin er sögð sýna firrta borg- arkynslóð ungs fólks sem er upp- tekið af sjálfu sér í skúmaskotum borgarinnar. Myndin fékk franska Sesarinn sem besta frumraunin, auk þess sem hún hlaut dóm- nefndarverðlaun á Feneyjahátíð- inni. Með aðalhlutverk fara Jean- Marie Rollin, Yvan Attal, Hippo- lyte Girardot og Mireille Perrier. Kvikmyndaklúbbur Alliance française-Filmundur Harður heimur Sýnd í Háskólabíói í kvöld kl. 22.30 og sunnudag kl. 18.00. Texas Chainsaw Massacre (1974) The Evil Dead ( 1978) Evil Dead II (1987) The Thing (1982) The Shining (1980) The Exorcist (1973) Creepshow (1982) Dawn of the Dead (1978) Braindead (1992) The Haunting (1963) Viltu kynna þér Eli velur topp tíu hryllingsmyndir?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.