Morgunblaðið - 13.12.2003, Page 37
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 37
Helguvík | Kostnaður heimila og
fyrirtækja á Suðurnesjum eykst
mjög á næsta ári. Sveitarfélögin eru
um þessar mundir að ákveða álagn-
ingu sorphirðu- og sorpeyðingar-
gjalda fyrir næsta ár og stjórn
Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
hefur ákveðið verðskrá Kölku, nýrr-
ar móttöku-, flokkunar- og sorpeyð-
ingarstöðvar félagsins, sem tekur til
starfa í Helguvík eftir áramótin.
Sveitarfélögin hyggjast leggja á
6500 króna sorphirðugjald á hverja
fasteign á næsta ári og 12.130 krón-
ur sorpeyðingargjald. Samtals eru
þetta 18.630 krónur. Gjöldin hafa
ekki verið ákveðin endanlega enda
fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna
enn til umfjöllunar. Gjöldin eru inn-
heimt með öðrum fasteignagjöldum.
Verði þetta niðurstaðan tvö- eða
þrefaldast sorphirðu- og sorpeyð-
ingargjald íbúanna. Þess má geta að
Reykjanesbær lagði á 5300 króna
sorphirðugjald í ár en ekkert sorp-
eyðingargjald. Hin sveitarfélögin
lögðu samtals á 8000 kr. í sorp-
hirðu- og eyðingu.
Hækkun gjaldsins er aðallega
vegna nýrrar sorpmótttöku-, flokk-
unar- og eyðingarstöðvar í Helguvík
sem tekur til starfa í janúar. Á móti
verður reynt að halda í horfinu með
kostnað við sorphirðu en tunnurnar
verða tæmdar á tíu daga fresti í
stað viku þegar samið verður að
nýju um sorphirðuna. Núverandi
verktakasamningur fellur úr gildi 1.
febrúar og hefur sorphirðan verið
boðin út að nýju. Sveitarfélögin
nota álagt sorphirðu- og sorpeyð-
ingargjald til að greiða fyrir sorp-
hirðu heimila og eyðingu þess og til
að reka gámaplön fyrir almenning.
Miðað við ódýrasta kost
Samkvæmt gildandi reglugerð er
sorphirða frá fyrirtækjum og stofn-
unum ekki lengur lögbundið skyldu-
verk sveitarfélaganna. Hefur Sorp-
eyðingarstöð Suðurnesja ákveðið að
hætta sorphirðu hjá þeim um ára-
mót. Þurfa fyrirtækin að koma úr-
ganginum sjálf frá sér til förgunar
eða eyðingar eftir þann tíma eða
semja við sorphirðufyrirtæki um
það. Fyrirtækin hafa greitt sama
gjald og heimilin sem þýðir að sorp-
hirða þeirra hefur verið niður-
greidd. Það er ekki heimilt lengur,
að sögn Guðjóns Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum sem reka
Kölku. Ljóst er að kostnaður stærri
fyrirtækja getur aukist mjög við
þessa breytingu. Guðjón segir að
við ákvörðun nýrrar gjaldskrár
Kölku hafi verið tekið mið af ódýr-
ustu valkostum sem fyrirtæki hefðu
annars staðar, til þess að tryggja að
sem mest af sorpinu komi áfram til
eyðingar hjá Kölku. Þannig hafi
verið tekið mið af því hvað það kost-
aði að aka með sorpið til Sorpu í
Reykjavík. Þá sé reynt að stuðla að
því að fyrirtækin skili af sér flokk-
uðu sorpi.
Almennt gjald fyrir óflokkaðan
úrgang, bæði frá sorphirðu sveitar-
félaganna og frá fyrirtækjum, er
liðlega 15,50 krónur á kíló með virð-
isaukaskatti. Blandaður óflokkaður
úrgangur til urðunar er verðlagður
á tæpar 10 krónur en lægra gjald er
fyrir flestar gerðir flokkaðs úr-
gangs. Lágmarksgjald er 1700
krónur.
Verkefni fyrir aðra
Mikill stofnkostnaður er við sorp-
eyðingarstöðina sem er sú full-
komnasta á landinu. Guðjón segir
að hugmyndin sé að Kalka taki
einnig að sér sérstök verkefni fyrir
stofnanir og fyrirtæki annars staðar
á landinu, svo sem eyðingu spilli-
efna og sóttmengaðs úrgangs. Von-
ast hann til að það auki tekjur
stöðvarinnar en tekur fram að eftir
sé að ganga frá gjaldskrá og samn-
ingum við viðkomandi aðila.
Sorpkostnaður tvöfaldast
eríinu og einnig í verslunum og gall-
eríum víða um land. Galleríið er opið
á fimmtudögum og föstudögum, eftir
hádegi, og einnig um helgar. Fyrir
jólin unnu handverkskonurnar sam-
an að skemmtilegu verkefni, hönnun
og framleiðslu á Grindavíkurbjöll-
unni, jólabjöllu sem framleidd var í
40 númeruðum eintökum. Söluand-
virðið er notað til að efla starfsemina
í Sjólist, kaupa tæki og tól til að auka
möguleika félagsmanna. Linda segir
að þetta framtak hafi fengið góðar
undirtektir.
Sjálf er Linda þekktust fyrir
braggana sem hún býr til. Þeir hafa
farið víða og eru eftirsóttir. Hún ger-
ir einnig sérstæðar konur úr leir og
fleiri muni. „Málverkið togar samt
alltaf í mig, það er skemmtilegast að
mála. Ég stefni að því að sýna myndir
í Saltfisksetrinu á sjómannadaginn í
vor. Ég er að reyna að koma mér að
verki en verð að halda hinu gangandi
líka og allt er þetta voða tímafrekt,“
segir Linda.
Grindavík | „Það er alltaf mikið fjör
hérna. Þú hittir hins vegar illa á
núna því allar konurnar skruppu til
Reykjavíkur,“ sagði Linda
Oddsdóttir, eigandi handverkshúss-
ins Sjólistar sem er í gamla bænum í
Grindavík. Þar er jafnframt opin
sala á keramik og öðrum listmunum.
Linda hefur lengi málað myndir
heima hjá sér og hafði einnig reynt
fyrir sér í leirkeralist þegar hún
stofnaði Sjólist fyrir ári. „Ég ætlaði
að fá mér brennsluofn. Þá bauðst
mér svo stór ofn að mig vantaði fleiri
til að reka hann með mér. Áhugi
reyndist fyrir því og við stofnuðum
þetta félag,“ segir Linda.
Hún hefur þann hátt á að konur
sem vilja vinna að áhugamálum sín-
um í Sjólist kaupa sér aðgang að
húsnæðinu. Áhuginn hafi verið mik-
ill og nú séu þrjátíu með lykil. Linda
tekur fram að konurnar nýti aðstöð-
una mismikið en myndast hafi
ákveðinn kjarni sem standi að þessu.
Þær hafa muni sína til sölu í gall-
Skemmtilegast
að mála myndir
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Húsið lýst upp: Linda Oddsdóttir setur kerti inn í keramikbraggana sína í sölubásnum í handverkshúsinu Sjólist.
Ljósahús valið | Menningar-,
íþrótta- og tómstundasvið Reykja-
nesbæjar stendur fyrir samkeppni
um Ljósahús Reykjanesbæjar 2003.
Samkeppnin er haldin í samvinnu
við Hitaveitu Suðurnesja, eins og
undanfarin ár.
Fram kemur á vef bæjarins,
www.rnb.is, að óskað er eftir tilnefn-
ingum bæjarbúa. Tekið er á móti til-
lögum á skrifstofu MÍT til 16. des-
ember. Úrslit verða kynnt við athöfn
í Duushúsum föstudaginn 19. des-
ember klukkan 17.
Morgunblaðið/Ómar
...núna á þremur stöðum
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
28
82
11
/2
00
3
Gjafabréf Útilífs
hentar öllum.
jólagjöf
Hugmynd að
Hættu að hrjóta!
Nýjung í úða-formi
Hrotubaninn