Morgunblaðið - 16.12.2003, Side 17

Morgunblaðið - 16.12.2003, Side 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 17 Við hlustum! Áttu ekki eitthvað sem slær í gegn hjá kærustunni? G O T T F Ó LK M cC A N N · S ÍA · 2 4 9 4 6 CINDY CRAWFORD Ef þú kaupir Cindy Crawford Feminine ilminn færðu snyrtitösku í kaupbæti. T ilb o ð in g ild a ti l 2 4. 12 . 2 00 3 -15% jólaafsláttur af Dermaläge unaðskremi. PLEASURE CRÉME Náttúrulegt örvunar- og unaðskrem fyrir konur. PURITY HERBS Gleddu þig og aðra. Purity Herbs vörurnar eru með jólaafslætti. -15% Flott snyrtitaska fylgir með. jólaafsláttur ÞRÁTT fyrir háværar kröfur, eink- um í Írak, um að Saddam Hussein verði strax leiddur fyrir rétt og tek- inn af lífi, er eins víst, að yfirheyrslur og síðan réttarhöld yfir honum geti tekið marga mánuði og jafnvel ár. Á þessari stundu er heldur ekkert um það vitað fyrir hvaða dómsstól hann verður dreginn. Haft er eftir heimildum, að þeir, sem yfirheyrðu Saddam eftir hand- tökuna hafi furðað sig á því hvað hann virtist utan við sig en eftir reynsluna, sem bandarískir leyni- þjónustumenn hafa af yfirheyrslum yfir háttsettum liðsmönnum al- Qaeda-hryðjuverkasam- takanna, er hins vegar vitað, að það getur tekið marga mánuði að brjóta menn á bak aftur, andlega og líkamlega. Raunar voru fyrstu fréttir af Sadd- am þær, að hann væri bara nokkuð ræðinn en þó þverúðugur um leið. Hefur það vakið grunsemdir um, að þessi gamli refur hafi jafnvel verið tilbúinn með áætlun, yrði hann hand- tekinn. Meðhöndlaður sem stríðsfangi Í yfirheyrslum Bandaríkjamanna yfir al-Qaeda-mönnum á borð við Khalid Sheik Mohammed, Abu Zu- baida og Ramsi Binalshib var farið eftir ákveðnum reglum, sem leyfðu, að þeir væru beittir líkamlegu harð- ræði, sviptir svefni og í einu tilfelli að minnsta kosti neitað um nauðsynleg lyf. Saddam á líklega ekki von á því enda hefur Bandaríkjastjórn þegar lýst yfir, að komið verði fram við hann í samræmi við Genfar-sáttmál- ann um stríðsfanga. Saddam er ekki hryðjuverkamaður í þeim skilningi orðsins, heldur fyrrverandi forseti fullvalda ríkis. Bandaríkjamenn eiga að sjálf- sögðu margt vantalað við Saddam en búist var við, að fyrstu spurningarn- ar myndu snúast um vitneskju hans um andspyrnuhreyfinguna í Írak. Hvort hann hafi skipulagt hana eða hvort hann hafi lifað að mestu í ein- angrun frá því í apríl og aðeins haft samband við þröngan hóp manna. Gereyðingarvopnin Því næst verður hann líklega spurður um tilvist gereyðingarvopn- anna, sjálfan grundvöll Íraksstríðs- ins, og víst er, að viti einhver eitthvað um þau, þá ætti það að vera hann. Raunar eru fyrstu upplýsingarnar af yfirheyrslunum þær, að hann neiti, að þessi vopn hafi verið til, þau hafi aðeins verið tilbúningur Bandaríkja- stjórnar og tylliástæða til að ráðast inn í Írak. Haldi Saddam fast við þetta og komi ekkert annað fram, gæti það komið sér illa fyrir Bandaríkjastjórn. Nokkrar vangaveltur hafa verið um hverjir hafi lögsögu yfir Saddam Hussein. Ljóst er þó, að Írakar hafa hana og einn fulltrúi sjíta í íraska framkvæmdaráðinu, Mouwafak al- Rabii, sagði í gær, að hægt væri að efna til réttarhalda yfir honum innan fárra vikna og taka hann af lífi yrði hann fundinn sekur. Annar tók ekki svo djúpt í árinni og sagði, að und- irbúningur réttarhalda yfir einræð- isherranum fyrrverandi myndi taka nokkra mánuði. Erlendir menn, dóm- arar, sem komið hafa að stríðsglæpa- réttarhöldum, segja hins vegar, að al- þjóðlegir eftirlitsmenn verði að vera viðstaddir hugsanleg réttarhöld yfir Saddam í Írak og spá því, að verði þau haldin þar, muni þau taka tvö til þrjú ár. Vilja vita hverjir studdu Saddam Hinn kosturinn er alþjóðlegur dómstóll þótt ekki sé alveg ljóst hver hann ætti að vera. Stjórnvöld í Íran hafa nú þegar krafist þess, að hann verði leiddur fyrir slíkan dómstól en 1980 réðst Saddam Hussein með her sinn inn í Íran og stóð sú styrjöld í átta ár. Misstu Íranir mörg hundruð þúsunda manna í þeim hildarleik. Í yfirlýsingu Írana segir, að í væntan- legum réttarhöldum eigi meðal ann- ars að upplýsa hverjir hafi stutt Saddam í þessu stríð og dylst engum, að þá er verið að beina spjótunum að vestrænum ríkjum, ekki síst Banda- ríkjunum. Þau studdu Saddam með ráðum og dáð gegn ajatollah Kho- meini og klerkastjórninni í Íran og meðal annars átti Donald Rumsfeld, núverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, þá fundi með Sadd- am í Bagdad. Á þeim tíma var vitað, að Írakar beittu eiturgasi í stríðinu við Írani. Réttarhöld yfir Saddam eru sem sagt ekki mjög einfalt mál enda kann hann líklega frá ýmsu að segja, sem ekki kemur öllum vel. Vangaveltur um yfirheyrslur og réttarhöld yfir Saddam Gætu hugsanlega staðið í mörg ár Upplýsingar frá Saddam í alþjóð- legum réttar- höldum gætu komið ýmsum illa Bagdad. AP, AFP, Los Angeles Times. Reuters Ungur Íraki í höfuðborginni Bagdad fagnar handtöku Saddams Husseins á sunnudag en þá þyrptust borgarbúar út á göturnar við tíðindin. SEGJA má, að handtaka Saddams Hussein eigi sér nokkurra vikna að- draganda en þá ákváðu bandarísku leyniþjónustumennirnir að stokka alveg upp spilin í leitinni að honum. Kasta með öðrum orðum frá sér spilastokknum fræga með myndum af helstu ráðamönnum fyrrverandi stjórnar en skoða þess í stað hugs- anlega stuðningsmenn Saddams Hussein meðal óbreyttra borgara. Byrjað var á því að fara aftur yfir lista með nöfnum þeirra manna, sem voru í öryggissveitum Sadd- ams Hussein, yfir nánustu ættingja hans og önnur vensl og síðast en ekki síst var listi yfir alla fasteigna- eigendur í Tikrit og nágrenni, heimaborg Saddams Hussein, skoð- aður gaumgæfilega. Allt þetta fólk var tekið til yfirheyrslu. Leitinni var sem sagt snúið á haus og það fór fljótlega að bera árangur. Ein yfirheyrslan leiddi af sér aðra og tímamótin komu er ráð- ist var inn í hús í Bagdad. Þar var handtekinn maður, sem við yf- irheyrslur gaf það, sem Banda- ríkjamenn kalla „hinar endanlegu upplýsingar“. Nýjar aðferðir báru árangur Tikrit. AP, Los Angeles Times. Reuters Kínverskt dagblað með mynd af Saddam, blaðið er í reiðhjólskörfu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.