Morgunblaðið - 16.12.2003, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 15
COLIN Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, gekkst í
gær undir uppskurð vegna
krabbameins í
blöðruháls-
kirtli. Richard
Boucher, tals-
maður utan-
ríkisráðuneyt-
isins, skýrði
frá þessu í yf-
irlýsingu.
Boucher sagði
að dregið yrði
úr skyldustörfum Powells á
meðan hann væri að ná sér eftir
uppskurðinn. Mun Richard
Armitage aðstoðarutanríkis-
ráðherra stýra ráðuneytinu í
fjarveru Powells. Ekki er ljóst
hvenær það uppgötvaðist að
ráðherrann væri með krabba-
mein.
Kosið í tyrk-
neska hluta
Kýpur
STJÓRNARKREPPA blasir
við í tyrkneska hluta Kýpur eft-
ir að tvær fylkingar fengu ná-
kvæmlega jafnmarga þing-
menn kjörna í kosningum sem
fóru fram um helgina. Þjóðern-
issinnar, sem styðja Rauf
Denktash forseta, fengu 25
þingmenn en stjórnarandstað-
an sömuleiðis. Sagði Denktash
að boðað yrði til kosninga að
nýju eftir tvo mánuði ef þinginu
mistækist að mynda nýja rík-
isstjórn. Denktash sagði úrslit
kosninganna engu breyta um
möguleikana á því að friðarvið-
ræður milli tyrkneska hluta
eyjunnar og þess gríska hefjist
að nýju.
Tilræði við
Musharraf
MIKILL viðbúnaður var í Pak-
istan í gær eftir morðtilræði við
Pervez Mus-
harraf, forseta
landsins, á
sunnudag. Ör-
yggisgæsla
var aukin til
muna og þá
hófu yfirvöld
umfangsmikla
leit að tilræð-
ismönnunum.
Musharraf slapp naumlega á
lífi þegar sprengjur lögðu í rúst
brú í Rawalpindi, ekki langt frá
Islamabad. Var bifreið forset-
ans nýkomin yfir brúna þegar
sprengjurnar sprungu. Mus-
harraf kenndi sjálfur íslömsk-
um öfgamönnum um tilræðið
og sagðist lengi hafa verið skot-
mark slíkra manna.
Borað eftir
olíu í
Barentshafi
NORSKA ríkisstjórnin gaf í
gær grænt ljós á að hafnar yrðu
tilraunaboranir í Barentshaf-
inu en grunur leikur á að þar
kunni að finnast olía. Stjórn-
völd í Ósló veittu hins vegar
ekki heimild fyrir sambæri-
legum borunum í nágrenni
Lófóten. Óttast menn að slíkar
boranir kynnu að hafa slæm
áhrif á fiskistofna við Lófóten
og á vistkerfið í heild sinni.
STUTT
Powell
undir
hnífinn
Colin Powell
Musharraf
AZERAR fylgdu Heidar Aliev, fyrr-
verandi forseta Azerbaídjans, til
grafar í höfuðborginni Baku í gær.
Ríkti mikil sorg meðal viðstaddra
en Aliev, sem lést á föstudag, var
áttræður að aldri.
Heidar Aliev var fyrrverandi
embættismaður í sovésku leyni-
þjónustunni, KGB, og stjórnaði
Azerbaídjan meðan það var hluti af
Sovétríkjunum. Hann varð síðan
forseti Azerbaídjans þegar ríkið
varð sjálfstætt árið 1993. Fyrr á
þessu ári tók heilsa Alievs hins veg-
ar að bresta og tók sonur hans,
Ilham Aliev, þá við forsetaembætt-
inu.
Aliev
syrgður
AP