Morgunblaðið - 16.12.2003, Blaðsíða 28
LISTIR
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
JULIAN Hewlett, organisti Kópa-
vogskirkju, hefur fengist við að semja
orgelverk og kórverk til flutnings við
hin ýmsu tækifæri í kirkjunni. Org-
elverkunum hefur hann nú safnað
saman og raðað í fjórar Orgelsvítur
sem hann kynnti á orgeltónleikum
sínum í Kópavogskirkju. Tónleikarn-
ir hófust á hátíðarmarsi Festival
march sem saminn er í júlí 1994 og
frumfluttur í júlí sama ár. Marsinn er
lokaþáttur fyrstu svítunnar, glaður
og bjartur og vel leikinn.
Orgelsvíta nr. 2 (Áramótasvíta) er
eins og nafnið bendir til röð áramóta-
verka og er í fimm þáttum. 1) Gaml-
árskvöld 1997 (samið og frumflutt
31.12. 1997). Ljómandi lokatónlist á
gamlárskvöld. 2) Guð er minn Guð
(1995) frumflutningur. 3) Millenium
march saminn og frumfluttur (31.12.
1999. 4) Sálmur 162 (1995) frumflutn-
ingur, falleg lítil sálmahugleiðing
leikin á veiku registri (gömbu), 5)
Unglingamars (1994–2000) frum-
flutningur. Athyglisvert og gáska-
fullt verk. Orgelsvíta nr. 3: Hátíðar-
svíta (Kópavogssvíta) er einnig fimm
þátta. 1) Hátíð 1 (2001) frumflutning-
ur. Glæsilegt verk á hátíðarstund. 2)
Helgistund (2001) frumflutningur.
Blítt verk sem minnir á fallegan
spuna, hér hefði mátt nota milda „ali-
quótarödd“ t.d. Nazard 2 2/3 í sóló til
að ná fram fleiri litbrigðum og mýkt.
3) Hátíð 2 samin og frumflutt 2001.
Stórglæsileg fransk-inspireruð tokk-
ata. 4) Offertory (2000) frumflutning-
ur. Friðsælt fórnarvers sem hefði
notið sín betur með mýkra raddavali.
5) Kópavogsmars (Hátíð 3) samið
2001 og frumflutt nú. Hefst með ped-
alsóló í Bach stíl, minnir kanski meira
á tokkötu en mars. Hér notar Julian
pedalinn allnokkuð, en hingað til hef-
ur hann að mestu verið notaður sem
bassarödd í hljómum nema í Hátíð 2,
þessi aukna og sjálfstæða pedalnotk-
un lyftir verkinu óneitanlega dálítið.
Orgelsvíta nr. 4: Tilraunasvíta. Þessi
fimm þátta svíta er
ólík hinum, hér er ekk-
ert heildarþema held-
ur eru verkin hvert úr
sinni áttinni e.k. til-
raunir eins og nafnið
bendir til. 1) Celebra-
tions (samið og frum-
flutt 2003). Hátíðlegur
og á köflum dálítið
franskur þáttur. 2) In
memorian (11.09.
2003) frumflutningur.
Hugljúft hugleiðslu-
verk. Því miður eru
flautraddir orgelsins
of líflausar til að þátt-
urinn fengi notið sín.
3) Intermezzo (2003)
frumflutningur. Hér er um eins kon-
ar tokkötu að ræða þar sem heyra má
ýmiss konar stílbrigði. 4) Fjórir dans-
ar (Allegretto, How to practise the
flute, Allegretto/Allegro, Moderado)
(2003) frumflutningur og 5) Chimes
(1999–2003) frumflutningur. Virðu-
legt verk, töluverð notkun pedals.
Á þetta stóru orgeli hefði undirrit-
aður viljað fá meiri fjölbreytni í reg-
istreringu verkanna. Því miður er
röddun eða „intonering“ orgelsins í
Kópavogskirkju af einhverjum
ástæðum mjög líflaus, sérstaklega 8’
„principal“ burðarraddirnar. Þetta
veldur því að „mixtúrplenum“ hljóð-
færisins svo og „principalplenum“ og
fullt verk verður botnlaust og laust
við allan virðuleika og fyllingu.
Julian er vel menntaður píanóleik-
ari og bera mörg verkanna þess
glögg merki. Sum eru mjög strembin
og vel skrifuð fyrir hljómborðin en
frekar auðveld í fótspili. Önnur eru
auðveld og aðgengileg fyrir flesta.
Julian lék þessa tónleika af miklu ör-
yggi og fagmennsku og á þakkir
skildar fyrir framtak sitt.
Nú kemur heimsins
hjálparráð
Hjónin Ólöf Kolbrún Harðardóttir
óperusöngkona og Jón Stefánsson,
organisti Langholtskirkju í Reykja-
vík, eiga bæði 40 ára starfsafmæli um
þessar mundir. Þetta er kannski ekki
svo merkilegt í sjálfu sér, en það sem
gerir þetta athyglisvert er að þau
hafa unnið saman í sama söfnuði í
þessi 40 ár. Á þessum árum hafa þau
unnið mikið saman í kórstarfinu, Jón
sem söngstjóri og Ólöf sem kór-
söngvari, raddþjálfari og einsöngv-
ari. Þau hafa því unnið mjög náið
saman, en alltaf með hóp af fólki í
kring um sig. „Nú var loksins kominn
tími til að gera eitthvað saman, bara
við tvö ein,“ er haft eftir þeim hjónum
í fréttatilkynningu og eru það orð að
sönnu og verður vonandi framhald á.
Tónleikarnir hófust á þremur
sönglögum úr Mörike-ljóðunum eftir
Hugo Wolf (1860–1903). Hugo Wolf
samdi hvorki meira né minna en 53
sönglög við ljóð eftir Eudard Mörike
(1804–1875). Því hefur verið haldið
fram að hann hafi náð einna bestu
sambandi við ljóð Mörike af þeim tón-
skáldum sem reynt hafa og jafnframt
að þessi lög séu bestu sönglög Wolfs.
Ólöf söng Schlafendes Jesukind (Sof-
andi Jesúbarn), Karwoche (Kyrra-
vika) og Gebet (Bæn). Þessi lög eru
hvert öðru fegurra og voru fallega
túlkuð af þeim hjónum. Miðlagið var
nokkuð djúpt fyrir Ólöfu en var sér-
lega vel sungið á veika registrinu.
Jón lék sálmforleikinn Nun komm,
der Heiden Heiland (Nú kemur heið-
inna hjálparráð) úr Litlu orgelbók-
inni eftir meistara Bach (1685–1750)
og Ólöf söng síðan á þýsku nokkur er-
indi úr sálminum. Því næst lék Jón
þrjá orgelkórala yfir sama lag BWV
559, 560 og 561. Þetta eru þrjár gjör-
ólíkar útsetningar á sama sálmalagi
sem Jón lék af öryggi og með fjöl-
breyttri registreringu. Sérstaklega
vil ég nefna fallegt óbósóló í BWV 559
og vel mótaðar og undirbúnar inn-
komur laglínunnar í BWV 561.
Þjóðverjinn Peter Cornelius
(1824–1874) var afkastamikið tón-
skáld, samdi mörg sönglög, óperur,
messur, sálumessur og fleira. Jóla-
ljóðin (Weihnachtslieder) op. 8 nr. 2
(3) sem Ólöf söng næst samdi hann
1856 en umsamdi nokkrum sinnum,
síðast 1870. Þessi lagaflokkur sam-
anstendur af 6 jólalögum, Christ-
baum (Jólatré), Die Hirten (Hirðarn-
ir), Die Könige (Vitringarnir),
Simeon, Christus der Kinderfreund
(Kristur, barnavinurinn) og Christ-
kind (Jesúbarnið). Lögin voru vel
flutt en textinn var ekki eins skýr og í
lögum Wolfs. Undirritaður saknaði
aðeins meiri róar og friðar í Vitring-
unum, sérstaklega í niðurlaginu. Org-
elið var mjög fallegt í Barnavininum
og síðasta lagið var virkilega glæsi-
lega flutt af Ólöfu og Jóni sem greini-
lega eru bæði í fínu formi þessa dag-
ana.
Jól, jól, skínandi skær
Það voru vel syngjandi drengir á
öllum aldri sem hófu upp raust sína í
Hallgrímskirkju á laugardagskvöld-
ið. Karlakór Reykjavíkur hélt jóla-
tónleika og bauð með sér drengjakór
Neskirkju sem setti heldur betur
svip sinn á tónleikana ásamt ein-
söngvurum og hljóðfæraleikurum.
Kórarnir voru staðsettir á söngpöll-
um í vesturendanum undir orgelinu.
Eftir að karlakórinn hafði gengið á
pallana fallega syngjandi ítalska lof-
sönginn til heilagrar þrenningar Alta
trinita beata söng hann Miskunnar-
bæn (Kyrie) eftir Konstantin
Türnpu. Agnus Dei og Domine eftir
August Söderman fylgdu á eftir og
voru tenórarnir aðeins undir tóni og
úr fókus við orgelið í veiku köflunum
en hífðu sig upp þegar þeir tóku á.
Þetta var dálítið áberandi fyrst en
hvarf þegar líða tók á tónleikana.
Messuþættirnir Kyrie og Agnus Dei
eftir Petr Eben voru vel fluttir með
fallegu ákalli um miskunn og glæsi-
legum orgelleik Lenku. Gunnar Guð-
björnsson söng ágætlega Panis an-
gelicus (Brauðið frá himninum) en
kórinn var frekar daufur með óskýr-
an texta, en annars var textinn yf-
irleitt mjög skýr hjá kórnum. Friður
á jörðu var mjög vel flutt af Gunnari,
Kórnum og Herði og mikill friður og
ró yfir flutningnum. Aðfangadags-
kvöld jóla var sömuleiðis mjög gott.
Jólasálmarnir Einu sinni í ættborg
Davíðs og Gleðifregn hljómuðu síðan
fallega í samsöng beggja kóranna
með orgelleik Lenku og einsöng
Gunnars í þeim síðari.
Ísak Ríkharðsson er mjög ungur
að árum og með tæra og tandur-
hreina sópranrödd. Hann söng glæsi-
lega og af öryggi bænarþáttinn Pie
Jesu úr sálumessu Gabriels Fauré
við orgelleik Lenku. Drengjakórinn
söng síðan hreint og fallega jólasálm-
inn Gleðifréttir. Karlakórinn söng þá
Jól, jól, skínandi skær, Það aldin út er
sprungið og Syng barna hjörð. Það
síðasta með glæsilegum orgelleik
Harðar Áskelssonar. Jólasálminn
Fögur er foldin söng karlakórinn
næst ásamt tónleikagestum í fallegri
útsetningu fyrir orgel, tvo trompeta,
kór og söfnuð. Útsetjara var ekki get-
ið í söngskrá. Því næst söng Gunnar
Guðbjörnsson stórglæsilega Ó, helga
nótt ásamt kórnum við undirleik
Harðar. Tónleikunum lauk síðan á að
báðir kórarnir ásamt tónleikagestum
sungu saman Nú gjaldi Guði þökk
með orgeli og trompetum sem léku
trompetraddir eftir Róbert A. Ott-
ósson.
Karlakórinn var góður nema í Pan-
is angelicus og átti oft mjög góða
spretti t.d. í Aðfangadagskvöldi
Kaldalóns, Lögum Ebens og Syng
barna hjörð. Gunnar Guðbjörnsson
fór á kostum í Helgu nóttinni.
Drengjakórinn og Ísak skiluðu sínu
vel. Lenka Mátéová og Hörður Ás-
kelsson stóðu að venju vel fyrir sínu á
orgelið og sama gerðu Ásgeir H.
Steingrímsson og Eiríkur Örn Páls-
son á trompetana. Friðrik Kristins-
son leiddi sitt fólk í gegnum tón-
leikana af festu og öryggi.
Leikið og sungið á aðventunni
Morgunblaðið/Kristinn„Karlakór Reykjavíkur var góður nema í Panis angelicus og átti oft mjög góða spretti t.d. í Aðfangadagskvöldi Kaldalóns.“
Jón
Stefánsson
Ólöf Kolbrún
Harðardóttir
Jón Ólafur Sigurðsson
TÓNLIST
Kópavogskirkja
ORGELTÓNLEIKAR
Julian Hewlett orgelleikari leikur og frum-
flytur eigin orgelverk. Fimmtudagurinn
11. desember 2003 kl. 20.
Langholtskirkja
EINSÖNGS- OG ORGELTÓNLEIKAR
Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópran og Jón
Stefánsson orgelleikari flytja verk eftir
Hugo Wolf, J.S. Bach og Peter Cornelius.
Laugardagurinn 13. desember 2003 kl.
17.
Hallgrímskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Karlakór Reykjavíkur. Drengjakór Nes-
kirkju. Gunnar Guðbjörnsson tenór. Ísak
Ríkharðsson drengjasópran. Orgelleik-
arar Hörður Áskelsson og Lenka Má-
téová. Trompetleikarar Ásgeir H. Stein-
grímsson og Eiríkur Örn Pálsson.
Stjórnandi Friðrik S. Kristinsson. Flutt
aðventu- og jólalög. Laugardagurinn 13.
desember 2003 kl. 21.
Listasafn Íslands kl. 12.10–12.40
Harpa Þórsdóttir, listfræðingur og
deildarstjóri sýningardeildar safns-
ins, verður með leiðsögn um sýn-
inguna Raunsæi og veruleiki – Ís-
lensk myndlist 1960–1980.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Lög um rafræna
stjórnsýslu ásamt
greinargerð nefn-
ist rit sem forsæt-
isráðuneytið gefur
út.
Með lögum nr.
51/2003, um
breytingu á stjórn-
sýslulögum nr.
37/1993, var aukið við þau nýjum IX.
kafla undir heitinu Rafræn meðferð
stjórnsýslumála. Markmið þessara
lagabreytinga er að gera rafræna
stjórnsýsluhætti jafngilda hefð-
bundnum starfsháttum stjórnvalda
að uppfylltum þeim lágmarksskil-
yrðum sem lögin setja.
Í riti þessu hefur frumvarpið er varð
að lögum nr. 51/2003 7. apríl verið
fellt í búning handbókar. Fyrst eru birt-
ar almennar athugasemdir við laga-
frumvarpið, en þar fyrir aftan koma
lagagreinarnar í hinum nýja IX. kafla
stjórnsýslulaga ásamt viðeigandi
skýringum á eftir hverri grein um sig.
Dreifing: Háskólaútgáfan. Ritið er
57 bls. Verð: 1.590 kr.
Rit
Robertino/Það
allra besta nefnist
ný geislaplata
með söng ítalska
undrabarnsins
Robertino. Hann
kom til Íslands ár-
ið 1961 og söng í
nokkur skipti fyrir
troðfullu húsi í
Austurbæjarbíói. Frægðarsól Robert-
inos reis ótrúlega hratt. Hann breytt-
ist á nokkrum vikum úr götusöngvara
í Rómaborg í einn af vinsælustu
söngvurum heimsins sem fyllti öll
helstu tónleikahúsin. Með perlum
eins og O sole mio, Mama, Torna a
Surriento, Santa Lucia og Ave Maria,
vann hann hug og hjarta heimsbyggð-
arinnar.
Á þessum geisladiski er safnað
saman öllu því besta frá gullárunum
1960–1962. Öll lögin eru stafrænt
hljóðjöfnuð.Þetta mun vera í fyrsta
sinn sem söngvar undrabarnsins
Robertinos eru fáanlegir á Íslandi á
geisladiski.
Útgáfa og dreifing Sonet.
Klassík
Tímarit Félags ís-
lenskra háskóla-
kvenna, 1. tölu-
blað 5. árgangs,
er komið út. Með-
al efnis í þessu
hefti er Orðræða
um mansal eftir
Ásu Guðnýju Ás-
geirsdóttur og
Staða kvenna innan skógræktar í
Nepal eftir Herdísi Friðriksdóttur.
Þá ritar Geirlaug Þorvaldsdóttir, for-
maður félagsins, inngangsspjall en
ásamt henni eru í ritstjórn blaðsins
Elsa Petersen og Inga Ingibjörg Guð-
mundsdóttir.
Auk þess að standa að útgáfu tíma-
ritsins stendur Félag háskólakvenna
fyrir námskeiðum á hverjum vetri og
hafa leikhúsnámskeið félagsins notið
mikilla vinsælda. Námskeiðin eru
þannig byggð upp að þátttakendur sjá
sýningar valinna leiksýninga og gefst
tækifæri til að hlýða á erindi um verk-
in og höfunda þeirra og taka þátt í um-
ræðum við listræna stjórnendur sýn-
inganna um efni verkanna og
hugmyndirnar að baki sýningunum.
Námskeiðin eru öllum opin.
Tímarit