Morgunblaðið - 16.12.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Hanseduo og Sunna
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ocean Tiger
kemur í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Fatamóttaka og
fataúthlutun þriðju-
daga kl. 13–18 og
fimmtudaga kl. 15–18
sími. 867 7251.
Bókatíðindi 2003.
Númer þriðjudagsins
16. desember er
000481.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulíns-
málun. Hársnyrting,
fótaaðgerð. Versl-
unarferð í Kringluna
miðvikud. 17. des. kl.
13. Skráning í s.
562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
11.30 sund, kl. 14–15
dans. Föstud. 19. des.
er dansað í kringum
jólatréð kl. 14. Jóla-
sveininn kemur í heim-
sókn, Elsa Haralds-
dóttir leikur á
harmónikku, súkkulaði
og kökur. Afa- og
ömmubörn velkomin,
skráning á skrifstofu
fyrir fimmtud. 18. des.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðsla, kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
vinnustofa, tréskurður,
postulín, kl. 10–11 leik-
fimi, kl. 12.40 versl-
unarferð, kl. 9–12 hár-
greiðsla, kl.
13.15–13.45 bókabíll.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, frjáls prjóna-
stund, leikfimi kl.
11.30, brids kl. 13, billj-
ard kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Skák kl. 13. Miðvikud:
Göngu-Hrólfar ganga
frá Ásgarði kl. 10.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler- og postu-
línsmálun, kl. 9.05 og
kl. 9.55 leikfimi, kl.
10.50 róleg leikfimi, kl.
14 ganga, kl. 14.45
boccia, kl. 19 brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinna.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín og glerskurður,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13 mynd-
list, línudans og
hárgreiðsla. kl. 15 línu-
dans.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–10 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaað-
gerðir virka daga, hár-
snyrting þriðju- og
föstudaga. Kl. 13.30
Jólahelgistund, Helgi
Daníelsson fyrrv. lög-
reglumaður og fót-
boltakappi, núverandi
eldri borgari, kemur í
heimsókn.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
skinnasaumur, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulín, kl.
10.15–11. 45 enska, 13–
16 spilað og bútasaum-
ur.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og leik-
fimi, kl. 13 handmennt
og postulín, kl. 14 fé-
lagsvist.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13–16 keramik, tau-
málun, almennt fönd-
ur, kl. 15 bókabíllinn.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Kvenfélagið Seltjörn
heldur jólafund þriðju-
daginn 16 des. kl. 20.30
í félagsheimili Sel-
tjarnarness.
Í dag er þriðjudagur 16. desem-
ber, 350. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Eitt sinn voruð þér
myrkur, en nú eruð þér ljós í
Drottni. Hegðið yður eins
og börn ljóssins.
(Efes. 5, 8.)
Sverrir Jakobssonfjallar um handtöku
Saddams Husseins á vef-
ritinu Múrnum.
„Æðstu menn þeirra
þjóða sem hófu árás-
arstríð gegn Írak í vor,
þeir George Bush og Tony
Blair, munu nota [hand-
tökuna] til hlítar í áróð-
ursstríði sínu til að verja
stríðið og hernám Íraks í
kjölfarið. Ekki þarf að
efast um að klapplið
þeirra á Íslandi er í start-
holunum, líkt og svipuð
klapplið um allan heim,“
skrifar Sverrir. „Hand-
taka Saddams Husseins
breytir hins vegar engu
um réttmæti stríðsins.
Hún breytir því ekki að
það var tilefnislaust og
brot á alþjóðalögum. Eng-
inn þeirra þúsunda Íraka
sem hafa fallið frá því að
þetta stríð hófst verður
vakinn til lífsins vegna
hennar. Drengurinn sem
missti fæturna í loft-
árásum Bandaríkjanna
fær ekki fjölskyldu sína
aftur.
Bandarísku hermenn-irnir sem fallið hafa í
Írak frá því í mars eru
jafndauðir og áður.
Bandaríska hernáms-
stjórnin vonast til að því
mannfalli ljúki með hand-
töku Saddams Husseins.
Trúlegra er þó að nú loks-
ins komi sannleikurinn í
ljós, að árásir á banda-
ríska hernámsliðið eru
ekki skipulagðar af örfá-
um mönnum. Hverjum
munu Bandaríkjamenn og
Bretar nú geta kennt um,
ef hryðjuverkaárásir
halda áfram?
Handtaka SaddamsHusseins breytir ekki
þeirri staðreynd að það
voru sömu þjóðir og nú
hafa handtekið Saddam
Hussein sem styrktu hann
til vopnakaupa og efldu til
árása á Íran. Þær þjóðir
bera sína ábyrgð á gríð-
arlegu mannfalli í átta ára
styrjöld, 1980–1988. Hins
vegar vekur hún veika
von, um að Saddam Huss-
ein verði leiddur fyrir
rétt. Þá mun hann geta
skýrt frá sannleikanum
um þessa bandamenn sína.
Ólíklegt er þó að hernáms-
stjórnin muni leyfa svipuð
réttarhöld og nú eru hald-
in yfir Slobodan Milosevic
í Haag. Ríkisstjórnir
Bandaríkjanna og Bret-
lands mega ekki við slík-
um álitshnekki. Einmitt
þess vegna er brýnt að
krefjast nú opinna og
heiðarlega réttarhalda yf-
ir Saddam Hussein.
Bandaríska herstjórninhefur viðurkennt að
hún hafi náð Saddam
Hussein lífs og að hann sé
við góða heilsu. Í því felst
tækifæri til að fá nú fram
sannleikann. Það verður
ekki gert á meðan hann er
í höndum hernámsliðsins.
Einungis óháðir aðilar
geta gert slíkt. Þjóðir
heimsins mega ekki leyfa
þeim Bush og Blair að
meðhöndla Saddam Huss-
ein eins og stríðsfangana
sem haldið er með ólög-
mætum hætti í Guant-
anamo. Of mikið er í húfi
til þess,“ skrifar Sverrir.
STAKSTEINAR
Saddam og réttarhöldin
Eymdin í Reykjavík
LENGI hefur umræða
staðið um bága stöðu al-
þýðufólks í Reykjavík, lág-
ar tekjur, dýrt húsnæði og
nú hefur atvinnuleysi bæst
við. Niðurstöðuna má kalla
lýsingu á eymd. Ráðamenn
hlusta aldrei á þessa um-
ræðu, hvað þá taka þeir
mark á henni, en tala því
meira um góðæri.
Hverskonar mannskap
láta flokkarnir stjórna í
sínu nafni? Ein undantekn-
ing sker sig úr. Forseti Ís-
lands kynnti sér vandann
og hefur í annað sinn talað
um ástandið svo eftir er
tekið. Ég hef ekki séð hon-
um þakkað og geri það því
hér með. Harpa Njáls gerði
fyrir nokkrum árum viða-
mikla könnun á þessu og
birti niðurstöðuna í vand-
aðri skýrslu. Vandinn er þó
enn stærri en þar kemur
fram því þar vantar eina
meginástæðuna, þ.e. skuld-
irnar. Svo eigum við Evr-
ópumet í gjaldþrotum.
Annað frávik frá dauðum
vana er kjarabarátta ör-
yrkja fyrir dómstólum. Frá
því Garðar Sverrisson varð
form. ÖBÍ hefur kjarabar-
átta öryrkja eflst mjög. Sl.
vetur handsalaði Garðar
samkomulag við Jón Krist-
jánsson ráðherra um 1
milljarð kr. til öryrkja.
Þetta eru heiðarlegir menn
og töldu handsalið nægja.
Eins og oft í kjarasamning-
um gleymdu þeir skattin-
um. Til að standa við hand-
salið þurfti tæpan einn og
hálfan milljarð kr. Af því
hefði hálfur milljarður orð-
ið eftir sem staðgreiðsla
skatta. Sagði forsætisráð-
herra ekki í vor að hægt
væri að lækka hér skatta
um ca. 20 milljarða kr.
Hvaða skatta? Alþýðan fær
engar kjarabætur nema
skattfrelsismörk verði
lækkuð.
Jón Kjartansson
frá Pálmholti.
Gulrótarhlaup
ER ekki einhver sem á
uppskrift að gulrótarhlaupi
og vill miðla öðrum af þekk-
ingu sinni? Ef svo er, vin-
samlega hafðu samband við
Eddu í síma 553 8143.
Sjómannaafsláttur
VAR ekki sjómannaafslátt-
urinn upphaflega veittur
sem áhættuþóknun í ófrið-
inum mikla? Ekki veit ég til
þess að það sé hætta á því
að íslenskum fiskiskipum
sé sökkt á þessum síðustu
og verstu tímum.
Bergur.
Tapað/fundið
Veskisbudda týndist
RAUÐ veskisbudda með
peningum og strætómiðum
í týndist við Grímsbæ eða í
Brúnalandi í Fossvogi.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 553 8688 Góð
fundarlaun.
Lyklar fundust
TVEIR lyklar í dökkbrúnu
lyklaveski fundust á göngu-
stíg við Réttarbakka og
Staðarbakka fimmtudag-
inn 11. des. Upplýsingar í
síma 557 3399 og 694 8507.
Dýrahald
Tara er týnd
TARA fór að heiman sl.
föstudag og varð fyrir bíl
um áttaleytið um kvöldið og
hljóp í burtu. Sást hún í
grennd við Smáraskóla um
kl. 1 á laugardag en hefur
ekki fundist síðan. Tara
virtist slösuð á fæti. Tara er
blendingur af íslensku kyni
og collie og er mjög blíð og
mannblendin. Hennar er
sárt saknað. Fólk er vin-
samlegast beðið að athuga í
görðum sínum í Smárahvefi
í Kópavogi og hringja í
síma 554 6352.
Kisan okkar er týnd
HÚN hvarf að heiman frá
sér þriðjudaginn 9. des. í
Glaðheimum og hefur ekki
sést síðan. Hún er hvít og
bröndótt og var með svart-
an taum festan við sig, hún
er mjög gæf. Þeir sem hafa
orðið hennar varir hafi
samband í síma 553 6264
eða 699 6264.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
LÁRÉTT
1 þekking, 8 áköf, 9 tré,
10 sótthreinsunarefni, 11
mál, 13 út, 15 hestur, 18
smávegis bólga, 21 stillt-
ur, 22 jarða, 23 gróða, 24
tíbrá.
LÓÐRÉTT
2 starfið, 3 afkomenda, 4
kona Njarðar, 5 land, 6 til
sölu, 7 Ísland, 12 fugl, 14
þegar, 15 beitiland, 16
beindi að, 17 ólifnaður,
18 sterka löngunin, 19
klampana, 20 straum-
kastið.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 tjald, 4 fátæk, 7 sumar, 8 óarga, 9 tóm, 11
Anna, 13 fans, 14 gleði, 15 ráma, 17 stál, 20 ótt, 22 fælir,
23 ósatt, 24 rimma, 25 fuðra.
Lóðrétt: 1 tíska, 2 auman, 3 durt, 4 fróm, 5 tarfa, 6
krans, 10 óbeit, 12 aga, 13 fis,
15 refur, 16 mælum, 18 trauð, 19 létta, 20 óróa, 21 tólf.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
Víkverji er einn af þeim fjöl-mörgu sem nýta sér eitt
merkasta samgöngumannvirki
landsins, Hvalfjarðargöngin.
Og það nánast daglega á leið
sinni úr og í vinnu. Vissulega
fylgir því kostnaður og getur
Víkverji átt von á því að greiða
fyrir afnot sín af mannvirkinu
næstu árin – allt fram til ársins
2018.
x x x
Það sem að vekur hins vegarathygli er að Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra sagði í
ræðu sinni á Alþingi í byrjun desem-
ber að ef ætlunin væri að halda
áfram uppbyggingu samgöngu-
kerfisins hér á landi með sama hraða
og hingað til á næstu árum verði að
halda opnum möguleikum á sér-
stakri fjármögnun verkefna sem
rúmast ekki í samgönguáætlun.
x x x
Þar nefnir Sturla m.a. Sundabrautog áform um brýr og jarðgöng
eru dæmi um stór verkefni sem
rúmast ekki með viðunandi hætti
innan núverandi tekjumöguleika
samgönguáætlunar. Ráðherra segir
að mannvirki á borð við Sundabraut
þurfi jafnvel að reisa með einka-
fjármögnunarforminu.
x x x
Víkverja líst illa á að slík fram-kvæmd verði fjármögnuð með
sama sniði og Hvalfjarðargöngin.
Enda greiða margir sem sækja
vinnu frá Vesturlandi og á höf-
uðborgarsvæðið allt að 180 þúsund
kr. á ári í vegtoll. Eflaust yrði gjald-
ið yfir Sundabrautina lægra en í
Hvalfjarðargöngin en íbúum á Vest-
urlandi þykir eflaust nóg komið þeg-
ar búið verður að greiða upp
lánin vegna Hvalfjarðargang-
anna árið 2018.
x x x
Aðeins eitt samgöngu-mannvirki hefur verið
fjármagnað af einkafyrirtæki
til þessa með þeim hætti sem
gert var með stofnun Spalar.
Þeir sem fara daglega á milli
staða til vinnu og nota t.a.m.
Reykjanesbrautina eða veginn
um Hellisheiði greiða ekki
vegtolla á sinni leið og er Vík-
verji í þeim hópi sem telur að sú
gjaldheimta sem á sér stað í Hval-
fjarðargöngunum sé óréttlát.
x x x
Að auki fá þeir sem sækja þurfa
vinnu um langan veg ekki skatta-
afslátt af þeim kostnaði sem hlýst af
því að sækja vinnu. Slíkt fyr-
irkomulag er til staðar á Norð-
urlöndunum. Einnig er sá kostur að
eiga og reka bifreið með dísilvél enn
skammt á veg kominn og verður
spennandi að sjá hvaða breytingar
verða á þungaskattslöggjöfinni á Al-
þingi á næstu misserum.
Morgunblaðið/Sverrir