Morgunblaðið - 16.12.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 16.12.2003, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR 52 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ bílar Áskrifendum Morgunbla›sins b‡›st smáaugl‡sing í bla›inu Bílar fyrir a›eins 995 kr. Fólkið sem þú vilt ná til les sama blað og þú! Ertu a› hugsa um a› selja bílinn flinn? Far›u árangursríkustu lei›ina og augl‡stu hann í bla›inu Bílar. Pantanafrestur er til kl. 12 á flri›judögum. Panta›u núna í síma 569 1111 e›a sendu tölvupóst á augl@mbl.is -alltaf á miðvikudögum  CHELSEA hefur áfrýjað úrskurði aganefndar enska knattspyrnusam- bandsins sem dæmdi á dögunum miðvallarleikmann liðsins, Joe Cole, í tveggja leikja bann vegna atviks sem átti sér stað á síðustu leiktíð þegar hann var liðsmaður West Ham. Cole missti stjórn á skapi sínu og lenti í ryskingum við leikmann Bolton á leið til búningsherberja.  COLE getur því tekið þátt í leikj- um Chelsea við Charlton og Portsmouth í jólatörninni því mál hans verður ekki tekið fyrir að nýju fyrr en á nýju ári. Paul Smith, stjórnarformaður Chelsea, segir að atvik sem átti sér stað fyrir 230 dög- um þegar Cole var leikmaður í öðru liði eigi ekki að bitna á Chelsea og því hafi verið tekin ákvörðun um að áfrýja úrskurðinum.  ARSENE Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, er sannkallaður fót- boltafíkill. Wenger segir í viðali við BBC að eftir leik á laugardegi fari hann til síns heima og horfi á fótbolta í sjónvarpinu til miðnættis. „Laug- ardagskvöldin hjá mér fara í að horfa á fótbolta á skjánum. Fyrst fylgist ég með leik úr frönsku deild- inni, síðan þeirri spænsku og í lokin skipti ég yfir á þáttinn „Leikur dags- ins“. Eftir þetta horfi ég gjarnan á eina mynd enda erfitt að sofna eftir allan fótboltann,“ segir Wenger, sem þekkir knattspyrnumenn, sem leika með ótrúlegustu liðum víðs vegar um heim, með nöfnum.  FRIÐRIK Ragnarsson, þjálfari úrvalsdeildarliðs Njarðvíkur í körfu- knattleik, tók fram skóna á nýju um helgina er liðið sótti Hött heim á Eg- ilsstaði. Aðeins átta leikmenn úr Njarðvík fóru í ferðina austur og var Friðrik níundi maður á leikskýrslu. Njarðvík vann örugglega, 111:82. FÓLK Gaute Larsen, þjálfari Stabæk,segir við Nettavisen að Helgi sé gamall „fjölskyldvinur“ í Stabæk og æfi með liðinu til þess að halda sér í góðu líkamlegu ástandi enda sé hann að leita sér að liði til þess að semja við. Við vitum að hann er betri en hann hefur sýnt undanfarin ár og við erum að skoða þann mögu- leika að hann gangi til liðs við okkur á ný, bætir Larsen við. „Ég er bara að halda mér í formi. Það eru engar æfingar hjá Lyn svo ég fékk leyfi til að mæta á æfingar hjá Stabæk,“ sagði Helgi í samtali við Morgunblaðið í gær. Spurður hvort hann útilokaði að ganga í raðir Stabæk á nýjan leik sagði Helgi: „Nei það geri ég ekki. Ef ekkert annað kemur upp og Sta- bæk vill fá mig þá getur alveg farið svo að ég spili með liðinu aftur. Ef ég verð áfram í Noregi þá er Sta- bæk líklegasti kosturinn og ég get raunar ekki séð mig spila með öðru norsku liði en Stabæk. Ég fann þeg- ar ég mætti til félagsins að nýju hvað gott er að vera þar og ólíku við að jafna og hjá Lyn. Hugsunin hjá mér er að reyna komast til liðs utan Noregs. Það er hins vegar rólegt á leikmannamarkaðnum núna en ég reikna með því að það fari allt á fullt í janúar og þá gæti eitthvað gerst í mínum málum,“ sagði Helgi. Helgi skoraði sjö mörk fyrir Sta- bæk í 20 leikjum árið 1998 en árið eftir skoraði hann 14 mörk í 18 leikj- um og var í kjölfarið seldur til gríska liðsins Panathinaikos. Sta- bæk er á höttunum eftir framherja og vinstri vængmanni fyrir næstu leiktíð en Tryggvi Guðmundsson sem hefur verið í herbúðum liðsins undanfarin ár hefur ákveðið að yf- irgefa Stabæk og leita fyrir sér á öðrum vígstöðvum. Eins og komið hefur fram áður er Veigar Páll Gunnarsson með tilboð í höndunum frá Stabæk. HELGI Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, gæti eftir allt saman skipt á nýjan leik yfir til norska úrvalsdeildarliðsins Stabæk en norski vefmiðillinn Nettavisen greinir frá því að hinn íslenski Helgi Sigurðsson æfi þessa dagana með Stabæk sem hann lék með á árunum 1998–1999. Helgi var í herbúðum norska liðsins Lyn frá Osló en náði sér ekki á strik á leiktíðinni og hefur hann ákveðið að yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út um áramótin. Morgunblaðið/Kristinn Helgi Sigurðsson (t.h.) og Rúnar Kristinsson í landsleik. Helgi á ný til liðs við Stabæk?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.