Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 36
LISTIR 36 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í KYNNINGU á Vegurinn brenn- ur hefur nokkuð verið gert úr því að fléttan sé flókin, að tengsl söguper- sónanna séu samansúrruð og erfitt að koma orðum yfir hve margvísleg þau eru. Og vissulega er farsalykt af grunnstöðunni. Bæjarstjóri með allt á hælunum og dóttir hans sem elsk- ar kærustu eiturlyfjafíkilsins bróð- ursonar síns meðan kona hans og bróðir gefa hvort öðru auga. Fyrir nú utan peningana: hver á þá, hver þarf þá og hver er tilbúinn að gera hvað fyrir þá. En Vegurinn brennur er ekki farsi og fléttunni er fyrst og fremst ætlað það hlutverk að stilla upp ólíkum að- stæðum þar sem hægt er að skoða samskipti, tjáskipti og valdatafl per- sónanna. Flókin tengslin skila síðan þéttriðnu neti af skoðunum, við- brögðum og fjölbreyttri afstöðu. Stíll verksins virðist mér vera nokkurs konar upphafinn natúral- ismi, skerptar myndir af venjulegu fólki, þar sem athyglin beinist eink- um að takmarkalítilli einstaklings- hyggju, skeytingarleysi um náung- ann og vangetu til að skynja tilfinningar hans, nema í leit að höggstað. Vitaskuld þrífst engin ást í þessu umhverfi, hvorki rómantísk ást né milli foreldra og barna. Einn af styrkleikum Vegarins er að þó höfundi sé augljóslega mikið niðri fyrir þá hefur hann það vald á sínum miðli að persónurnar verða aldrei málpípur. Þó þær séu allar haldnar predikunarþörf, mismikilli samt, er alltaf ljóst að þar eru á ferð- inni þeirra eigin tilraunir til að höndla veruleikann, koma honum í orð, lýsa honum á þann hátt sem þær halda að komi sér best. En veruleik- inn smýgur einatt undan orðum þeirra eins og sápustykki úr blaut- um höndum. Bjarni Jónsson er hins vegar ekki að skrifa lýsingu á veru- leikanum, hann er ekki í kenning- arsmíði. Bjarni er ekki eiturfíkillinn Sigurður, sem í atriði sem verður að teljast byggingarlegur hápunktur verksins lýsir stóru kvikmyndahug- myndinni sinni sem reynist ekki annað en allsendis innihaldslaus fantasía hans um allsherjarlausn og almannahylli. Bjarni býður eins og vera ber upp á ríkulegt innihald en enga lausn. Hvort það er vænlegt til almannahylli skal ósagt látið. Heppnast þetta? Að mörgu leyti. Bjarni hefur næmt eyra og mörg samtölin eru miskunnarlaus endur- gerð á nútíma samskiptaháttum. Persónurnar eru þrívíðar og fá allar sitt pláss í byggingu verksins. Fyrir nú utan hve nauðsynlegt og tíma- bært var að skrifa einmitt svona leikrit um þessa athyglisverðu sam- tíð okkar. Á hinn bóginn verður að segjast að verkið heldur ekki óskertri at- hygli allan tímann. Það er Akkiles- arhæll natúralismans að stundum er veruleikinn ekki nógu viðburðaríkur eða áhugaverður, flatneskjan of flöt. Og þegar Bjarni grípur til sterkari meðala til að hrista upp í áhorfend- um sínum; kúks og piss, sifjaspella, nauðgunar og sjálfsmorðstilraunar, er ekki laust við að manni finnist púðrið hafa blotnað. Hroðalegasta senan held ég að sé þegar faðir gerir kæruleysislegt grín að einlægum hugmyndum sonar síns, sem er á batavegi eftir sjálfsvígstilraun, að því er virðist til að ganga í augun á mágkonu sinni sem hann girnist. Þarna er trúverðugum og mér liggur við að segja hversdagslegum að- stæðum snúið upp í ófyrirsjáanlega martröð. En þegar áhorfandinn hef- ur á tilfinningunni að nú eigi vísvit- andi að ganga fram af honum þá slekkur hann á afruglaranum. Sviðsetning Viðars Eggertssonar er eins og vera ber næsta látlaus, er einkum ætlað að bera þetta nýja leikrit og hugmyndir höfundar á borð. Reyndar krefst verkið kannski sjálfstæðari vinnubragða en mörg handrit, og sviðsetningin ber þess merki. Þannig eru persónurnar iðu- lega sýnilegar þó þær séu ekki við- staddar þá framvindu sem textinn segir til um. Sviðsmyndin er einnig af táknræna taginu, kuldaleg og frá- hrindandi biðstofa eða sjoppa gegnir hlutverki heimila bræðranna, skrif- stofu annars þeirra og annarra leik- svæða. Þegar vel er að gáð má þó sjá helstu grunnatriði heimilis á þessum ópersónulega stað. Þarna er djú- skælir sem vísar til eldhúss, og bak- sviðs glittir í bekk sem leiðir hugann að sturtuklefa, eða baðherbergi. Kannski er þarna komin sú „nær- ingar- og tæmingarstöð mitt á mal- bikinu“, sem Pétur Gunnarsson kall- ar nútíma heimili einhvers staðar í Andrabókunum. Lýsing Páls Ragn- arssonar er einnig hörð og kuldaleg, en vel hefði ég komist af án meló- dramatískra ljósabreytinga í tilefni af fyrrnefndum nauðgunum og sjálfsvígstilraunum. Ólafur Darri Ólafsson er hinn rót- lausi og ógæfusami Sigurður og læt- ur betur að sýna hinn misheppnaða listamann en siðblindan fíkil. Faðir hans, ráðgjafinn Kristján er leikinn af Hjalta Rögnvaldsyni, sem náði ekki að gera persónunna sérlega áhugaverða, kannski hefði verið vænlegra að ljá Kristjáni meiri myndugleika í framgöngu. Jóhann Sigurðarson er bróðir hans, hinn brottrekni bæjarstjóri Örn, og er firnagóður í þakklátu hlutverki lít- ilsiglds skíthæls. Sérstaka eftirtekt vekja þögul andartök þar sem hugs- anir og ástand Arnar blasir við hverjum áhorfanda í meðförum Jó- hanns. Sigrún kona Jóhanns er leik- in af öryggi og húmor af Guðrúnu S. Gísladóttur. Samleikur hennar og Nönnu Kristínar Magnúsdóttur, sem leikur Hönnu dóttur þeirra, var afar sannur og sterkur. Nönnu Kristínu hef ég ekki séð betri en sem Hönnu, hina yfirborðssjálfsöruggu en skemmdu dóttur Arnar og Sig- rúnar. Arnbjörg Hlíf Valsdóttir er stundum dálítið sérviskuleg leikkona og Inga, unnusta Sigurðar, verður meira spennandi en skýr í meðferð hennar, kannski líka sú persóna sem óræðust er af höfundarins hendi, auk þess utanveltu í fjölskyldunni og utan af landi. Leikhópnum, og þá í leiðinni leikstjóra, ber þó ekki síst að hrósa fyrir fínlegan og nákvæman samleik þar sem tilfinningaboltinn gengur fumlaust frá manni til manns. Vegurinn brennur er greinilega skrifað af væntumþykju þó myndin sem dregin er upp af okkur og sam- félagi okkar sé ekki snotur. Þetta er samfélagsleg ástríðuleikritun af því taginu sem íslensk leikskáld eiga að sinna í meira mæli en þarf þó fyrst og fremst að fá mun meira pláss á verkefnaskrám leikhúsanna. Samtíminn er sápustykki LEIKLIST Þjóðleikhúsið Höfundur: Bjarni Jónsson. Leikstjóri: Við- ar Eggertsson. Lýsing: Páll Ragnarsson. Búningar: Margrét Sigurðardóttir og Þór- unn Sigríður Þorgrímsdóttir. Leikmynd: Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Leik- endur: Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Jóhann Sigurðarson, Nanna Kristín Magn- úsdóttir og Ólafur Darri Ólafsson. Smíða- verkstæðið 9. janúar 2004. VEGURINN BRENNUR Morgunblaðið/Jim Smart Jóhann Sigurðarson er firnagóður í þakklátu hlutverki Arnar og Guðrún Gísladóttir leikur af öryggi og húmor, segir Þorgeir Tryggvason. Ólafi Darra Ólafssyni lætur betur að sýna hinn misheppnaða listamann en siðblindan fíkil. Nanna Kristín Magnúsdóttir og Arn- björg Hlíf Valsdóttir eiga sterkan samleik í hlutverkum sínum. Þorgeir Tryggvason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.