Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 77
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 4, 6.30 og 9.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Frá
framleiðendum
FourWeddings,
Bridget Jones
& Notting Hill
GH. Kvikmyndir.com HJ.MBL
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Stórbrotin og mögnuð kvikmynd
sem enginn Íslendingur má missa af.
HJ. MBL
Kvikmyndir.is
AKUREYRI
kl. 5.40 og 10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3, 5.30 OG 8.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
FRUMSÝNING
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 3.50. Ísl. tal.
Sýnd kl. 2, 4 og 8.15. Enskt. tal.
„ATH!
SÝND
MEÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI“
KRINGLAN
kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal.
AKUREYRI
kl. 2 og 4. Ísl. tal
KEFLAVÍK
kl. 2. Ísl. tal
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2. Ísl. tal
ÓHT. Rás2
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
MEG RYAN
MARK RUFFALO
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“
a film by JANE CAMPION
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
ÁLFABAKKI
kl. 1.45, 3.50 og 5.55. Ísl. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 2. Ísl. tal Sýnd kl. 8. Enskt. tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal
PRAKKARAR í Bandaríkjunum,
nánar tiltekið í bænum Troy í
Michigan, hafa orðið uppvísir að
hrekk sem beinist að sölulúgum
hamborgarastaðarins Burger King
og notendum þeirra. Klókir ung-
lingar hafa náð að lauma sér inn á
tíðni sendanna sem talað er í þeg-
ar pantað er í gegnum bílalúgu.
Einn viðskiptavinur fékk svohljóð-
andi skilaboð: „Þú þarft ekki á
tveimur Whopperhamborgurum að
halda. Þú ert of feitur. Keyrðu
áfram.“ Öðrum var sagt, þegar
hann reyndi að panta kók að stað-
urinn væri ekki með kók. Þegar
viðskiptavinurinn spurði hvort
þeir væru með eitthvað annað var
honum tjáð að það væri ekkert til
á staðnum!
Eigandi Burger King, Tony
Versace, hefur beðist afsökunar á
þessu upphlaupi. Unnið er að því
að reyna að breyta tíðninni.
„Þú ert of feitur til
að fá þér Whopper“
Ætli þessi hamborgari sé hrekklaus?
þróttmeiri, meira í gangi í hverju lagi
og meira í þau spunnið. Gott dæmi
um hvert stefndi er að þeir félagar
tóku Roxy Music-lagið „2BH“ og
ekki síður að á skífunni var annað
tökulag, „Free Will and Testament“
eftir Robert Wyatt; fór ekki á milli
mála til hvaða tíma var horft, en á
skífunni má sjá að þeir Busch og
Lonberg-Holm semja saman þau tvö
lög sem eru ný á plötunni og er svo
einnig á City Life að þeir semja báðir
þó Busch sé atkvæðameiri.
Á City Life, sem kom út seint á
síðasta ári, er rokkið harðara, útsetn-
ingar íburðarmiklar og hljóð-
færaskipan fjölbreytt, minnir ekki
svo lítið á það sem best hljómaði af
framsæknu poppuðu rokki á áttunda
áratugnum. Frá því Busch hætti í
Curious Digit hefur hann sótt í sig
veðrið sem laga- og textasmiður en
smám saman hefur hljómsveitin sem
hann hefur safnað um sig látið meira
að sér kveða og nær hápunkti á skíf-
unni. Söngur Busch hefur ekki tekið
minni breytingum, í stað innhverfa
raularans er kominn kraftmikill til-
finningaríkur söngvari. Ýmsir hafa
líkt því sem sveitin er að gera við Van
Dyke Parks, Leonard Cohen og Ro-
bert Wyatt, aðrir við Roxy Music/
Eno og The Fall. Busch tekur sam-
líkingunni við Van Dyke Parks og
Wyatt vel, sérstaklega hvað varðar
Van Dyke Parks þegar Rollover er
annars vegar, en finnst lítið til Cohen
koma; „einu sinni var ég alltaf í stuði
til að hlusta á Leonard Cohen, en nú
myndi ég kjósa Bruce Springsteen
heldur.“
Spunakennd tónlist
Víða á City Life er tónlistin harla
spunakennd, enda segist Busch gera
æ meira af því að leyfa mönnum að
láta ljós sitt skína, leggja sjálfir til
kafla í lögunum, aukinheldur sem
lögin séu þannig samin að í þeim sé
nóg rúm fyrir góðar hugmyndir frá
samstarfmönnunum.
Eins og Busch lýsir sjálfur
vinnunni við City Life er ekki bara að
þeir Lonberg-Holm semji saman lög-
in heldur leggi Via Nuon drjúgt af
mörkum, semji gítarlínur og sumar
laglínur. Það hafi og verið ætlunin að
til yrði hljómsveitarplata en ekki
bara sólóskífa hans og aðstoð-
armanna. „Það hefur kannski sitt að
segja að þegar Rollover var tekin
upp héldum við eina æfingu og síðan
var haldið í hljóðver, en nú hafa lögin
fengið að lifna eitt af öðru í samstarfi
hljómsveitarinnar, aukinheldur sem
við höfðum leikið þau ótal sinnum á
tónleikum áður en upptökur hófust.“
Busch segist engu spá um fram-
haldið og er reyndar tregur til að
ræða það sem Manishevitz hefur
þegar gert, segist ekki hlusta á plöt-
ur sínar eftir að þær koma út nema
þá til að finna eitthvað sem hægt sé
að gera betur á næstu skífu; „Ég
held það sé ekki hægt að hafa gaman
af eigin tónlist. Það er kannski gam-
an að semja hana og taka upp, en að
hlusta á hana er annað mál.“
Adam Busch og félagar í Manishevitz.
Sýningar á ný hjá MÍR
Hvítur hrafn
SÝNINGAR hefjast á ný hjá kvik-
myndafélaginu MÍR í dag eftir há-
tíðarhlé.
Í janúar og febrúar verður breytt
fyrirkomulag á, því ekki verður ein-
asta sýnt á sunnudögum kl. 15 held-
ur mánudögum einnig kl. 19, þegar
sýndar verða ótextaðar og óþýddar
myndir úr safni MÍR.
Á sunnudögum verða sem fyrr
textaðar myndir og í dag verður
myndin Hvítur hrafn (1980) eftir
Valeríj Lonskoj frá 1980 sýnd með
enskum texta.
Á morgun verður svo sýnd myndin
Bláfjöll eða Lygileg saga eftir Eldar
Shengelia frá 1984.
Sýningar eru í sal MÍR við Vatns-
stíg 10.
www.mir.is