Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 39
Á sumrin er þetta ekki vanda-mál, þá er ég oft dugleg að
ganga úti en svo kemur vetur og þá
er því miður
færðin stundum
ekki góð. Líka
kemur rigning
eða það snjóar og
þá hugsa ég sem
svo að ekki sé
hundi út sigandi,
hvað þá mann-
eskju, og sit sem
fastast inni í sófa, les eða horfi á
sjónvarp, eða þá ég dríf mig í að
taka til. Ef viðfangsefnin eru stór-
fengleg á því sviði þá duga þau
stundum til að ég fer þrátt fyrir allt
út í rigninguna, finnst það betri
kostur.
Hins vegar er árskort í leikfimi
eða tækjasal af öðru tagi. Þá er
maður búinn að borga og á að nota
aðstöðuna. Reynsla mín er sú að ég
fer bara öðru hvoru en hef svo nag-
andi samviskubit þegar ég geri hlé
– sem stundum verða nokkuð löng.
Eigi ég hins vegar ekki svona kort
þá hef ég samviskubit yfir að drífa
mig nú ekki í heilsurækt eins og allt
almennilegt fólk til að verða mjó og
byggja upp alls konar vöðva sem
maður notar víst lítið sem ekkert
ella. Áður en ég fer að sofa hugsa
ég um þetta og finn til mismikillar
sektarkenndar, eftir því hvernig
skapi ég er í. Svona er hægt að
kvelja sig á útsmoginn hátt.
Þegar ég er kærulaus velti ég
fyrir mér hvort ég þurfi nokkuð
endilega að nota þessa fyrrnefndu
vöðva og verð jafnvel svo ófor-
skömmuð að efast stórlega um það.
Þá hugsa ég um ýmsar konur sem
ég hef þekkt og urðu fjörgamlar
þótt þær stunduðu ekki aðra heilsu-
rækt en ganga fram og aftur um
eldhúsgólfið sitt, enda engar heilsu-
ræktarstöðvar á þeirra vettvangi.
Þær þjáðust hins vegar ekki af
streitu og sektarkennd vegna hreyf-
ingarskorts heldur fengu sér bara
molasopa og íhuguðu ýmislegt um
hagi samborgara sinna. Þær voru
auðvitað sumar svolítið feitlagnari
en hlaupagarparnir í heilsuræktar-
stöðvunum en þær voru rólegri og í
minningunni hlógu þær meira.
Ég veit svei mér ekki hvernig
best er að hafa það og er það með
enn komin á upphafsreit – sá á
kvölina sem á völina. Ég held að ég
taki undir með Joan Collins sem
sagði: „Ég geri það sem þarf, en
alls ekki meira.“ Kannski dugar
bara að ganga úti öðru hvoru og
synda svolítið – eða hvað?
Þjóðlífsþankar/Ætti maður að fá sér kort í heilsurækt?
Sá á kvölina
sem á völina
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Á HVERJUM degi eru um þessar mundir auglýst alls konar tilboð um
heilsurækt. Ég skoða þetta allt saman vandlega og íhuga hvort um sé að
ræða eitthvað nýtt sem henti mér. Það veitir ekki af að íhuga málið, svo oft
hef ég lent í að kaupa mér kort í alls kyns leikfimitíma og tækjasali sem ég
svo á stundum kvelst yfir að nenna ekki að nota.
SMS tónar og tákn
ÞÝSKUNÁMSKEIÐ
Í GOETHE ZENTRUM
Á VORÖNN 2004
Námskeiðin hefjast 19. janúar. Skráning og upplýsingar
í síma 551 6061 eða á goethe@goethe.is. Stöðupróf á
netinu: www.goethe.de/i/deitest.htm
Byrjendur: Mánudaga kl. 18-19.30; Katharina Gross
Grunnstig 1: Mánudaga kl. 20-21.30; Katharina Gross
Grunnstig 2: Miðvikudaga kl. 20-21.30; Angela Schamberger
Grunnstig 3: Þriðjudaga kl. 18-19.30; Magnús Sigurðsson
Talþjálfun og málfræði :
Miðvikudaga kl. 18-19.30; Angela Schamberger
Talþjálfun og málfræði :
Fimmtudaga kl. 18-19.30; Angela Schamberger
Markviss uppbygging orðaforða:
Fimmtudaga 20-21.30; Angela Schamberger
Talþjálfun/Konversation:
Fimmtudaga kl. 20-21.30; Peter Weiss
Barnanámskeið:
Laugardaga; Katharina Gross og Isabell Knoetig
Isländisch für deutschsprachige Lerner:
Mánudaga 18-19:30; Margrét Pálsdóttir
Námskeið vorið 2004:
Dömu- og
herranáttföt
undirfataverslun
Síðumúla 3