Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Alltaf ód‡rast á netinu
Breytanlegur farseðill!
Verð á mann frá 19.500 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
22
35
0
10
/2
00
3
BÆJARLÖGMAÐURINN í Kópavogi hefur
ítrekað beðið lögregluna um að kanna hvort
meðlimir mótorhjólaklúbbsins Ýmis væru að
koma sér fyrir í húsnæði í Smiðjuhverfi í Kópa-
vogi. Óskað var eftir því í sumar við rannsókn-
ardeild lögreglunnar í Kópavogi að hún gæfi
málinu gætur og var beiðnin ítrekuð í fyrradag
eftir ábendingu um að fíkniefnaneysla færi fram
í ákveðnu húsi í bænum og að þar væri fíkniefn-
um haldið að unglingsstúlkum í skiptum fyrir
kynlífsþjónustu.
Eiríkur Tómasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
í Kópavogi, sagði enga rannsókn í gangi vegna
umrædds máls en staðfesti að lögreglan hefði
haft gætur á ákveðnu húsi þar sem klúbburinn
hefur aðstöðu. Ekkert hefði komið í ljós sem
vafasamt gæti talist og hefði lögreglan þó farið
inn í húsið en sú heimsókn hefði ekki gefið
ástæðu til að aðhafast frekar. Eftirlitinu með
húsnæði klúbbsins er framfylgt samhliða al-
mennri gæslu í Smiðjuhverfinu, að sögn Eiríks.
Hann segir engar upplýsingar liggja fyrir um
ólöglega starfsemi í húsinu utan sláandi frá-
sagnar af slíku á spjallsíðu á Netinu. Þar er sagt
frá því að unglingsstúlkur séu tældar inn í hús-
næðið og látnar veita fullorðnum mönnum kyn-
lífsþjónustu fyrir amfetamín. Aðspurður segist
hann munu herða eftirlitið í hverfinu hér eftir
og hvetur þá aðila sem telja sig búa yfir vitn-
eskju um eitthvað vafasamt að ræða við lögregl-
una.
Eiríkur segir lögregluna ekki hafa orðið vara
við mikla starfsemi í húsinu á eftirlitsferðum
sínum og aldrei hafi lögreglan veitt því eftirtekt
að unglingsstúlkur hafi farið þar inn. Hins vegar
muni lögreglan hafa augun opin á næstunni.
Hefur kært til lögreglu
Forseti Vélhjólaklúbbsins Ýmis, Sverrir Þór
Einarsson, lagði á föstudag fram kæru á hendur
vefnum femin.is vegna ásakana sem birtust á
spjallvef um að hann hefði gefið unglingsstúlku
fíkniefni og misnotað hana. Þá hefur hann sömu-
leiðis kært bæjarlögmann Kópavogs fyrir um-
mæli hans í Fréttablaðinu fyrr í vikunni um að
lögregla rannsakaði hvort ólögleg starfsemi færi
fram í vélhjólaklúbbi Ýmis. Friðrik Björgvins-
son, yfirlögregluþjónn hjá lögeglunni í Kópa-
vogi, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið.
Eftirlit með mótorhjólaklúbbi
í Kópavogi verður hert
Forseti klúbbsins hefur
kært til lögreglu
Í NÓGU er að snúast við höfnina í Reykjavík
þessa dagana sem áður. Jólafríið afstaðið og al-
vara lífsins tekin við á ný. Vinnan í landi er ekki
síður mikilvæg en vinnan á sjó. Dytta þarf að
skipunum og veiðarfærum áður en haldið er úr
höfn á nýjan leik.
Morgunblaðið/Eggert
Kolbeinsey komin í örugga höfn
EKKI hafa komið upp fleiri til-
felli af heilahimnubólgu í ál-
verinu í Straumsvík eða annars
staðar í þjóðfélaginu, að sögn
Þórólfs Guðnasonar, smitsjúk-
dómalæknis hjá landlæknis-
embættinu. Þeir tveir starfs-
menn álversins sem veiktust
eru á batavegi. Allir starfs-
menn álversins voru bólusettir
og segir Þórólfur allt benda til
að sú aðgerð hafi skilað tilætl-
uðum árangri. Eftir því sem
lengri tími líði frá bólusetn-
ingu, án þess að fleiri tilvik
komi upp, aukist líkurnar á að
tekist hafi að koma í veg fyrir
frekari útbreiðslu þessa skæða
en sjaldgæfa smitsjúkdóms.
Ekki fleiri
tilfelli heila-
himnubólgu
KARLKYNS tannlæknar eru
almennt með hærri ársveltu en
kvenkyns samstarfsmenn
þeirra. Í viðhorfskönnun meðal
félaga í Tannlæknafélagi Ís-
lands kemur fram að um 47%
tannlækna eru með ársveltu af
rekstri sínum á bilinu 10-20
milljónir króna, 16,5% með 20-
30 milljónir og 8,5% yfir 30
milljónir. 28% tannlækna eru
samkvæmt könnuninni með
lægri ársveltu en 10 milljónir.
Hlutfallslega flestir eru með
ársveltu á bilinu 10-15 milljónir
króna og eru konur fjölmenn-
astar í þeim hópi.
Konur með
lægri
ársveltu
Rekstur tann-
lækna
INNLENT
UM 18% ökumanna sem fara
um Hvalfjarðargöng búa á
Akranesi eða í nágrenni og um
40% ökumanna búa einhvers
staðar á Vesturlandi. Þetta má
lesa út úr niðurstöðum umferð-
arkönnunar Vegagerðarinnar
frá því í október 2002 sem
greint er frá á vef Spalar.
Þar kemur fram að alls fóru
yfir 5.800 bílar um göngin dag-
ana sem könnuðirnir voru að
störfum og svarhlutfallið var
nærri 100%.
Ýmislegt fleira fróðlegt kem-
ur fram í könnuninni:
Búseta ökumanna: rúmlega
40% búa á höfuðborgarsvæð-
inu, rúmlega 40% á Vestur-
landi, 10% á Norðurlandi og
hinir í öðrum landshlutum.
Tilgangur ferðar: 50% í
einkaerindum, 40% vegna at-
vinnu.
Tíðni ferða um göngin: 29%
daglega, 26% vikulega, 25%
mánaðarlega.
Vegagerðin framkvæmdi
könnunina norðan Hvalfjarðar-
ganga fimmtudaginn 24. októ-
ber og laugardaginn 26. októ-
ber 2002 frá klukkan 7 að
morgni til miðnættis báða dag-
ana. Allir bílar sem fóru um
göngin voru stöðvaðir og
spurningar lagðar fyrir bíl-
stjórana. Tilgangurinn var að
afla upplýsinga um hvert leiðin
lægi, hvar menn ættu heima og
í hvaða erindum þeir færu um
göngin. Könnunin er svo hluti
stærra verkefnis sem varðar
áhrif Hvalfjarðarganga á bú-
setuþróun á Vesturlandi.
Hvalfjarðargöng
18% öku-
manna frá
Akranesi
FYRSTA loðnan barst til Eski-
fjarðar í fyrrinótt, en þá kom
Hólmaborgin SU 11 að landi með
nær fullfermi eða um 2.200 tonn
af blandaðri loðnu eftir viku út-
hald.
Þorsteinn Kristjánsson, skip-
stjóri á Hólmaborginni, sagði að
veiðin hefði verið fremur treg og
ekki mikið sést af loðnu á svæðinu
þar sem aflinn fékkst austur af
Langanesi, en þeir hefðu ekki leit-
að neitt lengra út.
Allur aflinn fer í bræðslu, en
Hólmaborgin hélt aftur á veiðar
eftir hádegi í gær þegar búið var
að landa úr skipinu eftir tæplega
hálfs sólarhrings stopp í landi.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Fyrsta loðnan til Eskifjarðar