Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Samband íslenskra sparisjóðahefur gagnrýnt áformaðasölu á SPRON til KBbanka, en hún var kynntmeð viljayfirlýsingu í des- ember sl. Samband sparisjóða telur aðför að íslenska sparisjóðanetinu standa yfir og Jón Kr. Sólnes, for- maður stjórnar SÍSP, segir að gangi áform SPRON og KB banka eftir, skapist mikil óvissa fyrir íbúa fjöl- margra byggðarlaga og starfsmenn sparisjóðanna vítt og breitt um land- ið. Breytingar á lögum um fjármála- fyrirtæki voru samþykktar í árslok 2002 og þ.m.t. breytingartillaga sem gerð var á síðustu stundu þess efnis að við mat á hlut stofnfjár skyldi hafa til hliðsjónar arðsvon stofnfjárhluta annars vegar og arðsvon og áhættu hlutabréfa í sparisjóði hins vegar. Og að eðlilegt væri að tryggja eins og kostur er að stofnfjáreigendur væru jafn vel settir fyrir og eftir hluta- félagavæðingu. Með þessari breytingartillögu telja m.a. forsvarsmenn SPRON að opnað hafi verið fyrir þá túlkun að meta stofnfé verðmætara við hlutafjárvæð- ingu sparisjóðs og í tilviki SPRON eykst verðmæti stofnfjár úr 540 millj- ónum króna í 1.400 milljónir með beit- ingu þessarar aðferðar. Breytingartillagan veldur úlfaþyt Jón er ekki sáttur við hvernig lögin eru túlkuð. „Haustið 2002 þegar frumvarp til laga um fjármálafyrir- tæki var til meðferðar í þinginu, mælti fyrir því þáverandi formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Þegar hann fjallaði um breytingartillöguna sem nú hefur valdið svo miklum úlfa- þyt sagði hann að breytingartillagan gengi ekki út á að stofnfjáreigendur ættu að eiga eitthvað meira en þeir áttu samkvæmt lögum heldur einung- is að eignin sem þeir fengju væri jafn- gild þeirri sem þeir létu af hendi. Ég lít svo á að ekki hafi verið farið eftir þessum orðum,“ segir Jón. Hann bendir einnig á að í greinar- gerð með frumvarpinu segi m.a. um sjálfseignarstofnunina að megintil- gangur hennar sé að stuðla að við- gangi og vexti í starfsemi sparisjóðs- ins. Jón segir að í greinargerðinni komi fram að sjálfseignarstofnun sinni þessu hlutverki sínu best með eignarhlut í sparisjóði og stór hluti efnahagsreiknings sjálfseignarstofn- unar hljóti því að vera hlutafjáreign hennar í sparisjóði. „En þegar vilja- yfirlýsing SPRON og KB banka var kynnt, sögðu forsvarsmenn þeirra berum orðum að þegar hlutafjárvæð- ingu SPRON væri lokið, yrði eign sjálfseignarstofnunar SPRON um 81% af hlutum í SPRON hf. og sam- komulagið gerði ráð fyrir að KB banki greiði um sex milljarða fyrir þessa eign með hlutabréfum í sjálfum sér. Það þýðir að sjálfseignarstofnun- in mun standa uppi með efnahag sem er eitt hlutabréf í KB banka en ekki hlutabréf í SPRON eins og gert er ráð fyrir í greinargerðinni. Þetta tel ég ganga algjörlega í berhögg við vilja löggjafans,“ segir Jón. Gagnrýni hans beinist m.a. að því að SPRON verði seldur samhliða fyr- irhugaðri hlutafjárvæðingu. „Það hef- ur verið öllum ljóst að hlutafjárvæð- ing sparisjóða hefur ákveðna hættu í för með sér. Við þekkjum þá þróun í nágrannalöndunum að sparisjóðir hverfa og eru tíndir upp með þeim hætti sem við sjáum að gæti gerst hér á Íslandi. Ef staðið hefði verið að hlutafjárvæðingunni eins og ég les úr lögunum, það er að segja að ef sjálfs- eignarstofnunin myndi starfa sem sjálfstæð og óháð stofnun og fara með hlutabréf í sparisjóðnum, hefði ekki verið nein hætta á ferðum. Sú leið sem valin hefur verið er ekki í anda laganna og ekki í þágu sparisjóða- samstarfsins. Saman unnu sparisjóð- irnir að vörnum sumarið 2002 þegar Búnaðarbankinn ásældist SPRON. Við sjáum engan reginmun á núna. Sparisjóðirnir standa áfram vörð um sína starfsemi.“ Yfirtökuskylda gæti skapast Að hans mati verður það ekki endi- lega í valdi einstakra hluthafa hvort þeir haldi sínum hlutabréfum eftir að SPRON hefur verið gerður að hluta- félagi og færður í eigu KB banka, þar sem stutt getur verið í að yfirtöku- skylda geti skapast. „Það er verið að rétta yfir borðið 81% hlutafjár í SPRON hf. til KB banka og ef um helmingur stofnfjár- eigenda er reiðubúinn að selja, kann að vera stutt í að yfirtökuskylda geti skapast,“ segir Jón. Jón vonast til þess að löggjafar- valdið láti málið til sín taka þegar þingið kemur saman á ný. „Löggjaf- inn getur fjallað um málið og gert orðalagið í lögunum skýrara þannig að tekin verði af öll tvímæli um hugs- anlega heimild til að ráðstafa fjár- mununum sem eiga að fara inn í sjálfseignarstofnunina. Það er hægt að gera með ýmsu móti. Meðal annars væri hægt að hugsa sér að stjórn yfir sjálfseignarstofnuninni væri ekki kjörin af stofnfjáreigendum, heldur skipuð fulltrúum ríkisvaldsins og sveitarstjórna með einhverjum hlut- lausum aðila og að ríkisendurskoð- andi væri endurskoðandi fyrir hana, þannig að alveg væri skilið á milli.“ Jón telur geysilega hagsmuni í húfi, ekki síst í dreifbýli á Íslandi. „Þetta er mjög stórt byggðamál. Fulltrúar dreifbýlissparisjóða hafa m.a. séð fyrir sér að til verði enn einn viðskiptabankinn sem sinni lands- byggðinni með sama hætti og við- skiptabankarnir gera í dag og hafa gert. Þar gætir sjónarmiða um hag- ræðingu en ekki þá þjónustu sem sparisjóðirnir veita. Þeir hafa verið hornsteinar í héraði og sinnt sínu um- hverfi mjög vel,“ segir Jón. „Sparisjóðirnir eru fjórða aflið í ís- lensku viðskiptabankaumhverfi. Það er vilji neytenda, mikils meirihluta allra landsmanna, að hér verði áfram val. Þar höfum við skyldur, ekki bara við okkar viðskiptavini, heldur lands- menn alla. Það er engin tilviljun að bankarnir ásælast sparisjóðina, bank- arnir hafa reynt að líkjast sparisjóð- unum á sviði persónulegrar þjón- ustu.“ Áform sem leiða til óheillagöngu Sparisjóðir starfa sem sjálfstæð fyrirtæki og eiga með sér samstarf á sviði upplýsingavinnslu, markaðs- mála og rekstrar Sparisjóðabankans og nýta þannig hagkvæmni stærðar- innar og jafnframt kosti þess smáa, að sögn Jóns. SÍSP mótar sameigin- lega heildarstefnu og megingildi sparisjóðanna og myndar faglegan vettvang fyrir sameiginlegar stefnu- markandi ákvarðanir. Hann telur að aðrir sparisjóðir myndu samt vel spjara sig ef SPRON hyrfi úr SÍSP, eins og bent hefur verið á að gerist ef og þegar SPRON rennur inn í KB banka. „SPRON hefur leitt þá leið sem sparisjóðirnir hafa gengið til breyt- inga á undanförnum árum og átt stærstan þátt í því samstarfsneti sparisjóða sem nú er til. Mikil eftirsjá yrði af SPRON ef þeir hyrfu frá því mikla uppbyggingarstarfi sem spari- sjóðirnir hafa lagt í á undanförnum árum,“ segir Jón. Ef áform SPRON og KB banka ná fram að ganga telur Jón og SÍSP að stofnfjáreigendur fái í sinn hlut mun meira en þeim er ætlað samkvæmt lögunum. Jón telur mikla hættu á að aðrir sparisjóðir fylgi í kjölfarið og stofnfjáreigendur sparisjóða á Ís- landi, alls 2.700–2.800 manns eða um 1% þjóðarinnar, muni fá í sinn hlut óeðlilega mikil verðmæti. „Þarna verða stofnfjáreigendur ekki jafn vel settir og áður, heldur miklu betur settir og það er ekki í samræmi við lagasetninguna. Þetta mun færa til- tölulega fámennum hópi landsmanna mikil verðmæti sem hann getur með engu móti talist eiga réttlátt tilkall til umfram almenning í landinu. Við telj- um að áform SPRON og KB banka geti hugsanlega ýtt af stað ákveðnu ferli sem leiði til slíkrar óheilla- göngu.“ Heildareignir sparisjóðanna í land- inu eru á bilinu 170 til 180 milljarðar króna. Þar af nemur stofnfé samtals 2,7 milljörðum, eða innan við 2%. „Sterk staða sparisjóðanna byggist því ekki á framlagi stofnfjáreigenda heldur á áratuga traustum viðskipt- um sjóðanna við þúsundir viðskipta- vina um land allt. Stofnfjáreigendur gengu upphaflega í ábyrgðir fyrir sparisjóðina og eiga að standa vörð um starfsemi sjóðanna sem eins kon- ar trúnaðarmenn byggðanna. Aldrei var meiningin að stofnfjáreigendur gætu gert tilkall til þess að njóta arðs af stofnfjáreign sinni á sama hátt og hluthafar í hlutafélögum. Sparisjóð- irnir standa sterkir og hafa mótað sér framtíðarstefnu um starfsemi á fjór- um sviðum. Starfsemin er með rætur á hverjum stað en saman starfa spari- sjóðirnir í sterku þjónustuneti. Þann- ig munu og vilja sparisjóðirnir starfa og verða áfram afl og sá valkostur í ís- lenskri fjármálaþjónustu sem við- skiptavinir eru ánægðastir með,“ seg- ir Jón að lokum. Ekki farið eftir vilja löggjafans Morgunblaðið/Brynjar Gauti Áformuð sala á SPRON til KB banka hefur verið gagnrýnd af Sambandi íslenskra sparisjóða. Morgunblaðið/Kristján „Við þekkjum þá þróun í nágrannalöndunum að sparisjóðir hverfa og eru tíndir upp með þeim hætti sem við sjáum að gæti gerst hér á Íslandi,“ segir Jón Kr. Sólnes, formaður stjórnar Sambands íslenskra sparisjóða. Jón Kr. Sólnes, formaður stjórnar Sambands ís- lenskra sparisjóða (SÍSP), telur að áform um hluta- fjárvæðingu SPRON og sölu til KB banka geti leitt til þess að aðrir sparisjóðir fylgi í kjölfarið og fáir út- valdir fái í sinn hlut mikil verðmæti sem þeir eiga ekki tilkall til. Steingerður Ólafsdóttir ræddi við Jón. Morgunblaðið/Jim Smart steingerdur@mbl.is ’ Það er verið aðrétta yfir borðið 81% hlutafjár í SPRON hf. til KB banka og ef um helmingur stofn- fjáreigenda er reiðubúinn að selja kann að vera stutt í að yfirtökuskylda geti skapast. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.