Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ SÉRFRÆÐINGAR á vegum Tækniháskóla Ís- lands hafa nýlega lokið viðamiklu mati á því hvar á höfuðborgarsvæðinu sé heppilegast að reisa skólanum nýtt húsnæði og verður mennta- málaráðherra gerð grein fyrir þessum nið- urstöðum innan fárra daga. Þetta kom fram í ræðu Stefaníu Katrínar Karlsdóttur, rektors Tækniháskóla Íslands (THÍ), við brautskráningu nemenda í Grafarvogskirkju á laugardag. Skólinn er 40 ára í ár, og sagði Stefanía að hún óskaði einna helst eftir ákvörðun stjórnvalda um að hefja byggingu sérhannaðs húss fyrir skólann í afmælisgjöf, en hann er nú rekinn í óhentugu iðn- aðarhúsnæði að hennar sögn. Í ræðu sinni kom rektor einnig inn á mikilvægi skólans eins og það endurspeglast í þörf atvinnu- rekenda fyrir vinnuafl með þá menntun sem skól- inn býður upp á. „Stjórnendur í íslenskum fyr- irtækjum gera sér fulla grein fyrir því að án vel menntaðs starfsfólks gengur áætlun þeirra um vöxt og þróun illa upp. Þetta viðhorf kemur vel fram í nýlegri könnun á vegum Samtaka iðnaðar- ins þar sem fram kemur að þörf iðnaðarins fyrir aukna tæknimenntun á háskólastigi er viðvar- andi. Iðnfyrirtæki landsins telja sig þurfa að bæta við ríflega 3.000 starfsmönnum með raungreina-, tækni-,verkfræði-, iðn- eða starfsmenntun af ein- hverju tagi. Jafnframt er þörf þessara sömu fyrirtækja fyr- ir fjölgun rúmlega 400 starfsmanna með háskóla- próf í viðskiptagreinum. Í þessari könnun kemur einnig fram að rúmlega 80% forstjóra og fram- kvæmdastjóra fyrirtækja innan Samtaka iðn- aðarins telja fyrirtæki sín hafa þörf fyrir endur- og símenntun starfsmanna sinna,“ sagði Stefanía. Hlutverk skólans mikilvægt Nýr menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, nemendur og gesti. Í ræðu sinni sagði menntamálaráðherra það afar mikilvægt að hlúa að því starfi sem fram fer við skólann, ekki síst í ljósi nýlegra niðurstaðna úr könnun Sam- taka atvinnulífsins sem rektor minntist á, og sagði hún að þarna hefði THÍ mikilvægu hlut- verki að gegna. SI styrkir lektorsstöðu Stjórn Samtaka iðnaðarins (SI) ákvað á síðasta stjórnarfundi að bjóða Tækniháskóla Íslands að gera samning sem kveður á um að samtökin styrki til þriggja ára hálfa lektorsstöðu í tölvu- og upplýsingatæknifræði sem sérstaklega er ætluð til þróunar og uppbyggingar fjarnáms í tækni- greinum. Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri SI, lýsti þessari ákvörðun í ávarpi við brautskráninguna. Hann sagði að tæknigreinar hefðu átt undir högg að sækja undanfarin ár en nýir námsmöguleikar sem THÍ bjóði nú fram væru til þess fallnir að gefa iðnaðarmönnum tækifæri til framhalds- náms. Óvænt mikil aðsókn að fjarnámi í iðnfræði, sem nú yrði einnig kennd í fjarnámi, staðfesti að hér væri um að ræða tækifæri sem hefði tilfinn- anlega skort. Alls voru 199 nemendur brautskráðir á laug- ardag, og hafa aldrei áður útskrifast svo margir í einu frá skólanum. Frá tæknideild brautskráðust samtals 49 nemendur, 18 iðnfræðingar og 31 tæknifræðingur með B.S. gráðu. Alls útskrif- uðust 118 nemendur úr rekstrardeild, af þeim voru 52 með diplóm í rekstrarfræði og 66 að ljúka BS gráðu í viðskiptafræði. Auk þess brautskráðust 32 nemendur úr frum- greinadeild með raungreinadeildarpróf en það jafngildir stúdentsprófi af raungreinasviði. Alls útskrifuðust 199 nemendur frá Tækniskóla Íslands á laugardag og er það stærsti hópurinn sem brautskráðst hefur í einu frá skólanum. Stærsti hópurinn sem brautskráður er frá Tækniháskóla Íslands Vilja ákvörðun um nýja byggingu SÖLUSKRIFSTOFA Fasteigna- og skipasölu Austurlands var opnuð í Neskaupstað í liðinni viku. Aðal- stöðvar Fast- eigna- og skipa- sölu Austurlands eru á Egilsstöð- um en söluskrif- stofan í Neskaup- stað er önnur skrifstofan sem opnuð er á Aust- urlandi. Fyrir var ein slík á Vopna- firði. Að sögn Kristínar Hjördísar Ás- geirsdóttur, fasteignasala og for- stöðumanns söluskrifstofunnar, er það einkum skortur á fasteignum og hækkandi verð sem einkenna fast- eignamarkaðinn í Fjarðabyggð þessa dagana. Aðspurð sagði hún að þeir sem helst leituðu eftir eignum um þessar mundir væru íbúar í Fjarðabyggð, brottfluttir Austfirð- ingar og austfirskir námsmenn sem eru að ljúka námi og sjá nú tækifæri og möguleika á búsetu og vinnu í heimabyggð. Einnig sagði hún ljóst að íbúar þyrftu að huga að nýbygg- ingum. „Nú er tækifærið fyrir þá sem búa í of stórum húsum að selja eignir sínar og byggja viðhaldsminni eignir í heppilegri stærð. Það er bjart fram undan fyrir hönd Aust- firðinga.“ Við sama tækifæri var opnuð mál- verkasýning í húsnæði skrifstofunn- ar þar sem félagar í Listasmiðju Norðfjarðar sýna verk sín. Einnig opnaði Guðmundur Bjarnason, bæj- arstjóri í Fjarðabyggð, nýjan vef Fasteigna- og skipasölu Austur- lands, www. austurland.is. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Söluskrifstofa Fasteigna- og skipasölu Austurlands var opnuð í Fjarðabyggð á dögunum. Skortur á eignum og hækkandi verð Söluskrifstofa Fasteigna- og skipasölu Austurlands opnuð í Fjarðabyggð Kristín H. Ásgeirsdóttir Neskaupstaður. Morgunblaðið. KOSIÐ verður til stúdentaráðs og háskólaráðs Háskóla Íslands 11. og 12. febrúar næstkomandi. Um helgina var tilkynnt hverjir munu skipa framboðslista Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, og Röskvu, samtaka félagshyggju- fólks. Síðasta ár hefur Vaka haft meirihluta í stúdentaráði og stjórn- að starfi SHÍ. Kosið er um níu fulltrúa til stúd- entaráðs til tveggja ára en alls sitja átján fulltrúar í ráðinu. Helm- ingi þeirra er skipt út árlega og það framboð sem nær meirihluta atkvæða í kosningum stjórnar í krafti meirihluta síns. Tveir stúd- entar eru kosnir til setu í háskóla- ráð til tveggja ára og sitja þeir einnig fundi stúdentaráðs. Framboðslisti Röskvu til stúdentaráðs: 1. Gunnar Örn Heimisson, ís- lenska og sagnfræði 2. Inga Guðrún Kristjánsdóttir, sálfræði 3. Hrafn Stefánsson, stjórn- málafræði 4. Agnar Freyr Helgason, hag- fræði 5. Eva Bjarnadóttir, kynjafræði 6. Helga Tryggvadóttir, líffræði 7. Helgi Bárðarson, umhverfis- og byggingarverkfræði 8. Þórhildur Guðrún Ólafsdóttir, bókmenntafræði 9. Ármann Einarsson, við- skiptafræði 10. Sara Elísabet Svansdóttir, vélaverkfræði 11. Marvin Lee Dupree, bók- menntafræði 12. Ari Már Fritzson, sjúkraþjálf- un 13. Iðunn Vignisdóttir, mannauðs- stjórnun 14. Kristbjörn H. Björnsson, sagn- fræði 15. Jóhanna Katrín Magnúsdóttir, lögfræði 16. Margrét Björk Sigurðardóttir, líffræði 17. Guillermo A. Román, raf- magns- og tölvuverkfræði 18. Ingvi Snær Einarsson, lögfræði Framboðslisti Röskvu til háskólaráðs: 1. Anna Pála Sverrisdóttir, lög- fræði 2. Ásthildur Erlingsdóttir, lækn- isfræði 3. Sigurgeir Gunnarsson, tölvu- og rafmagnsverkfræði 4. Þórir Bjarnason, japanska og enska 5. Ásrún Ösp Jónsdóttir, hjúkr- unarfræði 6. María Guðmundsdóttir, tölv- unarfræði Framboðslisti Vöku til stúdentaráðs: 1. Árni Helgason, lögfræði 2. Jóhanna Harpa Agnars- dóttir, viðskiptafræði 3. Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, hugbúnaðarverkfræði 4. Hannes Rúnar Hannesson, saga/enska 5. Kristín María Birgisdóttir, stjórnmálafræði 6. Borgþór Ásgeirsson, sálfræði 7. Þórarinn Arnar Ólafsson, læknisfræði 8. Aldís Magnúsdóttir, hagfræði 9. Sigríður Friðriksdóttir, hjúkrunarfræði 10. Hulda Hallgrímsdóttir, iðn- aðarverkfræði 11. Kristján Karlsson, guðfræði 12. Lísa Björk Hjaltested, líf- fræði 13. Viðar Jökull Björnsson, ferðamálafræði 14. Gunnar Arnar Gunnarsson, byggingarverkfræði 15. Díana Dögg Sæmundsdóttir, félagsfræði 16. Jan Kutrzeba, viðskiptafræði 17. Ingunn Guðbrandsdóttir, sál- fræði 18. Drífa Kristín Sigurðardóttir, lögfræði Framboðslisti Vöku til háskólaráðs: 1. Bryndís Harðardóttir, hag- fræði 2. Baldvin D. Petersson, stjórn- málafræði 3. Heiðdís Halla Bjarnadóttir, franska 4. Margrét Ófeigsdóttir, við- skiptafræði 5. Berglind Bára Sigurjóns- dóttir, lögfræði 6. Davíð Gunnarsson, hagfræði Framboðslistar Vöku og Röskvu kynntir SKORAÐ var á Össur Skarphéð- insson, formann Samfylkingarinn- ar, og Bryndísi Hlöðversdóttur, þingflokksformann, að gera ýtar- lega grein fyrir framgangi eftir- launafrumvarpsins í þingflokki Samfylkingarinnar á fundi Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur, sem á aðild að flokknum, 22. janúar sl. Orðrétt segir í ályktun sem sam- þykkt var á fundinum: „Meirihluti þingflokks Samfylkingarinnar studdi framlagningu frumvarps um eftirlaun ráðherra o.fl. Við lokaafgreiðslu frumvarpsins var þingflokkurinn þrískiptur. Launþegasamtökin brugðust verulega hart við frumvarpinu og mjög mörgum félögum Samfylk- ingarinnar var illa brugðið. Það er ljóst að neikvæðar get- gátur, sem uppi hafa verið vegna þessa máls verða ekki kveðnar nið- ur nema með því að félögum í Samfylkingunni verði veittar allar upplýsingar um málavöxtu, þar með um aðkomu, efnistök og af- greiðslu málsins í þingflokknum. Því samþykkir fundurinn að beina því til formanns Samfylking- arinnar og formanns þingflokks hennar að gera komandi flokks- stjórnarfundi ýtarlega grein fyrir öllum þáttum þessa erfiða máls.“ Margir gagnrýndu forystuna Pétur Jónsson, formaður Al- þýðuflokksfélags Reykjavíkur, segir marga hafa gagnrýnt forystu Samfylkingarinnar fyrir að halda ekki fund með stuðningsfólki til að upplýsa um gang þessa máls. Hann segist reikna með að flokks- tjórnarfundur verði haldinn fljót- lega. Gagnrýna samþykkt eftirlaunafrumvarps Spyrja um aðkomu Samfylk- ingarinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.