Morgunblaðið - 27.01.2004, Page 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vatnsmýri | Talsmenn Höfuðborg-
arsamtakanna og Samtaka um betri
byggð segja borgaryfirvöld ekki
hafa gefið nein málefnaleg svör
vegna hugmynda samtakanna um
að setja Hringbrautina í stokk.
Ennfremur segja þeir engar hald-
bærar skýringar hafa borist á yf-
irlýsingum borgar og Vegagerðar
um gríðarlegan kostnað við þær
framkvæmdir.
Örn Sigurðsson, arkitekt hjá Höf-
uðborgarsamtökunum, segir borg-
aryfirvöld verja sig með þögninni
með því að bregðast ekki málefna-
lega við gagnrýni samtakanna.
„Þeir hafa aldrei svarað spurning-
um okkar um verðmæti þess lands
sem verður ónothæft verði farið í
þessar framkvæmdir óbreyttar og
þeir fara í hringi varðandi hvort við
komum of seint eða of snemma með
hugmyndirnar. Þegar við komum
fyrst með gagnrýni okkar sögðu
þeir að það væri allt of snemmt að
gagnrýna, síðan var það allt í einu
orðið allt of seint. Steinunn Valdís
Óskarsdóttir kýs að svara okkur
ekki á þeim grundvelli sem við
gagnrýnum hana heldur snýr bara
út úr hlutunum með því að segja að
málið sé of langt komið, en um leið
segir hún að borgin hafi heyrt þess-
ar athugasemdir áður,“ segir Örn
og bætir við að umræðuskortur um
þessi mál sé afar skaðlegur lýðræð-
inu og einnig fyrir framtíð borg-
arinnar.
Örn segir bæði Vegagerðina og
borgaryfirvöld hundsa kostnaðinn
sem felst í því að missa 11 hektara
byggingarlands, og segir þau sjá of-
sjónum yfir kostnaði við gerð
stokksins. „Hvers vegna á stokkur á
þessu svæði að kosta þrisvar til
fimm sinnum meira en stokkur á
svæðinu beint við hliðina, sem þó er
mjög erfitt að vinna í? Ég sé í raun
ekki annan kostnaðarauka í hug-
mynd okkar en þann, að einhverjir
embættismenn og pólitíkusar missa
andlitið og svo þarf að búa til ný út-
boðsgögn. En hvers virði er það
miðað við óbætanlegan skaða fyrir
framtíð borgarinnar? Steinunn Val-
dís réttlætir skipulagsslys með því
að segja að þetta sé of langt komið
og þau geri bara betur næst. En
framkvæmdirnar eru ekki einu
sinni hafnar,“ segir Örn.
Framkvæmd háð fjárveitingu
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
formaður Skipulags- og bygginga-
nefndar, segir athugasemdir Höf-
uðborgarsamtakanna þekktar og
þeim hafi verið svarað fyrir ári síð-
an. „Okkar sérfræðingar segja okk-
ur að kostnaðurinn við þennan
stokk sé svona mikill m.a. vegna
þess að það þurfi að fara svo neð-
arlega vegna vatnasvæðis Vatns-
mýrarinnar að það hleypi kostnað-
inum upp. Við höfum í raun engar
forsendur til að efast um þetta.
Varðandi verðmæti landsins er
alltaf afstætt hvað er hægt að fá
fyrir byggingaland. Ég hallast þó að
því að verðmætið sé frekar ofreikn-
að en vanreiknað hjá Höfuðborg-
arsamtökunum.
Í draumaborg í draumaveröld,
þar sem maður ætti nóg af pen-
ingum, myndi maður ekki hika við
að setja þetta í stokk, en það á líka
við um fleiri götur í Reykjavík og
ekki bara Hringbrautina,“ segir
Steinunn Valdís og bætir við að rík-
ið setji ákveðna upphæð í fram-
kvæmdina, samkvæmt samgöngu-
áætlun, sem nægir í framkvæmdina
eins og hún lítur út núna.
Höfuðborgarsamtökin og Samtök um betri byggð krefjast skýringa á mismunandi kostnaðartölum
Segja borg-
aryfirvöld
ómálefnaleg
Ólíkar hugmyndir um færslu Hringbrautar: Höfuðborgarsamtökin segja
yfirvöld ekki reikna með verðmæti glataðs byggingalands og útivist-
arsvæða og einnig ofreikna kostnað við að setja götuna í stokk.
!
"
"
#
$%&
' (
)
*
#
$%&
' (
Mosfellsbær | Meirihluti sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Mosfellsbæjar segir málflutning
minnihlutans varðandi framtíð sundlaugar við
Íþróttasvæðið í Varmá byggðan á misskiln-
ingi. Ekki standi til að Varmárlaug hætti að
vera almenningssundlaug þó sundlaug verði
byggð við Lágafellsskóla, á svonefndu Vest-
ursvæði.
Í bókun meirihlutans á bæjarstjórnarfundi
þann 21. janúar sl. segir m.a. „Meirihluti sjálf-
stæðismanna fagnar þeim áhuga sem bæj-
arbúar sýna á málefnum bæjarins og þá sér-
staklega hvað varðar sundkennslu og
almenningssundlaug. Framkomnir undir-
skriftalistar bera vott um lifandi samfélag í
Mosfellsbæ og að íbúar bæjarins bera hag
hans fyrir brjósti.“
Seinna segir: „Ljóst er að skoðanir eru
skiptar um þetta mál sem eðlilegt hlýtur að
teljast um mál af þessum toga. Meirihluti
sjálfstæðismanna hefur lagt fram tillögu um
að hefja framkvæmdir við uppbygginu
íþróttahúss og sundlaugar á vestursvæði en
jafnframt að hlúa verulega að Varmárlaug.“
Enn fremur segir: „Ljóst er að gera verður
endurbætur á lauginni til að hún geti áfram
þjónað almenningi, íþróttafólki og skólunum
til sundkennslu. Það ætla sjálfstæðismenn að
gera.“
Meirihlutinn segir íhugað að lengja fyr-
irhugaðan afgreiðslutíma Varmárlaugar eftir
að sundlaug við Lágafellsskóla verður opnuð.
Ljóst sé að það muni breyta mjög litlu hvað
varðar fjárhagslega hagkvæmni en auka þjón-
ustu við íbúa Mosfellsbæjar til muna.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri
Mosfellsbæjar, segir ekki standa til að loka
Varmárlauginni. „Það er ljóst, þegar litið er
til þeirra undirskriftalista sem komu fram nú
í janúar að það er skýr vilji fyrir því að al-
menningssundlaug verði áfram á Varmárs-
væðinu. Þess misskilnings hefur gætt að það
ætti að loka Varmárlauginni fyrir almenningi,
en svo er ekki. Sundlaugin á Varmá mun
halda áfram að gegna því hlutverki sem hún
hefur gegnt hingað til.
Það var staðfest á bæjarstjórnarfundi 29.
október að hefja framkvæmdir við íþrótta-
mannvirki á Vestursvæði, þar sem bæði verð-
ur um að ræða íþróttahús, innilaug og úti-
laug. Sá vilji íbúa sem kemur fram í þessum
undirskriftalistum mun styrkja stöðu Varm-
árlaugarinnar frekar en nokkuð annað,“ segir
Ragnheiður að lokum.
Morgunblaðið/Golli
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ: Á þessu svæði stendur til að reisa íþróttahús með inni- og útisundlaug.
Varmárlaug verður áfram opin almenningi
Vistvernd í verki | Fimm fjölskyldur á
Álftanesi hafa undanfarna mánuði tekið
þátt í verkefninu „Vistvernd í verki“, en
hópurinn lauk þátttöku sinni í desember sl.
Þótti verkefnið takast afar vel.
Markmið „vistverndar í verki“ er að
stuðla að umhverfisvænum lífsháttum og
bættu umhverfi. Hópurinn hélt fimm fundi
á tveggja mánaða tímabili. Á hverjum
fundi var tekið fyrir ákveðið viðfangsefni,
svo sem sorp, orka, samgöngur, innkaup
og vatn. Hópurinn notaði handbók og
viðaði að sér ýmsum fróðleik annars staðar
frá. Verkefnið miðar að því að kenna fólki
hvernig það geti tekið upp vistvænni lífsstíl
skref fyrir skref án þess að fórna nútíma
lífsgæðum. Hópastarfið var hið skemmti-
legasta og er það von þeirra sem þátt tóku
í verkefninu að fleiri visthópar líti dagsins
ljós í framtíðinni. Bessastaðahreppur
styrkti þátttakendur myndarlega til kaupa
á hreyfilhitara í bíl til eldsneytissparnaðar
eða moltutunnu til heimajarðgerðar.
Breytingar á tónlistarskóla | Í lok síð-
asta árs samþykkti skipulags- og mann-
virkjanefnd umsókn frá bæjarstjóra fyrir
hönd bæjarsjóðs um breytingu á innra fyr-
irkomulagi Tónlistarskóla Seltjarnarness.
Samkvæmt áætlun á breytingum að vera
lokið fyrir upphaf skólaársins 2004–2005.
Með breytingunum stækkar húsnæði skól-
ans auk þess sem kennarastofa og fleira
verður flutt til. Við skólann bætast um 300
fermetrar en auk þess mun húsnæðið nýt-
ast betur eftir breytingarnar. Áætlað er að
framkvæmdir hefjist seinni part vetrarins.
Þetta segir á vefsíðu Seltjarnarnesbæjar,
www.seltjarnarnes.is.
Miðborg | Fjöldi gesta í miðborginni í des-
embermánuði var nokkru minni en þróun
gestafjölda undanfarna mánuði hafði gefið
tilefni til að ætla. Hins vegar kom stærra
hlutfall gesta í miðborgina gagngert til að
versla, eða um 57,4%. Þetta kemur fram í
niðurstöðum reglulegrar viðhorfskönn-
unar Gallup fyrir Reykjavíkurborg.
Borgaryfirvöld telja helstu skýringu á
færri heimsóknum í öðrum tilgangi en
verslun þá að veður var afar óhagstætt til
útiveru í desember 2003 samanborið við
desembermánuðina 2001 og 2002. Hvað
fjölda gesta varðar muni mest um Þorláks-
messukvöld, en þá var spáð ofsaveðri og
fjölmiðlar ráðlögðu fólki að halda sig inn-
andyra.
Könnunin nær ekki til erlendra ferða-
manna, en þeim fer sífellt fjölgandi í
Reykjavík yfir veturinn og stærstur hluti
ferðamannaverslunar fer fram í mið-
bænum. Ferðamönnum í miðbænum fjölg-
aði um fimm prósent á milli áranna 2002 og
2003.
Færri gestir en
meira verslað
Höfuðborgin | Gestum sundlauga höfuðborg-
arsvæðisins fjölgar jafnt og þétt og eru þær al-
mennt mjög vel sóttar. Flestir gestir sækja
Laugardalslaug, Kópavogslaug og Árbæj-
arlaug.
Gestum sundlauga Reykjavíkurborgar fjölg-
aði um níu þúsund á milli áranna 2002 og 2003
og er þetta sjöunda árið í röð sem gestum sund-
lauganna fjölgar. ÍTR sér um rekstur allra sjö
sundlauga Reykjavíkurborgar. Gestum hefur
fjölgað um 422.000 frá árinu 1997. Síðasta sum-
ar var einnig metaðsókn á Ylströndina í Naut-
hólsvík, en þangað komu um 110.000 gestir.
Langflestir gestir voru í Laugardalslaug, eða
542.347. Þar á eftir kom Árbæjarlaug með
411.858, en laugin hefur verið afar vinsæll
áfangastaður fjölskyldufólks vegna fjölbreyttra
möguleika fyrir börn og spilar þar inn í bæði
inni- og útilaug á svæðinu. Grafarvogslaug
bætti nokkuð mikið við sig á árinu auk Klé-
bergslaugar á Kjalarnesi.
Gestum fækkaði aftur á móti í „eldri laug-
unum“ Sundhöllinni, Vesturbæjarlaug og Breið-
holtslaug.
Alls komu um 1.891.772 gestir í Sundlaugar
Reykjavíkur á árinu, en það eru tæpar 17 sund-
ferðir á hvern Reykvíking á árinu.
Allt frá opnun 50 m laugarinnar í Sundlaug
Kópavogs, í byrjun árs 1991, hefur aðsókn að
lauginni aukist jafnt og þétt með hverju ári. Á
árinu 2003 komu alls 489.520 gestir í Sundlaug
Kópavogs, tæplega 12.500 fleiri en á árinu 2002.
Þetta er mesti gestafjöldi sem sótt hefur laug-
ina á einu ári frá upphafi, en leiða má að því lík-
ur að hver Kópavogsbúi hafi sótt Sundlaug
Kópavogs að meðaltali um 19,5 sinnum á árinu
2003. Frá 1991 og til ársloka 2003 hafa nærri 4,6
milljónir sundgesta komið í sundlaug Kópavogs.
Alls komu 371.161 gestur í sundlaugar Hafn-
arfjarðar árið 2003 sem er aukning um 2% frá
árinu áður. Þar af komu 294.973 í Suðurbæj-
arlaug og 76.274 í Sundhöll Hafnarfjarðar. Má
ætla að miðað við aðsókn síðasta árs hafi hver
Hafnfirðingur farið um sautján sinnum í sund á
árinu. Aðsókn í laugarnar hefur aukist jafnt og
þétt á undanförnum árum en til samanburðar
má geta þess að árið 1999 komu 299.952 manns í
sundlaugar Hafnarfjarðar.
Sundlaugargestum fjölgar enn
Morgunblaðið/Þorkell