Morgunblaðið - 27.01.2004, Side 20
SUÐURNES
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vogar | Magnús Hauksson júdó-
þjálfari hefur byggt upp júdódeild
í Vogum. Til hans kemur einnig til
æfinga júdófólk úr öðrum byggð-
arlögum á Suðurnesjum. Þessi litla
júdódeild hefur náð athygl-
isverðum árangri á landsvísu og
Magnús setur markið hærra.
Magnús er úr Keflavík, marg-
faldur Íslandsmeistari í júdó. „Mig
minnir að ég hafi unnið átta sinn-
um,“ segir hann. Síðast tók hann
þátt í Íslandsmóti fyrir fjórum ár-
um, „að gamni mínu“. Hann segist
hafa byrjað í júdói níu ára gamall
en tekið hliðarspor í vaxtarrækt
og aflraunum en hafnað að lokum
aftur í júdóinu. „Það var erfitt að
vinna í aflraununum, þar voru fyr-
ir Jón Páll Sigmarsson, Hjalti
Úrsus og þessir karlar svo maður
náði aldrei nema upp í annað eða
þriðja sætið,“ segir Magnús um
hliðarsporið.
Hann var byrjaður að þjálfa í
Keflavík á meðan á keppnisferl-
inum stóð. Hann hóf síðan þjálfun
eigin liðs á árinu 1996, þá í Kefla-
vík, en flutti fljótlega í Vogana og
hefur verið að byggja upp júdólið-
ið síðan. Það keppir undir merkj-
um Ungmennafélagsins Þróttar.
Hópurinn hefur verið að stækka.
Nú er Magnús með tólf fullorðna á
æfingum og um fimmtán börn.
„Það eru mest ellefu til þrettán
ára strákar. Júdóið virðist henta
þeim vel. En stúlkunum er einnig
að fjölga og þær eru öflugar.
Margir halda áfram. Ég er til
dæmis með einn tuttugu og eins
árs strák sem hefur verið með mér
frá því hann var fjórtán og varla
dottið úr æfing allan tímann,“
sagði Magnús. Hann var einmitt
að ljúka æfingu hjá yngri flokkn-
um þegar blaðamaður kom við í
júdósalnum í Íþróttamiðstöðinni í
Vogum og fólk úr eldri hópnum að
byrja að tínast inn.
Í eldri flokknum eru þrír til
fjórir keppnismenn og sumir hafa
náð mjög góðum árangri. Þannig
vannst fyrsti titillinn á Íslandsmóti
1998 og undanfarin tvö ár hefur
Katrín, dóttir Magnúsar, sigraði í
unglingaflokki á Íslandsmóti. Svo
eru menn þarna sem frekar eru í
þessu til að halda sér í formi og
tuskast en að stefna að árangri á
mótum. Magnúsi stefnir að því að
fjölga í keppnishópnum. „Við höf-
um enn ekki unnið þann stóra,“
segir Magnús og á við Íslands-
meistaratitil fullorðinna, en segist
hafa efni í það. „Þennan ætla ég að
gera að Íslandsmeistara, helst á
þessu ári,“ sagði Magnús svo hátt
að Hrafn Helgason vissi örugglega
til hvers væri ætlast af honum.
Júdófólkið er flest úr Vogunum
en nokkrir eru úr Keflavík, þar
sem engin júdódeild er starfandi,
og hafa sumir fylgt Magnúsi frá
því hann var að þjálfa þar. Á æf-
ingarnar til Magnúsar kemur
einnig fólk úr Grindavík þar sem
sérstök júdódeild er starfandi. Af
þessu sést að miðstöð júdólífsins á
Suðurnesjum er í litla salnum í
Íþróttamiðstöðinni í Vogum.
Magnús segir að aðstaðan sé
góð. Það sé að mörgu leyti gott að
hafa langan sal og það hái þeim
ekkert sérstaklega á æfingum þó
salurinn sé mjór. Menn lagi sig að
aðstæðunum.
Hann tekur fram að vel hafi ver-
ið tekið á móti júdóstarfi hans
þegar hann flutti það í Vogana.
„Ég var alltaf á hrakhólum með
þetta í Keflavík enda ekki gert ráð
fyrir að þar væri stundað júdó.
Áherslan var á knattspyrnu og
aðrar íþróttir. Hér hefur þetta
skilað þeim árangri að júdóið er
eina íþróttagreinin sem skilar
íþróttafólki í fremstu röð. Það eru
menn ánægðir með,“ segir Magn-
ús.
Nú er ekki til seturnnar boðið
hjá Magnúsi Haukssyni, hann
verður að hefja æfinguna. Raunar
tekur hann þátt í henni sjálfur, til
að sýna í verki það sem hann er að
kenna og láta þá eldri og þyngri
hafa fyrir hlutunum. Og það þurfa
þeir sannarlega að gera, gamli
maðurinn lætur ekki hlut sinn fyr-
ir nokkrum manni.
Grindavík | Samherji þarf ekki að fara með af-
kastaaukningu fiskimjölsverksmiðju sinnar,
Fiskimjöls og lýsis í Grindavík, í umhverfismat.
Skipulagsstofnun telur að mengun muni ekki
aukast við stækkunina. Heilbrigðiseftirlit Suður-
nesja leggst á móti framkvæmdinni.
Skipt hefur verið um brennara í fiskimjölsverk-
smiðju Samherja í Grindavík og fleiri fram-
kvæmdir eru fyrirhugaðar til að auka afkastagetu
verksmiðjunnar úr 1000 tonnum á sólarhring í
1500 tonn. Samherji telur að framkvæmdin sé ekki
háð mati á umhverfisáhrifum en tilkynnti hana til
Skipulagsstofnunar sem hefur komist að sömu
niðurstöðu.
Samherji telur að ávinningur af stækkun verk-
smiðjunnar sé sá að hráefnisgæði verði meiri og
brennsla á útblástursefni aukist og þar af leiðandi
verði minni lyktarmengun frá verksmiðjunni.
Heilbrigðiseftirlitið fær kvartanir
Skipulagsstofnun leitaði umsagna hjá nokkrum
aðilum. Bæjarráð Grindavíkur taldi ekki þörf á
umhverfismati enda væri stækkun verksmiðjunn-
ar jákvæð gagnvart umhverfi hennar. Umhverf-
isstofnun komst að sömu niðurstöðu. Í umsögn
hennar er vakin athygli á því að kvartanir sem
borist hafi vegna lyktarmengunar frá verksmiðj-
unni stafi í flestum tilvikum af slæmu hráefni. Með
því að auka afkastagetu verksmiðjunnar sé hægt
að ljúka vinnslu aflans fyrr og draga úr hættu á að
skemmt hráefni valdi mengun.
Í umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja kemur
fram að stofnuninni berist oft kvartanir vegna
lyktar frá verksmiðjunni sem oft sé óbærileg.
Verksmiðjan sé í þéttbýli og verði fjöldi fólks fyrir
áhrifum þess. Telur Heilbrigðiseftirlitið yfirgnæf-
andi líkur á aukinni mengun vegna fyrirhugaðrar
stækkunar sem angra muni íbúa svæðisins. Telur
Heilbrigðiseftirlitið hæpið að heimila stækkun en í
öllu falli óhjákvæmilegt að ráðast í mat á umhverf-
isáhrifum hennar. Þá hefur Heilbrigðiseftirlitið
farið þess á leit við Umhverfisstofnun að starfs-
leyfi verksmiðjunnar verði endurskoðað hið
fyrsta.
Í frekari upplýsingum Samherja til Skipulags-
stofnunar kemur fram að ekki sé að vænta auk-
innar lyktarmengunar frá verksmiðjunni eftir
stækkun, þar sem þéttara hringrásarkerfi verði á
þurrklofti í þurrkara og aukin brennsla á útblást-
urefnum í brunahólfum. Einnig verði afsog frá
verksmiðju tekin inn í hringrásarkerfi þurrkara
og brennt í eldhólfi.
Í ákvörðun sinni tekur Skipulagsstofnun undir
ábendingar um að bæta þurfi umgengni og með-
ferð hráefnis til að ráða bót á lyktarmengun frá
verksmiðjunni. Stofnunin telur að með fyrirhug-
uðum framkvæmdum muni hráefni til bræðslu
verða ferskara og framleiðslutími styttast og
minni líkur á að unnið verði rotið hráefni. Telur
stofnunin að stækkunin muni ekki hafa í för með
sér verulega aukningu mengunar, hvorki hvað
varðar frárennsli, hávaða né útblástur. Jafnframt
er vakin athygli á því að Umhverfisstofnun geti
sett skilyrði varðandi hráefnisgæði og mengunar-
varnabúnað í starfsleyfi samfara stækkun verk-
smiðjunnar, meðal annars krafist aukinnar
hreinsunar verði lyktareyðing ekki fullnægjandi.
Unnt er að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar
til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 20. febr-
úar.
Stækkun fiskimjölsverksmiðju
er ekki háð umhverfismati
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja telur hæpið að heimila stækkun og vill matið
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nýr þurrkari: Skipt hefur verið um þurrkara í
fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík og
fleiri framkvæmdir eru þar fyrirhugaðar.
GLAÐVÆRÐ er ríkjandi á júdóæf-
ingum hjá Magnúsi Haukssyni.
„Þetta er góður hópur og samrýnd-
ur, við þekkjumst öll svo vel,“ sagði
Jón Baldur Guðmundsson eftir æf-
inguna.
Jón Baldur æfir einnig körfu-
bolta og vill ekki gera upp á milli,
sagði báðar greinarnar skemmti-
legar.
Sveinn Þorleifsson sagðist hafa
verið í fótbolta en júdóið væri
skemmtilegra. „Það má meira í júd-
óinu,“ sagði hann til skýringar og
bætti því við að fótboltaliðið í Vog-
unum væri ekki upp á marga fiska
og færi illa út úr viðureignum sín-
um við nágrannaliðin.
Katrín Magnúsdóttir hefur að-
eins stundað júdó í tvö ár, eins og
Sveinn, en Jón hefur æft enn skem-
ur. En hún var í góðri æfingu þegar
hún byrjaði, hafði æft fimleika í níu
ár. Fimleikaþjálfunin nýtist greini-
lega vel því hún varð Íslandsmeist-
ari í unglingaflokki bæði árin sem
hún hefur æft. „Ég bjóst ekki við
þessu fyrst, það gerðist mjög
óvænt,“ segir Katrín.
Góður hópur og
samrýndur
Stefnir að því að fjölga í keppnisliðinu
Júdótökin æfð: Magnús Hauksson, margfaldur Íslandsmeistari og júdó-
þjálfari, tekur félaga sinn, Guðna Þrastarson, föstum tökum á æfingu.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Júdóæfing: Anna Rós Guðnadóttir veltir Jóni Baldri Guðmundssyni á æfingu í Íþróttamiðstöðinni í Vogum.
Tvö óhöpp sama daginn | Öku-
maður sem ók út af Grindavíkurvegi
aðfaranótt laugardags er grunaður
um akstur undir áhrifum lyfja- eða
fíkniefna. Hann ók einnig á umferð-
armerki á Reykjanesbraut í Hvassa-
hrauni og skemmdi þau töluvert.
Maðurinn var einn í bifreiðinni
þegar hann ók út af Grindavíkurvegi
um klukkan fjögur um nóttina.
Hann slapp með lítilsháttar meiðsl
og var fluttur á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja í Keflavík til aðhlynn-
ingar.
Síðar um daginn var tilkynnt um
skemmdir á umferðarmerkjum á
Reykjanesbraut í Hvassahrauni þar
sem unnið er að tvöföldun braut-
arinnar. Ekið hafði verðið á skiltin
en tjónvaldur horfið af vettvangi.
Fram kemur á vef lögreglunnar í
Keflavík að við rannsókn málsins
hafi komið í ljós að sá sem ók út af
Grindavíkurvegi um nóttina hafi
einnig verið þarna að verki.
Hundur truflaði ökumann |
Ökumaður missti stjórn á bifreið
sinni á Reykjanesbrautinni rétt við
Kúagerði um miðjan dag á laug-
ardag vegna þess að stór svartur
hundur hljóp í veg fyrir bifreiðina.
Ökumaðurinn sá einnig til manns
og konu með annan hund nokkuð
frá slysstað og er talið að svarti
hundurinn hafi verið að hlaupa í
áttina þangað. Lögreglan í Keflavík
vill hafa tal af eiganda hundsins.
Bifreiðin var fjarlægð af vett-
vangi með dráttarbifreið að því er
fram kemur á vef lögreglunnar í
Keflavík.