Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2004 37 INDVERSKI stórmeistarinn Visw- anathan Anand (2.766) sigraði á einu öflugasta skákmóti ársins, Corus- skákmótinu í Wijk aan Zee, sem lauk á sunnudaginn. Hann tapaði fyrir búlgarska stórmeistaranum Veselin Topalov (2.735) í næstsíð- ustu umferð, en tryggði sér sigurinn með stuttu jafntefli gegn Ivan Soko- lov (2.706) í lokaumferðinni. Kúb- verski stórmeistarinn Lazaro Bru- zon (2.603) sigraði í B-flokki mótsins. Úrslit 13. umferðar í A- flokki: Svidler – Adams ½–½ Shirov – Bologan 0–1 Zhong – van Wely ½–½ Bareev – Akopian 1–0 Kramnik – Leko ½–½ Anand – Sokolov ½–½ Timman – Topalov 0–1 Lokastaðan í A-flokki: 1. Viswanathan Anand 8½ v. 2.–3. Peter Leko, Michael Adams 8 v. 4.–5. Veselin Topalov, Viktor Bo- logan 7½ v. 6.–8. Loek van Wely, Evgeny Ba- reev, Vladimir Kramnik 6½ v. 9.–11. Vladimir Akopian, Peter Svidler, Alexei Shirov 6 v. 12.–13. Ivan Sokolov, Zhang Zhong 5 v. 14. Jan Timman 4 v. Þetta var í fjórða sinn sem Anand sigrar í Wijk aan Zee. Corus-fyr- irtækið hefur nú tilkynnt að það muni halda áfram að fjármagna skákmótið til ársins 2010. Norskt undrabarn að leggja undir sig heiminn? Það er sjaldgæft að C-flokkur á skákmóti veki jafnmikla athygli og A-flokkurinn. Það varð hins vegar reyndin á Corus-skákhátíðinni í Hol- land. Fátt vakti eins mikla athygli og vaskleg framganga hins 13 ára gamla Magnusar Carlsen (2.484). Hnokkinn sá arna vann C-flokkinn með 10½ vinningi af 13 mögulegum og var einum og hálfum vinningi yfir þeim mörkum sem voru tilskilin til að ná áfanga að stórmeistaratitli. Engum vafa er undirorpið að pilt- urinn á framtíðina fyrir sér og von- andi heldur hann áfram að þroskast og dafna sem skákmaður. Í tólftu og næstsíðustu umferð mótsins atti hann kappi við helsta keppinaut sinn, hollenska alþjóðlega meistar- ann Sipke Ernst (2.474). Hvítt: Magnus Carlsen Svart: Sipke Ernst Caro-Kann vörn 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. Rf3 Rd7 8. h5 Bh7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 e6 11. Bf4 Rgf6 12. 0–0–0 Mörgum þykir vörn fátæka mannsins fádæma leiðinleg byrjun en þrátt fyrir það er hún í vopnabúri margra bestu skákmanna heims. Hvítur fær iðulega rýmra tafl en svarta peðastaðan er ákaflega traust og fyrr eða síðar hyggst svartur leika c6–c5 og jafna taflið fullkom- lega. Eins og síðar kemur í ljós í skákinni þá skiptir öllu máli að gera það á réttu augnabliki. Stöðumynd 1 12. …Be7 13. Re4 Da5 14. Kb1 0–0 Eins og góðu tölvuforriti sæmir þá þykir Tiger 15 ekki verra að háma í sig h5 peðið með 14. …Rxh5 og bendir á að svartur standi prýði- lega eftir 15. Bd2 Df5. 15. Rxf6+ Rxf6 16. Re5 Had8 17. De2 c5? Rétt hugmynd en framkvæmd á röngum tíma. Svörtum tókst að jafna taflið eftir 17. …Db6 18. c3 c5 í skák milli Anands og Bareevs frá árinu 2002. Stöðumynd 2 18. Rg6! Listin að reikna út afbrigði liggur misvel við mönnum, sumir eru fædd- ir reikningshausar á meðan aðrir þurfa að þjálfa sig með stífum æf- ingum til að ná færni í reiknikún- stinni. Undrabarnið þykir hafa ákaf- lega góðan reikniheila og var því ekki skotaskuld úr því að hagnýta sér tvo fingurbrjóta svarts í röð. 18. …fxg6? Eins og framhaldið leiðir í ljós þá hefði verið skynsamlegra fyrir svartan að þiggja ekki mannsfórnina og leika þess í stað 18. …Hfe8. 19. Dxe6+ Kh8 20. hxg6! 20. Dxe7 var ekkert ofan á brauð en með textaleiknum opnast lína fyrir hrókinn og við það verður svarta kóngnum vart hugað líf. 20. …Rg8 21. Bxh6! gxh6 22. Hxh6+! Rxh6 23. Dxe7 Rf7 24. gxf7! Kg7 Hver þrumuleikurinn hefur dunið á svörtum og með næsta leik kemur hvítur hróknum sínum í sóknina. Stöðumynd 3 25. Hd3! Hd6 26. Hg3+ Hg6 27. De5+ Kxf7 28. Df5+ Hf6 29. Dd7 mát! Bragi Þorfinnsson efstur á Skákþingi Reykjavíkur Bragi Þorfinnsson (2.380) hefur tekið forystuna á Skákþingi Reykja- víkur eftir sjö umferðir. Staða efstu manna: 1. Bragi Þorfinnsson 6 v. 2.–4. Jón Viktor Gunnarsson, Júl- íus Friðjónsson, Davíð Kjartansson 5½ v. 5.–6. Björn Þorsteinsson, Dagur Arngrímsson 5 v. 7.–10. Helgi E. Jónatansson, Guð- mundur Kjartansson, Kristján Eð- varðsson, Helgi Brynjarsson 4½ v. o.s.frv. Frammistaða hins 12 ára gamla Helga Brynjarssonar (1.460) vekur athygli. Í sjöundu umferð sigraði hann andstæðing með yfir 1.900 skákstig. Eins og fram kemur að of- an er Helgi nú í 7.–10. sæti með 4½ vinning. Mótið fer fram í húsnæði TR í Faxafeni. Teflt er á miðvikudags- og föstudagskvöldum kl. 19 og á sunnu- dögum kl. 14. Smáralindarskákmótið fer fram á laugardaginn Laugardaginn 31. janúar munu Taflfélag Kópavogs og Taflfélagið Hellir í Reykjavík standa sameig- inlega að „Smáralindarskákmótinu“. Mótið, sem haldið er í fyrsta sinn og verður vonandi árlegur viðburður héðan í frá, verður haldið í Vetr- argarðinum í Smáralind og hefst kl.14. Hægt er að skrá sig til leiks á Hellir.is. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar taki þátt í mótinu. Heildarverðlaun nema kr. 25.000 og er mótið öllum opið en mælt er með því að skák- menn skrái sig fyrirfram á Hellir.is eða í síma 861-2107 (Haraldur). Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti (hellir@hellir.is). Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi, með sjö mínútna um- hugsunartíma. Verðlaun: 1. vl. 12.000 kr. 2. vl. 8.000 kr. 3. vl. 5.000 kr. Anand sigraði í Wijk aan Zee SKÁK Wijk aan Zee CORUS SKÁKMÓTIÐ 9. – 29. jan. 2004 dadi@vks.is Daði Örn Jónsson Helgi Áss Grétarsson Stöðumynd 2Stöðumynd 1 Stöðumynd 3 AP Viswanathan Anand Sveit Sölufélags garðyrkju- manna vann Suðurlandsmótið Suðurlandsmótið í sveitakeppni var spilað 24. og 25. janúar sl. í Þing- borg. Góð þátttaka var í mótinu mið- að við síðustu ár, en 10 sveitir mættu til leiks. Keppnisstjóri var Ómar Ol- geirsson. Fimm efstu sveitirnar unnu sér rétt til þátttöku í undan- úrslitum Íslandsmótsins í sveita- keppni, en þær urðu: Sölufélag garðyrkjumanna 178 Þórður Sigurðsson 172 Krappi ehf. 155 Anton Hartmannsson 148 Tryggingamiðstöðin 145 Spilarar í sigursveitinnu voru Ás- mundur K. Örnólfsson, Gunnlaugur Karlsson, Helgi Bogason og Kjartan Ingvarsson. Með Þórði spiluðu Gísli Þórarinsson, Ríkharður Sverrisson og Þröstur Árnason. Í Krappa ehf. spiluðu Óskar Pálsson, Kjartan Að- albjörnsson, Kjartan Jóhannsson og Helgi Hermannsson. Efstu spilarar í butlerútreikningi urðu: 1.–2. Helgi Bogas. Sölufél. garðyrkjum. 1,18 1.–2. Kjartan Ingv. Sölufél. garðyrkjum. 1,18 3.–4. Ásm. K. Örnólfs. Sölufél. garðm. 1,11 3.–4. Gunnl. Karls. Sölufél. garðyrkjum. 1,11 5.–6. Garðar Garðars. Mjólkurb. Flóam. 0,99 5.–6. Brynjólf. Gests. Mjólkurb. Flóam. 0,99 Bridsfélag Selfoss og nágrennis Önnur umferðin í aðalsveitakeppninni var spiluð 22. janúar sl. Úrslit urðu þessi: Gísli Þ. og félagar–Gísli H. og félagar 15-15 Björn og félagar–Brynjólfur og félagar 25-5 Ríkharður og fél. –Guðjón og fél. 11-19 Auðunn og fél.–Anton og fél. 15-15 Röð sveitanna er því: 1.-2.Anton og félagar 40 1.-2.Guðjón og félagar 40 3. Gísli H. og félagar 36 4.-5.Björn og félagar 34 4.-5.Gísli Þ. og félagar 34 6.Auðunn og félagar 26 7.Brynjólfur og félagar 14 8.Ríkharður og félagar 13 Staðan í butlerútreikningi að loknum 2 leikjum er: 1.-2.Björn Snorrason–Sv. Björns og fél. 1,30 1.-2.Kristján M. G.–Sv. Björns og fél. 1,30 3.-4.Gísli Þórarinss.–Sv. Gísla Þ. og fél. 1,22 3.-4.Þórður Sigurðs.– Sv. Gísla Þ. og fél. 1,22 5.Stefán Short –Sv. Guðjóns og félaga 1,13 Þriðja umferð í aðalsveitakeppninni verð- ur spiluð fimmtudaginn 29. janúar nk. Nánar má finna um stöðuna á heimasíðu félagsins www.bridge.is/fel/selfoss. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuherbergi/leiga Til leigu rúmgóð, nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa. Upplýsingar í síma 896 9629. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Hellisbraut 32, 380 Reykhólum, Króksfjarðarnesi, þingl. eig. Jón Þór Kjartansson, gerðarbeiðendur Fróði hf., Lífeyrissjóður Vestfirð- inga, Sparisjóður vélstjóra og Tryggingamiðstöðin hf., föstudaginn 30. janúar 2004 kl. 16:30. Hellisbraut 72, 380 Reykhólum, Króksfjarðarnesi, þingl. eig. Jón Þór Kjartansson, gerðarbeiðendur Ásbjörn Ólafsson ehf,, Húsasmiðj- an hf. og Sparisjóður Vestfirðinga, föstudaginn 30. janúar 2004 kl. 16:00. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, 22. janúar 2004. Björn Lárusson, ftr. TILBOÐ / ÚTBOÐ  HLÍN 6004012719 IV/V Helgafell og Hekla í heimsókn.  FJÖLNIR 6004012719 I H.v.  EDDA 6004012719 III Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Hrönn Frið- riksdóttir, spámiðill, Ingi- björg Þengilsdóttir, Guðríður Hannesdóttir, kristalsheilari, Ólafur Th. Bjarnason lækna- miðill, Erla Alexandersdóttir, Katrín Sveinbjörnsdóttir og Matthildur Sveinsdóttir, tarr- ot- lesari, starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, starf- semi þess, einkatíma og tíma- pantanir eru alla virka daga árs- ins frá kl. 13—18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á símsvara félagsins. Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. Samkoma í kvöld kl. 20. Gunnar Þorsteinsson predikar. www.krossinn.is  Hamar 6004012719 I Þorraf. I.O.O.F. Rb. 1  1531278-E.I.*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.