Morgunblaðið - 08.02.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 9
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur
Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is
Heimasiða: www.langferdir.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Um leið og við þökkum einstakar
móttökur kynnum við nokkra glæsilega
ferðamöguleika á ótrúlegum kjörum*
Velkomin í ævintýraheim
Tæland á kjörum
við allra hæfi
Eftirfarandi dagsetningar eru í boði:
26. apríl (uppselt) • 5. maí (3 sæti
laus) • 26. maí (5 sæti laus)
ATH: Ný brottför 2. júní!
** Verð miðast við tvíbýli á City Beach Resort og
staðgreiðslu ferðakostnaðar innan viku frá bókun.
Ekki er unnt að framlengja dvöl í Tælandi eða í
Kaupmannahöfn.
Verðdæmi til Tælands (2 vikur)
Sólarvinin Hua Hin
Frá Íslandi: 89.990 kr. - 2. júní
110.200 kr. - 28. júlí
107.900 kr. - 4. ágúst
Frá Khöfn: 78.900 kr. - 3. júní
84.700 kr. - 29. júlí
82.400 kr. - 5. ágúst
Gleðibærinn Jomtien
Frá Khöfn: 69.600 kr. - 21. apríl
77.700 kr. - 2. júní
83.500 kr. - 28. júlí
Ferð til Phuket og Bangkok
Frá Khöfn: 85.900 kr. - 7. maí
88.200 kr. - 28. maí
89.400 kr. - 13. ágúst
Síðustu sætin á ótrúlegu opnunartilboði:
Tvær vikur í sólarparadísinni
Hua Hin í Tælandi fyrir aðeins:
89.990 kr.
á mann** með öllum sköttum!
Íslenskur
fararstjóri
frá 1. apríl
Við brjótum
verðmúrinn og
opnum Kína upp á gátt
Beijing frá Íslandi fyrir aðeins:
89.400 kr. – 8 dagar – 10. ágúst
101.000 kr. – 15 dagar – 10. ágúst
Frá Kaupmannahöfn:
Beijing og hópferðin Á kínverskum
keisaraslóðum með fararstjóra:
162.600 kr. – 15. júní – 15 dagar
Beijing og hópferðin Á þaki heimsins
til Tíbet með fararstjóra:
175.300 kr. – 7. sept. – 15 dagar
Sumarferðir til Kúbu
Tvær vikur í höfuðborginni Havana og
á sólarstaðnum Varadero frá Khöfn:
91.700 kr. – 4. maí
93.990 kr. – 1. júní
103.300 kr. – 15. júní
119.500 kr. – 10. júlí
Bali og Singapúr
Tvær vikur í Singapúr og á Bali frá
Kaupmannahöfn:
89.400 kr. – 5. ágúst
*Verðdæmi miðast við gengisskr. 5. febrúar 2004.
Öll verðdæmi eru verð á mann í tvíbýli og miðast við
upp gefnar brottfarir.
Fe
rð
ab
æk
lin
ga
Ku
on
i
er
að
fin
na
á m
ör
gu
m
be
ns
ín
st
öð
vu
m
ES
SO
Íslenskur
starfsmaður
frá 1. maí
Páskar á Níl
Örfá sæti laus í v
ikulanga fljótasigl
ingu
um ævintýraheim
a Nílar-fljóts í
Egyptalandi. Frá K
aupmannahöfn
6. apríl fyrir aðei
ns:
88.150 kr. á man
n
Innifalið: Flug á m
illi Kaupmannah
afnar og Egyptala
nds,
ferðir milli flugv
allar og fljótabáts
ins, káeta í tvíbýl
i með
fullu fæði og dön
sku- og enskumæ
landi leiðsögume
nn.
Lj
ós
m
yn
d
K
U
O
N
I
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið
í dag, sunnudag, frá kl. 13.00-17.00
Útsölulok
BJÖRG Thorarensen, prófessor við
lagadeild Háskóla Íslands, segir að
Pétur Blöndal taki frekar sterkt til
orða þegar hann segir að samþykkt
frumvarps um sparisjóði sé alvarlegt
brot á réttarríkinu. Ragnhildur
Helgadóttir, lektor við lagadeild Há-
skólans í Reykjavík, segir að aftur-
virk lög brjóti í bága við réttarríkið
en hugmyndir um það séu ekki festar
í stjórnarskrá. Halldór Jónsson hrl.
hjá Lex ehf. lögmannsstofu segir að
ekkert banni afturvirka lagasetningu
á þessu sviði.
„Ég lít ekki svo á að með þessari
löggjöf sé Alþingi að skera úr rétt-
arágreiningi um beitingu laga sem
aðeins dómstólar gætu skorið úr
um,“ segir Björg. „Með samþykkt
frumvarpsins er verið að breyta gild-
andi lögum og ber það vott um breytt
mat löggjafans á þessu sviði. Vænt-
anlega verður hægt að koma ágrein-
ingi um þessi breytingarlög til dóm-
stólanna til úrlausnar,“ bætir hún
við.
Björg segir að það gæti komið til
álita að dómstólar úrskurði um hvort
lögin brytu gegn 2. grein stjórnar-
skrárinnar, sem fjalli um þrískipt-
ingu ríkisvaldsins. „Þeir sem telja að
réttindi sín eða hagsmunir séu skert-
ir með þessum lögum eða reglur rétt-
arríkisins brotnar geta komið þeim
ágreiningi til dómstóla. Þá myndu
dómstólar væntanlega taka af skarið
um það hvort Alþingi hafi farið út
fyrir valdmörk sín samkvæmt 2.
grein stjórnarskrárinnar og löggjaf-
inn hafi með þessari lagasetningu
farið inn á verksvið dómsvaldsins.
Þannig eru meginreglur réttarríkis-
ins virtar gagnvart þeim sem telja að
þarna sé brotið gegn slíkum reglum.“
Ekkert sem bannar
afturvirk lög
„Löggjafinn hefur heimildir til
þess að setja lög og það verður að
vera mat hans hvernig þau eru út-
færð,“ segir Halldór Jónsson hrl. hjá
Lex ehf. lögmannsstofu. „Það er ekk-
ert sem bannar afturvirka lagasetn-
ingu á þessu sviði en hins vegar geta
menn átt rétt á bótum ef einstak-
lingsbundnir hagsmunir þeirra eru
skertir með lagasetningu.“ Halldór
segir að lagasetningin sé pólitísk
ákvörðun. Annars vegar sé um að
ræða lagatæknilegt mál og hins veg-
ar siðferðislegt mál. Mat Péturs
Blöndal sé að gengið hafi verið á svig
við réttindi tiltekinna einstaklinga.
Það sé hins vegar dómstóla að meta
hvort þetta mat sé rétt og hvort bóta-
skylda hafi þá stofnast.
Reynt að fara eftir
meginreglum
Ragnhildur Helgadóttir, lektor við
lagadeild Háskólann í Reykjavík,
segir það grundvallarhugmynd í
réttarríkinu að reglur séu settar fyr-
irfram svo hægt sé að byggja á þeim.
„Ein af meginreglunum er að lög eigi
ekki að vera afturvirk, en það hefur
gerst áður að sett hafi verið lög
vegna einhvers sem hefur verið yf-
irvofandi,“ segir hún.
Ragnhildur segir að réttarríkið sé
hugsjón og meginreglur þess séu
eitthvað sem reynt sé að fara eftir. Í
upphafi Mannréttindasáttmála Evr-
ópu, sem er lögfestur hér á landi, sé
lögð áhersla á grundvallarreglur
réttarríkins en þær séu ekki bind-
andi skráðar í stjórnarskrá og vænt-
anlega þess vegna segi Pétur Blöndal
að samþykkt frumvarpsins sé alvar-
legt brot á réttarríkinu. „Það er rétt
hjá honum að afturvirk lög fara í
bága við hugmyndir um réttarríkið
en þær eru ekki festar í stjórnarskrá
og því er spurning – jafnvel þótt litið
yrði svo á að hér væri um afturvirkni
að ræða – hvað dómstólar færu langt
varðandi skaðabótaskyldu ef málið
kæmi til kasta þeirra.“
Dómstóla að
meta bótaskyldu
SKRIFAÐ hefur verið undir samning
milli Íslandspósts og Iceland Express
um póstflutninga til Kaupmannahafn-
ar en verkefnið var boðið út af Rík-
iskaupum síðasta haust. Alls skiluðu
þrír aðilar inn tilboðum en þeir voru
auk Iceland Express, Icelandair
Cargo og AIM ehf. Gert er ráð fyrir
að flogið verði einu sinni á sólarhring
allan ársins hring með póst til Kastr-
upflugvallar, segir á vef Ríkiskaupa.
Í flutningunum felst annars vegar
flutningur á bréfa- og bögglapósti og
hins vegar flutningur á öðrum pósti
sem Íslandspóstur óskar eftir að
koma til Kastrup. Að meðaltali er
daglegt magn tæplega 600 kíló en
sveiflur eru nokkrar og má nefna að á
einni viku í desember á síðasta ári
voru flutt 10 tonn, en á einni viku í júlí
síðastliðinn fór magnið niður í 1,4
tonn. Er þetta í fyrsta skipti sem flug-
póstur er boðinn út og segir á vef Rík-
iskaupa að árangur útboðsins hafi
reynst mjög góður en Íslandspóstur
hefur hins vegar boðið út póstflutn-
inga innanlands sem leitt hefur til
talsverðs sparnaðar í flutningum.
Iceland Express
flýgur með póst-
inn til útlandaSKIPVERJI á grænlenskum
rækjutogara, Kiliutaq, var
handtekinn í skipinu í Hafn-
arfjarðarhöfn á föstudag
vegna slagsmála um borð.
Tveir skipverjar aðrir voru
fluttir á sjúkrahús til að-
hlynningar vegna lítilsháttar
meiðsla.
Atvikið átti sér stað um
fjögurleytið um nóttina en
togarinn kom hingað til lands
á fimmtudagskvöld með
rækju til löndunar.
Skipverjinn sem handtek-
inn var fékk að sofa úr sér
vímuna í klefa lögreglustöðv-
arinnar í Hafnarfirði og eftir
að við hann hafði verið rætt í
dag var honum sleppt.
Samkvæmt upplýsingum
sem fengust hjá umboðsaðil-
um skipsins hér á landi er
það ákvörðun skipstjórans
hvaða refsingu maðurinn
hlýtur, hvort hann verður af-
munstraður, en mennirnir
þrír eru allir komnir aftur um
borð.
Slagsmál um
borð í togara