Morgunblaðið - 08.02.2004, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 27
Allur hagna›ur af sölu plastpoka merktum Pokasjó›i rennur
til uppbyggjandi málefna, en Pokasjó›ur, sem á›ur hét
Umhverfissjó›ur verslunarinnar, veitir styrki til umhverfis-
menningar-, íflrótta- og mannú›armála.
Bæ›i einstaklingar og félagasamtök geta sótt um styrki
úr sjó›num.
A› Pokasjó›i standa allar helstu verslanir á Íslandi.
Styrkir úr
Pokasjó›i
pokasjodur.is M E R K I U M U P P B Y G G I N G U
Frestur til a› sækja um styrk úr Pokasjó›i rennur
út 12. mars n.k. Umsóknum skal skila› á
www.pokasjodur.is en flar eru allar uppl‡singar
um sjó›inn, fyrirkomulag og styrki.
fieim sem ekki geta n‡tt sér Neti›
er bent á a› umsóknarey›ublö›
liggja frammi á skrifstofu sjó›sins í
Húsi verslunarinnar, 6. hæ›.
UMSÓKNARFRESTUR
RENNUR ÚT 12. MARS
Lífrænt ræktaðar vörur
Kárastíg 1, 101 Reykjavík, sími 562 4082.
Oft veltir lítil þúfa þunguhlassi – þennan ágætamálshátt má auðveld-lega heimfæra upp áframleiðslu Hermanns
Thurston, sem er bandarískur hús-
gagnahönnuður og framleiðandi sem
selur húsgögn sín m.a. í herstöðina á
Keflavíkurflugvelli og hefur einnig átt
í viðræðum við söluaðila á íslenskum
markaði.
„Þegar við hjónin vorum ung og ný-
lega byrjuð að búa vantaði okkur fót-
skemil og fórum að leita að einhverj-
um slíkum, heppilegum, en fundum
engan. Þá datt mér í hug að hanna
fótskemil sem hentaði okkur og smíða
hann. Þannig hófst okkar húsgagna-
framleiðsla í bílskúrnum við heimili
okkar og þar vorum við með fyrirtæk-
ið okkar þónokkurn tíma,“ sagði Her-
mann Thurston í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins, sem hitti hann
og konu hans að máli á Grand Hóteli
fyrir nokkru.
Þau líta út fyrir að vera mjög sam-
hent hjón, hláturmild og gamansöm.
Þau voru enda alin upp í sama
byggðarlagi og vissu vel hvort af
öðru.
Þau voru þó ekki saman í skóla.
Hermann er yngstur af ellefu systk-
inum, lifandi eru fjórar systur og einn
bróðir auk hans. Hann ólst upp á
sveitabæ þar sem foreldrar hans
stunduðu hefðbundinn búskap. Her-
mann stundaði nám við Háskólann í
Maine í tækni- og skógfræði. Hann
starfaði fyrst í timburiðnaði í nokkur
ár og síðan í fyrirtæki sem framleiddi
pappír.
Húsgögnin á heimilinu
flest sýnishorn
Maxine Thurston er viðskipta-
fræðimenntuð, ein af fyrstu stúlkun-
um sem fór þá leið í háskólanámi í
sinni heimabyggð. Þau Maxine og
Hermann giftust 1954 og bjuggu um
tíma í Massachusetts en fluttu nokkru
síðar til Vermont þar sem Hermann
fékk starf. En nokkru síðar ákváðu
þau að reyna sig á eigin spýtur.
„Ég sá um hina viðskiptalegu hlið
framleiðslunnar þegar við fórum að
framleiða húsgögn, meðan Hermann
stritaði í bílskúrnum,“ segir Maxine
kankvís.
Maxine hafði þó fljótlega nóg að
gera innanhúss. Þau hjón eignuðust
fjögur börn á fimm árum og það var
oft söngur í kotinu. Reyndar búa þau
hjón ekki í neinu koti – þau búa í 200
ára gömlu húsi sem þau hafa innrétt-
að nokkuð eftir sínu höfði en þó reynt
að láta sérkenni þess halda sér.
„Húsgögnin okkar eru að vísu
hönnuð og framleidd af okkar fyrir-
tæki, en flest þeirra eru þó til okkar
komin af því þau voru eitthvað gölluð,
– voru sýnishorn eða eitthvað slíkt,“
segir Maxine og hlær. Hún er greini-
lega ekki enn orðin það sem stundum
er kallað „fín frú,“ enda gekk hún
lengi í öll verk, innanhúss sem í fyr-
irtækinu.
Litla fjölskyldufyrirtækið þeirra
Hermanns og Maxine Thurston, New
England Woodcraft í Vermont, óx
með árunum og varð að stóru fyrir-
tæki sem þó er enn stjórnað af fjöl-
skyldunni og framleiðir hvers kyns
húsgögn úr hinum margvíslegasta
viði.
„Ég á mínar uppáhaldstrjátegund-
ir, ein af þeim er hlynur,“ segir Her-
mann og réttir mér litla flösku með
sírópi sem unnið er úr hlyni. „Það
þarf safa úr mjög mörgum trjám til
þess að framleiða síróp í þessa litlu
flösku,“ segir hann og hlær.
Hermann Thurston er af evrópsk-
um uppruna, norskum mestmegnis,
en það er harla langt síðan forfeður
hans námu land í Ameríku í grennd
við Boston. Flestir afkomendur
þeirra voru skógarhöggsmenn en það
var algengasti atvinnuvegurinn þar
sem þeir bjuggu.
Hermann tók þátt í seinni heims-
styrjöldinni en kom heill á húfi heim
úr þeim hildarleik og tók til starfa við
framleiðslu húsgagna sem fyrr sagði.
„Við framleiðum húsgögn sem
henta vel fyrir skóla, stofnanir og
einnig seljum við talsvert af húsgöng-
um til bandarískra herstöðva víða um
heim,“ segir hann.
Hermann er örvhentur en lét það
ekki aftra sér við smíðarnar.
Eftir að hafa fundið út hvernig
skemill færi best með fætur þeirra
hjóna og framleitt slíkt húsgagn í
nokkurn tíma, tók Hermann til við að
hanna og smíða kommóður, borð
stóla, skrifborð og þannig koll af kolli.
Smám saman fékk hann sér æ fleiri til
aðstoðar við framleiðsluna. Er frá leið
og fyrirtækið óx skúrnum yfir höfuð,
ef svo má segja, var byggt yfir starf-
semina sem löngu er orðin mjög mikil
sem fyrr sagði.
„Við hjónin er erum enn að hluta til
að starfa við fyrirtækið en börn okkar
eru komin að rekstrinum líka. Það
gerir okkur fært að draga okkur dá-
lítið í hlé frá fyrirtækinu og ferðast.
Við höfum mikinn áhuga fyrir ferða-
lögum og höfum nokkuð víða farið. Ís-
land líkar okkur vel við, það er mjög
rólegt hérna, hreint og mikið af nýj-
um húsum. Það kom okkur á óvart
hve allt hér í borg er nýlegt að sjá,“
segir Hermann ennfremur.
Hann kvað þau hjón ætla að koma
seinna til Íslands ef aðstæður leyfðu
og sjá meira en þau höfðu tækifæri til
í þessari ferð.
Framleiðslan hófst
í bílskúrnum
Sýnishorn af húsgögnum sem fyr-
irtæki þeirra Maxine og Hermanns
Thurston framleiðir.
Fyrirtækið New England Woodcraft í Forest Dale í
Vermont á rætur sínar í framleiðslu fótskemils í bíl-
skúr Hermanns og Maxine Thurston. Þau sögðu
Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá húsgagnaframleiðslu
sinni sem þau selja víða um heim, í skóla, stofnanir
og í herstöðvar eins og hér á Keflavíkurflugvelli.
gudrung@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Hermann og Maxine Turston hófu húsgagnaframleiðslu sína fyrir hálfgerða tilviljun.