Morgunblaðið - 08.02.2004, Page 37

Morgunblaðið - 08.02.2004, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 37 ing um að það skili árangri. Efnahags- og fram- farastofnunin, OECD, mælti með því í síðustu skýrslu sinni um Ísland að tekin yrðu upp skóla- gjöld á háskólastigi vegna þess að það stuðlaði að aukinni skilvirkni og að fólk lyki háskólanámi á styttri tíma. Allt eru þetta kostir sem ná má fram með greiðslu skólagjalda, án þess að það komi niður á jafnrétti til náms. Forsenda gæða og samkeppn- ishæfni Innheimta skóla- gjalda getur verið for- senda þess að háskól- ar treysti sér til að koma á fót nýju fram- haldsnámi af gæðum sem standast samanburð við erlenda háskóla. Slíkt getur þýtt að í stað þess að þurfa að taka sig upp, jafnvel með fjölskyldu, til að sækja sér framhaldsmenntun til útlanda, geti fólk tekið framhaldsháskólagráðu á Íslandi og þannig spar- að sér ærinn kostnað. Það getur jafnvel þýtt að fólk, sem ella hefði aldrei tekið framhaldsgráðu, bæti henni við sig, t.d. meðfram vinnu. Stuðlar það ekki að auknu jafnrétti til náms? Ekki má þó gleyma því að það verða alltaf einhverjir sem kjósa að halda utan til náms og þarf raunar að greiða fyrir því – einn styrkleiki íslenzks atvinnu- lífs og samfélags er hversu víða um lönd fólk hef- ur farið til að afla sér háskólamenntunar. Lykilatriðið í málinu er að álagning skóla- gjalda getur verið meginforsenda þess að Há- skóli Íslands og hinir ríkisháskólarnir standist þá samkeppni sem þeir eiga nú við að etja, bæði inn- anlands og frá erlendum háskólum. Í því efni ber þó að hafa í huga að íslenzkir háskólar munu a.m.k. í byrjun alls ekki geta innheimt jafnhá skólagjöld og tíðkast t.d. í beztu háskólum Bret- lands eða Bandaríkjanna. Skólarnir myndu með því „verðleggja sig út af markaðnum“. En rík- isháskólarnir mega heldur ekki verða annars flokks „gráðuverksmiðjur“, heldur verða þeir áfram að vera í fremstu röð. Þeir þurfa að geta laðað til sín bæði afburðanemendur og -kennara. Engum er greiði gerður með því að ríkisháskól- arnir drabbist niður eins og gerzt hefur víða í Evrópu, á meðan einkaháskólarnir blómstra. Slíkt myndi draga úr gæðum háskólamenntunar á Íslandi. Þetta ættu stúdentar að skilja allra bezt, en Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur þó um árabil mótmælt sérhverjum þúsundkalli, sem bætzt hefur við hin lágu innritunargjöld skólans og leggst sem einn maður gegn skólagjöldum. Sú samstaða ber því miður vott um afar þrönga sýn stúdenta á hagsmuni sína. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ítrekaði á fundinum með háskólastúdentum að hugsanleg skólagjöld yrðu viðbót við núverandi framlag rík- isins til háskólanna, en yrðu ekki til þess að fram- lagið lækkaði. Það er sömuleiðis mikilvægt atriði í málinu. Ekkert er hins vegar einhlítt í þessum efnum. Það má draga í efa að raunhæft sé að innheimta skólagjöld í ýmsu námi við Háskóla Íslands, sem fáir sækja og telst ekki til þess fallið að auka tekjumöguleika fólks, en er engu að síður bráð- nauðsynlegt í háskólasamfélaginu og forsenda þess að það standi undir nafni. En í öðrum grein- um er háskólapróf nánast ávísun á háar tekjur og þar mætti innheimta skólagjöld sem væru hærri en í öðrum fögum. Stjórnun og fjárhagur HÍ Tillaga Þorgerðar Katrínar Gunnars- dóttur menntamála- ráðherra um að gera stjórnsýslu- og fjárhagsúttekt á Háskóla Íslands sem lið í því að gera hann í stakk búinn til að tak- ast á við nýja samkeppni er athyglisverð. Úttekt af þessu tagi er án nokkurs vafa afar þörf. Há- skólinn er stór stofnun og stjórnkerfi hans er að mörgu leyti svifaseint og óskilvirkt, ekki sízt í samanburði við yngri og smærri keppinauta hans. Það er full ástæða til að skoða rækilega hvort þar má ekki bæta úr. Jafnframt er ástæða til að skoða hvernig fjármunir nýtast í starfi skól- ans. Þar hlýtur m.a. að koma til skoðunar hvern- ig æviráðnir kennarar skólans nýtast í starfi, bæði til rannsókna og kennslu. Því miður bendir margt til að launa- og ráðningarkerfi ríkisstarfs- manna sé HÍ fjötur um fót í samkeppninni við einkareknar sjálfseignarstofnanir. Margir hafa raunar haldið því fram að það sé illmögulegt að stjórna Háskóla Íslands, bæði vegna þess hversu flókið og óskilvirkt stjórnkerfi hans er og vegna þess hvernig staðið er að ráðn- ingu rektors háskólans. Rektor er kjörinn úr hópi prófessora og dósenta skólans og þeir ráða jafnframt mestu um val hans, en atkvæði stúd- enta og annarra starfsmanna en kennara og há- skólamenntaðra sérfræðinga vega 40% í rektors- kjöri. Rektor, sem þannig er valinn, er í erfiðri aðstöðu til að fá starfssystkini sín til að sam- þykkja sársaukafullar ákvarðanir, ekki sízt af því að hann snýr um síðir aftur til prófessorsemb- ættis síns – og ef hann treður þeim um tær eru litlar líkur á að hann hljóti endurkjör. Með því að íslenzkt háskóla- og fræðasamfélag nær ekki lengur aðeins yfir Háskóla Íslands, gætu farið að skapast forsendur fyrir því að rektor sé ráðinn með öðrum hætti; að t.d. háskólaráð eða einhvers konar fulltrúaráð háskólans réði rektor, sem gæti allt eins komið utan að eins og úr röðum há- skólaprófessora, en hefði bæði akademískan bak- grunn og víðtæka stjórnunarreynslu úr innlendri eða erlendri háskólastofnun. Þetta hafa margir háskólar gert; t.d. hafa allir rektorar London School of Economics undanfarna áratugi komið úr stjórnunarstöðum við aðra háskóla og getað tekið til hendinni í samræmi við það, óbundnir af fortíðinni. Samkeppni um rannsóknafé Undanfarnar vikur hafa forsvarsmenn háskóla í landinu deilt um annan aðstöðu- mun en heimildina til að leggja á skólagjöld, en það eru framlög ríkisins til rannsókna. Forsvars- menn t.d. Háskólans í Reykjavík og Viðskiptahá- skólans á Bifröst kvarta undan því að Háskóli Ís- lands fái um það bil jafnháa upphæð til rannsókna og til kennslu, en þeir fái til rann- sókna aðeins brot af því, sem ríkið greiðir þeim fyrir að kenna stúdentum. Í þessum umræðum ber á því að talsmenn einkareknu skólanna blanda saman fjárframlög- um til kennslu og rannsókna og halda því fram að Háskóli Íslands sé sízt vanhaldinn. Með því er gefið í skyn að skólinn gæti tekið peninga, sem ætlaðir eru til rannsókna, og nýtt til kennslu. Það er hins vegar mikilvægt að standa vörð um rann- sóknahlutverk Háskóla Íslands; hann er flagg- skip og miðstöð vísindarannsókna á Íslandi, þótt mikill metnaður sé einnig hjá hinum yngri há- skólastofnunum. Þetta á ekki sízt við á þeim svið- um þar sem rannsóknir skila ekki við fyrstu sýn augljósum hagnaði, þó í þeim felist mikil menn- ingarverðmæti og þekking. Með rannsóknum skilar Háskólinn bæði hugmyndafræðilegri um- ræðu og möguleikum til framþróunar og nýsköp- unar til baka inn í samfélagið, auk þess að verða samkeppnisfærari við erlenda háskóla. Lausnin á þessum deilum er hins vegar til- tölulega augljós. Þegar fram líða stundir, hljóta menn að stefna að því að háskólastofnanir lands- ins keppi um rannsóknastyrki úr sjóðum, þar sem vandað, faglegt mat er lagt á gæði rannsókn- anna og fé úthlutað samkvæmt því. Í slíkum sam- keppnissjóðum ættu allir jafna möguleika, en jafnframt má gera ráð fyrir að þar stæði Háskóli Íslands áfram vel að vígi, vegna ríkrar hefðar og reynslu á sviði rannsókna. Í umræðum um fjármögnun háskólastigsins verða menn að leitast við að falla ekki í gildru meðalmennskunnar og skrifræðisins. Það þarf að leita leiða til að gera íslenzka háskóla samkeppn- isfæra um beztu nemendurna og starfsfólkið, við- bragðsfljóta og sveigjanlega, auk þess sem aka- demísk vinnubrögð eru í hávegum höfð og aðbúnaður stúdenta er góður. Það er full ástæða til að pota sér upp úr skotgröfunum og ræða mál- in á fordómalausan hátt. Morgunblaðið/Ásdís Stúdentar vilja góða menntun – en ekki borga skólagjöld. Háskólastúdentar slá skjaldborg um Háskóla Íslands fyrr í vikunni. Það má taka undir það með mennta- málaráðherra að kominn er tími til að fram fari ítarleg og hreinskiptin um- ræða um kosti og galla þess að taka upp skólagjöld við Háskóla Íslands og hina ríkisháskólana. Því miður hefur varla mátt nefna orðið skólagjöld í umræðum um há- skólastigið án þess að menn velti ofan í pólitískar skotgrafir hver um annan þveran og reki upp kollinn rétt aðeins til að hrópa að jafn- rétti til náms sé í hættu. Laugardagur 7. febrúar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.