Morgunblaðið - 08.02.2004, Page 40
MINNINGAR
40 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„Koss, koss, og
hjartanlega velkomin!“
„Koss, koss, koss, vertu blessuð
og sæl og hafið þið það gott og
þakka ykkur innilega fyrir komuna.
Og hafið þið það alltaf sem best.“
Þessar góðu og hlýju móttökur og
kveðjur fengum við ævinlega þegar
okkur bar að garði í Ásum undanfar-
in ár. Hann sat þarna á eldhús-
bekknum, augun blikuðu brosandi,
blá og skær í höfði þessa aldraða
góða tengdaföður míns.
Hann var svo fagnandi og glaður.
Hann hafði sannarlega oft verið
þreyttur um dagana, enda unnið erf-
iðisvinnu frá barnsaldri. Mér er sagt
að hann hafi byrjað að slá með orfi
og ljá aðeins átta ára gamall. En síð-
ustu árin hafði hann loksins tíma til
að hvíla sig og hann var svo skyn-
samur að kunna að njóta þess.
Hann var góður verkmaður í
hverju því sem hann tók sér fyrir
hendur.
Hann var góður söngmaður.
Hann var góður bóndi.
Hann var afskaplega ósérhlífinn.
Hann var góður í svo mörgu að ef
hann væri unglingur í dag myndi
kennarinn hans segja : „Hans er val-
ið.“ Í mínum augum var hann fyrst
og fremst heilsteyptur maður með
fagra og jákvæða lífssýn. Ég á hon-
um margt að þakka sem tengdadótt-
ir sl. 30 ár. Hann var góður afi sona
minna og ekki síður góður faðir
mannsins míns.
Með virðingu og þökk.
Vaka Haraldsdóttir.
Nú hefur hann kvatt hann Guð-
mundur föðurbróðir minn síðastur
þeirra systkina frá Sandlæk. Hann
náði því að verða níræður í septem-
ber síðastliðnum. Hann var fallegur
öldungur og hélt reisn sinni allt til
hinsta dags. Ég hitti hann síðast
glaðan og reifan í vetrarbyrjun.
Þessi frændi minn var í miklu uppá-
haldi hjá mér og minni fjölskyldu.
Fyrstu minningarnar eru frá því
að hann færði mér dúkku sem gekk
síðan undir nafninu Amríkudúkkan
og ég varðveiti enn í dag. Hann kom
með hana er hann kom úr söng-
ferðalagi með Karlakór Reykjavíkur
til Bandaríkjanna árið 1946, en
söngmaður var hann góður. Þessa
ferð rifjaði hann oft upp og sagði
okkur svo skemmtilega frá. Hafði
engu gleymt þótt hallaði á sjötta
tuginn síðan ferðin sú var farin.
Ég átti þess kost sem barn að fá
að dvelja af og til á sumrin hjá þeim
góðu hjónum Gumma og Stebbu í
Ásum en þau höfðu þá hafið búskap
á arfleifð hennar. Gummi var dug-
andi bóndi og hamhleypa til allra
verka meðan kraftar leyfðu. Þá var
tvíbýli í Ásum og margt um manninn
og gestagangur ævinlega mikill,
enda þótti Ásaheimilið gott heim að
GUÐMUNDUR
ÁMUNDASON
✝ GuðmundurÁmundason
bóndi að Ásum í
Gnúpverjahreppi
var fæddur að Sand-
læk í sömu sveit hinn
17. september 1913.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnuninni á
Selfossi 23. janúar
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Stóra-Núpskirkju
31. janúar.
sækja. Frá þessum ár-
um á ég góðar minn-
ingar.
Eftir að ég gifti mig
og við Völundur sett-
umst að norður í Aðal-
dal urðu samveru-
stundirnar strjálli.
Þótt þau hjón legðust
ekki mikið í ferðalög
létu þau verða af því að
heimsækja okkur fyrir
nokkrum árum og þá
var glatt á hjalla í
Álftanesi. Við reyndum
einnig að koma því við
að bregða okkur aust-
ur í hrepp ef farið var suður yfir
heiðar. Þá var gaman að sitja í eld-
húsinu á bekknum hjá frænda og
hlusta á hann segja frá ýmsu sem á
dagana hafði drifið.
Hann hafði næmt skopskyn og
góða frásagnarhæfileika og í eðli
sínu var hann gleðimaður. Stebba sá
um veisluföngin hvort heldur var
saltað hrossakjöt eða heimabakað
brauð með kæfu, allt sem borið var á
borð bragðaðist jafn vel. Þau höfðu
bæði svo góða nærveru að maður
naut þess að vera nálægt þeim.
Mikið á ég eftir að sakna þess
næst þegar ég kem að heyra sagt
„sæl væna mín“ og með ávarpinu
fylgdi þetta fallega, hýra bros.
Gummi minn, ég og fjölskylda mín
kveðjum þig með söknuði en jafn-
framt þakklæti fyrir allar góðu
stundirnar fyrr og síðar. Stebbu og
allri fjölskyldunni sendum við sam-
úðarkveðjur.
Á framtíðarlandið birtu ber
bjarminn af lífsgleði þinni.
Hún verður ætíð í minni mér,
ég met það sem lán að ég kynntist þér.
Fúslega þökk ég færi
þér, frændi minn góði, kæri.
(A.S.)
Halla Lovísa.
Við Gummi erum niðri við Rauða-
læk að girða nýrækt. Það var
þungbúið. Skyndilega dynur regnið
á okkur og við stöndum það af okkur
undir brúnni á læknum. Fáum okk-
ur í pípu. Meðan ég tek áttirnar í
verkinu eftir skúrina grefur Gummi
fyrir hornstagi. Ég horfði á frænda
minn vinna þetta verk. Það var lítil
töf. Þetta tók enga stund. Hnausinn
mátulegur, holan hrein, handtökin
örugg og áreynslulaus. Það marrar í
skófluskaftinu. Sterk moldarlyktin
fyllti vitin.
Einhvern tíma orðaði ég þessa
girðingavinnu við pabba og hvað
mér fannst um vinnubrögð frænda
míns. Það glaðnaði yfir honum og
hann fór að segja mér frá hinu og
öðru úr uppvexti þeirra bræðra.
Hvað þeir smíðuðu, oft úr afar tak-
mörkuðum efnivið. Þeir voru vart af
unglingsaldri þegar þeir komu upp
sjálfbrynningu í fjósinu á Sandlæk.
Vatnshrútur skilaði vatninu í kerald
sem komið var fyrir uppi undir
rjáfri. Úr því var vatnið leitt í dalla
sem þeir smíðuðu og settu milli bás-
anna í sömu hæð þannig að nóg var
að útbúa hæðarstillingu á einum
stað. Sennilega er þetta fyrsta stóra
framfaraverkið sem Gummi tók þátt
í að vinna viðvíkjandi búskap. Þau
urðu fleiri síðar. Það verður hlé á
spjallinu við pabba, hann er hugsi,
en segir svo: „Alveg er það hrein un-
un að sjá hann Gumma bróður slá
með orfi og ljá, – og reyndar vinna
hvaða verk sem er.“
Gummi var afar opinn fyrir nýj-
ungum í búskap og hikaði aldrei við
að kynna sér þær og tileinka. Þó
hafði hann fulla gát á að ganga ekki
lengra en svo að full not yrðu af
þeim búnaði sem hann aflaði sér.
Hann var ótrúlega flínkur að hag-
ræða verkum þannig að þau yrðu
eins létt og kostur varð og afköstin
honum að skapi.
Mér er minnisstætt þegar að
komu tveir bændur neðan úr Flóa
við í Ásum á leið sinni á fjall. Gummi
sýndi þeim nýja lausagöngufjósið
sitt með átta kúa mjaltabás. Þeir
sögðu fátt. Gumma var skemmt.
„Þeir eru grænir af öfund, kalla-
greyin, já já. Þeir mega víst húka á
hækjum sínum undir beljunum ef þá
langar, ég er hættur því,“ sagði
hann þegar þeir voru farnir og
brosti, fullviss um hafa það sem rétt-
ara var.
Um þetta leyti keypti Gummi nýj-
an David Brown 990. Það er ekki
minni gerðin. Gestkomandi nokkur
var alveg undrandi þegar hann virti
gripinn fyrir sér heima á hlaði.
Gummi stóð á tröppunum. „Hann er
svo svakalega stór. Af hverju keypt-
irðu svona stóran?“ spurði gesturinn
„Bara a’ganni,“ svaraði Gummi eitt
breiðabros. Það kom reyndar á dag-
inn að þessi traktor átti eftir að
vinna fyrir kaupverðinu.
Einu sinni vorum við Ágúst og
Steini Ólafs í áburði lengst austur á
túni. Skyndilega drepur Ágúst á vél-
unum. Hann hafði heyrt að kallað
var að heiman og kallar í áttina
heim, hvað sé um að vera. Gummi
stendur heima á hlaði og sendi okk-
ur skilaboðin austur á tún: „Mjólk-
urbíllinn er kominn.“ Við vorum svo
langt í burtu að það rétt grillti í Guð-
mund bónda. Rómurinn var svo
sterkur að hann heyrðist gegnum
vélaniðinn. Pokarnir voru drifnir af
vagninum í hvelli, og fyrr en varði
voru brúsarnir komir út á veg.
Það rigndi nánast uppstyttulaust
þetta sumar og urðu heyskemmdir
miklar. Þá varð það bændum í
hreppnum til happs að sáð hafði ver-
ið í Vikrana í Þjórsárdal um vorið og
hafði sprottið vel. Þetta varð mönn-
um kærkomin björg og var Gummi
einn þeirra sem nýttu sér þetta.
Þessi sáning fór svo öll undir vikur í
Heklugosinu vorið eftir. Gummi er
mesti heyskaparmaður sem ég hef
kynnst. Hann var kröfuharður á frá-
gang á heyi, hvort heldur var í hlöðu
eða vothey í turn, enda vann hann
þau verk gjarnan sjálfur. Það var
gaman að gefa kúnum votheyið sem
hann hafði tryggt bestu fáanlegu
verkun.
Gummi var með afbrigðum glað-
vær og skapgóður, jákvæður og örv-
andi og vildi að væri drifið í hlut-
unum en gat rokið upp eins og
hvirfilvindur ef honum mislíkaði.
Alltaf hafði hann þó það taumhald á
tungu sinni að hann þyrfti ekki að
iðrast orða sinna. Svo var það búið,
fyrr en varði var hann aftur kominn
í sama glaða skapið.
Myndir minninganna eru margar.
Gummi með systkinum sínum í eld-
húsinu í Ásum, Siggu, Gunnu og
pabba. Drukkið kaffi, reykt og
skrafað. Hlýja og glaðværð í önd-
vegi. Já, vel á minnst. Hvað er búið
að drekka mikið kaffi í eldhúsinu hjá
henni Stebbu? Ja, maður. Fríar fjöl-
rétta veitingar í sextíu ár – alltaf op-
ið – allir velkomnir – Café Stefanía.
Langt er liðið frá því ég kom með
pabba að Ásum. Það er sólskin og
hiti. Við erum í bíl sem er bæði rúta
og mjólkurbíll. Hann nemur staðar
við brúsapallinn sem enn er ein-
kennilega skýr í minningunni. – Það
kemur maður akandi niður veginn á
gráum Ferguson með kerru. Hann
er grannvaxinn og kvikur í hreyf-
ingum, með derhúfu á höfði og síg-
arettu í öðru munnvikinu. Í kerrunni
eru fullir mjólkurbrúsar og útitek-
inn krakki. Þetta er lífsins saga.
Líf og saga Guðmundar frænda
míns er storkandi fyrirmynd þeim
sem vilja skila góðu æviverki. Hann
hefur skilað sínu með fyrstu ágæt-
iseinkunn – og er horfinn á braut.
Allir sem hann þekktu kveðja hann
með vinarhug og þakklæti.
Vertu sæll, frændi.
Ámundi Loftsson.
✝ Gunnar KristinnAuðbergsson
fæddist 15. október
1917. Hann lést á
dvalarheimilinu
Hulduhlíð á Eski-
firði 1. febrúar síð-
astliðinn, 87 ára að
aldri. Foreldrar
hans voru Auðberg-
ur Benediktsson frá
Sléttaleiti í Suður-
sveit, f. 14.6. 1884,
og k.h. Guðrún
Sveinsdóttir, f. 5.8.
1884 á Eskifirði.
Giftust þau 1912.
Systkini Gunnars eru: Sveinn, f.
1.6. 1914 á Eskifirði; og Lína, f.
23.9. 1915 á Eskifirði. Þau eru
bæði látin.
Eftirlifandi fósturbróðir
þeirra er Kjartan Pétursson, f.
1.11. 1930 í Seli í Reyðarfjarð-
arhreppi. Hjónin
tóku hann í fóstur
tveggja ára gamlan.
Gunnar var lærð-
ur húsasmiður, og
vann við innrétting-
ar og byggingar. Á
yngri árum smíðaði
hann báta með föð-
ur sínum og greip
til þess síðar eftir
atvikum. Hann varð
meðhjálpari og
gjaldkeri Eskifjarð-
arkirkju við komu
séra Kolbeins Þor-
leifssonar í bæinn
1967–68 og var í starfi fyrir
kirkjuna næstu 27 árin.
Seinast dvaldi hann á dvalar-
heimilinu Hulduhlíð á Eskifirði.
Útför Gunnars fór fram frá
Eskifjarðarkirkju laugardaginn
7. febrúar.
Ég var að frétta, að nú væri dá-
inn trúbróðir, vinur og náinn sam-
starfsmaður í fjögur ár, Gunnar
Auðbergsson. Samvinna okkar var
stutt, en þeim mun árangursríkari
fyrir framtíð kirkjunnar á Austur-
landi. Hann var hæglátur trúmað-
ur í anda 20. aldarinnar, þar sem
trúarvakningar fóru að skipta
meira máli en áður í kristnisög-
unni. Reyndar var það svo, að í
ungdæmi hans á 4. áratugnum var
trúarvakning í gangi á Norðfirði.
Svo sagði mér sjómannatrúboðinn
sem var aðalmaðurinn á bak við
þetta. Dag einn komu til hans ung-
ir menn gangandi yfir Oddsskarð
og báðu hann að koma yfir fjallið
til þeirra. Annar þeirra var
Sveinn, bróðir Gunnars vinar
míns. Hinn var Garðar Helgason.
Úr þessu varð trúarvakning í hér-
aðinu. Gunnar tók ekki sjálfur þátt
í þessu. Hans tími var ekki kom-
inn, en hann skyldi koma. Það sá
Almætti Guðs um. Gunnar var tré-
smiður af guðs náð, og smíðaði
meðal annars báta. Við ræddum
stundum saman vandamál kirkju
okkar, meðan hann var önnum kaf-
inn við bátasmíði. Þessi íþrótt
hans átti eftir að nýtast kirkjunni
á Austurlandi svo að eftir væri
tekið. Það var löngu eftir að ég
hafði kvatt söfnuðinn. Hvernig
mátti slíkt ske? Eitt af afreks-
verkum okkar ungu prestanna,
sem sátum á miðjum fjörðum, var
að koma upp sumarbúðum á Eið-
um, sem reknar voru við miklar
vinsældir í barnaskólanum á
staðnum, og var Eiðaprestur e.k.
fjármálastjóri starfsins. En það
var meining okkar, að sumarbúð-
irnar fengju sér fast aðsetur við
Eiðavatn. Umræður við rétta land-
eigendur gengu treglega, og varð
úr þessu margra ára reipdráttur.
Á þessum árum blönduðu sýslu-
menn sér gjarnan í menningarmál
héraða sinna. Slíkt er ekki lengur
hægt. Eftir langan reipdrátt kom
trúaður sýslumaður á Seyðisfjörð,
Sigurður Helgason, og tók traust-
um höndum á þessu máli svo að
kirkjan á Austurlandi eignaðist
sína miðstöð við Eiðavatn. Ég
kann ekki að segja söguna í ein-
stökum atriðum, en á vissu stigi
málsins, þegar ljóst var hverskon-
ar hús skyldi reisa þarna á staðn-
um, þá tók safnaðarfulltrúi Esk-
firðinga sig til, en það var Gunnar
Auðbergsson, og smíðaði allt húsið
í flekum, sem hann síðan geymdi
heima hjá sér, þar sem grípa mátti
til þeirra þegar við lá. Þetta sögðu
mér prestar sem voru vitni að
þessu. Slíkt og annað eins gerist
aldrei nema bak við liggi djúp
trúarsannfæring og elska til kirkju
sinnar. Þessi saga má aldrei
gleymast.
Það var mikið lán fyrir mig að
kynnast Gunnari, hjartahreinum
og góðum manni, þegar ég kom til
prestsstarfa í ókunnum söfnuði í
fjarlægum landshluta. Drottinn
hefur því svo til hagað, að vinátta
okkar og samstarf spanna yfir 100
prósent af mínu sóknarprests-
starfi. Þeim mun dýrmætari er
minning hans í huga mér, og ég
get varla hugsað þá hugsun til
enda, hvílík ógæfa það hefði verið,
ef kirkjan á Austurlandi hefði
misst af starfskröftum hans.
Blessuð sé minning Gunnars
Auðbergssonar.
Kolbeinn Þorleifsson, prestur.
GUNNAR KRISTINN
AUÐBERGSSON
Mig langar í nokkr-
um orðum að minnast
hennar Dóru.
Ég kynntist Dóru þegar ég kom
inn í fjölskylduna fyrir 20 árum.
En þá kynntist ég tengdamömmu
minni henni Rikku en hún var ekki
sú eina sem ég kynntist því með
því að fá hana sem tengdamömmu
má segja að ég hafi fengið aðra í
kaupbæti, systur hennar hana
Dóru. Hún var ein af þessum kon-
um sem var alltaf gott að vera ná-
lægt, ávallt var stutt í hláturinn,
DÓRA G.
SVAVARSDÓTTIR
✝ Dóra GuðríðurSvavarsdóttir
fæddist í Vestmanna-
eyjum 12. maí 1942
og ólst þar upp. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Vestmanna-
eyja 3. febrúar síð-
astliðinn og var útför
hennar gerð frá
Landakirkju í Vest-
mannaeyjum 7. febr-
úar.
brosið og húmorinn,
manni leið einfaldlega
svo vel í kringum
hana. Hún var barna-
gæla af guðs náð og
það að hún vann inn-
an um börn til fjölda
ára gaf henni mikið.
Dóra var næstelst af
sex systrum og er
samband þeirra systr-
anna alveg einstakt.
Mikil sorg og söknuð-
ur fylgir því nú þegar
hún Dóra er farin en
það er huggun í sorg-
inni að það eru til svo
margar góðar minningar um hana
sem munu ylja okkur öllum.
Elsku Dóri, Kaja, Ævar, Haf-
þór, Sigga, barnabörn og barna-
barnabarn og aðrir aðstandendur,
það voru forréttindi að fá að kynn-
ast svona frábærri konu. Minn-
ingin um hana mun lifa í hjörtum
okkar allra.
Mína dýpstu samúð.
Unnur Sigmarsdóttir og fjölsk.
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn