Morgunblaðið - 08.02.2004, Side 51
stætt og sundrandi. Markaðurinn er
stöðugt að segja okkur að við séum
ekki nógu góð af því okkur vanti
þetta og þetta og þetta. Og svo þeg-
ar þeim löngunum er fullnægt vant-
ar okkur (samkvæmt markaðnum)
eitthvað enn annað. Við búum í stöð-
ugri vöntun og „fixið“ er „skyndi-
lausn“ (instant gratification) mark-
aðarins. Þessa viðleitni kýs ég að
kalla „skyndisma“(instantismi). Það
er að þarfir okkar og langanir séu
best uppfylltar með „skyndi“lausn.
Sjúkdómur sé best höndlaður og
haldið niðri með „skyndi“lausn pill-
unnar og að markaðurinn sé í heil-
brigðiskerfinu líkt og öðru best til
þess fallinn að laga okkar veikindi og
vanlíðan með „skyndisma“. Þetta
þýðir það að gróðasjónarmiðin laga
sig að þörfum og löngunum ein-
staklinga í heilbrigðiskerfinu og í
sumum tilfellum skapa þörfina með
gróðann að leiðarljósi. Lyfjafyr-
irtækin hljóta að græða mest á því
að sem flestir séu greindir með sjúk-
dóm og þurfi lyf. Að stikunni (DSM-
ICD) (Mynd A) sé ýtt æ fjær ójafn-
væginu (dis-ease) í átt að jafnvæginu
(ease). Að feimni sé flokkuð sem
sjúkdómur og æ fleiri áður „eðlileg“
heilkenni tilverunnar séu sjúkdóms-
greind í samfélagi sem er í ójafn-
vægi. Þetta er eðli sjúkdóms-
væðingar og markaðsaflanna í
heilbrigðiskerfinu. Nú er það svo að
í heilbrigðiskerfinu ráðum við sem
neytendur ekki fyllilega hvers við
neytum. Ákvarðanir hvað okkur sé
fyrir bestu eru teknar af þeim sem
til þess hafa þekkingu og huglæg
greiningarkerfi til þess að ákvarða
um það sem amar að okkur og okkur
sé fyrir bestu. En er þekking þessi
algild og alrétt eða geta ekki aðrir
þættir en vellíðan neytandans haft
áhrif á það hvernig valdi greinanda
„vandans“ er beitt, s.s. fjármagn?
Fyrir skemmstu var hermt eftir
geðlækni í þessu blaði að sennilega
þjáðust tugir prósenta Íslendinga af
geðhvörfum II (áætlað 2 tugir =
56.000 >) og nauðsynlegt væri að
greina vandann og höndla hann með
lyfjum læknifræðilega módelsins svo
fólki liði betur. (Læknirinn tók jafn-
framt fram að hann væri með prívat
stofu úti í bæ og árangurinn af með-
ferinni væri mjög góður eða 80-
90%). Þetta þykir mér skýrt dæmi
um sjúkdómsvæðingu og velti ég í
framhaldi fyrir mér í ljósi þessa
hvort stikan (DSM-ICD) sé ekki
kominn það ofarlega á kvarðann að
minna sé eftir að heilbrigði en veik-
indindum í landsmönnum. Væri þá
ekki eðlilegast fyrir heilbrigð-
isstarfsfólk og heilbrigðiskerfið í
heild sinni að standa þá loks undir
merkingarfræði forskeytisins og
greina heilbrigði í einstaklingi frek-
ar en sjúkdóm þar sem minna virðist
eftir af því hvort eð er? Möguleiki
væri líka á að hanna eina „instant
gratification“ pillu fyrir alla sem
innihéldi blöndu af vítamínum, geð-
lyfjum og öllum efnunum sem við
virðumst þurfa við lífinu. Væri hægt
að tala um lífs-pilluna sem allir
tækju að morgni. Staðreyndin sem
virðist vera horft framhjá er einfald-
lega sú að ef við ætlum að búa í kapi-
talísku, ný-frjálshyggju-, markaðs-
drifnu samfélagi verðum við e.t.v. að
sætta okkur við að ein af aukaverk-
unum þess virðist vera slæmt heilsu-
farsástand. Auk þess er það morg-
unljóst að fyrir markaðinn er meira
upp úr veikindum að hafa en heilli
brá.
Niðurlag
Hvað er að þegar ekkert er að en
samt er ekki allt í lagi? Hvernig eig-
um við sem þjóð að snúa basli okkar
með eigin líðan, sjúkdóma, heilbrigði
og hver á að greiða fyrir heilsubresti
samborgara okkar? Er það heilla-
vænlegt að ríkisvaldið standi í varn-
arbaráttu forvarna og eflingu heil-
brigðis á sama tíma og markaðurinn
græðir sem mest á ójafnvægi og
skilgreindu sjúkdómavali „heilbrigð-
is“stéttanna til handa okkur lýðn-
um? Þar sem kraftar eflingar- og
varnarafla forsjárinnar mega sín lít-
ils gegn sterkum upphandleggs-
vöðva hins frjálsa markaðar sem fal-
ar allt sem falt er. Svarið er
margþætt og liggur að hluta til í
réttfærslu þeirrar ranghugmyndar
að meira sé betra og verði aldrei
nóg. Á sama hátt og Daniel Ka-
hneman talaði um að svo hamingja
mætti fylgja hagvexti verður heilsa
að fylgja eins miklum jöfnuði og
mögulegt er. Af meiði John’s Locke
verður að reyna feta milliveg ein-
staklingsfrelsis og samhyggju, sem
oft hefur verið titluð þriðja leiðin í
pólitískri hugmyndafræði. Hin fé-
lagslegi- og hagfræðilegi rammi or-
saka verður að fá að liggja á þeim
millivegi svo heilbrigði verði há-
markað með lágmarkskostnaði því
heilbrigðiskerfið á að hafa það út-
ópíska markmið að eyða sjálfu sér
en ekki vera enn einn kart-
öflugarður kapítalismans.
Höfundur er tímabundinn ráðgjafi
hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni í
Genf.
6
J-@@ K-@@
6B'6
?
6 %L*> .M
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 51
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Hrafnhildur Haraldsdóttir s: 869 8150
Netfang: hrafnhildurh@remax.is
Fasteignasala: RE/MAX Suðurlandsbraut
Heimilisfang: Efstasund 65
Stærð eignar: 94 fm
Brunabótamat: 9,4 millj.
Byggingarár: 1946
Áhvílandi: 8,9 millj.
Verð: 12,2 millj.
4ra herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýl-
ishúsi. Plastparket á öllum herbergjum,
stofu og holi, eldhús með dúk á gólfi.
Sérþvottahús. Skjólveggur og hellu-
lögð stétt utan við útidyr, gróinn garð-
ur. Frábær staðsetning.
Hrafnhildur Haraldsdóttir
sölufulltrúi Re/max tekur
á móti gestum milli kl. 14 og 16.
OPIÐ HÚS - Efstasund 65
Glæsilegt 320 fm einbýli með tvöföldum
innbyggðum bílskúr. Frábær hönnun. Á
neðri hæð er 60 fm bílskúr, tvö svefnher-
bergi, wc og fjölskylduherbergi (möguleiki
á aukaíbúð). Uppi eru þrjú stór svefnher-
bergi, stofa, eldhús, borðstofa og tvennar
stórar svalir. Upplýsingar á skrifstofu.
Nýbyggingar
Ennishvarf - Elliðavatn
Glæsilegar 3ja herbergja 117 fm. neðri
sérhæðir á góðum stað í Grafarholti.
Íbúðirnar eru tilbúnar án gólfefna. Vand-
aður frágangur og skemmtileg hönnun.
Sjón er sögu ríkari. Verð 17,9 millj,
Grænlandsleið - Grafarholt
Kirkjustétt - Grafarholti
Höfum fengið í sölu stórglæsileg tvíbýl-
ishús í Grafarholti. Staðsetning og útlit
er sérlega skemmtilegt. Íbúðin er um
170 fm auk 32 fm. bílskúrs sem er inni-
byggður. Möguleiki er á 32 fm glerskála
við efri hæð. Húsin afhendast tilbúin til
innréttinga eða fullbúin án gólfefna.
Minni íbúðin er 83 fm. Teikningar og
allar nánari uppl á skrifstofu.
Grænlandsleið - Grafarholt
Einbýlishús, 203,6 fm, á tveimur hæðum
ásamt 35,3 fm bílskúr, samtals 238,9 fm.
Húsið afhendist fokhelt að innan og fullbú-
ið að utan, steinað. Hægt er að kaupa óm-
úrað. Bílskúr er innbyggður. GLÆSILEGT
HÚS Í SUÐURHLUTA GRAFARHOLTS.
STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU.
Verð 20,9 millj.
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Stórglæsileg 106,4 fm íbúð á 1. hæð með hellulagðri verönd og sérgarði í glæsilegu
viðhaldsfríu lyftuhúsi í Mánatúninu. Glæsilegt eldhús með fallegri innréttingu úr hlyn,
gashelluborð. Björt og rúmgóð stofa, útgangur út á sérhellulagða verönd. Stálofnar
eru í íbúðinni. Tvö svefnherbergi með parketi og skápum. Þvottahús innan íbúðar.
Parket og flísar á gólfum. Þetta er 1. flokks íbúð á frábærum stað. Verð 17,7 millj.
Magnús og Þórhildur taka vel á móti væntanlegum kaupendum
í dag frá kl 16-18.
MÁNATÚN 4
Opið hús í dag frá kl. 16-18
www.101skuggi.is
Sími 588-9090Sími 530-1500
Glæsilegar fullbúnar íbúðir
verð frá 14,6 - 24,6 milljónir kr.
Við bjóðum m.a. vandaðar, nýtískulegar og vel
hannaðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir í 101 Skugga -
hverfi. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna.
Hverri íbúð fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Gerið samanburð á gæðum og verði
við aðrar eignir á svæðinu.
2 og 3 herbergja íbúðir í miðborginni
Íbúðir til afhendingar í september 2004
Verðdæmi:
69 m2 2 herb. 14,6 m kr.
73 m2 2 herb. 17,2 m kr.
95 m2 3 herb. 19,9 m kr.
102 m2 3 herb. 21,7 m kr.
117 m2 3 herb. 24,5 m kr.
123 m2 3 herb. 24,6 m kr.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir.