Morgunblaðið - 28.03.2004, Page 16
16 SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG KALLA búðina Sægreifann, sumum þótti
þetta skrýtið nafn en ég gengst fúslega við
því,“ segir Kjartan Halldórsson fisksali í Ver-
búð 8 við Geirsgötu í Reykjavík.
Kjartan hefur rekið verslunin í á annað ár og
býður upp á ýmsar fiskafurðir. Hann sækir
fiskinn gjarnan á fiskmarkaðinn við höfnina.
„Ég veit nú ekki hvað er vinsælast, en ég er
með skötusel, saltfisk og ferska ýsu, og svo
reyki ég fisk sjálfur. Fólki virðist líka það vel –
það kemur gjarnan aftur.
Ég er að fara að láta veiða ál fyrir mig. Ég er
mikill áhugamaður um álaveiði, enda fæddur í
Meðallandinu þar sem var mikið um ál, svo
ekki sé minnst á sjóbirtinginn. Það eru 200 ála-
gildrur á leiðinni til mín frá Kína. Ég hef samið
við bændur um að veiða og svo kaupi ég álinn af
þeim.“
Þótt Kjartan hafi ekki staðið lengi í versl-
unarrekstri hefur hann langa reynslu af fiski og
eldamennsku, var árum saman matsveinn á
bátum og torgurum. „Og fyrir löngu kokkaði ég
í íslenska sjóhernum,“ segir hann.
Ljósmyndaranum þótti Sægreifinn heim-
ilsleg fiskbúð, en Kjartan býður viðskiptavinum
oft upp á drykk. „Já, þetta er heimilislegt. Það
er gott að geta boðið gestum upp á snafs – en
bara þeim sem ekki eru á bíl!“
Morgunblaðið/Sverrir
Veitingar: Í Sægreifanum er seldur reyktur fiskur og kaupendum gjarnan boðið upp á drykk.
STARFIÐ | Fisksali
Saltfiskur, selspik og
snafs fyrir kúnnann
VOR, OG lífið er fullt af andstæðum. Þetta er þessi
óvissi tími; einn daginn er vetur og brimið lemur á land-
inu, en svo birtir skyndilega upp og andvarinn lofar
sumri. Fólk veit ekki hvernig á að klæða sig, það er ým-
ist of eða van, en handan við helgina biður aprílmán-
uður, sem T.S. Eliot
sagði grimmastan
mánaða, en Íslend-
ingar tengja frekar
við formlega sum-
arbyrjun.
Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/RAX
Hressingarganga: Það var heldur rólegra í Mosfellsbænum, þar sem menn voru á röltinu.
Morgunblaðið/RAX
Brimgnýr: Við Dyrhólaey lemur brimið á landinu og þunginn mikill, enda ekkert nema öldur suður eftir öllu Atlantshafi.
Rispur
Morgunblaðið/Ásdís
Rólegheit: Það er notalegt í sólarglennunni.
Átök: Við Langholtsskóla átti stúlkan fullt í fangi með að hemja hvolpinn Tuma.
Sægreifinn: Kjartan Halldórsson dregur óvenjulega auglýsingu út á götu.