Morgunblaðið - 28.03.2004, Side 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARS 2004 35
Verðlaunagripurinn sjálfur var
hannaður og smíðaður af Leifi
Kaldal gullsmið og átti hann að
vísa til gömlu íslensku grút-
arlampanna sem báru birtu inn í
myrkur skammdegisins.
Í tilefni þessara tímamóta hef-
ur Leikminjasafn Íslands opnað
sérstakt vefsvæði með minning-
arsíðu um Silfurlampann. Þar er
skrá og myndir af öllum Lampa-
þegunum. Slóðin er www.leik-
minjasafn.is.
FIMMTÍU ár eru í dag liðin frá
því Félag íslenskra leikdómenda
var stofnað. Um leið var ákveðið
að efna til sérstakra verðlauna
fyrir besta leik undangengins
leikárs. Þessi verðlaun nefndust
Silfurlampinn og var hann veitt-
ur alls nítján sinnum á árunum
1954 til 1973. Hann var fyrsta
viðurkenningin sem veitt var
reglubundið fyrir afrek á ís-
lensku sviði og þótti almennt
lofsvert framtak, bæði meðal
leikhúsfólks og almennings. Sam-
bærilegar verðlaunaveitingar
höfðu ekki tíðkast áður hér á
landi og hlýtur Lampinn því að
teljast fyrstu íslensku menning-
arverðlaunin. Hann var lagður
niður árið 1973 þegar leikari sá,
sem átti að hljóta hann það ár,
afþakkaði hann.
Hálf öld frá upp-
hafi Silfurlampans
Sigurður Grímsson, formaður Félags íslenskra leikdómenda, afhendir
Haraldi Björnssyni fyrsta Silfurlampann fyrir réttum fimmtíu árum.
Þorlákskirkja, Þorlákshöfn Lista-
konan Æja opnar sýninguna Bikar
lífsins í forsal kirkjunnar. Meg-
inþema sýningarinnar er tengt
páskahátíðinni og í sýningarskrá
birtist ljóð sem er tengt þessu þema.
Á Íslandi eru víða til verk eftir Æju,
t.d. er altaristafla Fitjakirkju í
Skorradal eftir listakonuna.
Sýningin stendur til 28. apríl.
Í DAG
Listaháskóli Íslands, Laug-
arnesvegi 91, kl. 12.30 Bryndís
Snæbjörnsdóttir myndlistarmaður
fjallar um eigin verk. Bryndís er
prófessor við Valand-listaháskólann
í Gautaborg en býr í Englandi.
Hún kenndi áður við Glasgow
School of Art í Skotlandi. Bryndís
vinnur með blandaða tækni og
vinnur verk sín gjarna í samvinnu
við Mark Wilson, sambýlismann
sinn. Verkin fjalla um tengsl
mannsins við umhverfið og nota
þau oft dyr til að draga fram
ákveðna þætti í þessum tengslum.
Um þessar mundir stendur yfir
sýning á verkum Bryndísar og
Marks í Spike Island í Bristol.
Bryndís er gestakennari við LHÍ.
Á MORGUN