Morgunblaðið - 21.11.2004, Side 23

Morgunblaðið - 21.11.2004, Side 23
sögunnar í þá daga; það var spilað á spil, ungir jafnt sem aldnir, sungið við raust og leikið á hljóðfæri. Fermingardagurinn Að sjálfsögðu gladdist ég yfir því að faðir minn skyldi vera hamingju- samur í einkalífi sínu. En sá bögg- ull fylgdi skammrifi að móðir mín sætti sig aldrei við skilnaðinn; hún var jafnan sár og reið, og það hafði í för með sér verulegan sársauka og óþægindi fyrir mig. Fermingardagurinn minn vorið 1958 var gott dæmi um það. Hann einkenndist í senn af kvöl og sælu, eins og oft vill verða í lífinu. Ég var fermdur í Kotstrandar- kirkju af séra Helga Sveinssyni í Hveragerði. Veislan var hins vegar haldin í Reykjavík. Þá voru foreldr- ar mínir í fyrsta skipti eftir skiln- aðinn undir sama þaki, og af því hlutust leiðindi sem ég tók mjög nærri mér. Ég gekk út úr minni eigin fermingarveislu og ráfaði einn um götur bæjarins góða stund, en harkaði loks af mér svo að veisl- an gat haldið áfram. Kristján, föðurbróðir minn, hélt eina af sínum afbragðsgóðu ræðum og benti fermingardrengnum á söguna af börnunum í berjamó, sem leituðu allan daginn, átu strax það litla sem þau fundu, en einn snáðinn í hópnum var með sína fötu fulla af berjum af lynginu sem hann settist í um morguninn. Ingjaldur Sigurðsson, mágur frændkonu minnar, Unnar Júl- íusdóttur, sem var uppeldissystir móður minnar, lék af þvílíkri snilld á harmonikku í veislunni að ég varð dolfallinn. Ein fermingargjöfin varð mér til ómældrar gæfu og átti eftir að móta allt mitt líf. Mig grunar að það hafi verið Leifur, hinn lamaði föðurbróðir minn, sem átti upptökin að þessari óvenjulegu gjöf. Hann hafði veitt því eftirtekt umfram aðra, hve söngvinn ég var; að ég hafði lært upp á eigin spýtur að spila á harm- onikku og hafði yndi af að grauta í tónlist. „Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðinn stór?“ spurði Leifur mig skömmu fyrir ferminguna. „Ég hef ekki hugmynd um það,“ svaraði ég. „Er ekki orðið tímabært að þú lærir á hljóðfæri, til dæmis píanó? Hvernig litist þér á það?“ hélt hann áfram. „Bara vel,“ sagði ég annars hug- ar. „Það væri gaman.“ Þetta hafði aldrei komið til um- ræðu fyrr, en ég hygg að samtal okkar Leifs hafi orðið til þess að föðurfólkið mitt á Grettisgötunni gaf mér í fermingargjöf píanótíma hjá gamalli konu vestur á Víðimel sem hét frú Leópoldína Eiríks. Hún var lágvaxin kona og fínleg. Mér fannst hún alltaf vera kvefuð; en okkur kom vel saman. Ég gekk til hennar þrisvar í viku í einn mán- uð, og þegar hann var liðinn var mér boðinn annar mánuður. Þar með var hafin ævilöng leit mín um furðustrendur tónlistarinn- ar. Það er því vægt til orða tekið að segja að þessi fermingargjöf hafi verið dýrmæt; hún var ómetanleg. Hún skipti sköpum fyrir líf mitt. Húsið sem Jónas og faðir hans bjuggu í fyrstu árin í Þorlákshöfn. Í því var einnig símstöðin þar sem Jónas vann sem unglingur. Þorlákshöfn um aldamótin: Bærinn, Tveggjatasíuhúsið, sem þeir feðgar bjuggu í, og loks verslunarhúsið. Bókin Á vængjum söngsins – Jónas Ingimundarson segir frá eftir Gylfa Gröndal kemur út hjá JPV-útgáfu. Bókin er prýdd fjölda mynda og er 290 bls. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 23 Fæst í bókabúðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.