Morgunblaðið - 21.11.2004, Síða 36

Morgunblaðið - 21.11.2004, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Skipholti 29a, 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili. is Einar Guðmundsson, lögg. fast. Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast. Bogi Pétursson, lögg. fast. sími 530 6500 Skútuvogur 2 Reykjavík - til leigu Frábær staðsetning. - Til leigu - til sölu glæsilegt nýtt og vandað skrifstofuhús- næði. Um er að ræða aðra hæð (efstu). Eignin getur selst eða leigst í 300 fm einingum eða stærra. Samtals stærð er 2.000 fm. Rúmgóð malbikuð hornlóð, næg bílastæði. Einstök staðsetning og útsýni. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jón á skrifstofu Hraunhamars. 74593 Arnarás - 3ja herb. - Garðabæ Nýkomin í einkasölu á þessu frá- bæra stað glæsileg 90 fermetra íbúð, ásamt stæði í bílageymslu, vel staðsett í Ásahverfi í Garðabæ. Eignin skiptist í forstofu, gang, hjónaherbergi, vinnuherbergi, baðherbergi með þvottahúsi inn af, eldhús, stofu, borðstofu og geymslu. Sérinngangur. Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar og gólf- efni eru parket og flísar. Stórar suðursvalir. Verð 19,5 millj. Myndir af eigninni á mbl.is. Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Falleg, björt og vel skipulögð 77,4 fm 3ja-4ra herbergja íbúð á hæð (1. hæð) í litlu steinsteyptu fjölbýlishúsi með fimm íbúðum. Eignin skiptist m.a. í hol, baðherbergi, tvö herbergi, stofu, borðstofu og eldhús. Sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús. Frábær staðsetning í Laugardalnum nálægt m.a. fallegum gönguleiðum, skóla, sundlauginni, heilsuræktinni í Laugum og verslun & þjónustu. 3255 Bugðulækur ÍSLENDINGAR eru stolt þjóð, af- komendur víkinga og landnema sem fórnuðu hiklaust lífi sínu ef á þá var hallað. Sæmdin var þeim allt. Íslend- ingasögurnar fjalla að stórum hluta um við- leitni Íslendinga til að halda heiðri sínum óskertum. Sjálfstætt fólk Hall- dórs Laxness fjallar um örlagabaráttu bláfá- tæks vinnumanns til að mega gerast sjálf- stæður bóndi, en jafn- framt speglar sagan baráttu íslensku þjóð- arinnar fyrir því að öðl- ast sjálfstæði og við- halda því gagnvart öðrum þjóðum. Sjálfstæðið og sæmdin eru grunn- þættir í sálarlífi Íslendinga og því eðlilegt að það særði sómakennd stórs hluta þjóðarinnar þegar erlend- ur her tók sér hér ótilkvaddur ból- festu um miðja síðustu öld. Stærstu víglínur íslenskra stjórnmála í hálfa öld tengdust afstöðunni til banda- ríska hersins á Suðurnesjum. Á valdatímum sinnisveikra þjóð- arleiðtoga á borð við Hitler og Stalín var hægt að réttlæta nærveru slíks hers í ljósi þess að útþenslustefna þeirra átti sér engin takmörk. Í ljósi þess mátti skilgreina staðsetningu Ís- lands á landakortinu sem mikilvæga, en fyrst og fremst þó ef spjótum skyldi beint að Bandaríkjunum. Ljóst er að hagsmunir Bandaríkjanna hafa frá upphafi verið settir ofar hags- munum Íslendinga hvað varðar hið svonefnda varnarlið hér enda er vart hægt að ætlast til annars. Á móti koma fjárhagslega mikilvæg atriði á borð við uppbyggingu og rekstur hins alþjóðlega Keflavíkurflugvallar, ábatasama verktakastarfsemi á Suð- urnesjum og víðar og ekki síst þau fjölmörgu störf sem Íslendingum hafa hlotnast af öllu saman. Almennt hefur Ís- lendingum, lengst af verið hlýtt til banda- rísku þjóðarinnar. Í hugum margra, einkum af eldri kynslóð, stönd- um við enn í þakk- arskuld við Bandaríkin vegna Marshall aðstoð- arinnar svonefndu, af- skiptaleysis þeirra af þorskastríði okkar við Breta en einkum þó vegna hins fjárhagslega ávinnings sem með sanni má segja að Ís- lendingar hafi haft af veru bandarísks herliðs á Íslandi. Um Marshall aðstoðina er blákalt hægt að halda því fram að hún hafi í sann-amerískum anda verið klók við- leitni til að hraða uppbyggingu tiltek- inna hagkerfa í Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina, svo að Bandaríkja- menn gætu sjálfir hafið þangað, fyrr en ella, ábatasaman útflutning á tækninýjungum á borð við þvotta- vélar og ísskápa. Nú blasir við gjörbreytt heims- mynd, hverfandi líkur á innrásum er- lendra herja og kalt stríð tveggja stórvelda er að baki fyrir meira en hálfum öðrum áratug. Að sama skapi dylst fáum vilji bandarískra stjórn- valda til að hafa sig héðan á brott. Þau telja sig réttilega ekki lengur þurfa á okkur að halda og hinn svo- kallaði tvíhliða varnarsamningur Ís- lands og Bandaríkjanna er í uppnámi. Sú ákvörðun Bandaríkjastjórnar að afgreiða utanríkisráðherra Íslands og föruneyti hans með stuttum fundi við ráðamann sem hætti afskiptum af ut- anríkismálum nokkrum klukkustund- um síðar, segir allt sem segja þarf um áhuga- og virðingarleysi Bandaríkja- manna gagnvart okkur. Þó var þessi för sérstaklega ætluð og kostuð til viðræðna um varnarsamning Íslend- inga og Bandaríkjamanna. Vera bandarísks herliðs á Íslandi hefur til þessa snúist fyrst og fremst um hagsmuni og öryggi Bandaríkj- anna sjálfra og mun gera það hér eft- ir sem hingað til. Í ljósi þeirrar gjörbreyttu heims- myndar sem nú blasir við, vill svo til að okkur stafar mun meiri hætta af veru Bandaríkjamanna hér en ella. Ögrandi og vanhugsuð framganga hins stríðsglaða og nýendurkjörna forseta sem nú situr við völd í Banda- ríkjunum er í raun og veru stór- hættuleg öllum bandamönnum og svokölluðum staðföstum vinaþjóðum þeirra. Okkur ber að grípa tækifærið sem nú gefst og þakka Bandaríkjamönn- um fyrir samvistir sem gögnuðust ef til vill hvorumtveggju á liðinni öld. Það hentar þeim ekki lengur að vera hér og okkur ekki lengur að hafa þá. Þjóð, sem telur sig geta boðið öðrum þjóðum friðargæslu, getur axlað ábyrgð og borið kostnað af eigin frið- argæslu. Huga ber að vanda þeirra sem missa mundu störf við brotthvarf hersins. Á Íslandi mælist um þessar mundir minna atvinnuleysi en nokk- urs staðar í heiminum. Þjóð sem mælist í hópi ríkustu þjóða heims get- ur leyst tímabundinn atvinnuvanda nokkur hundruð einstaklinga á Suð- urnesjum. Við skulum biðjast undan því að vera skráðir staðfastir stuðnings- aðilar Íraksstríðsins sem ráðist var í á upplognum og fölskum forsendum. Við skulum setja Bandaríkjaher af- gerandi en sanngjörn tímamörk til að hafa sig héðan á brott. Sómi okkar og sjálfsvirðing eru í húfi sem aldrei fyrr. Okkur ber meiri nauðsyn til þess nú en nokkru sinni að setja okkur skýr mörk gagnvart öðrum ríkjum og skilgreina að nýju grundvallarforsendur okkar sem sjálfstæðrar og friðsamrar þjóðar. Aðeins að því uppfylltu getum við orðið það sem innsta eðli okkar og samviska krefst: Sjálfstætt fólk. Sjálfstætt fólk, samviska þess og heiður Jakob Frímann Magnússon fjallar um samskipti Íslands og Bandaríkjanna ’Þjóð, sem telur siggeta boðið öðrum þjóð- um friðargæslu, getur axlað ábyrgð og borið kostnað af eigin frið- argæslu.‘ Jakob Frímann Magnússon Höfundur er tónlistarmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.