Morgunblaðið - 23.03.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2005 49
DAGBÓK
Næstu námskeið í Leikmannaskólakirkjunnar eru í undirbúningi oghefjast 4., 5., 7., og 13. apríl nk.Námskeiðið sem hefst 4. apríl heitir
Bænabandið og fjallar um bænaband sem
sænskur biskup, Martin Lönnebo, á hugmynd-
ina að. Á bandinu eru perlur sem tákna ákveð-
in stef í trú og lífi manneskjunnar. Á næstu
dögum kemur síðan út bók í þýðingu Karls
Sigurbjörnssonar biskups sem fjallar um þetta
efni. Leiðbeinandi á námskeiðinu er sr Halldór
Reynisson verkefnisstjóri á Biskupsstofu. 5.
apríl verður fjallað um Davíðssálma Biblíunn-
ar, 6. apríl verður námskeið um trú, áföll, sorg,
andlát nákominna og önnur áföll í lífinu, en 13.
apríl verður námskeið um Viðey í sögu, samtíð
og framtíð.
Orðið leikmaður hefur verið notað um það
fólk sem ekki er vígt til ákveðinna embætta
innan kirkjunnar. Orðið er virðingarheiti og er
dregið af gríska orðinu laos en það merkir þjóð
Guðs, sem skipar sér undir merki Guðs.
„Verkefni Leikmannaskólans er tvíþætt;
námskeiðshald fyrir söfnuði og síðan svokölluð
opin námskeið fyrir almenning,“ segir Irma
Sjöfn Óskarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Leik-
mannaskólanum. „Safnaðarnámskeiðin eru
auglýst fyrir söfnuði og eru haldin í samstarfi
við prófasta, sóknarpresta og/eða safnaðar-
stjórn.
Opnu námskeiðin eru haldin að frumkvæði
Leikmannaskólans og síðastliðin 2 ár hafa þau
verið haldin í Grensáskirkju. Þau eru auglýst
fyrir almenning og hver sem áhuga hefur getur
skráð sig á námskeiðin.
Oftast er kennt í 3–4 skipti og þá 2 tíma í
senn. Verð fyrir 3 kvölda námskeið er 4.000 kr.
en 4 kvölda námskeið kostar 5.000 kr.“
Hvaða þýðingu hefur Leikmannaskólinn fyr-
ir þjóðkirkjuna?
„Leikmannaskólinn er ein af stofnunum
kirkjunnar og með því að bjóða upp á fræðslu
sem þessa fyrir fólk er kirkjan að efla starf
sitt með því að gera fólki kleift að kynnast hin-
um mikla fjársjóði sem fólginn er í arfi og leið-
sögn kirkju og kristni.
Námskeiðin hafa fjölbreytt innihald. Til
dæmis getum við kynnst arfi og sögu kirkj-
unnar á námskeiði eins og um Viðey. Innihaldi
Biblíunnar kynnumst við á námskeiðum eins og
um Davíðssálma. Á námskeiði um trú og áföll
kynnumst við nokkurs konar almennri leiðsögn
í að takast á við erfið verkefni lífsins. Einnig
reynir Leikmannaskólinn í starfi fyrir kirkjuna
að kynna og kenna efni sem auðveldar okkur
iðkun trúarinnar í daglegu lífi og er nám-
skeiðið um bænabandið gott dæmi um það.“
Skráning fer fram í síma 535 1500 eða á vef
skólans, www.kirkjan.is/leikmannaskoli, þar
sem finna má frekari upplýsingar um nám-
skeiðin.
Trúarfræðsla | Leikmannaskóli kirkjunnar blæs til námskeiða um fjölbreytt efni
Starf kirkjunnar eflt með fræðslu
Irma Sjöfn Óskars-
dóttir er fædd á Akra-
nesi árið 1961. Hún lauk
guðfræðiprófi frá HÍ
1988. M.th.-prófi í
Theology and Ethics og
Media and Communi-
cation frá guðfræði-
deild Edinborgarhá-
skóla 1993. Vígður
prestur í Seljakirkju
1988 og starfaði þar
nær samfleytt til 2001, en tók þá við verkefn-
isstjórn í Leikmannaskólanum auk fleiri verk-
efna á Biskupsstofu. Þá var hún ritstjóri Víð-
förla 1997–98.
Hver er Amanda?
Í DV föstudaginn 18. mars á bls. 36
er dálkur sem nefnist Pressan sem
ég vil hér gera að umkvörtunarefni.
Þar skrifa hinir ýmsu blaðamenn
og í þetta skiptið hún Indíana Ása
Hreinsdóttir sem ég veit ekki frek-
ari deili á. Sem er kannski ekki
skrýtið þar sem hún fer með svo
rangt mál um sjónvarpið í pressu
föstudagsins að það mætti halda að
hún hefði aldrei átt sjónvarp. Hún er
að tala um hve sjónvarpsþátturinn
Aðþrengdar eiginkonur sé kærkom-
in gjöf eftir tómið sem myndaðist
þegar Beðmál í borginni hættu. Svo
segir hún að möguleiki sé á að hús-
mæður Íslands keppist við að vera
eins og Susan sem Teri Hatcher
leikur eins og allir vildu vera Carrie í
Beðmálunum en að enginn vilji vera
Bree eins og enginn vildi vera Am-
anda.
Mér er spurn; hver er Amanda?
Hvernig dettur Indíönu í hug að
skrifa um Beðmál í borginni ef hún
þekkir ekki persónurnar í þeim
þætti. Er enginn prófarkalesari? Er
hún að meina Miranda eða Sam-
antha? Og hver vill ekki vera Mir-
anda eða Samantha, þær eru báðar
dásamlegar hvor á sinn háttinn. Ég
er hneyksluð á að svona gallaðar
greinar birtist í blaði sumra lands-
manna og mæli fastlega með að Ind-
íana horfi allavega á einn og einn
þátt af seríum sem hún ætlar að
skrifa um. Þetta er hneisa og mér
sem aðdáanda Beðmála í borginni
sárnar við svona sjón og eftir rann-
sókn á málinu hef ég komist að því
að ég er ekki ein um það.
Elísabet Ólafsdóttir
sjónvarpsáhorfandi.
Sniðgenginn
MIG langar að minnast á Stebba í
Lúdó en hann er einn fárra tónlist-
armanna sem ber textann fram svo
að hvert einasta orð er skiljanlegt.
Hann er, að mér finnst, sniðgenginn
þegar tónlistarmenn eru teknir í við-
töl í fjölmiðlum. Finnst mér að tón-
listarfólk og aðrir mættu taka hann
sér til fyrirmyndar í textaframburði.
Tóta.
Nokia-sími í óskilum
NOKIA-sími fannst á Ingólfstorgi.
Upplýsingar í síma 690 4202.
Hvolpur fæst gefins
HRESSAN og bráðmyndarlegan
hvolp vantar heimili. Hann er ein-
staklega fallegur. Upplýsingar í
síma 567 7612 og 847 5070.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. d4 f5 2. Bg5 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
Rf3 Rh6 6. Bd3 fxe4 7. Rxe4 Rf7 8. Be3
c6 9. Reg5 Rxg5 10. Rxg5 Bf5 11. Bxf5
Da5+ 12. Dd2 Dxf5 13. 0–0–0 Rd7 14.
Hhe1 0–0–0 15. d5 Df6 16. c3 c5 17. Re6
Hde8 18. Bg5 Df7 19. c4 b6 20. Dc2
Kb7 21. Da4 Rb8 22. He3 h6
Staðan kom upp í seinni hluta 2.
deildar Íslandsmóts skákfélaga sem
lauk fyrir skömmu í Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Magnús Gunnarsson
(2.045) hafði hvítt gegn Sverri Norð-
fjörð (1.860). 23. Rd8+! Hxd8 24.
Hxe7+ Dxe7 25. Bxe7 Hd7 26. Bh4 g5
27. Bg3 He8 28. Bxd6 Bxb2+ 29. Kb1
og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.