Morgunblaðið - 12.04.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þá var nú aðalpuntfjöðrin í svínaríinu skilin eftir á kajanum, „hin dreifða eignaraðild“.
Eftirlitsnefnd meðmannanafnalög-um leggur til að
gerðar verði breytingar á
mannanafnalögum. Í
ábendingum annars vegar
mannanafnanefndar og
hins vegar dómsmála-
ráðuneytis og Þjóðskrár
til eftirlitsnefndarinnar
kom fram sú skoðun að
mannanafnalögin væru
orðin of rúm og „þau í
raun leyfðu öll eiginnöfn
að því tilskildu að hægt
væri að bæta eignarfalls-
endingu við nafnið“, eins
og segir í lokaskýrslu eftirlits-
nefndarinnar. Þá telur eftirlits-
nefndin mikilvægt í vinnu við
frumvarp til laga um breytingar á
mannanafnalögum, til samræmis
við framkomnar ábendingar, að
skoða sérstaklega „hvort hægt sé
að þrengja með einhverjum hætti
ákvæði laganna varðandi ný eig-
innöfn“.
Í skýrslunni er rakin reynslan
af framkvæmd mannanafnalaga
frá 1997–2004. Fjórir aðilar koma
einkum að framkvæmdinni: Þjóð-
skrá, dómsmálaráðuneytið,
mannanafnanefnd og prestar
þjóðkirkjunnar og forstöðumenn
skráðra trúfélaga. Helst reynir á
mannanafnalög við nafngjafir, en
einnig þegar lögráða einstakling-
ar eða forsjármenn ólögráða ein-
staklinga vilja breyta nafni.
Samkvæmt mannanafnalögum
á að gefa barni nafn innan sex
mánaða frá fæðingu þess. Þjóð-
skráin fær fæðingarskýrslur og
tilkynningar um nafngjafir. Hún
getur því fylgst með því að barni
sé gefið nafn innan tilskilins tíma.
Ef lögráða einstaklingur, eða for-
sjármaður ólögráða einstaklings,
óskar eftir breytingu á nafni kem-
ur til kasta dómsmálaráðuneytis-
ins og Þjóðskrár. Nafnbreytingar,
sem lögin heimila, taka gildi þeg-
ar þær eru færðar í Þjóðskrá.
Skírnum fækkar
Aflað var upplýsinga úr skrán-
ingarkerfi Þjóðskrár um fram-
kvæmd mannanafnalaga frá gild-
istöku þeirra í ársbyrjun 1997 og
til ársloka 2004. Þar kemur margt
forvitnilegt fram. Á þessu tímabili
var 37.585 börnum gefið nafn við
skírn í þjóðkirkju, skírn eða nafn-
gjöf í skráðu trúfélagi, við að
nafngjöf var tilkynnt til Þjóðskrár
eða barn var skírt eða gefið nafn
erlendis. Flest börn voru skírð í
þjóðkirkjunni, eða 74,6% barna á
þessu tímabili. Sé hvert ár skoðað
fyrir sig kemur í ljós að skírnum í
þjóðkirkjunni hefur fækkað um
u.þ.b. 10 prósentustig, eða úr
78,5% nafngjafa árið 1997 í 68,4%
árið 2004. Þá fjölgaði skírnum og
nafngjöfum í skráðum trúfélögum
úr 4,1% í 5,1% en nafngjöfum,
sem fólust einungis í tilkynningu
til Þjóðskrár, fjölgaði úr 7,6% árið
1997 í 11,8% árið 2004.
Þegar leitað er til prests eða
forstöðumanns og óskað eftir
skírn eða nafngjöf á að skýra hon-
um frá nafni eða nöfnum sem
barnið á að fá. Sé eiginnafn eða
millinafn ekki á mannanafnaskrá
á presturinn eða forstöðumaður-
inn hvorki að samþykkja nafnið
né gefa barninu það heldur bera
málið undir mannanafnanefnd.
Eins vísar Þjóðskrá til manna-
nafnanefndar eiginnafni eða milli-
nafni, sem ekki er á mannanafna-
skrá og tilkynnt er um. Nefndinni
ber að kveða upp úrskurð svo
fljótt sem auðið verður og ekki
síðar en fjórum vikum frá því að
erindi berst.
Þrátt fyrir skýlaus lagafyrir-
mæli gerðist það 116 sinnum á
þessu átta ára tímabili að prestar
þjóðkirkjunnar eða forstöðumenn
trúfélaga skírðu eða gáfu börnum
nöfn sem ekki voru á manna-
nafnaskrá. Þetta gerðist 29 sinn-
um árið 1997 en það dró úr tíðni
þessara tilvika með árunum og
þau voru tíu árið 2004.
Í mannanafnalögum frá 1996
var notkun millinafna leyfð í
fyrsta sinn hér á landi. Notkun
þeirra var hlutfallslega lítil frá
1997–2004, en millinöfnum fjölg-
aði eftir því sem á leið. Þau voru
gefin í 1,8% tilvika 1997 en í 2,7%
tilvika 2004. Flest millinöfn voru
gefin árið 2000 eða í 2,9% tilvika.
Þegar litið var til tímabilsins í
heild var algengast að ættarnafn
náins skyldmennis væri gert að
millinafni, eða í 44% tilvika.
Ákveðnar nafnbreytingar eru
heimilaðar í mannanafnalögum,
með leyfi dómsmálaráðherra.
M.a. er heimilað að breyta eig-
innafni og/eða millinafni, þar með
að taka nafn eða nöfn til viðbótar
nafni sem einstaklingur ber.
Einnig að fella niður nafn/nöfn
sem hann ber. Þá er heimilað að
kenna feðrað barn til stjúpfor-
eldris og fósturbarn til fósturfor-
eldris eða að taka upp nýtt kenni-
nafn. Á tímabilinu 1997–2004 var
gerð 901 eiginnafnsbreyting og
1.134 breytingar á millinöfnum
skráðar í þjóðskrá.
Talsvert er um að óskað sé
breytinga á nafnritun, án þess að
um eiginlega nafnbreytingu sé að
ræða. Nærri lætur að Þjóðskrá fái
hátt í þrjár slíkar breytingar til
afgreiðslu á hverjum vinnudegi.
Málum hjá mannanafnanefnd
hefur fækkað frá því sem var
meðan mannanafnalögin frá 1991
voru í gildi. Eins segir í skýrsl-
unni að svo virðist sem nefndin
samþykki fleiri erindi nú en áður.
Fréttaskýring | Skýrsla um framkvæmd
mannanafnalaga sem tóku gildi 1997
Málum vegna
nafna fækkar
Skoða þarf hvort hægt sé að þrengja
ákvæði laga um ný eiginnöfn
Barn má ekki heita hvað sem er.
Fylgst með framkvæmd
laganna 1997—2004
Eftirlitsnefnd með manna-
nafnalögum var stofnuð 1996 til
að fylgjast með framkvæmd
mannanafnalaga, sem tóku gildi
1. janúar 1997. Nefndin skilaði
áfangaskýrslu 1997, sem þáver-
andi dómsmálaráðherra kynnti á
Alþingi. Hlé var gert á störfum
nefndarinnar þar til vorið 2003
að nefndin var kölluð til starfa á
ný. Hún skilaði nýlega loka-
skýrslu um starf sitt til dóms-
málaráðherra.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
OPIÐ hús var um helgina hjá Wal-
dorf-skólanum Sólstöfum, sem starf-
að hefur í Reykjavík frá árinu 1994.
Þar fer fram kennsla á öllum aldurs-
stigum grunnskólans í litlum bekkj-
ardeildum. Skólinn byggist á upp-
eldis- og aðferðafræði austurríska
mannspekingsins Rudolfs Steiners.
Segir í frétt frá skólanum að þar sé
aðallega lögð áhersla á lifandi fram-
setningu og skapandi útfærslu alls
námsefnis, mannrækt og vistvernd.
Morgunblaðið/Golli
Kynntu Waldorf-skólann
Sólstafi fyrir gestum
GIGTARLYFIÐ Bextra hefur verið
tekið af markaði bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum, en lyfið er talið hafa
sambærilegar hættulegar aukaverk-
anir og Vioxx sem tekið var af mark-
aði síðastliðið haust. Að auki hafa al-
varleg húðviðbrögð gert vart við sig
hjá notendum lyfsins. Stjórnendur
lyfjafyrirtækisins Pfizer ákváðu eftir
viðræður við Lyfjastofnun Evrópu
og Lyfja- og matvælastofnun Banda-
ríkjanna (FDA) að taka Bextra
(valdecoxib) af markaði í Evrópu og
Bandaríkjunum þar til að lokaniður-
stöður liggja fyrir í mati á COX-2-
lyfjaflokknum.
Á vef Lyfjastofnunar segir að
Lyfjastofnun Evrópu sé nú að meta
allan COX-2-lyfjaflokkinn með tilliti
til öryggis lyfjanna en frábendingar
og varnaðarorð vegna áhrifa á
hjarta-og æðakerfi hafi verið kynnt
læknum og sjúklingum í febrúar síð-
astliðnum.
Alvarleg húðviðbrögð
Í desember gaf Lyfjastofnun Evr-
ópu út yfirlýsingu um öryggi sjúk-
linga sem nýlega höfðu gengist undir
kransæðahjáveituaðgerð (CABG)
þar sem slík aðgerð væri frábending
á notkun Bextra. Einnig var í sömu
yfirlýsingu bent á alvarleg húðvið-
brögð sem orðið hafði vart hjá sjúk-
lingum sem höfðu notað lyf sem til-
heyra COX-2-lyfjaflokknum þ.á m.
Bextra. Rannsóknum á lyfinu verður
haldið áfram.
„Þar til Lyfjastofnun Evrópu hef-
ur lokið mati sínu á COX-2-lyfja-
flokknum er læknum bent á að fylgj-
ast vel með sjúklingum sem nú eru í
meðferð með Bextra og ekki að hefja
meðferð með Bextra hjá nýjum sjúk-
lingum. Sjúklingar sem taka Bextra
ættu að ræða við lækninn sinn um
áframhaldandi meðferð,“ segir í
fréttinni.
Bextra tekið af markaði
vegna aukaverkana
MAÐUR sem játaði að hafa stolið
átta gróðurhúsalömpum í Hvera-
gerði í félagi við annan mann, sagði
við yfirheyrslur hjá lögreglu að hann
hefði verið hvattur til innbrotsins af
lánardrottni sínum og áttu lamparn-
ir að ganga upp í skuld. Þetta kemur
fram á vef lögreglunnar á Selfossi.
Lögregla lagði hald á lampana og er
skuldin því væntanlega enn óupp-
gerð.
Gróðurhúsalampar virðast tals-
vert eftirsóttir af undirheimamönn-
um. Áhugi þeirra skýrist af því að
þeir sem taka þá ófrjálsri hendi nota
þá til að rækta kanabisplöntur.
Á fimmtudag var aftur brotist inn
í gróðurhús í Hveragerði og þaðan
stolið þremur lömpum. Það mál er
enn í rannsókn.
Stal jakka úr Sundhöllinni
Á laugardag var jakka stolið úr
Sundhöll Selfoss. Skömmu síðar
fannst jakkinn á veitingahúsi á Sel-
fossi og hafði þá GSM-sími og debet-
kort verið tekið úr honum. Síðar
sama dag kom í ljós að búið var að
taka út á kortið á tveimur stöðum á
Selfossi. Lögreglan á Selfossi fékk
vísbendingar um hver þarna var að
verki og verður hann kallaður til
yfirheyrslu.
Stal lömpum
upp í skuld