Morgunblaðið - 12.04.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.04.2005, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞINGMENN úr öllum flokkum fögn- uðu því á Alþingi í gær að fjölmiðla- nefnd menntamálaráðherra, skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka á þingi, skyldi hafa náð saman um til- lögur að reglum á fjölmiðlamarkaði. Þingmenn úr stjórn og stjórnarand- stöðu lögðu þó margir hverjir áherslu á að tillögurnar væru málamiðlun milli ólíkra sjónarmiða. Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra gerði efnislega grein fyrir skýrslu og tillögum nefnd- arinnar í upphafi þingfundar í gær. Hún sagðist fagna því sérstaklega að pólitísk sátt skyldi hafa tekist milli stjórnmálaflokkanna um reglur á fjöl- miðlamarkaðnum. „Ég tel mjög mik- ilvægt að um tillögur nefndarinnar muni á næstu vikum og mánuðum eiga sér víðtæk og málefnaleg um- ræða,“ sagði ráðherra. „Þá hvet ég hagsmunaaðila, einnig á fjölmiðla- markaðnum, til að axla ábyrgð með sambærilegum hætti og stjórnmála- menn hafa gert til að sátt megi ríkja um íslenska fjölmiðlamarkaðinn í framtíðinni.“ Eftir ræðu ráðherra fóru fram al- mennar umræður um skýrslu og til- lögur fjölmiðlanefndarinnar. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar- innar, sagði skýrsluna og niðurstöður nefndarinnar bera þess merki að menn hefðu gengið til verksins æs- ingalaust. Mörður gerði tillögur nefndarinnar um eignarhald á fjölmiðlum m.a. að umtalsefni og sagði, að öfugt við fjöl- miðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar frá því í fyrra, gerðu tillögurnar ráð fyrir því að eitt skyldi ganga yfir ljósvaka- miðla og prentmiðla. Síðan sagði hann: „Slíkar takmarkanir varða ým- is mannréttindi, sem tryggð eru í stjórnarskrá: tjáningarfrelsi, prent- frelsi, atvinnufrelsi og eignarrétt. Að auki verða menn að muna að fjölmiðl- arnir eru fjórða valdið. Þess vegna verða gild rök að liggja að baki skref- um í þessa átt, umfram almennar samkeppnisreglur. Það verður að segja eins og er að slík rök er því mið- ur ekki að finna í niðurstöðum nefnd- arinnar.“ Mörður sagði að tillögur nefndar- innar um takmarkanir á eignarhaldi, væru ekki ættaðar frá Samfylking- unni; þær væru hluti af málamiðlun meðal nefndarmanna „og í raun kannski það eina sem eftir stendur af frumvarpi stjórnarflokkanna frá því í fyrra.“ Hann ítrekaði að Samfylking- armenn legðust gegn reglum af þessu tagi. „Við teljum að svona reglur komi því aðeins til greina að markmiðunum um fjölbreytni og samkeppni verði ekki náð með öðrum hætti.“ Hann sagði í lok ræðu sinnar að Samfylk- ingarmenn væru þó tilbúnir til að ganga til samstarfs um löggjöf á fjöl- miðlasviði á grundvelli skýrslunnar. Sátt í sjónmáli Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokks, sagði m.a., eins og margir aðrir þingmenn, að það væri afar ánægjulegt að innan fjöl- miðlanefndarinnar hefði „náðst sátt um tiltekna lendingu í einu heitasta pólitíska deilumáli liðinna ára.“ Sam- flokksmenn hennar, Magnús Stefáns- son og Dagný Jónsdóttir, tóku í sama streng. „Ég tek undir með þeim þing- mönnum sem hafa fagnað því að sátt virðist í sjónmáli um fjölmiðlamark- aðinn á grundvelli þessarar skýrslu og þar með þá meginniðurstöðu henn- ar að það sé bæði rétt og eðlilegt að setja löggjöf um eignarhald fjölmiðla [...],“ sagði Dagný. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, og einn nefndarmanna, hvatti m.a. til þess, í umræðunum í gær, að samfélagið sýndi skýrslunni áhuga og tæki þátt í umræðunni um hana og Þuríður Backman, þingmað- ur Vinstri grænna, lýsti, eins og aðrir þingmenn yfir ánægju með niður- stöðu nefndarinnar. Samflokksmaður þeirra, Ögmund- ur Jónasson, rifjaði upp þær hörðu deilur sem urðu um fjölmiðlafrum- varp ríkisstjórnarinnar á Alþingi fyr- ir réttu ári, og bætti því við að Vinstri grænir hefðu síður en svo lagst gegn rammalöggjöf um eignarhald á fjöl- miðlum. Þeir hefðu þvert á móti haft forgöngu um að hafist yrði handa til að afla gagna og vinna málinu braut- argengi. Vísaði hann þar til þings- ályktunartillögu Álfheiðar Ingadótt- ur, varaþingmanns Vinstri grænna, og þingmanna úr Framsóknarflokki, Sjálfstæðisflokki og Frjálslynda flokknum, frá haustþingi 2003, um skipun þverpólitískrar fjölmiðla- nefndar sem hefði m.a. það verkefni að kanna hvort þörf væri á lagasetn- ingu á fjölmiðlamarkaðnum. Magnús Þór Hafsteinsson, þing- maður Frjálslynda flokksins og fulltrúi í fjölmiðlanefnd ráðherra, rifj- aði einnig upp þessa þingsályktunar- tillögu Álfheiðar. Hann sagði að Al- þingi hefði betur samþykkt að setja saman slíka þverpólitíska nefnd, strax haustið 2003. Þá hefði sú skýrsla, sem nú væri verið að ræða, legið fyrir mun fyrr. Magnús sagði síðan um skýrslu fjölmiðlanefndarinnar, að hún væri sigur fyrir lýðræðið í landinu, sigur fyrir þingræðið og fyrir vilja Alþingis. Hann fjallaði síðan sérstaklega um niðurstöðu nefndarinnar um eignar- hald á fjölmiðlum og sagði tillögurnar mjög hóflegar. „Ég tel þessi ákvæði vera mjög hófleg. Ég tel að þau muni ekki skaða fjölmiðlafyrirtækin til frambúðar.“ Málamiðlun ólíkra sjónarmiða Bjarni Benediktsson og Birgir Ár- mannsson, þingmenn Sjálfstæðis- flokks, sögðu það merkileg tímamót að þverpólitísk sátt skyldi hafa tekist innan nefndarinnar, ekki síst í ljósi þess hve hart hefði verið deilt um fjöl- miðlamálið svonefnda á síðasta ári. „Í ljósi þess hvernig umræður þróuðust hér á síðasta ári er merkilegt að nefndin, skipuð fulltrúum allra stjórn- málaflokka, skyldi ná samstöðu um að gera ákveðnar afmarkaðar tillögur í þessa átt,“ sagði Birgir og bætti því við að ekki mætti þó gleyma því að til- lögur nefndarinnar væru málamiðlun. Þingmennirnir Bryndís Hlöðvers- dóttir, Samfylkingu, Guðjón A. Krist- jánsson, Frjálslynda flokknum, og Einar Karl Haraldsson, Samfylking- unni, tóku einnig þátt í umræðunum og sögðu m.a. að skýrsla fjölmiðla- nefndarinnar væri mjög vel unnin. „Það skiptir hins vegar öllu máli hvernig að málum verði staðið í fram- haldinu,“ sagði Bryndís. „Úr ágætri heildarskýrslu fyrri fjölmiðlanefndar varð til frumvarp sem skók samfélag- ið mánuðum saman. Það má ekki henda aftur.“ Þingmenn fagna því að pólitísk sátt skyldi hafa náðst í fjölmiðlanefndinni Tillögur nefndarinnar mála- miðlun milli ólíkra sjónarmiða Morgunblaðið/Árni Torfason Magnús Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, fagnaði eins og aðrir þingmenn þeirri sátt sem hefði tekist í fjölmiðlamálinu. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mælti fyrir nýju frumvarpi um Ríkisútvarpið sf. á Alþingi í gær. Þingmenn stjórnar- andstöðunnar sögðu m.a. í þeirri um- ræðu að frumvarpið hefði verið samið bakvið tjöldin og án nokkurs samráðs við pólitíska aðila eða fagaðila; vinnu- brögðin hefðu verið í leynimakksgír, eins og Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, orðaði það. Sagði hann m.a. að enginn vissi ennþá hver hefði samið frumvarpið. Ráðherra fór í upphafi umræðunn- ar yfir efnisatriði frumvarpsins. Í lok ræðu sinnar lagði hún áherslu á að Ríkisútvarpið gegndi mikilvægu hlutverki sem menningarstofnun í ís- lensku samfélagi. „Það er því mikil- vægt að lagarammi um Ríkisútvarpið sé skýr á hverjum tíma og til þess fallinn að tryggja að Ríkisútvarpið geti sinnt þeirri starfsemi sem því er ætlað,“ sagði hún og hélt áfram: „Í nýrri skýrslu fjölmiðlanefndarinnar var mikil áhersla lögð á að treysta þurfi stöðu Ríkisútvarpsins á hljóð- varps- og sjónvarpsmarkaði og telur nefndin mikilvægt að hlutverk Rík- isútvarpsins, sem almannaþjónustu- útvarp, verði tryggt eftir föngum. Ég vil sérstaklega taka undir þessi sjón- armið fjölmiðlanefndarinnar og tel að með frumvarpi því sem hér er til um- fjöllunar megi einmitt ná þeim mark- miðum sem fjölmiðlanefndin um- rædda hefur sett fram í sínu ágæta plaggi.“ Mörður Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar, velti því m.a. fyrir sér, eftir ræðu ráðherra, hvort frétta- stjóramálið svonefnda gæti gerst aft- ur, eftir samþykkt frumvarpsins. „Gæti það gerst að útvarpsstjóri tæki þá ákvörðun að ganga framhjá fjölda hæfra umsækjenda um mikilvæga stöðu vegna pólitísks þrýstings frá ríkisstjórnarmeirihluta í stjórn Rík- isútvarpsins.“ Svar hans var eftirfar- andi: „Já, svo sannarlega gæti það gerst aftur.“ Hann sagði að skv. frumvarpinu væri gert ráð fyrir því að ríkisstjórnarmeirihlutinn hefði áfram völd yfir Ríkisútvarpinu. Hann hefði m.a. útvarpsstjórann í vasa sín- um, þar sem hann gæti bæði ráðið hann og rekið. Ekki tekið á gagnrýni Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði m.a. að margt væri óljóst í umræddu frumvarpi. Eitt væri þó ljóst: Ekki væri tekið á þeirri grundvallargagnrýni, sem fram hefði komið í samfélaginu í áranna rás, að þau pólitísku tök sem stjórnarliðið hefði hverju sinni á Ríkisútvarpinu, væru óeðlileg. Þá kom fram í máli Ögmundar að hann hefði áhyggjur af því að kjör starfsmanna Ríkisút- varpsins myndu rýrna með breytingu stofnunarinnar í sameignarfélag. Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagðist í upp- hafi máls síns fagna frumvarpi ráð- herra. Því væri þó ekki að leyna, sagði þingmaðurinn, að meðgöngu- tími frumvarpsins hefði verið langur. Margir hefðu beðið eftir frumvarpi um Ríkisútvarpið í mörg ár. Dagný sagði ljóst að frumvarpið myndi hafa í för með sér miklar breytingar á Ríkisútvarpinu. Megin- línan væri þó sú að stjórnarflokkarn- ir væru sammála um að reka hér áfram almannaútvarp í eigu ríkisins. „Það er mitt mat að þessi áralanga biðstaða, sem ég fjallaði um hér áðan, hafi að einhverju leyti bitnað á stofn- uninni, og er það ánægjulegt að nú verði breyting á,“ sagði hún. Dagný sagði að stjórnarflokkarnir hefðu upphaflega lagt upp með ólík mark- mið varðandi Ríkisútvarpið, en hefðu nú náð saman um niðurstöðu. Án efa væru stóru tíðindin það rekstrar- form, sem lagt væri til í frumvarpinu, þ.e. breyting þess í sameignarfélag. Sú leið væri málamiðlun. 15 manna akademía Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, velti því einnig fyrir sér, eins og Mörður, hvort fréttastjóramálið svonefnda gæti gerst aftur eftir samþykkt frum- varpsins. Niðurstaða hans var líka sú sama og Marðar, þ.e. að slíkt mál gæti aftur komið upp. Guðjón minnti m.a. á tillögu síns þingflokks um Rík- isútvarpið. Í þeirri tillögu væri lagt til að yfir Ríkisútvarpinu yrði sett fimmtán manna akademía, en í henni yrðu menn, sem valdir yrðu af sam- tökum og stofnunum í samfélaginu. Guðjón lagði áherslu á að frumvarpið um Ríkisútvarpið yrði ekki afgreitt á þessu vorþingi, heldur yrði beðið með afgreiðslu þess fram á haust, þar sem það yrði rætt aftur samhliða frumvarpi, sem byggt yrði á niður- stöðum fjölmiðlanefndarinnar. Stjórnarandstaðan gagnrýndi frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið á Alþingi í gær Frumvarpið um RÚV samið bak við tjöldin Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason „Það er því mikilvægt að lagarammi um Ríkisútvarpið sé skýr,“ sagði Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. ÁSTA Möller, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í um- ræðum um Ríkisútvarpið á Alþingi í gærkvöld, að starfsmenn stofn- unarinnar ættu að biðja Auðun Georg Ólafsson, afsökunar á fram- komunni við hann. Auðun hefði ekkert til sakar unnið, annað en það að þiggja starf fréttastjóra Út- varpsins, sem hann hefði sótt um. Ásta sagði að framkoma starfs- manna Ríkisútvarpsins, gagnvart Auðuni, hefði „einkennst af ein- dæma dónaskap og virðingarleysi. Það var setið um manninn þegar hann mætti til starfa. Hann var miskunnarlaust leiddur til slátr- unar og það var óhikað reitt til höggs, við aðstæður sem engum manni er hægt að bjóða upp á. Hver og einn getur sett sig í spor hins nýja fréttastjóra að hafa bognað undan því ógnaráreiti sem hann varð fyrir“. Ásta sagði að með engum hætti væri hægt að réttlæta þessa fram- komu í garð Auðuns. „Nú þegar hægst hefur um, tel ég að starfs- menn, jafnt sem yfirmenn stofn- unarinnar, yrðu menn að meiri að biðja Auðun Georg Ólafssonar, af- sökunar á framkomu sinni.“ Biðji Auðun Georg afsökunar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.