Morgunblaðið - 12.04.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.04.2005, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ GuðmundurLaxdal Jó- hannesson fæddist í Vesturbænum í Reykjavík 8. ágúst 1920. Hann lést á Elliheim- ilinu Grund 31. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jó- hannes Laxdal Jónsson, f. 26. mars 1884, d. 24. apríl 1978, og Halldóra Ólöf Ólafsdóttir, f. 18. júlí 1883, d. 19. apríl 1941. Systk- ini Guðmundar voru Guðrún Laxdal, f. 18. október 1918, d. 29. janúar 2004; Sesselja Laxdal, f. 10. ágúst 1922; og Jón Júlíus Jónsson, hálfbróðir, f. 6. júní 1908, d. 10. febr. 1955. Guð- mundur ólst upp í foreldrahúsum á Framnesveginum. Hann bjó í Reykjavík til leiðarloka. Guðmundur byrjaði ungur að vinna eins og venja var hjá þeirri kynslóð. Lengst af sínum starfs- Guðný Harpa, f. 2. maí 1975, og Unnar Friðrik, f. 27. nóvember 1982. 4) Herdís Matthildur, f. 10. janúar 1948, eiginmaður Árni Brynjólfsson. Þeirra börn eru Sigþór, f. 29. febrúar 1968, Brynjólfur, f. 31. desember 1970, og Hrönn, f. 23. september 1979. 5) Halldór Ólafur, f. 6. september 1952. Fv. kona Þuríður Pálsdótt- ir. Þeirra dóttir er Arnhildur, f. 7. desember 1979. 6) Kristín Jó- hanna, f. 14. febrúar 1957, eig- inmaður Karl Rúnar Ólafsson. Þeirra börn eru Trausti Davíð, f. 3. nóvember 1977, Heiðbjört Hel- ena, f. 2. júní 1980, Hrafnhildur Hlín, f. 12. apríl 1982, og Teitur Daði, f. 5. janúar 1992. 7) Elín Helga, f. 24. maí 1960, eiginmað- ur Gestur Már Gunnarsson. Þeirra börn eru Sólbjört Sigríð- ur, f. 3. júlí 1979, Gunnar Már, f. 17. júní 1982, Snæbjört Sandra, f. 15. mars 1985, og Bergdís Ey- land, f. 27. maí 1991. 8) Björg Elísabet, f. 16. desember 1961, fv. maður Konráð Árnason. Þeirra synir eru Kristinn Jó- hann, f. 14. febrúar 1985, og Er- ling Rafn, f. 7. júní 1991. Björg er í sambúð með Viðari Péturs- syni. Barna-barnabörnin eru 16. Útför Guðmundar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. ferli vann hann hjá Eimskipafélagi Ís- lands. Guðmundur var kvæntur Sigríði Breiðfjörð Sigurðar- dóttur, f. í Stykkis- hólmi 11. september 1922. Þau eignuðust átta börn og er nú af þeim fjölmennur ættbogi. Börn þeirra hjóna eru: 1) Halldóra Gróa, f. 10. desember 1943, eig- inmaður Vilhjálmur Haraldsson. Þeirra synir eru Guðmundur, f. 11. ágúst 1965, Haraldur, f. 11. ágúst 1965, og Elvar, f. 29. júní 1973. 2) Þorleifur Jóhannes Lax- dal, f. 17. mars 1945, eiginkona Gyða Björg Elíasdóttir. Þeirra börn eru Elías, f. 20. mars 1967, Sigríður, f. 26. janúar 1970, og Erna Björk, f. 28. febrúar 1980. 3) Sigurður Ellert, f. 8. nóvember 1946, eiginkona Ásta Haralds- dóttir. Þeirra börn eru Elva Björk, f. 27. nóvember 1971, Jæja, Guðmundur minn, þá hefur þú kvatt okkur að sinni. Sigga hefur örugglega tekið á móti þér og nú vona ég að þú sért alsæll, ég veit að eftir þessu varst þú að bíða og þrá lengi. Einveran fór illa í þig, ég vor- kenndi þér sárlega í það síðasta þeg- ar þú varst að segja mér langanir þínar og vilja. Nú ert þú búinn að fá þína ósk uppfyllta. Það er nú margs að minnast gegnum árin sem eru orðin 27, síðan ég kom fyrst inn á þitt heimili á Ásgarðinn. Tekið var vel á móti mér, það var sátt um komu mína, því endaði ég sem tengdasonur ykkar Siggu. Það hefur orðið mér happadrjúgt lán. Þá réð Sigga ríkjum í eldhúsinu. Þarna ríkti notalegt andrúmsloft. Þið hjón vor- uð þó frekar ólíkar persónur, hún sallaróleg en samt fylgin sér, þú aft- ur á móti allt í hvelli helst í fyrradag. Þetta blessaðist allt saman. Guðmundur hafði skýr skil á skoð- unum sínum um menn og málefni og það var virkilega gaman og lifandi að sitja og spjalla við hann við eld- húsborðið um Gvend jaka, Gúttó- slaginn, stríðsárin, Bretavinnuna, atvinnuskömmtun o.fl. Þarna var hann vel heima, greinilega margt og vel lesinn um þessa tíma. Guðmund- ur held ég hafi ekki verið vinamarg- ur en vinur vina sinna og tryggur þeim sem hann á annað borð tók, ég var greinilega í þeirra hópi. Guð- mundur reyndist mér vel alla tíð og vildi allt fyrir mig gera, okkur kom vel saman. Meðan Siggu naut við komu þau oft í heimsókn vestur í Stykkishólm. Hólmurinn togaði allt- af í hana, þau létu Hólminn heilla sig, það fór ekki á milli mála. Eins og ég sagði voruð þið í Ás- garði 55 í upphafi vegar og þegar börnin þín hittast og farið er að spjalla kemur alltaf upp á yfirborðið eitthvað sem gerðist í Ásgarðinum, minning um ykkur hjón eða barna- börn, það er greinilegt að þín börn hafa komist á legg og flogið úr hreiðrinu í Ásgarðinum því minning þeirra þangað virðist sterk. Svo fluttuð þið Sigga vestur á Grandaveg. Þar fékkst þú mjög áhugaverðan eldhúsglugga, gast fylgst með skipa- og bátaumferð, hafðir gott útsýni og naust þess. Sigga stoppaði reyndar stutt þar, blessunin, og eftir sast þú einn í kotinu. Því má segja að þú hafir misst þrjár hendur þegar hún dó. Ég segi, það var þó þitt lán að kynnast góðri konu á hæðinni fyrir neðan þig á Grandaveginum, henni Mörtu Sæmundsdóttur, hún reynd- ist þér betri en enginn og hennar hjálp við þig tel ég vera ómetanlega, það létti á mörgum að vita að hún leit til með þér og hjálpaði. Fyrir mér verður henni seint fullþakkað. Að lokum á skilnaðarstundu þakka ég þér, Guðmundur, fyrir að hafa gefið mér tækifæri til að kynn- ast þér og gefið mér tíma af lífi þínu. Endurminningin er dýrmæt. Hún laðar fram hughrif hlýrra minninga og dregur fram mynd af hraustum manni sem alltaf var á réttum stað. Það er huggun harmi gegn að ég veit að hjá Siggu og Guði líður þér vel. Ég vil þakka starfsfólki á dval- arheimilinu Grund fyrir góða aðstoð og aðhlynningu þann tíma sem þú dvaldir þar. Ég vil svo færa börnum þínum, tengdabörnum, barnabörnum, barnabarnabörnum og Settu systur þinni, mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur og blessa í sorg ykkar. Gestur Már Gunnarsson, Stykkishólmi. Elsku afi minn, nú ertu farinn. Farinn til hennar ömmu, þið sitjið eflaust á einhverju skýinu og ræðið saman um gamla daga. Ég finn það núna, að það var svo margt sem ég átti eftir að segja þér, sem mig lang- aði að segja þér og ræða um við þig. En veistu afi, ég er ekkert hrædd um að ég fái ekki tækifæri til þess því að við eigum eftir að hittast og ræða um öll heimsins mál. Elsku afi minn, ég man eftir því þegar ég og Erna Björk komum til þín á Grandaveginn, við komum með nóg af bakkelsi og þú helltir upp á kaffi. Ég man að þú settir alltaf syk- ur í kaffið þitt. Ég á alltaf eftir að muna eftir þessari góðu heimsókn, elsku afi minn. Ég er alveg viss um að nú líður þér vel, afi minn. Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Elsku afi minn, takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Þær voru kannski ekki margar en þær voru góðar, og það er það sem skiptir máli. Megi guð varðveita þig og passa. Þín Þóra Björg. Okkur systkinin langar í örfáum orðum að minnast afa okkar hans Guðmundar. Afi var ekki maður margra orða en hann tók alltaf vel á móti manni og okkur leið vel í návist hans. Ekki þurfti maður að stoppa lengi því honum virtist nægja að maður kæmi aðeins við og spjallaði í smá stund um daginn og veginn. Meðan amma var á lífi komu þau oft í heimsókn í Hólminn, og það er ekki hægt að segja að mikið færi fyrir honum afa en það var nóg að vita af honum. En eftir að amma dó fækkaði þeim heimsóknum. Hann gat nú samt átt það til að koma í heimsókn án þess að láta vita og þá gat maður allt eins átt von á því að hann færi eins snögglega af stað heim eins og hann birtist allt í einu. En það var alltaf gaman að fá hann í heimsókn þó hann stoppaði mislengi við. Hann gerði aldrei upp á milli og allir voru jafnir hjá honum. Það hefur ábyggi- lega ekki veitt af með öll þessi börn og barnabörn sem hann átti. Að lokum viljum við þakka þér, afi, fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman og vonum að þér líði vel hjá Siggu ömmu. Einnig vilj- um við votta nánustu aðstandendum okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að blessa þau í sorg sinni. Sólbjört Sigríður, Gunnar Már, Snæbjört Sandra og Bergdís Eyland Gestsbörn, Stykkishólmi. Ég kynntist Guðmundi fyrst þeg- ar ég giftist Jóni bróður Sigríðar konu hans. Guðmundur var mynd- arlegur maður, hár, dökkhærður og hafði frjálsmannlega framkomu. Honum lét vel að stjórna þeim sem með honum gengu, enda vann hann lengst af sem verkstjóri hjá Eim- skip. Guðmundur hafði mikinn áhuga á fótbolta og vann í mörg ár um kvöld og helgar sem hliðvörður á Melavell- inum þegar fótboltaleikir voru þar. Guðmundur var samviskusamur í störfum sínum og mér er minnis- stætt hversu nákvæmur hann var í allri umgengni og meðferð á ís- lenska fánanum, en eitt af störfum hans á vellinum var að sjá um fán- ann þar. Guðmundur var raddsterkur, hafði góða söngrödd og hafði mikla gleði af söng. Það var gaman að vera með þeim hjónum á góðum stund- um, þau voru ævinlega hrókar alls fagnaðar, alltaf glöð og kát. Á fyrstu árum þeirra hjóna var oft þröngt í búi, enda börnin átta, fædd á fáum árum. Fyrstu árin bjuggu þau í bragga í Kamp Knox, en með ótrúlegum dugnaði tókst þeim að komast fljótlega í raðhús í Bústaða- hverfi. Það var mikill léttir fyrir fjöl- skylduna að komast þangað. Guð- mundur var sparsamur maður og fljótlega keypti hann sér bíl og kappkostaði alla tíð að vera á nýleg- um eða nýjum bílum. Börn okkar hjóna og yngri börn þeirra Guðmundar og Sigríðar voru á sama aldri og mikill vinskapur ætíð í fjölskyldunni enda Sigríður einstök við að halda utanum hópinn og rækta samböndin þótt fjölskyld- an stækkaði ört. Guðmundur og Sigríður fluttu síð- ar að Grandavegi 47 og voru búsett þar þegar Sigríður lést 23. maí 1992. Það var öllum sem hana þekktu mik- il sorg að þurfa að sjá á eftir henni. Guðmundur bjó áfram á Granda- veginum þar til heilsu hans hafði hrakað svo mikið að hann flutti á Elliheimilið Grund, þar sem hann lést. Nú að leiðarlokum viljum við hjónin þakka fyrir ótal ánægju- stundir sem við áttum í gegnum árin með Guðmundi og Sigríði. Of langt yrði upp að telja þær stundir og verða þær vel geymdar í sjóði minn- inganna. Börnum Guðmundar og Sigríðar, tengdabörnum, barnabörnum og öll- um afkomendum vottum við samúð okkar hjóna og fjölskyldu okkar. Þessar línur eftir Jóhannes úr Kötlum verða okkar kveðjuorð: Vor sál er svo rík af trausti og trú að trauðla mun bregðast huggun sú. – Þó ævin sem elding þrjóti, guðs eilífð blasir móti. Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást að hugir í gegnum dauðann sjást. – Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur síðar. Guð veri með ykkur öllum. Emilía og Jón Sigurðsson. GUÐMUNDUR LAX- DAL JÓHANNESSON Minn góði vinur, Jónas á Stórulaugum, er látinn. Ég kynntist Jónasi þegar ég hóf störf sem sveit- arstjóri Þingeyjarsveitar árið 2002 og var í fyrstu fundinn samastaður á neðri hæðinni á Stórulaugum. Allt frá fyrsta degi sýndi Jónas mér og fjölskyldu minni mikla umhyggju og hlýhug og átti það eftir að einkenna vináttu okkar alla tíð síðan. Jónas kunni líka að sýna þakklæti sitt í verki. Ellý, konan mín, gerði t.d. vel við hárið á Jónasi sem hon- um þótti vænt um og ógleymanlegt JÓNAS STEFÁNSSON ✝ Jónas Stefánssonfæddist á Önd- ólfsstöðum, Reyk- dælahreppi í S-Þing- eyjarsýslu 3. júlí 1909. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga fimmtu- daginn 31. mars síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Ein- arsstaðakirkju 8. apríl. er þegar okkur barst í þakklætisskyni heill bali af blóðmör sem Jónas hafði gert með góðri aðstoð Þuru á Ökrum! Það góða bús- ílag dugði vel og lengi. Það var bæði gaman og fróðlegt að sitja með Jónasi í eldhúsinu eða stofunni á Stóru- laugum því alltaf kunni hann sögur að segja úr héraðinu, af svaðilför- um sínum ýmsum, samferðamönnum og söng og ekki síður af hestum og hestamennsku. Hann sýndi hestabrölti okkar sérstakan áhuga enda einkar umhugað um vel- farnað okkar á því sviði. Það varð að samkomulagi okkar Jónasar að ég reyndi að sjá til þess að við færum saman fyrstu ferðina um væntanleg jarðgöng gegnum Vaðlaheiði, enda var hann bæði framsýnn og sérstakur áhugamaður um samgöngubætur sem fyrrver- andi bifreiðarstjóri og brýndi mig reglulega til slíkra verka. Það verð- ur víst bið enn um sinn á þeirri ferð en Jónas verður eflaust með okkur í anda þegar að þessum merku tíma- mótum kemur. Við höfðum einnig ráðgert ferð á Þeistareyki þar sem Jónas vildi upplifa það mikla fram- faraspor fyrir héraðið sem virkjun jarðvarmans er þar um slóðir. Af þeirri ferð verður heldur ekki en áhugi hans sýnir þann eldmóð og framfaravilja sem einkenndi Jónas allt fram til hinstu stundar. Það er okkar sem eftir lifum að halda slík- um merkjum áfram á lofti. Jónas var jafnframt mikið hraust- menni og sinnti m.a. sauðfjárbúskap fram yfir 95 ára aldur. Slík eljusemi er aðdáunarverð enda Jónas fylginn sér og dugnaðarmaður þrátt fyrir að heilsan hafi svikið og það oftar en einu sinni. Hann minntist þess reglulega hve mikilvægt það er að eiga góðan lífsförunaut og augljóst var að hann saknaði Kristjönu konu sinnar sem látin er fyrir nokkru. Vonandi hafa þau nú sameinast á ný. Við erum þakklát fyrir kynni okk- ar af Jónasi Stefánssyni á Stóru- laugum og sendum fjölskyldu hans og ástvinum innilegustu samúðar- kveðjur okkar. Jóhann Guðni Reynisson og fjölskylda. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐNÝ STEFÁNSDÓTTIR frá Mjóeyri, Eskifirði, lést á hjúkrunardeild Kumbaravogs, Stokks- eyri, fimmtudaginn 7. apríl. Útför hennar verður gerð frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 16. apríl kl. 14:00. Rósa Kjartansdóttir, Þorsteinn Sigfússon, Jónbjörg Kjartansdóttir, Ásbjörn Sigurðsson, Sigurveig María Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Tengdamóðir mín, amma okkar og langamma, SIGRÚN INGIMARSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, áður Lækjargötu 9a, Akureyri, andaðist miðviðkudaginn 6. apríl. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mið- vikudaginn 13. apríl kl. 13:30. Kristbjörg Halldórsdóttir, Erna Magnúsdóttir, Eva Magnúsdóttir, Brynjólfur Magnússon, Rúnar Magnússon og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.