Morgunblaðið - 12.04.2005, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GNÚPUR GK 11 kom í land í
Grindavík í lok síðustu viku með góð-
an afla. Heildarafli veiðiferðarinnar
var 815 tonn, en þar af voru 240 tonn
karfi, 230 tonn ýsa, 140 tonn þorsk-
ur. Heildarverðmæti aflans eru rúm
101 milljón og stóð veiðiferðin í 33
daga. Skipstjóri á Gnúp GK er Gylfi
Kjartansson.
Gylfi segir á heimasíðu Þorbjarn-
ar Fiskaness, að aflabrögð frá ára-
mótum hafi verið einstaklega góð,
mjög góð veiði hefur verið í öllum
tegundum en þó sérstaklega í ýsu.
Þetta sé bara með því besta í fjölda-
mörg ár. Fiskurinn sé bæði vænn og
vel á sig kominn. Það geri alla
vinnslu um borð mun fljótlegri og
þarf af leiðandi séu afurðirnar betri
og verðmætari.
Í þessari veiðiferð hafi verið byrj-
að á Reykjanesgrunni og síðan far-
inn hringurinn á Eldeyjarbanka,
Melsek, Látragrunni og endað á
Reykjanestánni. Aflinn í þessari
veiðiferð hafi verið samtals um
18.500 ks að verðmæti liðlega 101
milljón, þrátt fyrir hrikalega lágt
gengi gjaldmiðla því allar afurðir séu
jú seldar í erlendum gjaldmiðlum.
„Það hefði verið gaman að fá svona
veiði ef dollarinn hefði verði í 80 kr.
eða í 110 eins og þegar hann var hvað
dýrastur.“
Gylfi fór aftur til veiða í gær eftir
helgarferð með áhöfninni til Kaup-
mannahafnar og sagði að þá mundu
menn meta hvort eitthvað væri um
að vera í úthafskarfanum, en útlitið í
þeim efnum er ekki gott. Það hefur
verið ákveðin 37% skerðing á kvót-
anum þrátt fyrir að aðrar þjóðir sem
þessar veiðar stunda hafi ekki sam-
þykkt þá skerðingu.
„Mér finnst líka ótækt að við þurf-
um að taka helming okkar kvóta fyr-
ir utan 240 mílur á sama tíma og er-
lend skip eru að veiða við 200 mílna
línuna. Þetta fyrirkomulag veldur
okkur ýmiskonar vandræðum við að
ná okkar kvóta og er heilmikill
kostnaðarauki fyrir útgerðina. Mér
finnst að gera þurfi bragarbót á slík-
um ákvarðanatökum af hálfu hins
opinbera,“ segir Gylfi á heimasíð-
unni.
Góður túr
hjá Gnúpnum
Mjög góð veiði hefur verið í öllum
tegundum en þó sérstaklega í ýsu
FERÐIR skólaskipsins Drafnar
eru hafnar. Verkefnið verður
starfrækt í um 30 daga á árinu
2005 og verða farnar 2–3 ferðir á
dag – flestar frá Reykjavík, en
einnig er stefnt að því að skipið
fari hringferð um landið í nóv-
ember. Sjóferðirnar eru ætlaðar
nemendum 9. og 10. bekkja grunn-
skóla og er markmið verkefnisins
að veita þeim tækifæri til að fara í
ferð með fullbúnu veiðiskipi og
kynnast margvíslegum störfum
um borð, siglingatækjum, veið-
arfærum, rannsóknum á hafinu og
lífríki þess og síðast en ekki síst
sjávarlífverum og líffræði þeirra.
Rekstur skólaskipsins Drafnar
hófst árið 1998, á ári hafsins.
Verkefnið er unnið í samstarfi
sjávarútvegsráðuneytis, sem fjár-
magnar verkefnið, Fiskifélags Ís-
lands sem kynnir verkefnið og
skipuleggur ferðir og Hafrann-
sóknastofnunarinnar sem sér um
fræðslu um borð. Þá er verkefnið
einnig styrkt með beinni fjárveit-
ingu af fjárlögum. Dröfn RE 35
var áður rannsóknaskip í eigu
Hafrannsóknastofnunarinnar, en
á dögunum var samið við nýja eig-
endur um leigu á skipinu og að-
komu skipstjóra og áhafnar að
verkefninu. Skólaskipið Dröfn hef-
ur notið mikilla vinsælda frá því
verkefnið hófst og hafa nemendur
sýnt lífríki hafsins og vinnunni um
borð mikinn áhuga.
Morgunblaðið/Muggur
Á sjó Áhugasamir nemendur um borð í skólaskipinu Dröfn.
Skólaskipið siglir á ný
SAMHERJI hf. hefur gengið frá sölu-
samningi á Margréti EA við útgerð-
arfyrirtæki í Montevideo í Úrúgvæ.
Samningurinn er með fyrirvara um
skoðun kaupanda á botni skipsins.
Gera má ráð fyrir, ef botnskoðun
stenst, að skipið sigli frá Akureyri í
næstu viku og að siglingin til Úrúgvæ
taki um 30 daga.
Margrét seld
ÚR VERINU
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir um-
hverfisráðherra er í fararbroddi ís-
lenskrar viðskiptasendinefndar sem
stödd er í Slóvakíu. Ellefu íslensk
fyrirtæki í ýmsum geirum, þar á
meðal fyrirtæki á sviði umhverfis-
mála, svo sem jarðhita og endur-
vinnslu, tóku þátt í ferðinni. Ferð
viðskiptasendinefndarinnar er farin í
tengslum við opinbera heimsókn um-
hverfisráðherra, sem átti í gær fund
með umhverfisráðherra Slóvakíu.
Skipulagning og undirbúningur
ferðarinnar var í höndum Útflutn-
ingsráðs og var tilgangurinn að afla
nýrra viðskiptatækifæra með því að
kynna og markaðssetja íslenska
tækni og þjónustu og að auki við-
halda eldri viðskiptasamböndum.
Á ráðstefnu viðskiptasendinefnd-
arinnar flutti umhverfisráðherra
ávarp um viðskipti Íslands og Slóv-
akíu. Hún sagði þar meðal annars að
ekki ætti að líta svo á að umhverf-
ismál stæðu hagvexti fyrir þrifum.
Ánægjulegt væri að sjá að nokkur ís-
lensk fyrirtæki í þessari heimsókn
störfuðu á sviði umhverfisvænnar
tækni, jarðvarma og endurvinnslu.
Samkvæmt upplýsingum frá Út-
flutningsráði ávarpaði Laszló Mikl-
ós, umhverfisráðherra Slóvakíu,
einnig ráðstefnuna og sagði Íslend-
inga leiðandi í nýtingu jarðvarma og
sú þekking gæti nýst Slóvakíu. Ráð-
herrann sýndi endurvinnslu einnig
áhuga, en fyrirtæki á báðum þessum
sviðum eiga fulltrúa í viðskiptasendi-
nefndinni. Ráðherrann, sem kom í
opinbera heimsókn til Íslands sl.
haust og kynntist þá slíkri starfsemi,
átti sérstakan fund með fulltrúum
fyrirtækja í endurvinnslu og jarð-
hitatækni að lokinni ráðstefnu við-
skiptasendinefndarinnar í Brat-
islava.
Sigríður Anna átti í gær fund með
Miklós en fundurinn var hluti af op-
inberri heimsókn umhverfisráðherra
til Slóvakíu. Ráðherrarnir ræddu
meðal annars um endurnýjanlega
orku og loftslagsbreytingar, nátt-
úruvernd og vistvæna ferðaþjónustu
og aðgerðir til að draga úr losun
hættulegra efna í umhverfið.
Umhverfisráðherra mun í ferð
sinni í Slóvakíu m.a. kynna sér tvö
verkefni á sviði jarðhitanýtingar sem
íslensk fyrirtæki koma að, í borgun-
um Galanta og Kosice.
Umhverfisráðherra fer fyrir íslenskri
viðskiptasendinefnd í Slóvakíu
Umhverfismál
standa hagvexti
ekki fyrir þrifum
László Miklós, umhverfisráðherra Slóvakíu, Sigríður Anna Þórðardóttir
og Sveinn Björnsson sendiherra á viðskiptaráðstefnunni.
ALLAR líkur eru á því samstarfi tíu
borga í Evrópu um forvarnir gegn
fíkniefnaneyslu ungmenna verði
stýrt frá Íslandi, segir Dagur B.
Eggertsson, borgarfulltrúi og
fulltrúi í stjórn ECAD, Evrópskra
borga gegn eiturlyfjum. Samstarfið
mun m.a. byggjast á verkefninu Ís-
land án eiturlyfja, sem Reykjavíkur-
borg setti af stað árið 1997. Í því var
m.a. lögð áhersla á að grasrótin tæki
þátt í forvarnastarfinu, s.s. foreldr-
ar, skólar og fleiri. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, verður
sérstakur verndari evrópska verk-
efnisins.
Dagur gerir ráð fyrir því að verk-
efnið verði samþykkt á fundi borg-
arstjóra í Evrópu sem halda á í Ósló í
lok maímánaðar. Jafnframt verði
samþykkt nákvæm verkefnislýsing.
Undirbúningsfundur verkefnisins
var haldinn í Reykjavík fyrir helgi.
Dagur segir að sá fundur hafi gengið
gríðarlega vel. Fulltrúar margra
borga hafi lýst áhuga á að taka þátt í
verkefninu. Meðal þeirra borga eru
Ósló, Stokkhólmur, Helsinki, Düss-
eldorf, Varsjá og St. Pétursborg.
Evrópsku
forvarnaverk-
efni stýrt frá
Íslandi
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
greiddi Eiríki Tómassyni, lagapró-
fessor við Háskóla Íslands, samtals
74.700 krónur fyrir lögfræðiálit sem
hann vann fyrir ráðuneytið um lög-
mæti ákvörðunar um að styðja taf-
arlausa afvopnun Íraks.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
forsætisráðherra, Halldórs Ás-
grímssonar, við fyrirspurn Sigurjóns
Þórðarsonar, þingmanns Frjáls-
lynda flokksins. Svarinu hefur verið
dreift á Alþingi.
Eiríkur Tómasson komst að þeirri
niðurstöðu að ekki væri um meiri-
háttar ákvörðun að ræða og að ekki
hafi verið nauðsynlegt að fá sam-
þykki utanríkismálanefndar áður en
hún var tekin. Stjórnarandstaðan
hefur gagnrýnt ákvörðunina harð-
lega.
Þóknunin
nam 74.700
♦♦♦
KOLMUNNAVEIÐI íslenzkra fiski-
skipa fer hægt af stað. Þau hafa aðeins
aflað tæplega 10.000 tonn, en veiðin hef-
ur að undanförnu verið innan lögsögu
Færeyja.
Erlend kolmunnaskip hafa leitað til
Íslands til að landa afla sínum. Þau hafa
alls landað ríflega 66.000 tonnum hér-
lendis og því hafa íslenzku verksmiðj-
urnar tekið á móti um 76.000 tonnum.
Síldarvinnslan á Seyðisfirði hefur tekið
á móti mestum afla, ríflega 19.000 tonn-
um. Ísfélag Vestmannaeyja hefur tekið
á móti 14.800 tonnum og Loðnuvinnslan
á Fáskrúðsfirði er með 14.200 tonn.
Næst kemur Síldarvinnslan í Neskaup-
stað með 9.700 tonn, Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum er með 6.600 tonn,
Fabrikkan á Djúpavogi með 6.400 tonn
og Eskja á Eskifirði er með 5.400 tonn.
Kolmunninn
kemur í land
♦♦♦
Úr
verinu
Sérblað um
sjávarútveg á
miðvikudögum
á morgun