Morgunblaðið - 12.04.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 17
ERLENT
Moskvu. AFP. | Málflutningi í
tengslum við réttarhöld yfir Míkhaíl
Khodorkovskí, fyrrverandi forstjóra
rússneska olíurisans Yukos, lauk í
gær og hefur dómarinn í málinu nú
dregið sig í hlé til að velta fyrir sér
sönnunum á hendur Khodorkovskí.
Úrskurðar er að vænta 27. apríl nk.
Khodorkovskí er sakaður um
skattsvik og fjárdrátt og á yfir höfði
sér allt að tíu ára fangelsisdóm ef
fundinn sekur. Khodorkovskí hefur
alltaf haldið fram sakleysi sínu í mál-
inu og margir telja að málatilbún-
aður á hendur honum sé af pólitísk-
um rótum runninn. Segja sumir
fréttaskýrendur að ráðamenn í
Kreml séu með þessum málarekstri
að refsa Khodorkovskí fyrir pólitísk
afskipti hans; en skömmu áður en
Khodorkovskí var handtekinn í hitt-
eðfyrra og fangelsaður hafði hann
verið farinn að styrkja fjárhagslega
ýmsa stjórnarandstöðuflokka í
Rússlandi.
„Þetta mál á hendur mér er tilbún-
ingur,“ sagði Khodorkovskí í loka-
orðum sínum fyrir rétti í gær. „Sak-
sóknarar gátu ekki fært sönnur á
ásakanirnar á hendur mér. Þetta er
skrípaleikur. Jafnvel vitni saksókn-
aranna töluðu mér í hag,“ sagði hann
ennfremur en lokaorð hans tóku um
fjörutíu mínútur í flutningi.
Margir vina Khodorkovskís og
ættingja voru staddir í réttarsalnum
er hann flutti lokaorð sín, auk lög-
manna og fjölmiðlafólks, og var hon-
um ákaft fagnað er hann hafði lokið
máli sínu.
Niðurstaðan ákveðin
á æðstu stjórnstigum
Ýmsir fréttaskýrendur telja lík-
legast að Khodorkovskí verði fund-
inn sekur. „Röksemdir lögmannanna
skipta engu um niðurstöðu réttar-
haldanna – þau eru af pólitískum
toga og ákvörðunin verður tekin á
æðstu stjórnstigum,“ sagði Nikolai
Petrov, fræðimaður við Moskvu-
útibú Carnegie-stofnunarinnar.
Réttarhöldum yfir Míkhaíl
Khodorkovskí lokið
Reuters
Míkhaíl Khodorkovskí fer inn í lög-
reglubíl eftir að hafa flutt lokaorð
sín fyrir rétti í gær.
Dóms að
vænta
27. apríl
London. AFP, AP. | Breskir íhaldsmenn lofa að
lækka skatta takist þeim að sigra í þingkosn-
ingum sem eiga að fara fram í Bretlandi 5. maí nk.
Michael Howard, leiðtogi Íhaldsflokksins, kynnti
stefnuskrá flokksins í gær og sagði, að atkvæði
greidd Verkamannaflokki Tonys Blairs forsætis-
ráðherra myndu þýða hærri skatta og „enn fleiri
svikin loforð“.
„Ímyndið ykkur að vakna að morgni 6. maí og
heyra að Blair hafi verið endurkjörinn. Ímyndið
ykkur hvernig ykkur myndi líða,“ sagði Howard í
ávarpi sínu. „Þið þurfið ekki að sætta ykkur við þá
tilhugsun,“ sagði hann og beindi orðum sínum til
kjósenda.
Íhaldsmenn eru fyrstir til að kynna stefnuskrá
sína vegna komandi kosninga en í henni kemur
fram að Íhaldsflokkurinn vill stuðla að auknum
aga í skólum og betri sjúkrahúsþjónustu og hann
heitir að bregðast við vaxandi glæpatíðni og herða
reglur í innflytjendamálum.
Ennfremur tekur flokkurinn af öll tvímæli í
Evrópumálum, segir að hann muni ekki taka upp
evruna komist hann til valda. Verkamannaflokk-
urinn vill aftur halda þjóðaratkvæðagreiðslu verði
það talið efnahagslega hagkvæmt að ganga í evr-
ópska myntbandalagið.
kynntu stefnu Verkamannaflokksins í efnahags-
málum í gær . lögðu þeir áherslu á að efnahags-
málin hefðu verið í góðum höndum í stjórnartíð
Verkamannaflokksins.
Í könnun í blaðinu Daily Mirror í gær kom fram
að Verkamannaflokkurinn hefur fimm prósentu-
stiga forskot á Íhaldsflokkinn, fengi 38% atkvæða
en íhaldsmenn 33%. Frjálslyndir demókratar fá
22% skv. könnuninni. Þetta myndi þýða að Verka-
mannaflokkurinn fengi 100 þingsæta meirihluta.
Ekki kemur fram í stefnuskrá íhaldsmanna
hvaða skatta nákvæmlega þeir vilji lækka en þeir
ku ætla að kynna það sérstaklega er nær dregur.
Stefnuskráin þykir nokkuð stutt plagg og sagði
Howard að það væri engin tilviljun, menn von-
uðust til að það gæti orðið til þess að kjósendur
læsu hana í raun og veru. Hvatti hann fólk til að
kynna sér „hvernig íhaldsmenn hefðu breyst“.
Blair gerði lítið úr stefnumálum Íhaldsflokksins
en hann og Gordon Brown fjármálaráðherra
Íhaldsmenn í Bretlandi kynna
stefnumálin í kosningunum
Verkamannaflokkurinn enn með nokkurt forskot samkvæmt nýrri könnun
Reuters
Gordon Brown fjármálaráðherra og Tony Blair
forsætisráðherra á fréttamannafundi í gær.
AP
Michael Howard heldur á lofti eintaki af stefnu-
skrá breskra íhaldsmanna.