Morgunblaðið - 12.04.2005, Síða 18
Hólmavík | Nemendur úr
grunnskólunum á Hólmavík og
Drangsnesi og leikskólanum á
Hólmavík fjölmenntu á tónleika
hjá hljómsveitinni Hundi í óskil-
um og skemmtu sér konung-
lega. Hjörleifur Hjartarson og
Eiríkur Steffensen eru þekktir
fyrir skemmtilega sviðs-
framkomu. Þeir sungu meðal
annars í gegnum nælon-
sokkabuxur en það reyndist svo
erfitt að ekki var hægt að taka
nema eitt með því laginu.
Tónleikarnir eru liður í verk-
efninu Tónlist fyrir alla. Hljóm-
sveitin hélt einnig tónleika í
Súðavík og á fleiri stöðum.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Sungið í gegnum nælonsokk
Tónlist
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ákveðið hefur verið að boða til opnunar
Sjóminjasafnsins í Ósvör á þessu sumri á
sumardaginn fyrsta, 21. apríl nk. Þá verð-
ur m.a formlega tekið í notkun þjónustu-
hús við safnið sem auk þess er ætlað að
vera einskonar upplýsingastofa fyrir
ferðamenn. Í Ósvör við Bolungarvík var
árið 1988 endurreist forn verstöð og haf-
inn rekstur á sjóminjasafni þar sem allt er
sem líkast því sem var á tímum áraskip-
anna í gamla daga. Safnið í Ósvör hefur
allt frá því að starfsemi þess hófst vakið
athygli ferðamanna auk þess sem það hef-
ur vakið athygli í erlendum ferðaritum. Á
sl. ári urðu þáttaskil í starfsemi safnsins
þar sem Geir Guðmundsson sem gegnt
hafði starfi safnvarðar frá upphafi þess lét
af störfum. Geir sem ávallt tók á móti
gestum í Ósvör íklæddur sjóklæðum fyrri
alda, gaf safninu líf sem skóp því þá sterku
mynd sem vakið hefur mikla athygli og
vinsældir, ekki síst meðal erlendra ferða-
manna. Í stað Geirs hefur Finnbogi
Bernódusson verið ráðinn safnvörður.
Sveitarstjórnarmönnum er vandi á
höndum þegar þeim er ætlað að úthluta
verðmætum, þetta er meirihluti bæjar-
stjórnar hér í bæ að reyna um þessar
mundir. Í hlut Bolungarvíkurkaupstaðar
kom 100 tonna byggðakvóti. Bæjarstjórn-
armeirihlutinn samdi úthlutunarreglur
sem samþykktar voru í bæjarstjórn í síð-
asta mánuði. Minnihlutinn var með aðrar
hugmyndir um úthlutun, en fékk ekki
hljómgrunn. Auðvitað gerðist það að ekki
urðu allir sáttir. Útgerðarmenn 15 smá-
báta sendu sjávarútvegsmálaráðuneytinu
hörð mótmæli þar sem þeir telja að út-
gerðaraðilum sé mismunað. Ráðuneytið
hefur nú óskað eftir því að bæjarstjórn
geri grein fyrir afstöðu sinni til þessara
mótmæla útgerðarmanna. Bæjarstjórn-
armeirihlutinn vill hinsvegar fá að vita
hvort einhverjir meinbugir séu á úthlut-
unarreglum þeim sem ákveðið var að nota
við úthlutunina. Nú er beðið eftir því hvort
ráðuneytið leggi blessun sína yfir reglur
bæjarstjórnar eða hvort tekið verður und-
ir ábendingar útgerðarmannanna.
Úr
bæjarlífinu
BOLUNGARVÍK
EFTIR GUNNAR HALLSSON FRÉTTARITARA
Ákveðið hefur veriðað stofna stuðn-ingshópinn Sunn-
an 5 fyrir fólk á Suð-
urnesjum sem hefur
greinst með krabbamein.
Stofnfundurinn verður
haldinn í húsi Rauða
krossins á Smiðjuvöllum 8
í Keflavík miðvikudaginn
13. apríl klukkan 17.
Fram kemur í tilkynn-
ingu að áhugafólk um
stofnun félagsins hefur
rætt um að stuðningshóp-
urinn muni standa fyrir
fræðslu- og rabbfundum
þar sem fólk hittist og fær
stuðning og styrk hvert
frá öðru. Ætlunin er að
félagið nái yfir sveitar-
félögin fimm á Suður-
nesjum, og vísar heiti
þess til þess.
Víða á landinu eru stað-
bundnir stuðningshópar
sem starfa í skjóli krabba-
meinsfélaga á viðkom-
andi stöðum og einnig eru
starfandi landsfélög.
Sunnan 5
Hátíðarguðsþjón-usta var í Hrepp-hólakirkju sl.
sunnudag í tilefni þess að
kirkjan hefur verið máluð
að innan. Barnakór
Flúðaskóla söng við at-
höfnina undir stjórn Edit
Molnár. Einnig sungu
karlar úr kirkjukór
Hrunaprestakalls.
Hrepphólakirkja er
annexía frá Hruna þar
sem séra Eiríkur Jó-
hannsson situr. Magnús
Helgi Sigurðsson í Birt-
ingaholti er formaður
sóknarnefndar. Aðeins
eru um 150 manns í
Hrepphólasókn en sókn-
arfólk hefur hugsað vel
um kirkjuna og unnið
stöðugt að endurbótum
og viðhaldi.
Hrepphólakirkja var
byggð árið 1909 eftir að
kirkja sem var byggð
1903 fauk í kirkjuveðrinu
mikla 28. desember 1908.
Vitað er um kirkju í
Hrepphólum allt frá
árinu 1377.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Vel hugsað um kirkjuna
Davíð Hjálmar Har-aldsson var kom-inn í sumarskap
þegar fór að snjóa:
Svo kenjótt er vorið, það
kemur og fer,
það kallar og færir í stílinn
og saklausa tælir, já svo
fór nú hér:
Ég sumardekk lét undir bílinn.
Sigrún Haraldsdóttir seg-
ist þó halda að vorið komi
að lokum:
Þó að vetrarveðrin ströng
vorsins tefji ljóma.
Heyri ég fagran fuglasöng
í fjarlægðinni hljóma.
Jón í Garði orti vorvísu
sem kom út í Ljóðmælum
árið 1954:
Vorsins ómar ymja dátt
árdagsgeislar skína.
Himindjúpsins heiði blátt
heillar sálu mína.
Sveinbjörn Beinteinsson
yrkir ferskeytlu í hátta-
tali sínu, sem er frum-
framhent, hálfhent:
Sveimað heimahögum frá
hef ég vors á degi,
víða stríða þræddi þá
þunga hraunavegi.
Um vorið
pebl@mbl.is
Húsavík | Þriðja umferðin í WSA-mótaröð-
inni í snocrossi fór fram í Meyjarskarði á
Reykjaheiði, rétt ofan Húsavíkur, um síð-
ustu helgi. Um framkvæmd mótsins sá Mót-
orsportklúbbur Húsavíkur og tókst hún
með ágætum. Keppt var í þrem flokkum,
hart var barist í brautinni og mikil tilþrif
sýnd á köflum.
Í meistaraflokknum stóð heimamaðurinn
Eyþór Hemmert Björnsson að lokum uppi
sem sigurvegari. Hemmertinn stóð sig
geysilega vel í lokaumferðinni sem hann
vann með yfirburðum. Ólafsfirðingurinn
Helgi Reynir Árnason varð annar og Stefán
Örn Hreggviðsson úr Kópavogi þriðji. Þeir
sjást hér á verðlaunapalli, Eyþór stendur á
efsta palli, Helgi Reynir til vinstri og Stefán
Örn til hægri.
Í sportflokknum var baráttan enn og aft-
ur á milli þeirra Fannars Magnússonar frá
Egilsstöðum og Akureyringsins Gunnars
Hákonarsonar og nú hafði Fannar betur. Í
þriðja sæti varð Selfyssingurinn Baldvin
Kristjánsson eftir að þeir Snorri Sturluson
og Smári Sigurðarson sem höfðu átt í harðri
baráttu um þriðja sætið lentu í samstuði í
síðasta hring.
Í verðlaunasætum í unglingaflokknum
voru þeir Ásgeir Frímannsson frá Ólafsfirði
sem sigraði, Akureyringurinn Aðalbjörn
Tryggvason sem varð annar og Jónas Stef-
áns-son úr Mývatnssveit þriðji. Fjórða um-
ferð WSA-mótaraðarinnar fer svo fram á
Egilsstöðum helgina 23.–24. apríl nk.
Eyþór sigraði
örugglega á
heimavelli
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Ferðir falla niður | Allar áætlunarferðir
Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs falla
niður þriðjudaginn 19. apríl og miðviku-
daginn 27. apríl næstkomandi vegna við-
halds á vélbúnaði ferjunnar.
Í fréttatilkynningu frá Samskipum kem-
ur fram að allar nánari upplýsingar um
ferðir Herjólfs megi finna á heimasíðu
Herjólfs, www.herjolfur.is, undir sigl-
ingaáætlun.
♦♦♦