Morgunblaðið - 12.04.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 21
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
LANDIÐ
Reykjanesbær | Mikill áhugi virðist
vera fyrir því víða um land að nýta
fornsögurnar til að byggja upp sögu-
tengda ferðaþjónustu. Setur og sögu-
slóðir sem tengjast hinum ýmsu Ís-
lendingasögum eru í undirbúningi.
Talið er að 20 til 30 aðilar séu með
sögutengda ferðaþjónustu eða und-
irbúi hana. Nú er unnið að því að
koma upp samstarfsvettvangi þess-
ara verkefna í framhaldi af Evrópu-
verkefninu Destination Viking Saga-
lands sem lýkur á þessu ári.
Forsvarsmenn margra verkefnanna
hittust á fundi í Keflavík síðastliðinn
föstudag.
Destination Viking Sagalands hef-
ur starfað í tvö ár en byggist á eldri
Evrópuverkefnum. Það er rekið hér á
landi, af Byggðastofnun. Norður-
slóðaáætlun Evrópusambandsins
leggur eina milljón evra í verkefnið.
Rögnvaldur Guðmundsson verkefnis-
stjóri segir að því ljúki á þessu ári.
Sautján verkefni eiga aðild að Evr-
ópuverkefninu frá sjö löndum, Nor-
egi, Svíþjóð, Færeyjum, Orkneyjum,
Hjaltlandi og Grænlandi, auk Íslands,
og nýlega bættist Kanada við. Þátt-
takendur héðan eru Grettistak í
Húnaþingi vestra, Gísla Súrssonar
verkefnið á Vestfjörðum, Dalabyggð
vegna Eiríksstaða og Leifsverkefnis-
ins, Safnahúsið í Borgarnesi vegna
sagnamennsku, Skeiða- og Gnúp-
verjahreppur vegna Þjórsárdals og
þjóðveldisbæjarins og Reykjanesbær
vegna víkingaskipsins Íslendings.
Tilgangur verkefnisins er að vekja
athygli á Íslendingasögunum og gera
þær sýnilegri fyrir ferðafólk. Einnig
að gera sagnamennsku almennt
hærra undir höfði. Rögnvaldur segir
að í sumar verði gefin út bók um nið-
urstöður vinnunnar og sögukort yfir
allt svæðið. Þá sé unnið að því að
koma upp farandsýningu og heima-
síðu á Netinu. Þá er hver aðili fyrir sig
að vinna á sínum vettvangi. Sem
dæmi um það má nefna að Reykja-
nesbær hefur gefið út bækling til
kynningar á víkingaskipinu Íslend-
ingi og komið upp merkingum sem
tengjast honum, gamla húsmannsbýl-
inu Stekkjarkoti og tóftum landnáms-
skálans í Höfnum.
Margir vilja nýta sér söguna
Rögnvaldur segir að mikil gróska
virðist vera á þessu sviði og margir
sem vilji nýta sér fornsögurnar til að
efla ferðaþjónustu á sínu sviði. Hann
segir að áhugi sé á því að halda Evr-
ópuverkefninu áfram í einhverri
mynd og fá fleiri til samstarfs. Til
þess að reyna að koma þeirri vinnu af
stað var efnt til málþings um sögu-
tengda ferðaþjónustu í Reykjanesbæ
síðastliðinn föstudag. Þar voru kynnt
ýmis verkefni sem tengjast Destina-
tion Viking og eru utan þess og for-
svarsmenn helstu verkefna komu
saman til að ræða framhaldið. Rögn-
valdur segir að áhugi sé á því að koma
upp einhverskonar félagi eða sam-
starfsvettvangi til að vinna sameigin-
lega að markaðs- og kynningarmál-
um. Vonast hann til þess að slíkur
vettvangur geti orðið til í haust og
unnt verði að undirbúa kynningu fyrir
næsta sumar. Rögnvaldur segir ekki
síður mikilvægt að þessir aðilar séu
upplýstir um áform hver annars svo
að verkefnin skarist sem minnst.
Telur hann að 20 til 30 aðilar vinni
að sögutengdri ferðaþjónustu í ein-
hverri mynd. Mikilvægt sé að þeir
hafi með sér visst samstarf þótt auð-
vitað séu þeir einnig í samkeppni.
Hvetur okkur til góðra verka
Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðu-
maður Byggðasafns Reykjanesbæj-
ar, er ánægð með ráðstefnuna sem
hátt í 100 manns sóttu. Reykjanesbær
leysti til sín víkingaskipið Íslending á
sínum tíma og hefur áhuga á að gera
hann að miðju í ferðamannasegli sem
koma á upp við Njarðvíkina. Fyrir-
hugað er að byggja safnhús fyrir skip-
ið, Naust Íslendings, sem jafnframt
myndi hýsa sýningu á grunni víkinga-
sýningar Smithsonian-stofnunarinn-
ar í Washington. Í framtíðinni er síð-
an áhugi á að koma þar upp
víkingagarði. Sigrún Ásta segir að
málið sé enn í undirbúningi en menn
séu vongóðir um að húsið komist upp.
Hún segir mikilvægt að taka þátt í
þessu Evrópuverkefni. Þar kynnist
þátttakendurnir því sem verið er að
gera annars staðar og geti aflað sér
nýrra sambanda. Sigrún Ásta segir
að með því að taka þátt í verkefni sem
nær yfir jafnstórt svæði og Destina-
tion Viking átti menn sig betur á því
en áður að Norður-Atlantshafið sé í
raun eitt sögusvæði og Ísland aðeins
einn hluti af því. „Þátttaka í þessu
hvetur okkur til góðra verka síðar
meir,“ segir hún.
Á þriðja tug aðila er með eða undirbýr verkefni um sögutengda ferðaþjónustu
Áhugi á að
vinna saman
að kynningu
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Víkingar Fjöldi erlendra gesta sækir Hafnfirðinga heim á árlegri sólstöðuhátíð víkinga sem Fjörukráin heldur.
Þessir vösku og alvopnuðu víkingar tóku þátt í síðustu hátíð og sumir verða vafalaust með í júní.
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Árabátur Eftirbáturinn sem Gunnar Marel Eggertsson hefur smíðað var kynntur á ráðstefnu um sögutengda
ferðaþjónustu í Reykjanesbæ. Hér er Böðvar Suðurnesjavíkingur kominn um borð í bátinn.
Mývatnssveit | Söngfélagið Sálubót
úr Þingeyjarsveit hélt tónleika í
Skjólbrekku nýlega. Stjórnandi
kórsins og jafnframt aðalundirleik-
ari er Jaan Alavere, einn þeirra tón-
listarmanna frá Eistlandi sem halda
merki tónlistarinnar hátt á loft í
Þingeyjarsýslu þessi árin. Ein-
söngvarar voru Dagný Pétursdóttir,
Einar Ingi Hermannsson og Óskar
Pétursson. Dagskráin var fjölbreytt
og kórnum vel tekið. Á næstunni
mun kórinn fara víðar um nágranna-
byggðir og láta til sín heyra.
Morgunblaðið/BFH
Sálubót í Skjólbrekku