Morgunblaðið - 12.04.2005, Qupperneq 22
Glaðlegt gult pils úr sum-
arlínu Douglas Hannants.
Fyrir neðan má sjá pils úr
Centrum (vinstra megin)
og pils úr Spútnik
(hægra megin).
ÓHÆTT er að segja að úrval pilsa sé ein-
staklega mikið og fjölbreytt í fataverslunum
borgarinnar um þessar mundir. Skærir litir og
stór mynstur eru áberandi, einnig gamaldags
kremaðir litir og blúndur, og pilsin eru gjarnan
létt og flaksandi. Hægt er að finna allar síddir
en mest áberandi er þó svokölluð millisídd, það
er að segja við eða rétt fyrir neðan hné.
Þegar sumartískan 2005 var kynnt til sög-
unnar á tískusýningum í haust voru afgerandi
mynstur og jafnvel skrautlegar myndir nokkuð
sem sjá mátti víða á flíkum. Bæði var um að
ræða rómantísk blómamynstur og einnig svo-
kölluð „etnísk“ mynstur, það er að segja afrísk
og frumbyggjamynstur ýmiskonar og einnig
dýramynstur og -myndir. Inn í þetta blandaðist
svo vísun í hippatísku áttunda áratugarins,
með víðum mussum og pilsum, með nútíma-
legum áhrifum þó. Hið svokallaða
„bohemian-chic“-útlit var líka
allsráðandi, en það einkennist
meðal annars af áður-
nefndri nútímavæðingu
tísku áttunda áratug-
arins sem snýst ekki
síst um að taka
áhrif héðan og þaðan og blanda saman þannig
að úr verði sem persónulegastur stíll.
Þannig snýst sumartískan 2005 kannski
ekki síst um að velja úr þeim aragrúa af
skrautlegu flíkum og fylgihlutum sem finna
má alls staðar í verslunum (og aftast í fata-
skápum eða uppi á háalofti), blanda þeim
saman og gera að sínu. Tískan hefur reynd-
ar verið að þróast þannig undanfarin ár að
sífellt fleira og fleira fellur undir það sem
telst í tísku hverju sinni. Þar af leiðandi er
meira og fjölbreyttara úrval í fataverslunum
og þar sem persónulegur stíll er í tísku er um
þessar mundir lítið mál fyrir hvern og einn og
feta sig með góðum árangri á hinni hálu braut
tískunnar. Að auki má benda á að það að gera
sér far um að vera ekki í tísku er líka í tísku,
samanber þá áherslu sem nú er lögð á að skapa
sinn eigin stíl og blanda hverju sem er saman.
Þannig er í raun hægt að segja að bókstaflega
allt sé í tísku, sem er gott fyrir þá sem vilja
fylgja tískunni (en finnst erfitt eða tímafrekt að
fylgjast náið með henni), en leiðinlegt fyrir þá
sem finnst hallærislegt að vera í tísku og gera
sér þar af leiðandi yfirleitt far um að forðast
það. Miðað við tísku sumarsins
2005 er í raun lítið eftir fyrir
þá, nema kannski að vera
allsberir …
TÍSKA | Skærir litir, fljótandi efni, stór mynstur, perlur og skraut í sumar
Og pilsatískan heldur
áfram … Undanfarnar vikur
hafa tískuhönnuðir lagt lín-
urnar fyrir veturinn 2005–6
og á sýningum þeirra hafa
skrautleg pils sést víða.
Hér er til að mynda glænýtt
pils úr smiðju Dolce &
Gabbana sem er hluti af
komandi vetrarlínu. Fyrir
neðan sjást pils úr versl-
uninni Zöru (til vinstri og í
miðjunni) og pils úr versl-
uninni GK (til hægri).
AP
Gamaldags blúndupils-
um og hekluðum í ljósum
og kremuðum litum er
nú gjarnan blandað sam-
an við toppa og fylgi-
hluti í öðrum stíl. Hér er
mynd af sýningu Veru
Wang þar sem sumarlína
hennar var kynnt. Til
hliðar er pils úr versl-
uninni Spútnik.
Sterk og áberandi mynstur, saumuð í létt og fljót-
andi efni með perlum, sjást víða á kjólum og pilsum
í sumar. Hér er kjóll úr sumarlínu Gucci. Við hlið
hans má sjá pils úr versluninni Zöru.
Hér má sjá útfærslu af nú-
tímavæddri hippatísku átt-
unda áratugarins á sýn-
ingu Alberts Ferretti.
Skærlit pils, þar á meðal túrkísblá, sjást víða í sumar. Vinstra megin er
pils af sýningu Marcs Jacobs og hægra megin má sjá pils eftir Lilly Pulitz-
er. Fyrir neðan eru pils úr Debenhams (til vinstri) og GK (til hægri).
Morgunblaðið/Þorkell
Pils, pils og aftur pils
Pils af ýmsum toga eru áberandi í sumartískunni í ár. Að vanda lögðu
helstu tískuhönnuðir heims línuna fyrir vor- og sumartískuna 2005
síðastliðið haust, og sjást áhrif þaðan glögglega í því sem boðið er
upp á í verslunum víða um heim nú í vor, meðal annars hér í Reykjavík.
Skrautleg mynstur, þar á meðal dýramynstur,
eru áberandi í sumartískunni. Þau sáust meðal
annars á sýningu á sumarlínu Prada þar sem
þetta pils úr páfuglsfjöðrum var kynnt til sög-
unnar. Til hliðar er pils úr versluninni Centrum
þar sem svipuð hugmynd er reifuð.
Reuters
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur
bab@mbl.is
22 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF