Morgunblaðið - 12.04.2005, Side 24
Í TILEFNI af eitt hundrað ára
þjóðhátíðarafmæli Norðmanna, ætl-
ar norska seglskipið Statsraad
Lahmkuhl að sigla frá Noregi til
Reykjavíkur í sumar, en skipið mun
vera stærsta þrímastraða seglskip
heims. Skipið leggur úr höfn í Berg-
en 8. júlí í sumar, tekur stefnuna í
vesturátt til Íslands, leggur að höfn í
Reykjavík 14. júlí og hefur viðdvöl
hér til 17. júlí. Þann tíma, sem skipið
liggur í Reykjavíkurhöfn, verður það
opið fyrir heimsóknir auk þess sem
áhugsamir siglingamenn geta einnig
átt þess kost að sigla með skipinu
sem áhafnarmeðlimir frá Bergen til
Reykjavíkur eða frá Reykjavík til
Bergen.
Statsraad Lehmkuhl er stærsta
og elsta seglskip Noregs með rásegl-
um. Saga skipsins hefst í Bremer-
haven-Geestemünde árið 1914 er
það var smíðað sem skólaskip fyrir
þýska verslunarflotann undir nafn-
inu Grossherzog Friedrich August.
Englendingar tóku skipið her-
fangi eftir lok fyrri heimsstyrjald-
arinnar. Árið 1921 kom það til Berg-
en að frumkvæði Kristofers D.
Lehmkuhl, fyrrum ráðherra í rík-
isstjórn Noregs. Það var notað sem
skólaskip frá árinu 1923 og til þess
tíma er síðari heimsstyrjöldin braust
út. Þjóðverjar lögðu þá hald á skipið
og breyttu nafni þess í Westwarts.
Eftir heimsstyrjöldina var Statsraad
Lahmkuhl rekið sem skólaskip í
Bergen allt til ársins 1966. Árið 1967
kom Hilmar Reksten, stórútgerð-
armaður, í veg fyrir að skipið yrði
selt úr landi og 1978 færði hann
skipið að gjöf til sjálfseignarstofn-
unar, sem síðan hefur átt og rekið
skipið.
Áhugasömum hugsanlegum
áhafnarmeðlimum skal á það bent að
þeir koma til með að taka þátt í
starfinu um borð af fullum krafti.
Þeir standa vaktir með vönum sjó-
mönnum, fara í útsýnisturninn, eru á
verði við fallbyssur og læra að um-
gangast seglbúnað. Rík áhersla er
lögð á réttar siglingahefðir og hýs-
ing áhafnarmeðlima er undir þiljum
í hengikojum og svefnpoka. Frá Ís-
landi siglir skipið 17. júlí og nær
höfn í Bergen 23. júlí.
FERÐALÖG | Stærsta þrímastraða seglskip heims á leið frá Bergen til Íslands
Áhafnarmeð-
limi vantar
Norska seglskipið Statsraad Lahmkuhl að sigla frá Noregi til Reykjavíkur.
TENGLAR
.....................................................
Veffang: www.lehmkuhl.no
Netfang: lehmkuhl@lehmkuhl.no
join@mbl.is
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
ÞAÐ munar 130% á hæsta og lægsta verði á app-
elsínum milli lágvöruverðsverslana og 121% á kota-
sælu og 120% á baðherbergjahreinsilegi frá Ajax.
Þetta kom fram í verðkönnun sem Morgunblaðið
gerði í fjórum lágvöruverðsverslunum á höfuð-
borgarsvæðinu í gær.
Bónus er bæði með lægsta hilluverð og lægsta
kassaverð í þessari könnun. Heildarvörukarfan hjá
Bónus kostaði 4.064 krónur við kassann í gær, hjá
Kaskó 4.132 krónur, í Nettó 4.851 og hjá Krónunni
4.978 krónur.
Ef hilluverð er skoðað kostaði vörukarfan 3.847
krónur í Bónus, 4.186 krónur í Kaskó, 4.783 í Nettó
og 4.540 í Krónunni.
Í þremur tilvikum af fjórum þurfa viðskiptavinir
að borga meira við kassann en hilluverð segir til
um. Aðeins í Kaskó var þessu öfugt farið þar þurftu
viðskiptavinir að borga minna þegar kom að kass-
anum en gefið var upp við hillu.
Hærra verð við kassann
Í fimm tilvikum var ekki samræmi milli hillu- og
kassaverðs í Bónus, í einu tilviki hjá Kaskó, hjá
Nettó gætti ósamræmis í fjórum tilfellum og hjá
Krónunni í tveimur tilvikum.
Bónus var með lægsta verðið í átján tilvikum af
tuttugu og sjö þegar miðað er við kassaverð og
Kaskó í níu tilvikum af tuttugu og sjö. Nettó var
hinsvegar með hæsta verðið í fimmtán tilfellum af
tuttugu og sjö og Krónan í ellefu tilfellum af tuttugu
og sjö.
Verðkönnunin var gerð samtímis í öllum fjórum
verslunum frá 12–13 í Bónus Hjallahrauni, Kaskó
Vesturbergi, Nettó í Mjódd og Krónunni í Jafnaseli.
Kannað var verð á sjötta tug vörutegunda en ein-
ungis er í töflunni birt verð á þeim tuttugu og sjö
vörutegundum sem fengust í öllum búðunum og í
sömu stærðareiningum. Í nokkrum tilvikum orkuðu
upplýsingar úr könnuninni tvímælis og var vöruteg-
undunum sleppt í þeim tilvikum.
Ekkert tillit var tekið til gæða vöru né þjónustu í
verslununum einungis var um verðathugun að ræða.
3
4
!! <
!!! ! P #
6& #
, $ D
'F #
"" #
% "$& $ 5 (
#
$" 5& 5 " #
B1$&($ #
( /($/ 1Q1+ "5
#
)$ & "" ; #
0; A ; 1$ $1 # D"5 " '7 F
891/7" "
!/1/7" "
P/71 $"
1"
% " $ 1Q 7"* 71 # 7"51
#
) 6"
#
L RR & && 5
#
L$ 5 1S
"
)7 7"
"
- && 1 " #
3$ 1 " (
B$$ #
S -+ "5 1Q$ " & # /& #
L "" (; ($ $
#
3& $O$' 1$ #
05 1Q& "" "
-/+5 (&& "
"
/S ('1 ; 1"
0-<,0
&%
3/""&
! %
=$ ($#
'( %
-/7''
!% 4& $" -$"?
$
36
$
,6#
$
) #*
* (
) 3"
=
=
=
=
=
=
=
=
=
=
3 "" )
3 "" )
3 "" )
3 "" )
Kaskó fylgir
fast á
hæla Bónus
Morgunblaðið/Þorkell
Í þremur verslunum af fjórum var vörukarfan dýrari þegar kom að kassa
ef miðað er við hilluverð í verslununum.
VERÐKÖNNUN | Morgunblaðið kannar verð í fjórum lágvöruverðsverslunum
Bónus er með lægsta kassa- og hilluverð og
Kaskó fylgir fast á eftir samkvæmt verðkönn-
un Morgunblaðsins í fjórum lágvöruverðsversl-
unum í gær. Krónan er með hæsta kassaverð
en Nettó með hæsta hilluverð.
UNGBÖRN þurfa ekki á
rakakremum að halda og
óæskilegt getur verið að nota
slíkt á þau þar sem efnin eru
ekki skoluð í burtu og efnin
sem sitja á húðinni geta vald-
ið ofnæmi. Þetta kemur fram
í máli ofnæmislæknisins
Jeanne Duus sem rætt er við
á vef danska blaðsins BT.
Hún leggur áherslu á að ekki
megi hræða fólk og valda for-
eldrum óþarfa áhyggjum,
heldur vill hún höfða til skyn-
semi þeirra. „Flest ofnæm-
isvaldandi ilmefni eru úr
náttúrunni. En það ber líka
að nefna að fá ungbörn eru
með ofnæmi,“ segir Jeanne
Duus.
Góð ráð fyrir
foreldra ungbarna
Forðast ætti vörur sem
innihalda efnin Butylpar-
aben, Isobutylparaben og
Propylparaben.
Það má oftast sleppa því
að nota sápu og sjampó á
ungbörn. Yfirleitt er nóg
að þvo þeim með vatni.
Ef sápa eða sjampó er not-
að, munið að skola vel með
hreinu vatni.
Aðeins ætti að nota krem
ef húðin er mjög þurr eða
rauð.
Forðast ætti að nota blaut-
servíettur. Notið í staðinn
vatn og svamp eða klút.
Kaupið umhverfismerktar
vörur án ilmefna. Munið að
náttúrulegar vörur geta
einnig valdið ilmefnaof-
næmi.
Morgunblaðið/Ásdís
Yfirleitt er nóg að þvo ung-
börnum með vatni.
Ungbörn
þurfa ekki
krem og
sápu
HEILSA