Morgunblaðið - 12.04.2005, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Atvinnuauglýsingar
Bókhald & afgreiðsla
Óskum eftir starfskrafti, 30 ára eða eldri, í sér-
verslun með kvenfatnað. Starfið felur í sér bók-
hald (TOK-kerfi)og aðstoð við afgreiðslu eða
annað skemmtilegt sem til fellur. Vinnut. kl.
14:00-18:00 virka daga og einhverja laugard.
Áhugasamir sendi umsókn til augld. Mbl. eða
í box@mbl.is fyrir 15.4., merkta: „TOK - 05."
Laus störf
í Seljaskóla
Kennari í ensku og dönsku á unglingastigi
tímabundið út skólaárið.
Skólaliði, staðan laus nú þegar.
Upplýsingar veitir skólastjóri í símum
557 7411 og 664 8330.
Raðauglýsingar 569 1111
Félagsstarf
Sjálfstæðisfélag Grindavíkur
Aðalfundur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Grindavíkur verð-
ur haldinn á Stamphólsvegi 2 (Salthúsinu)
þriðjudaginn 19. apríl 2005 kl. 20.00.
Dagskrá.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ávörp gesta.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Gestir fundarins verða þingmenn sjálfstæðis-
manna í Suðurkjördæmi.
Stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
Ársfundur
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður
haldinn í dag, þriðjud. 12. apríl, kl. 17.15.
Fundurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum,
Þingsal 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg störf sjóðfélagafundar skv. 6. gr.
samþykkta sjóðsins.
2. Fyrirliggjandi tillögur til breytinga á
samþykktum sjóðsins.
Tillögur til breytinga á samþykktum Lífeyr-
issjóðs bankamanna liggja frammi á skrifstofu
sjóðsins, Suðurlandsbraut 24, sími 569 0900.
Einnig má nálgast tillögurnar á vefsíðu sjóðs-
ins www.lifbank.is .
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna.
Félagslíf
HLÍN 6005041219 IV/V
FJÖLNIR 6005041219 I
EDDA 6005041219 III
I.O.O.F. Rb. 1 1534127-
sími 569 1100Raðauglýsingar R
RÁÐSTEFNAN Úr hlekkjum til
frelsis er haldin í dag í fyrirlestrarsal
Kennaraháskóla Íslands við Stakka-
hlíð frá kl. 9–16. Af því tilefni ritaði
Hjördís H. Guðlaugsdóttir, formað-
ur samtakanna Styrkur – Úr hlekkj-
um til frelsis, grein í Morgunblaðið í
gær. Þar fjallaði hún um ofbeldi
gagnvart börnum og unglingum.
Ráðstefnunni er ætlað að opna
augu almennings gagnvart þessu
vandamáli og fá umræðuna upp á
yfirborðið.
LEIÐRÉTTT
Umræða um ofbeldi
FÉLAG um tafllist kvenna, í sam-
starfi við Skáksambandið og Skák-
skóla Íslands, er að hrinda af stað
nýrri röð skáknámskeiða fyrir konur
á öllum aldri. Fyrsta fimm vikna
námskeiðið hefst 18. apríl og verður
kennt á mánudögum kl. 19.30–21.30 í
Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Námskeiðin eru sérstaklega ætluð
konum sem tefla sjaldan og eru að
eigin mati byrjendur í skák en vilja
læra meira. Á námskeiðinu verður
farið í gegnum grundvallarlögmál
skáklistarinnar og skákiðkun
kvenna í aldanna rás o.fl.
Kennari verður Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, forseti Skáksam-
bands Íslands og alþjóðlegur skák-
meistari kvenna. Námskeiðsgjald
verður 5.000 kr. fyrir hvert fimm
vikna námskeið.
Skráning hjá Eyrúnu Ingadóttur,
formanni Félags um tafllist kvenna
(eyruni@heima.is, s. 698 2468), og/
eða hjá Skáksambandi Íslands
(siks@simnet.is, s. 568 9141).
Skáknámskeið
fyrir konur
VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúd-
enta, fagnar frumvarpi ríkisstjórn-
arinnar um afnám einkaleyfisgjalds
á Happdrætti Háskóla Íslands.
„Vaka hefur lengi barist fyrir af-
námi gjaldsins enda óréttlátt að
Happdrætti Háskóla Íslands skuli
vera eina happdrætti landsins sem
gert er að greiða sérstakt einkaleyf-
isgjald.
Vaka fagnar þeirri umræðu sem
orðin er um málefni happdrættis Há-
skóla Íslands og skorar á Alþingis-
menn að afnema einkaleyfisgjaldið.“
Fagna frum-
varpi um
happdrætti
BÓKIN „Á ferð
um Ísland“ er
komin út fimm-
tánda árið í röð
og er 224 bls.
Bókin kemur út
hjá Útgáfufélag-
inu Heimi og er
gefin út á þrem-
ur tungumálum;
íslensku, ensku og þýsku og er
dreift í 90.000 eintökum á alla
helstu ferðamannastaði landsins
sem eru um fimm hundruð talsins. Í
bókinni er umfjöllun um hvern
landshluta ásamt kortum þar sem
gististaðir, tjaldsvæði og sundlaug-
ar eru númeraðar á svæðum utan
þéttbýlis. Sambærileg kort eru
einnig frá helstu þéttbýlisstöðum
landsins. Þá er einnig að finna há-
lendiskafla með hálendiskorti og
þjónustulistum í bókinni. Fremst í
bókinni er fróðleikur um land og
þjóð, það helsta sem er á döfinni í
sumar, afþreyingu o.fl.
Fjöldi ljósmynda eftir Pál Stef-
ánsson ljósmyndara Heims skreyta
bækurnar og er hægt að kaupa
myndirnar á www.heimur.is. Bók-
inni er dreift ókeypis en auk þess
eru bækurnar einnig birtar í vef-
útgáfu á www.heimur.is/world.
Ritstjóri bókanna er María Guð-
mundsdóttir.
„Á ferð um
Ísland“ er
komin út
STJÓRN Hvatar, félags sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, samþykkti álykt-
un vegna skipulagningar háskóla-
svæðis í Vatnsmýrinni, en í henni
furðar félagið sig á þeirri ákvörðun
R-listans að bjóða Háskóla Reykja-
víkur eitt dýrmætasta útivistarsvæði
Reykjavíkurborgar, Vatnsmýrina,
undir byggingu nýs húsnæðis HR,
eins og komist er að orði.
„Þetta útspil borgarstjórnar ber
keim af fljótfærni og ólýðræðislegum
vinnubrögðum.
Hvöt hvetur til að Vatnsmýrin
verði nýtt sem útivistarsvæði fyrir
borgarbúa, líkt og núverandi skipulag
gerir ráð fyrir. 80% kvenna í Reykja-
vík eru fylgjandi hugmyndum um úti-
vistarsvæði í Vatnsmýrinni, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Gallup
framkvæmdi í mars síðastliðnum. Því
samræmist þetta útspil borgarstjórn-
ar ekki vilja kvenna í Reykjavík. Hvöt
leggur þó áherslu á að Háskólinn í
Reykjavík verði staðsettur í borginni
og hvetur því borgarstjórn til að
bjóða HR annað svæði í Reykjavík.“
Vatnsmýrin
verði útivistar-
svæði
MINNINGAR
✝ Sigurður Jónssonfæddist í Fagra-
skógi á Árskógsstönd
í Eyjafirði 2. nóvem-
ber 1938. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi hinn 29.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Jón Trausti Sigurðs-
son, f. 10. júlí 1915, d.
6. maí 1990, og Guð-
rún Sumarrós Krist-
insdóttir, f. á Kleif í
Eyjafirði 18. júní
1920, d. 3. desember
1998. Sigurður var
elsta barn þeirra en hin eru Kristín
Sigurbjörg Jónsdóttir, Bryndís
Jónsdóttir, látin, Friðbjörn Páll
Jónsson, Stefán Þór Jónsson, Pétur
Hallur Jónsson, látinn, Sigurbjörg
Jónsdóttir, Sturla Jónsson, Héðinn
Jónsson, Rósa Jónsdóttir, Gestur
Heiðar Jónsson, og Sigfús Ólafur
Jónsson. Sigurður átti tvö hálf-
systkin samfeðra: Sverri Trausta-
son og Erlu Traustadóttur.
Sigurður kvæntist Sigríði Magn-
úsdóttur 1960 og átti með henni
eina dóttur, Gunnhildi, f. 1960.
maki Tommy Frank, f. 1959. Eiga
þau eina dóttur, Írisi Christine, f.
1995. Þau eru búsett í Danmörku.
Sigurður og Sigríður skildu 1970.
Seinni kona Sigurðar
var Ásdís Hoffritz og
áttu þau tvær dætur.
Þær eru: 1) Guðbjörg
Hulda, búsett á Sel-
fossi, f. 1976, maki
Ari Már Ólafsson, f.
1974. Sonur þeirra
Sigurð Hrafn, f.
2001. 2) Kolbrún
Inga, búsett í Mikla-
holtshelli í Hraun-
gerðishreppi, f. 1979,
maki Bjarni Einars-
son, f. 1978. Sigurður
og Ásdís skildu 1985.
Sigurður ólst upp í
Kleif í Þorvaldsdal, í Steinskoti á
Árskógsströnd og á Akureyri. Þar
vann hann við almenn verka-
mannastörf og akstur vörubif-
reiða. Sigurður flutti að Laugar-
bökkum í Ölfusi árið 1963, síðar
flutti hann á Selfoss. Sigurður
starfaði hjá Höfn hf. við akstur
vörubifreiða. Keyrði hann á milli
Reykjavíkur og Selfoss með vörur,
fluttist hann svo síðar yfir á gripa-
bíl Hafnar hf., keyrði hann þar þar
til hann lét af störfum. Sigurður
stundaði hestamennsku og fjárbú-
skap til æviloka.
Sigurður var jarðsunginn frá
Selfosskirkju 6. apríl – í kyrrþey að
ósk hins látna.
Elsku pabbi, afi og tengdafaðir.
Þá opnast heimar vorra duldu drauma,
er dagsins storma lægir, raddir þagna.
Þá heyra þeir á bökkum blárra strauma
hinn blíða nið, sem einverunni fagna.
Við rætur fjalla rísa gamlir bæir,
og roða slær á tind og ísar þiðna,
en djúpir álar verða gegnumglæir,
og geislar himins milda allt hið liðna.
Í sálir vorar streymir óðins andi
frá æðri heimum, þjóð og föðurlandi.
(Davíð Stef.)
Nú er samvistum okkar hér á jörð-
inni lokið. Við áttum kannski ekki
margar samverustundir en símtölin
milli landa voru ófá. Þú færðir mér
fréttir að heiman af systrum mínum
og fleira fólki. Íris litla mun sakna
þess að geta ekki lengur æft sig í ís-
lenskunni við afa sinn í símann. Þegar
við vorum hér heima fannst okkur
gaman að hittast og skoða hesta og
kindur með þér. Nú hvílir þú við ána
sem þú bjóst við, elsku pabbi minn.
Í austri stígur ungur dagur
upp frá sínum mjúka beði.
Yfir fjöll og ása varpa
eldar vorsins nýrri gleði.
Fagurt leikur fossins harpa
fjallasönginn, morgunljóðið,
vekur landið, vekur stóðið.
Upp er risið, sprett úr spori,
spyrnt við hóf mót nýju vori.
(Davíð Stef.)
Kærar kveðjur.
Þín
Gunnhildur, Íris Christine
og Tommy Frank.
Í nótt er gott að gista Eyjafjörð
og guðafriður yfir strönd og vogum.
Í skini sólar skarta haf og jörð
og skýjabólstrar slegnir rauðum logum.
Það veit hver sál, að sumar fer í hönd,
en samt er þögn og kyrrð um mó og dranga,
og hvorki brotnar bára upp við strönd
né bærist strá í grænum hlíðarvanga.
Svo ljúft er allt í þessum heiða hyl,
svo hátt til lofts og mjúkur barmur jarðar,
að víst er engin veröld fegri til
en vornótt björt í hlíðum Eyjafjarðar.
(Davíð Stef.)
Allt hefur sinn endi.
Nú hefur þú gengið þitt síðasta
spor, og verður feginn að setjast nið-
ur og fá hvíldina. Ég vil þakka þér
margt frá liðnum árum. Við áttum
saman leið á unga aldri, kannski of
ung og óreynd til að höndla samband
manns og konu. Ég þakka gjöfina
sem þú gafst mér, dótturina Gunn-
hildi og ömmubarnið Írisi Christine.
Far þú í friði, friður guðs þig blessi.
Sigríður Magnúsdóttir.
Draumur margra hestamanna af
gamla skólanum er að við Gullna hlið-
ið bíði uppáhaldshesturinn þeirra og
fagni húsbónda sínum á ný. Þetta
kemur glöggt fram í kvæði Einars E.
Sæmundsen um reiðhest vinar síns,
Þórarins Egilssonar, Blesa. Í síðustu
hendingu kvæðisins segir:
Þegar okkur, Þórarinn,
þrýtur ganga um veginn,
máske Blesi minn og þinn,
mæti hinum megin?
Ég trúi þessu staðfastlega og vissu-
lega er það falleg tilhugsun, að
tengdafaðir minn skuli hafa öðlast
sinn fyrri styrk og ríði nú uppáhalds-
hesti sínum, Nasa.
Sigurður Jónsson var af gamla
skólanum. Hann var orðinn líkamlega
þjakaður þegar ég kynntist honum.
Varð ég því að láta mér nægja að
heyra sögur annarra mætra hesta-
manna af reiðmennsku hans. Voru
menn sammála um að hrossin hjá
Sigga hefðu alltaf verið vel upp sett
og snyrtileg.
Hann hafði gaman af börnum og
átti margan trúnaðarvin í þeim
krökkum sem í kringum hann voru.
Gjafmildi hans og auðskilinn húmor
réðu öðru fremur því hvað þau löð-
uðust að honum.
Einn uppáhaldsvin átti hann þó,
nafna sinn Sigurð Hrafn. Samband
þeirra var afar náið. Sigurður heitinn
passaði mjög vel upp á nafna sinn,
ferjaði hann til og frá leikskóla og
fylgdist með út um bílgluggann þegar
hann sá þann stutta úti að leika sér.
Sigurður yngri saknar vinar í stað, en
yljar sér við minningar um afa sinn og
nafna og þeirra góðu samverustundir.
En svona er lífið, gakktu áfram
Siggi minn, þú ert aldrei einn á ferð.
Að endingu langar mig að rifja upp
nokkrar af hestavísum Einars E. Sæ-
mundsen um hestinn Örn. Þær fjalla
um samband manns og hests og eru
þess vegna vel við hæfi.
Hefir ekki hestaskál
hug til ljóða vakið.
En – eitthvað hressir anda og sál,
Arnar – fótatakið.
Ekki er að kvíða yfir því
að hann mér ei dugi.
Það er afl og þróttur í,
þessu Arnar – flugi.
Lipru sporin léttfetans
ljúft er við að una.
Gleyma skal ég göllum hans,
gæðin lengur muna.
Ari Már Ólafsson.
SIGURÐUR
JÓNSSON