Morgunblaðið - 12.04.2005, Qupperneq 38
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
MATAR-
TÍMI!
ALLT Í
LAGI, ÞÚ
RÆÐUR!
ÞEGAR MAÐUR FERÐAST
MEÐ FUGLUM ÞÁ KOMA UPP
ÝMIS VANDAMÁL...
ÞEIR
ERU MJÖG
VANDLÁTIR Á
GISTINGU...
MÉR LÍÐUR
ASNALEGA!
ABRA-KADABRA!
HÓKUS-PÓKUS!
HEIMALÆRDÓMUR,
LÆRÐU ÞIG SJÁLFUR!
HEIMALÆRDÓMUR
VERTU BÚINN!
ANSANS
Risaeðlugrín
© DARGAUD
HMM STJÓRI! STJÓRI!
KOMDU STRAX!!
ÞÚ ÆTTIR AÐ VITA AÐ ÞAÐ ER REFSING VIÐ ÞVÍ AÐ VEKJA
YFIRMANN VEGNA ÓMERKILEGS ERINDIS!
ÞETTA ER EKKI
ÓMERKILEGT STJÓRI!
JÆJA ÞÁ! VIÐ ÞURFUM AÐ
SKILA AF OKKUR SKRIFLEGRI
SKÝRSLU. KANNTU EKKI AÐ SKRIFA?
SKRIFAÐU EFTIRFARANDI...
LIGGJANDI PERSÓNA. HÚN VIRÐIST
VERA GRAFKYRR OG ÞVÍ ÚRSKURÐA
ÉG HANA LÁTNA
VIÐ HLIÐINA Á PERSÓNUNNI...
ERTU EKKI AÐ SKIRFA?
ÉG KANN EKKI
STJORI
KANNTU EKKI
HVAÐ?
AÐ
SKRIFA
FÁBJÁNI! HVERNIG
GETUR ÞÚ SKRIFAÐ SKÝRSLU EF
ÞÚ KANNT EKKI AÐ SKRIFA? SÆKTU
EINHVERN SEM KANN AÐ SKRIFA
ÞAÐ KANN
ENGINN AÐ
SKRIFA
GETUR ÞÚ EKKI
BARA SKRIFAÐ
SKÝRSLUNA
STJÓRI?
EFTIR NÁNARI ATHUGUN ER SKRIFLEG
SKÝRSLA EKKI ALLTAF NAUÐSYNLEG. ÞAÐ
ER NÓG AÐ HAFA SÉÐ TIL ÞESS AÐ GETA
SAGT FRÁ, SÉ MAÐUR SPURÐUR
ALVEG RÉTT
STJÓRI
framhald ...
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 12. apríl, 102. dagur ársins 2005
Það er í tísku aðflytja til landsins
gamlar og gatslitnar
hljómsveitir. Fæstar
þeirra eru áhugaverð-
ar. Hvers vegna snúa
menn sér ekki að
bandarísku þunga-
rokkshljómsveitinni
Megadeth? Víkverji
myndi mæta á tónleika
hennar. Megadeth má
að vísu muna sinn fífil
fegri en á hátindi
frægðar sinnar var
hún öflug og fram-
sækin hljómsveit. Um
það getur Víkverji
vitnað því hann á allar helstu skífur
sveitarinnar, auk þess sem hann sá
Megadeth einu sinni á tónleikum í
Bretlandi fyrir heilum bílprófsaldri.
Þar var hraustlega tekið á því.
Hljómsveitin varð til þegar Dave
Mustaine gítarleikari var rekinn úr
Metallica snemma á níunda áratugn-
um. Kannski eins gott því hálf-séní af
því tagi hefði aldrei þrifist í hljóm-
sveit með James Hetfield. Í stað þess
að leggjast niður og deyja setti
Mustaine Megadeth á laggirnar og
hefur verið oddviti sveitarinnar síð-
an. Aðrir hafa komið og farið og nú er
bassaleikarinn David Ellefson meira
að segja dottinn úr skaftinu.
Efnið sem Mega-
deth hefur sent frá sér
í gegnum tíðina er æði
misjafnt en helstu lög
sveitarinnar má hik-
laust skilgreina sem
þungarokksklassík.
Má þar nefna Peace
Sells, Symphony of
Destruction og hið um-
deilda In My Darkest
Hour, sem sumir héldu
að samið væri til að
kynda undir sjálfsvíg
ungmenna en var í
raun óður til látins fé-
laga, Cliffs Burtons
bassaleikara Metallica.
Þá er eftirminnileg túlkun Megadeth
á gamla Sex Pistols-slagaranum An-
archy in the U.K. Svo er Mustaine
auðvitað óvenju meðvitaður rokkari –
yrkir jöfnum höndum um hern-
aðarleyndarleg samskipti Banda-
ríkjamanna við verur frá öðrum
hnöttum og eldfimt ástandið í Ísrael.
Síðast sá Víkverji Mustaine bregða
fyrir í heimildarmynd Metallica,
Some Kind of Monster, þar sem þeir
Lars Ulrich og sérskipaður þerapisti
Metallica-manna reyndu að gera upp
fortíðina. Hetfield var hins vegar
hvurgi og uppgjörið rann út í sand-
inn. Víkverji er enn að jafna sig á
þeim gjörningi – tæpu ári síðar.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Bombay | Það er víðast hvar tærara, vatnið, en í þessum drullupolli í
Bombay á Indlandi. Þetta ungmenni lét það þó ekki aftra sér í gær þegar það
lagðist til sunds. Skyldi engan undra, hitabylgja geisar nú þar eystra og
mældist hiti 35 gráður á Celsius þegar heitast var í gær. Gert er ráð fyrir að
það hitni enn í veðri á næstu dögum enda sumarið á næstu grösum.
Reuters
Synt í drullupolli
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Og þegar þér eruð að biðja, þá fyrirgefið, ef yður þykir nokkuð við ein-
hvern, til þess að faðir yðar á himnum fyrirgefi einnig yður misgjörðir
yðar. (Mark. 11, 25.)