Morgunblaðið - 12.04.2005, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 39
DAGBÓK
Hundurinn Tarak
TILEFNI þessara skrifa er ný
frétt af hundinum Tarak sem í
haust glefsaði í barn. Foreldrar
barnsins fóru fram á að honum
yrði lógað en eigandinn barðist
fyrir lífi hans. Hundurinn fær
samkvæmt dómi að halda lífi en
er gerður útlægur úr Reykjavík.
Lögmaður vinnur enn að málinu.
Þar sem ég er mikill hundavin-
ur og oft með hunda á mínum
vegum get ég ekki annað en lagt
orð í belg þótt ég þekki ekki öll
atvik þessa tiltekna máls.
Eigandi hundsins lét sérfræð-
inga meta skapgerð hans og
reyndist hann vera hin blíðasta
skepna og ekki haldinn árás-
arhneigð. Hundar, að fáum geð-
trufluðum einstaklingum und-
anskildum, glefsa ekki nema þeim
sé ógnað. Nokkuð víst er að barn-
ið hefur í óvitaskap meitt hund-
inn eða ógnað alvarlega á annan
hátt. Sennilega hefur hann reynt
að forðast barnið en ekki haft
færi á því.
Fyrsta viðvörun hjá hundi er
urr eða gelt og jafnvel að sýna
tennurnar. Ef það dugar ekki er
næsta viðvörun að bíta létt,
glefsa, en ef hundurinn ætlar sér
að bíta af alvöru er munurinn
mjög mikill. Hundar gera sér
fulla grein fyrir að þeir hafa mjög
öflugan tanngarð og mikinn bit-
kraft sem þeir því nota ekki nema
allt annað hafi áður verið reynt.
Aðeins í algjörri nauðvörn.
Hvaða maður reynir ekki að
verja sig ef á hann er ráðist?
Held að það eigi við mjög fáa. Er
þá hægt að ætlast til að dýr láti
ofbeldi yfir sig ganga án þess að
verja sig? Nei! Að flýja er reynd-
ar grasbítum og fleiri dýrateg-
undum sem eru neðarlega í
fæðupíramída náttúrunnar eðlis-
lægara.
Hér álít ég að ekki sé við hund-
inn að sakast, ekki húsbónda
hans, ekki við óvita barnið heldur
foreldra þess sem virðast ekki
hafa kennt því að umgangast dýr
með tilhlýðilegri virðingu.
Fer fram á sanngirni og sátt í
þessu máli. Að lóga hundi er í
raun að deyða fjölskyldumeðlim
en svo nánir verða hundar þeim
húsbændum sem sýna þeim góð-
vild.
Ragnar Jónsson,
Miklubraut 70.
Rétt skal vera rétt
Í MORGUNBLAÐINU á bls. 6
mánudaginn 11. apríl er frétt þar
sem sagt er frá að sækja eigi
flugvél til Írlands sem vinir og
samstarfsmenn Arngríms Jó-
hannssonar ætla að gefa honum í
afmælisgjöf. Í fréttinni er er tal-
að um DC-3 flugvélar á Íslandi en
það hafa aldrei verið til DC-3 vél-
ar á Íslandi.
Þær vélar sem kallaðar eru
þristir eru C-47B, og Skymaster-
vélarnar voru C-54.
Sigurbjörn Sigurðsson.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509
www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Opið hús verður á
Vesturhólum 15, 111 Rvík
milli kl. 19:00 og 20:30
þriðjudag.
Um er að ræða einbýlishús á
rólegum stað með aukaíbúð
á neðri hæð.
Stórkostlegt útsýni yfir
höfuðborgina og víðar.
Verið velkomin.
Sigríður Birgisdóttir
sölufulltrúi verður á staðnum.
Nánari upplýsingar á
www.fasteignakaup.is
Opið hús - Vesturhólar 15
Erna Valsdóttir, lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Frá árinu 1951 hafa Alþjóðasamtökin umfólksflutninga IOM (Iternational Org-anisation for Migration) verið starfandi.Samtökin eru gríðarlega umfangsmikil
en að þeim stendur 101 þjóð og 29 til viðbótar eiga
áheyrnarfulltrúa auk fjölda margra alþjóðlegra
stofnana og samtaka,“ segir dr. Thomas Weiss sem
er yfirmaður svæðisskrifstofu IOM í Helsinki sem
sér um Norðurlönd og Eystrasaltsríkin.
Dr. Weiss var staddur á Íslandi í síðustu viku til
viðræðna við fulltrúa íslenskra stjórnvalda til kynn-
ingar á starfsemi IOM en Ísland á ekki aðild að
samtökunum, enn sem komið er a.m.k.
„Starfsemi IOM snýst m.a. um að aðstoða stjórn-
völd aðildarlanda við að stýra og skipuleggja fólks-
flutninga milli landa á mannúðlegan og skipulegan
hátt, með þarfir ríkisstjórna og fólksins sjálfs jafnt í
huga,“ segir dr. Weiss. „Í þessum tilgangi bjóðum
við fjölþætta þjónustu og upplýsingagjöf. Okkar
verkefni er einnig að hvetja til og skipuleggja al-
þjóðlegt samstarf um fólksflutninga, veita rík-
isstjórnum aðstoð til að finna raunhæfar lausnir á
þeim vandamálum sem fólksflutningar hafa í för
með sér og ekki síst að hvetja til alþjóðlegrar sam-
stöðu með mannúðaraðstoð til fólks í nauðum. Í
þessu samhengi má nefna að IOM hefur átt stóran
þátt í hjálparstarfinu vegna flóðbylgjunnar á Ind-
landshafi í lok desember og unnið náið með alþjóð-
legum hjálparstofnunum við skipulag hjálpar- og
uppbyggingarstarfs.
Eitt af okkar verkefnum er að fylgjast með og
skilgreina tengslin á milli fólksflutninga og hag-
rænnar, félagslegrar og menningarlegrar þróunar
annars vegar og hins vegar að virða rétt ein-
staklingsins til að vera frjáls ferða sinna.“
Dr. Weiss segir að starfsemi IOM sé fjórþætt
þótt þættirnir tengist innbyrðis á ýmsa vegu.
„Fólksflutningar og þróun, greiða fyrir fólksflutn-
ingum, stýra fólksflutningum og fylgjast með
þvinguðum flutningum fólks. Starf okkar beinist að
tæknilegum lausnum og samstarfi, vernd réttinda
fólks á faraldsfæti, kynning á alþjóðlegum lögum
um fólksflutninga, upplýsingaöflun um fólksflutn-
inga, þátttaka í stefnumótun og leiðsögn, svæð-
isbundið og alþjóðlegt samstarf, uppfræðsla til al-
mennings, heilsufar, kynjahlutfall, aðlögun og
enduraðlögun fólks sem flust hefur búferlum.“
Eins og sjá má er starfsemi IOM gríðarlega um-
fangsmikil og má nefna að til stofnunarinnar runnu
á síðasta ári ríflega 550 milljónir dollara frá með-
limalöndunum, starfsmenn eru um 3.400 með skrif-
stofur í yfir 160 löndum og verkefni sem stofnunin
heldur úti um heim allan eru um 800 talsins. Sífellt
bætast nýjar þjóðir í hóp aðildarþjóða.
„Ísland hefur til þessa verið alls óþekkt í okkar
röðum. Það var fyrir hvatningu frá sendiherra Ís-
lands í Helsinki, Jóni Baldvini Hannibalssyni, að ég
ákvað að gera mér ferð hingað til Íslands og kynna
starfsemi IOM fyrir íslenskum stjórnvöldum. Þetta
hefur verið mjög ánægjuleg heimsókn og ég hef
fundið fyrir miklum áhuga hér á starfsemi okkar.
Ég er heldur ekki í vafa um að Ísland gæti haft hag
af því að gerast þátttakandi í okkar starfi, í upphafi
sem áheyrnarþjóð og síðar jafnvel með fulla aðild.“
IOM | Alþjóðleg samtök um fólksflutninga í heiminum
Virða rétt einstaklingsins til að
vera frjáls ferða sinna
Dr. Thomas Weiss er
yfirmaður svæðis-
skrifstofu IOM í Hels-
inki í Finnlandi. IOM er
stytting á International
Organisation for Migra-
tion sem eru alþjóðleg
samtök þjóða heims um
fólksflutninga landa á
milli. Dr. Weiss var
staddur á Íslandi til að
kynna starfsemi sam-
takanna fyrir íslenskum stjórnvöldum.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 Bf5 5.
Rc3 e6 6. Rh4 Be4 7. f3 Bg6 8. Db3 Dc7
9. Bd2 Be7 10. Hc1 Rbd7 11. cxd5 exd5
12. g4 Db6 13. g5 Rg8 14. e4 Dxb3 15.
axb3 dxe4 16. fxe4 Bb4 17. Rxg6 hxg6
18. Bc4 Rb6 19. 0–0 Rxc4 20. bxc4 Re7
21. Bf4 Hd8 22. d5 Rc8 23. Kg2 0–0 24.
Ra2 Be7 25. Hfd1 f6 26. gxf6 gxf6 27.
c5 cxd5 28. exd5 Hd7 29. b4 a6 30. Rc3
Kf7 31. d6 Bd8 32. Ra4 g5 33. Bg3 Ra7
34. c6 Rxc6 35. Rc5 Rb8 36. He1 f5 37.
Rxd7 Rxd7 38. Bf2 Rf6 39. Hc5 Kg6 40.
Hc8 Be7 41. Hxf8 Bxf8
Staðan kom upp á öflugu skákmóti
sem lauk fyrir skömmu í Dos
Hermanas á Spáni. Zurab Azmaip-
arashvili (2.671) hafði hvítt gegn Alex-
ey Dreev (2.705). 42. He6! Leikur þessi
er snjall þar sem reikna þurfti út áður
en honum var leikið að fórnin sem
fylgdi í kjölfarið tryggði hvítum sig-
urinn. 42. … Kf7 43. Hxf6+! Kxf6 44.
d7 Be7 44. … Ke7 hefði verið svarað
með 45. Bc5+ og hvítur yrði manni yf-
ir. 45. Bb6 f4 46. Kf3 og svartur gafst
upp. Lokastaða mótsins varð þessi: 1.
Teimour Radjabov (2.673) 5½ vinning
af 9 mögulegum 2.–5. Zurab Azmaip-
arashvili (2.671), Alexey Dreev (2.705),
Ruben Felgaer (2.593) og Alexander
Rustemov (2.573) 5 v. 6.–7. P Harikr-
ishna (2.646) og Sergey Karjakin
(2.635) 4½ v. 8.–10. Lenier Dominguez
(2.658), Oleg Korneev (2.611) og Mig-
uel Illiscas Cordoba (2.633) 3½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Aukamöguleiki.
Norður
♠ÁD843
♥KD872 V/Enginn
♦9
♣KD
Vestur Austur
♠105 ♠K972
♥95 ♥Á
♦852 ♦DG1043
♣1087432 ♣G95
Suður
♠G6
♥G10643
♦ÁK76
♣Á6
Spil dagsins kom upp í tvímennings-
keppni á vorleikum Bandaríkjamanna í
Pittsburgh.
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 spaði 2 tíglar 2 hjörtu
Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu
Pass 6 hjörtu Allir pass
Vestur kom út í lit makkers, með
smáan tígul, og suður tók fyrsta slag-
inn. Fljótt á litið virðist spaðakóng-
urinn þurfa að liggja fyrir svíningu, en
sagnhafi sá leið til að bæta vinnings-
líkur sínar.
Sér lesandinn hver sú leið er?
Hann tók strax annan tígulslag og
trompaði tígul. Spilaði svo laufkóng og
laufi á ás og stakk enn tígul. Eftir
þessa upphreinsun á hliðarlitnum spil-
aði sagnhafi nú fyrst trompi. Austur
lenti inni á stökum hjartaás og varð að
spila spaða upp í gaffalinn eða láglit í
tvöfalda eyðu.
Þetta er einfalt en fallegt dæmi um
upphreinsun og innkast.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
BÖRN Ingunnar Bjarna-
dóttur (1905–1972) afhentu
á dögunum Kvenna-
sögusafni Íslands nótur
hennar og hljómplötuna
„Amma raular í rökkrinu“
með lögum hennar sem
kom út árið 1972. Eig-
inmaður Ingunnar, Hróð-
mar Sigurðsson (1912–
1957), skrifaði upp mörg
laga hennar og Hallgrímur
Helgason færði einnig
mörg þeirra í búning.
Kvenna-
sögusafni
afhentar
nótur
Á myndinni eru börn Ingunnar Bjarnadóttur
ásamt forstöðumanni Kvennasögusafns Ís-
lands, f.v.: Bjarni Sigurðsson, Anna Sigríður
Hróðmarsdóttir, Þórhallur Hróðmarsson og
Auður Styrkársdóttir.
12. apríl
Þegar trúbadúrinn á miðöld-
um var beðinn að yrkja lofsöng
til ástkonu fursta síns, orti
hann um leið til sinnar eigin
ástkonu og allra annarra.
Þetta er svo sem á allra vit-
orði, en kannski einmitt þess
vegna fallegt að hugsa til.
Nicklas Rådström 1953 (Svíþjóð)
Önnur afmælisbörn dagsins:
Alan Ayckbourn 1939 (Bretland)
Árbók bókmenntanna
TVÆR aukasýningar eru fyrirhug-
aðar á leikritinu Tenórnum. Leik-
ritið var frumsýnt í Ólafsfirði í
ágúst 2003 en síðan í október sama
ár hefur það verið á fjölunum í
Iðnó.
Höfundur er Guðmundur Ólafs-
son, sem jafnframt leikur Tenórinn,
Sigursveinn Kr. Magnússon er í
hlutverki Undirleikarans.
Leikstjóri er Oddur Bjarni Þor-
kelsson og tæknimaður Ingi Einar
Jóhannesson.
Sýningarnar verða föstudaginn
15. apríl og laugardaginn 23. apríl.
Miðasala í Iðnó í síma 562 9700.
Aukasýningar
á Tenórnum