Morgunblaðið - 12.04.2005, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
Pakkið á móti
frumsýnt
15. Apríl
Pakkið á móti Eftir Henry Adams
Fös. 15.4 kl 20 Frums. UPPSELT
Lau. 16.4 kl 20 2. kortas. Örfá sæti laus
Fim. 21.4 kl 20 3. kortas. UPPSELT
Fös. 22.4 kl 20 4. kortas. UPPSELT
Lau. 23.4 kl 20 5. kortas. UPPSELT
Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. UPPSELT
Lau. 30.4 kl 20 Nokkur sæti laus
Miðasalan er opin: frá kl 10:00 alla virka daga. Netfang: midasala@borgarleikhus.is
Miðasala í síma 568 8000 -
og á netinu: www.borgarleikhus.is
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar
29. apríl kl. 20 - Frumsýning
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
Ath. Aðgangur ókeypis
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ekki missa af þessari sýningu!
• Föstudag 15/4 kl 20 LAUS SÆTI
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 13-18
BALDVIN Ringsted heitir lista-
maður sem nú sýnir í Kunstraum
Wohnraum á Akureyri. Baldvin á
að baki þriggja ára nám í tónlist-
arskóla FHÍ og fjögurra ára nám í
Myndlistarskóla Akureyrar sem
hann lauk árið 2004. Hefur Bald-
vin samræmt þessa menntun og
m.a. unnið hljóðteikningar eftir
fjöllum og línuteikningar eftir ís-
lenskum lögum. Í Kunstraum
Wohnraum blandar hann saman í
hljóðverk upplestri úr sögum
Grimms og H.C. Andersens og
brotum úr tilsvörum keppenda í
fegurðarsamkeppnum, þessar sí-
gildu setningar um „frið á jörð“ og
„betrumbættan heim“ sem flest
okkar vilja en hljómar alltaf sem
innihaldslausar klisjur frá þátt-
takendum í fegurðarsam-
keppnum. Undir upplestri og til-
svörum má svo heyra drungalegt
en kunnuglegt stef sem er notað
til að örva spennu þegar beðið er
eftir úrslitum í fegurðarsam-
keppnum eða í sjónvarpsþáttum
eins og „Viltu vinna milljón“.
Í framsetningu gengur lista-
maðurinn nokkuð frjálslega í verk
eftir Finnboga Pétursson, berir
hátalarar sem mynda saman
teikningu á veggjunum. Einnig
eru þarna sterk áhrif frá upplestr-
arverkum Magnúsar Pálssonar.
Verkið eða innsetningin virkar
samt sem áður ágætlega þrátt
fyrir þessi augljósu tengsl enda er
inntakið annars konar. Þetta eru
ímyndir ævintýra og fegurðar.
Nánar tiltekið prinsessuímyndir;
Öskubuska, Mjallhvít, Þyrnirós,
Linda og Hófí. Og svo snertir sýn-
ingin mörk sjónlista og tónlistar
með einföldum og ágætum hætti.
Jón B.K. Ransu
Ímyndir ævintýra
og fegurðar
MYNDLIST
Kunstraum Wohnraum
Opið fimmtudaga frá 15–17 og eftir
samkomulagi. Sýningu lýkur 21. apríl.
Baldvin Ringsted
Á ÞEIM tíma sérhæfingar sem við
búum við í dag er fremur óvanalegt
að píanóleikarar flytji eigin tón-
smíðar. Það var því spennandi að fara
á tónleika með píanóleikaranum og
tónskáldinu dr. Heather Schmidt, en
þar spilaði hún verk eftir sjálfa sig og
aðra. Tónleikarnir voru haldnir í
Salnum í Kópavogi á sunnudaginn
var og fyrst á efnisskránni var verk
eftir píanóleikarann sem bar nafnið
Solus.
Upphafstónarnir lofuðu góðu,
þetta voru einmanalegar hendingar
sem voru þrungnar tilfinningum og
voru mjúklega spilaðar. Von bráðar
urðu hendingarnar að alls konar
hlaupum, sem voru skrautleg, enda
glæsilega útfærð. Þegar ekkert ann-
að gerðist varð skrautið þó dálítið
leiðigjarnt; þetta var ekki sannfær-
andi úrvinnsla
grunnhugmynd-
anna heldur fyrst
og fremst enda-
lausar flug-
eldasýningar sem
maður hefur
heyrt þúsund
sinnum áður.
Mun verri voru
samt hinar tvær
tónsmíðarnar eftir Schmidt, Shimm-
er og Sprint að nafni. Þær voru ákaf-
lega ofhlaðnar, sérstaklega var sú
síðari óttalegur leirburður, sam-
ansafn af yfirborðslegum, hátt gír-
uðum barsmíðum sem voru ein-
staklega þreytandi áheyrnar.
Flutningur Schmidt á einni etýðu
og tveimur prelúdíum eftir Rachm-
aninoff olli líka vonbrigðum, túlkunin
var ekki nægilega markviss og tauga-
óstyrkur háði greinilega píanóleik-
aranum.
Fáein smáverk eftir Brahms voru
sömuleiðis misjöfn, Rómanza op.
118/5 og Intermezzo op. 118/2 komu
vel út en Ballaða op. 118/3 leið fyrir
skort á skýrleika og öryggi í flutn-
ingi.
Tvær sónötur eftir Scarlatti voru
aftur á móti prýðilega spilaðar, tærar
og áslátturinn mjúkur eins og tónlist-
in krafðist. Og nokkrar tónsmíðar
eftir Alexinu Louie og Lament eftir
Ellen Taaffe Zwillich voru áheyri-
legar í meðförum píanóleikarans,
snyrtilega uppbyggðar en reyndar
ekki sérlega frumlegar.
Eitt athyglisverðasta atriði efnis-
skrárinnar, sem var jafnframt það
síðasta, var Allegro Molto eftir systur
Mendelssohn, Fanny Mendelssohn-
Hensel. Það var ágætlega samansett
og Schmidt flutti það af glæsibrag.
Hefði það verið ágætur endir á dag-
skránni ef Schmidt hefði ekki endi-
lega þurft að spila eina af tónsmíðum
sínum sem aukalag, og í þokkabót þá
verstu, Sprint, er hljómaði enn hroða-
legri í annað sinn. Var það óneit-
anlega illur endir á tónleikunum.
Hátt gíraðar barsmíðar
TÓNLIST
Salurinn í Kópavogi
Dr. Heather Schmidt flutti tónsmíðar eftir
sjálfa sig og aðra. Sunnudagur 10. apríl.
Píanótónleikar
Heather Schmidt
Jónas Sen
ÞAÐ VAR geysivel mætt á tónleika
M&M-kvartettsins á Múlanum sl.
fimmtudagskvöld og er ekki að efa
að efnisskráin hefur dregið margan
að, tónverk eftir Pat Metheny og
Lyle Mays, en Pat er einna vinsæl-
astur djassleikara um þessar mund-
ir. Hann er þó ekkert unglamb, vel
fimmtugur, og vakti fyrst athygli
með Gary Burton. Skífur hans fyrir
ECM urðu vinsælar og var Pastorius
bassisti á þeirri fyrstu: Bright size
life. Það var líka fyrsta lag á efnis-
skrá M&M og fylgdu The red one og
Uniquiti road í kjölfarið. Á þessum
árum var Metheny að rífa sig lausan
undan áhrifavaldi gítarleikara á borð
við Jim Hall og var skyldari raf-
magnaðri gít-
aristum í tóni og
bíboppið skaut
ekki oft upp koll-
inum. Ekki er
hægt að segja að
þeim fjórmenn-
ingum hafi tekist
að gæða þessa
tónlist Methenys
og Mays lífi, en
þegar kom að
ballöðu Horace Silvers, Lonley wom-
an, sneri Kjartan sér frá Roland-
inum að Steinwaynum og lék sóló er
ljómaði sem demantur í einfaldleika
sínum. Róbert lék glæsilega á kassa-
gítarbassa en Ólafur var heldur
stirður með burstana eins og flestir
íslenskir trommarar af hans kynslóð.
Eftir Silver-ballöðuna steig Kjart-
an Guðnason á sviðið og nú var hald-
ið á vit þeirrar tónlistar sem fært
hefur Metheny hvað mestar vinsæld-
ir og nefndist hjómsveit hans þá Pat
Metheny Group. Tónlistin var oft
sömbuskotin og á mörkum flauels-
djassins og falsettusöngur og mikið
slagverk oft með í för og einna best
þegar Nana Vasconcelos var í hópn-
um. Það verður að segjast að hér
tókst M&M mun betur upp þótt oft
væri erfitt að berjast við hljómlausan
Gyllta salinn og þeir Ólafur og Kjart-
an öflugir. Ásgeir lék skemmtilegan
sóló í Stranger in town með „stop-
time“-innskoti og James af Offramp
var barokkst á köflum eins og First
circle af samnefndri skífu, sem alltaf
hefur verið í sérlegu uppáhaldi hjá
mér, ekki síst vegna falsettusöngs og
slagverks Pedros Aznars. Þar léku
Kjartan og Róbert laglínuna
skemmtilega saman samstiga. Af
First circle var líka lokalag tón-
leikanna, Praise, með lútersku yf-
irbragði. Í þessum lögum tón-
leikanna voru þau Gísli og Kristjana
mætt og söngluðu textalaust, en
söngurinn naut sín ekki sem skyldi í
hljómleysi salarins. Af öðrum verk-
um efnisskrárinnar má ekki gleyma
að minnast á Phase dance-sömbuna
þar sem bæði Ásgeir og Kjartan
sköpuðu einkar áheyrilega einleiks-
kafla.
Metheny á Borginni
Vernharður Linnet
DJASS
Múlinn á Hótel Borg
Ásgeir Ásgeirsson gítar, Kjartan
Valdemarsson píanó, Róbert Þórhallsson
bassa og Ólafur Hólm trommur. Gestir:
Kristjana Stefánsdóttir og Gísli
Magnason söngvarar og Kjartan
Guðnason slagverksleikari.
Fimmtudaginn 7.4.
M&M
Kjartan
Valdemarsson
OLEG Sokolov, forseti Hernaðarsögufélags Rúss-
lands, var í essinu sínu í gervi Napóleons Frakka-
keisara á sýningu í síberísku borginni Krasnoyarsk
um helgina. Messaði þar yfir þessum „frönsku sjó-
liðum“. Þetta var í fyrsta sinn að félagsmenn frá
helstu borgum Síberíu taka þátt í sýningu af þessu
tagi, sem er annars snar þáttur í starfi hern-
aðarsögufélagsins.
Reuters
Napóleon í Síberíu