Morgunblaðið - 12.04.2005, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
G
lugginn á Panorama-herberginu á
áttundu hæð Hótel Nordica
minnir að mörgu leyti á bílrúðu,
sem er vel við hæfi þegar verið er
að ræða vegamynd. Reyndar
ferðuðust Ernesto Guevara og Alberto Gran-
ado um á mótorhjóli en myndin heitir einmitt
Mótorhjóladagbækurnar (Diarios de moto-
cicleta) og er opnunarmynd kvikmyndahátíð-
arinnar IIFF 2005. Með hlutverk Ernestos,
sem gengur ekki enn undir nafninu Che, fer
Gael García Bernal. Útsýnið er mikið og kýs
Gael að sitja við borðið þannig að hann horfi
beint út um gluggann.
Í víðfeðmu útsýninu endurspeglast víðsýnin
sem Gael hefur tileinkað sér en hann hefur
heimspekilega sýn á heiminn. Samræðurnar
fara á flug og er umfjöllunarefnið ferðalög á
sál og líkama. Gael brosir allan tímann og er
óhjákvæmilegt að komast hjá því að finna fyrir
sjarma hans. Persóna hans er þó ekki þvinguð
að neinu leyti og sjarminn alltaf viðkunn-
anlegur en ekki yfirþyrmandi. Hann talar
ensku þýðri röddu með hreim frá heimaland-
inu, Mexíkó. Hann talar lágt og með því virka
samræðurnar á einhvern hátt nánari. Hann er
tilbúinn að gefa af sér þrátt fyrir að hafa rætt
myndina margoft áður enda hefur hún fengið
góða dóma og farið víða. Það sem hann hefur
ekki gert áður er að koma til Íslands.
Frá suðri til norðurs
„Ég hef aldrei komið svona norðarlega áður.
Það er gaman að koma svona norðarlega eftir
að hafa verið þetta sunnarlega á hnettinum í
Chile og Argentínu. Það kom mér líka á óvart
hvað Ísland er stórt. Mér finnst alltaf gaman
að uppgötva eitthvað nýtt og svo er afslappað
andrúmsloftið hérna,“ segir Gael, sem kom
hingað frá London þar sem hann er við æfing-
ar á Blóðbrullaupi Federicos Garcías Lorca.
Þar kemur inn tenging við Ísland því Björn
Hlynur Haraldsson leikur einnig í leikritinu og
segir Gael hann vera bæði frábæran mann og
leikara. Þetta er þó ekki fyrsti snertiflöturinn
sem hann hefur við Ísland því hann hitti Sturlu
Gunnarsson þegar leikstjórinn var við tökur í
Mexíkó. Önnur óbein tenging við landið er að í
hinni mögnuðu Y tu mamá también klæddist
hann ferðamannastuttermabol frá Íslandi í
einni senunni.
Landslagið í upphafi Mótorhjóladagbók-
anna líkist mjög íslensku landslagi og þegar
tjaldið fýkur á brott frá þeim félögum ofan í á,
mætti halda að verið væri að gera heimild-
armynd um íslenska útihátíð. Tónninn í þess-
ari stórskemmtilegu mynd er líka mjög léttur í
upphafi, verið er að segja ferðasögu tveggja
ungra manna en ekki fara með byltingaræv-
intýri. Gael leikur Ernesto á tíma þar sem
hann er að breytast í þann leiðtoga sem hann á
eftir að verða. Þetta er nefnilega ekki saga af
því hvað einn maður getur breytt miklu heldur
hvernig margir menn breyta einum manni.
Pressan kom innan frá
Gael segir að það þurfi að hafa margt í huga
þegar verið er að leika persónu sem hefur
svona mikla sögu á bak við sig. „Tilvist hans
hafði mikil áhrif á hvernig ég og milljónir
manna voru aldar upp. Staðurinn sem ég kem
frá varð líka fyrir miklum áhrifum frá kúb-
önsku byltingunni og hann var einn leiðtoga
hennar. Pressan var mikil en hún kom líka
mikið til frá sjálfum mér. Við þurftum að
ákveða á hvaða hátt við ætluðum að sýna þessa
persónu í myndinni. Það sem við dáum í fari
Che Guevara er ævintýraþrá hans, hann er
hugsjónamanneskja og það smitar útfrá sér.
Við þurftum auðvitað að setja þetta í samhengi
við það sem var að gerast á þessum tíma,“ seg-
ir hann en ferðalagið átti sér stað árið 1952.
Hann segir að farið hafi verið í smáatriðin.
„Við þurftum að hafa upplýsingar um allt sem
var að gerast á þessum tíma, hvað þeir lesa,
hvernig þeir tala, í hverju þeir eru og þar fram
eftir götunum. Undirbúningurinn var langur
eða um fimm mánuðir. Við fórum til Kúbu, víða
um Argentínu, til Mexíkó, og hittum fólk sem
þekkti þá. Þetta var frábær lífsreynsla, ein-
hver sú fallegasta sem ég hef lent í,“ segir Gael
og segir að leikstjórinn Walter Salles hafi átt
stærstan þátt í því að þetta var svona góð lífs-
reynsla. „Það sem gerði þessa mynd mögulega
var frábær maður sem sameinaði okkur öll og
það var Walter Salles. Við kláruðum líka
myndina nákvæmlega á tíma. Þetta er eina
myndin sem ég hef leikið í sem það hefur tek-
ist,“ segir hann og er það afrek miðað við
fjölda tökustaða og vegalengdirnar. „Líka mið-
að við að litlum peningum var eytt í þessa
stóru mynd og þessar stóru hugmyndir.“
Þeir sem hafa séð myndina taka eftir því að
mótorhjólið sem þeir ferðast á er ekkert sér-
staklega traustvekjandi. „Á undirbúningstím-
anum þurftum við að æfa okkur á hjólinu
þrisvar sinnum í viku. Við vorum orðnir nokk-
uð góðir í endann,“ segir Gael sem hafði fyrir
reynslu af mótorhjólaakstri „en ekki á svona
gömlu hjóli“.
Opinn fyrir nýrri reynslu
Ávallt er sagt að ferðalög víkki sjóndeild-
arhringinn en þó má segja að fólk þurfi að vera
opið fyrir reynslunni til að breytast. „Ernesto
og Alberto vildu vera hluti af þeirra eigin sam-
hengi. Ferðin var ekki bara til að fullnægja
forvitni þeirra heldur líka til að verða hluti af
þessum stað sem þeir eru frá, sem er góður
byrjunarpunktur. Takmarkið er samt að verða
hluti af mannkyninu. Þetta er ekki leit sem
endar en hún leiðir mann á réttar slóðir. Þú
þarft að vera agaður og líka opinn fyrir nýrri
reynslu,“ segir Gael, sem var 23 ára á ferðalag-
inu líkt og Guevara.
Gael hefur reynt að tileinka sér þetta hug-
arfar. „Já, ég hef gert það allt frá því að ég
ferðaðist fyrst um Mexíkó. Þetta er svo fjöl-
breytt land bæði hvað varðar kynþætti og
menningu. Ég er frá Guadalajara sem er mjög
ólík Mexíkóborg. Sem barn viltu uppgötva
hvaðan þú ert og vera hluti af heiminum en
ekki bara heimalandinu,“ segir hann en svipuð
útþrá blundar í mörgum Íslendingum.
Ferðalögum fylgir oft líka heimþrá og segist
Gael sakna einföldu hlutanna frá heimaland-
inu. „Ég sakna lyktarinnar á morgnana, sem
er mjög sérstök því það er bæði rakt og heitt.
Ég sakna litlu hlutanna eins og maís í maís-
tortillum því mér finnst ekki gott að borða
brauð. Auðvitað sakna ég líka fjölskyldu minn-
ar. Það sem ég sakna mest frá Mexíkó er þessi
tilfinning, sem ég hafði á meðan ég bjó þar, um
að vilja vera á öðrum stað. Þegar maður fer
burt enduruppgötvar maður sjálfan sig í sam-
hengi heimaslóðanna þrátt fyrir að vera að
ganga í gengum nýja reynslu. Maður finnur
sinn stað en á sama tíma er maður orðinn
frjálsari,“ segir Gael en í þessu felst hliðstæða
við reynslu Guevara í myndinni. Hann hittir
fólk sem hefur áhrif á hann og lætur hann end-
urskoða eigin veruleika og markmið. Hann
spyr sig í myndinni hvort það sé heimurinn
sem er að breytast eða hann sjálfur og vissu-
lega er það maðurinn sem breytist.
Gagnleg fegurð
Margir fallegir staðir eru í myndinni en sér-
staklega er það áhrifamikið þegar Maccu
Piccu í Perú birtist þeim í allri sinni dýrð.
„Þetta er ótrúlegur staður. Í raunveruleik-
anum birtist hann allt í einu, á sama hátt og í
myndinni. Það er svo mikil fegurð sem er
þarna í leynum. Ég hef ekki oft á ævinni séð
eitthvað eins fallegt og þetta. Við vorum þarna
í tvo daga, vöknuðum um fimmleytið og gátum
fylgst með sólarupprásinni. Inkarnir virðast
líka hafa mjög næmt auga fyrir fegurð. Hlutir
eru ekki aðeins til vegna þess að þeir séu gagn-
legir heldur eru þeir líka fallegir.“
Hann segir reynsluna af því að búa í London
ekki vera næstum eins kyrrláta. „Núna bý ég í
London og það getur gert mann brjálaðan. Þar
er svo mikil mengun af hlutum sem eru hvorki
þægilegir né fallegir. Fólk virðist líka lifa og
vinna bara til að borga leiguna. Mér finnst það
skrýtið en það er ekki fólkinu að kenna heldur
er þetta bara svona. En auðvitað er þetta frá-
bær borg, sem hefur uppá margt að bjóða,“
segir Gael, sem þekkir líka vel kosti borg-
arinnar en hann stundaði nám í virtum leiklist-
arskóla í London, Central School of Speech
and Drama, í þrjú ár.
Fjölbreytileiki í kvikmyndum
Gael er ánægður með að yfirstandandi kvik-
myndahátíð gefi áhorfendum tækifæri til að
sjá fjölbreytilegt úrval mynda víða að úr heim-
inum. „Það er nauðsynlegt fyrir mig sem
áhorfanda að sjá myndir frá mörgum stöðum í
heiminum og sjá þar með mismunandi sam-
hengi, skynjun og viðhorf. Sem áhorfandi er ég
leiður á því að horfa á formúlumyndir, sem
byggðar eru á söluvænlegri formúlu frekar en
mannlegri formúlu. Það er alltaf verið að
reyna að gera lífið einfaldara en það er,“ segir
Gael, sem sjálfur reynir að hafa þessa fjöl-
breytni að leiðarljósi.
Talið berst að kvikmyndahefð í Mexíkó og á
Íslandi. „Það eru ekki svo margar myndir sem
koma frá Mexíkó, hlutfallslega mun færri en
frá Íslandi. Á síðasta ári voru um 25 myndir
gerðar í þessu landi þar sem yfir hundrað
milljónir búa. Þetta nær í raun ekki að sinna
menningarlegri nauðsyn. En á sama tíma
verður fólk að vera opið fyrir nýjum hlutum og
hvernig þeir endurspegla eigin sjálfsmynd því
það er hluti af því að vera manneskja,“ segir
hann og minnist á tækifærin sem kvikmynda-
gerð hefur gefið honum.
Gael hefur vissulega verið í mörgum spenn-
andi myndum, sem hafa vakið athygli. Hann er
26 ára gamall en hefur leikið frá því hann var
barn. Fyrsta stóra myndin sem hann lék í var
Amores perros, sem vakti mikla athygli. Hann
leikur líka í annarri mynd sem sýnd er á IIFF
en það er Slæm menntun (La mala educación)
eftir stórleikstjórann Pedro Almodóvar.
Myndin, sem verður frumsýnd næstu helgi á
hátíðinni, hefur fengið góða dóma og verður
spennandi að sjá hana.
Ekki er annað að sjá en að Gael velji hlut-
verk sín af kostgæfni. „Í fyrsta lagi þarf sagan
að vera góð og áhugaverð. Hún þarf að hreyfa
við mér og krefjast þess að vera sögð. Það er
það sem mér finnst spennandi, að eitthvað sé
það mikilvægt að saga þess verði að vera sögð.
Ég reyni að velja hlutverk af innsæi og nauð-
syn og svo skiptir leikstjórinn og aðrir leikarar
auðvitað miklu máli.“
Gael fylgir þeirri stefnu að gera áhugamálið
að vinnu og vinnuna að áhugamáli og er
ánægður með starfið sem hann hefur valið sér.
„Ég er mjög ánægður því ég reyni að gera að-
eins það sem mér líkar við. Ég er stoltur af því
að hafa gert það. Þótt hlutirnir gangi ekki allt-
af upp er ég ánægður því ég gerði eitthvað sem
ég vildi gera. Mér líður ekki eins og þetta sé
vinna, þetta er leikur fyrir mér.“
Kvikmyndir | Gael García Bernal leikur aðalhlutverkið í Mótorhjóladagbókunum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gael García Bernal lærði heilmikið á ferðalagi sínu um Suður-Ameríku líkt og Ernesto Guevara. Hann er heimspekilega þenkjandi og hefur
áhugaverða sýn á lífið. Kvikmyndahlutverk velur hann ekki síst eftir því hvort sagan hreyfi við honum og krefjist þess að vera sögð.
Það er ekki á hverjum degi
sem kynþokkafullar mexík-
anskar kvikmyndastjörnur
heimsækja Ísland. Inga Rún
Sigurðardóttir ræddi við
Gael García Bernal um
ferðalög á líkama og sál.
Langferð og stórar hugmyndir
Ferðin var ekki alltaf auðveld hjá félögunum Ernesto Guevara de la Serna (Gael García Bern-
al) og Alberto Granado (Rodrigo de la Serna) en þeir fóru frá Argentínu til Venesúela.
ingarun@mbl.is