Morgunblaðið - 12.04.2005, Page 48
BRÚÐKAUP Karls Bretaprins og
Kamillu Parker Bowles var merki-
legt nokk ekki vinsælasta sjónvarps-
brúðkaup helgarinnar í
Bretlandi. Töluvert
fleiri höfðu á því meiri
áhuga á að sjá sápu-
óperubrúðkaup er þau
Ken og Deirdre Barlow
ákváðu að giftast í ann-
að sinn í elstu sápu-
óperunni af þeim öll-
um, hinni vinsælu
Coronation Street.
Fjórum milljónum fleiri
sáu sápubrúðkaupið en
hið hálf-konunglega
brúðkaup Karls og
Kamillu. Hvorki fleiri
né færri en 12,9 millj-
ónir manna sáu sápu-
brúðkaupið á föstudeg-
inum en 8,7 milljónir
fylgdust með brúð-
kaupi Karls og Kam-
illu daginn eftir.
Fyrra brúðkaup
þeirra Kens og
Deirdre var sýnt í júlí
1981 aðeins tveimur
vikum fyrir brúðkaup
Karls og Díönu.
Sjónvarp | Brúðkaup Karls og Kamillu
ekki það vinsælasta um helgina
Fleiri völdu
sápubrúð-
kaupið
Reuters
Reuters
Tókstu ekki alveg
örugglega upp Corr-
ie, Kamilla mín?
Prinsinn af Wales og
hertogaynjan af Corn-
wall bíða þess að
verða blessuð í kap-
ellu Heilags Georgs í
Windsor-kastala á
laugardag.
Grímur af Karli og Kamillu sem
götusalar buðu til sölu á laugardag.
48 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Don´t Move kl. 5.30 og 8 b.i. 16 ára
Maria Full of Grace kl. 10,30 b.i. 14 ára
The Motorcycle Diaries kl. 5.30 og 10
Sódóma Reykjavík kl. 8 Spurt og Svarað m/ Óskari Jónassyni
Ring of Fire kl. 6
Shake hands with the Devil kl. 8
Hlaut 2
Golden Globe verðlaun
sem besta
gamanmynd ársins.
Geoffrey Rush
sem besti leikari.
Hole in my Heart kl.10 b.i. 16 ára
The Mother kl. 5,45
Garden State kl. 10,30 b.i. 16 ára
Life Aquatic with Steve Zissou kl. 5,45 b.i. 12 ára
Life and Death of Peter Sellers kl. 8 og 10.30
Million Dollar Baby kl. 8 b.i. 14 ára
en
Frá framleiðendum
Og þið sem hélduð að þetta væri bara einhver draugasaga
Tryllimögnuð hrollvekja.
Stórkostleg vegamynd sem hefur
farið sigurför um heiminn, fengið lof
gagnrýnedna og fjölda verðlauna.
Penelope cruz
ítölsk verðlaunamynd. Penelope Cruz hlaut
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin fyrir
hlutverk sitt í myndinni.
OPNUNARMYND IIFF 2005
3
ÓSKARSTILNEFNINGAR
ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð á Ís-
landi – IIFF 2005 – hófst á fimmtu-
daginn síðasta og fór geysivel af stað.
Samkvæmt upplýsingum frá skipu-
leggjendum hátíðarinnar sóttu tæp-
lega 6 þúsund manns hátíðarmynd-
irnar yfir helgina sem sé nýtt
aðsóknarmet; engin kvikmyndahátíð
á Íslandi hafi farið eins vel af stað.
Slegist um miða á Hitler-mynd
„Nokkuð óvenjulegt ástand skap-
aðist í bíóum hátíðarinnar því uppselt
var á fjömargar sýningar og skipti þá
engu hvort um var að ræða dag- eða
kvöldsýningar í stórum eða litlum söl-
um,“ segir í tilkynningu frá fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar Ísleifi
Þórhallssyni. „Bara í Regnboganum
var uppselt samtals átta sinnum frá
föstudegi til laugardags. Það var upp-
selt svo oft á ákveðnar myndir, t.d.
Downfall [Til hinstu stundar (Der
Untergang)], að fólk er farið að kaupa
miða fram í tímann.“ Þannig hafi stór
hluti miða á sýningu myndarinnar í
gærkvöldi selst í forsölu, sem er fá-
heyrt orðið hér á landi. Til hinstu
stundar er þýsk mynd sem fjallar um
síðustu daga Hitlers séð með augum
einkaritara hans. Hún er næstmest
sótt hátíðarmynda á eftir Mótorhjóla-
dagbókum. Þriðja mest sótta hátíð-
armyndin er Gat í hjarta (Et hål i mit
hjärta) eftir Lukas Moodysson, sú
fjórða María (Maria full of Grace) og
Hótel Rúanda (Hotel Rwanda) sú
fimmta.
Einn efnilegasti leikari Spánar
Það hafði væntanlega hvetjandi
áhrif á aðsóknina að erlendir kvik-
myndagerðarmenn og leikarar voru
viðstaddir sýningar á myndum sínum
og svöruðu spurningum úr sal að lok-
inni sýningu. Ekkert lát verður á
komu góðra gesta. Fyrir helgi kemur
t.d. spænski leikarinn Fele Martínez,
aðalleikari í nýjustu mynd Pedrós
Almodóvars Vond menntun (La mala
educacíon). Martínez, sem þykir einn
allra efnilegastu leikari Spánar, verð-
ur viðstaddur hátíðarsýningu á mynd
Almadóvars næstkomandi laugardag.
Martínez fékk spænsku Goyu-
kvikmyndaverðlaunin fyrir leik sinn í
mynd Alejandro Amenábar Thesis en
vakti fyrst heimsathygli fyrir leik
sinn í mynd Amenábars, Abre los
ojos. Martínez lék í síðustu mynd
Almódóvars Habla con ella og í
Vondri menntun leikur hann aðal-
hlutverkið á móti Gael García Bernal
og hafa báðir hlotið lof fyrir frammi-
stöðu sína.
Þá er einnig væntanlegur til lands-
ins aðalleikarinn í bresku myndinni 9
Songs eftir Michael Winterbottom.
Hann heitir Kieran O’Brien og er í
hópi þekktari yngri leikara í Bret-
landi nú um mundir, hefur leikið í
þekktum sjónvarpsþáttum á við
Cracker og er einnig orðinn virtur
sviðsleikari. Hann mun sitja fyrir
svörum að lokinni frumsýningu þess-
arar umdeildu myndar sem þykir
hafa að geyma hispurslausari kynlífs-
lýsingar en áður hafa sést í mynd eft-
ir virtan kvikmyndagerðarmann. Má
því búast við líflegum umræðum um
myndina enda vekur hún upp ansi
margar og áleitnar spurningar.
Þá eru væntanlegir gestir í
tengslum við írsku myndina Omagh,
sem segir frá afdrifum fórnarlamba
sprengjutilræðis í smábænum sem
myndin er nefnd eftir. Þeir munu
sitja fyrir svörum á laugardag, að-
alpersóna myndarinar Michael
Gallagher og sá sem leikur hann í
myndinni, Gerard Mcsorley.
Á sunnudaginn verða svo við-
staddir sýningu á bandarísku mynd-
inni Bomb The System, aðalleikarinn
Mark Webber og leikstjórinn Adham
Bhala en myndin fjallar um líf ungra
grafitílistamanna í New York.
Svarar spurningum um Sódómu
Í kvöld verður svo svokölluð Spurt
& svarað-sýning á hinni vinsælu ís-
lensku undirheimamynd Sódómu
Reykjavík frá 1993. Óskar Jónasson
leikstjóri myndarinnar verður við-
staddur sýninguna og mun að henni
lokinni svara spurningum gesta úr
sal.
Kvikmyndir | Metaðsókn á IIFF-kvikmyndahátíðina Fleiri erlendir gestir væntanlegir
Almadóvar-leikari og aðalleikari 9 Songs koma
Morgunblaðið/Golli
Fáar íslenskar myndir eru í eins
miklu uppáhaldi og Sódóma Reykja-
vík og gefst því mörgum kærkomið
tækifæri til að spyrja leikstjórann
Óskar Jónasson spjörunum úr.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Fele Martínez er þrítugur leikari,
fæddur og uppalinn á Spáni.
www.icelandfilmfestival.com
Spurt og svarað sýning á Sódómu
Reykjavík verður í Háskólabíói í
kvöld kl. 20.
SÖGUR af ungu og sjálfsuppteknu
fólki í tilvistarkreppu eru líklega
meðal algengustu viðfangsefna
bandarískra kvikmyndagerð-
armanna af óháða geiranum, og má
því segja að allar viðbætur í þá flóru
kalli á verulega ferska nálgun ef við-
komandi kvikmynd á að standa undir
nafni. Í því ljósi má segja að þeim
David O. Russell og Jeff Baena takist
vel upp í kvikmyndinni Ég hjarta
Huckabees, sem hverfist einmitt um
ofangreint þema, þ.e. tilvistarkreppu
ungs fólks sem fast er í viðjum
neyslu- og ímyndasamfélags nú-
tímans. Nálgunarleiðin er farsa-
kennd og einkar vel heppnuð þar
sem hún rásar á milli persóna án
þess að tapa þræðinum, og skapar
smám saman gamansamt tilvist-
arspekilegt öngþveiti sem kemst á
suðupunkt í skapandi meðförum leik-
ara á borð við Dustin Hoffman, Lily
Tomlin, Jason Schwarzman, Mark
Wahlberg og Jude Law. Tveir síðast-
nefndu leikararnir koma skemmti-
lega á óvart með frábærum gam-
anleik sínum, og má jafnvel ganga
svo langt að segja að þeir steli sen-
unni.
Í myndinni kynnumst við nokkrum
persónum sem af einhverjum ástæð-
um enda með að sitja saman í súpu
lífsins, en allar eiga þær það sameig-
inlegt að hafa leitað á náðir fram-
úrstefnulegra sáluhjálpara í tilvist-
arlegri örvæntingu sinni. Allt byrar
þetta þegar náttúruverndarsinninn
og aðgerðarsinninn Albert Mar-
kovski (Schwartzman) felur sálar-
heill sína í hendur tilvistarspekileg-
um leynilögreglumönnum (Hoffman
og Tomlin), sem taka að sér að draga
fram heildarsamhengið í tilvist skjól-
stæðinga sinna. Þeirra helsti óvinur
er snjall tilvistarráðgjafi, hin franska
Caterine Vauban (Huppert), sem að-
hyllist tómhyggju og afbyggingu af
franska skólanum og á það til að stela
kúnnunum þeirra. Í meðferðinni
kynnist Albert sálufélaganum
Tommy (Wahlberg) sem er jafnvel
einarðari prinsippmaður en Albert í
andófi sínu gegn siðleysi stórfyr-
irtækja og umhverfisspjöllum.
Tommy þessi, sem er slökkviliðs-
maður, hefur m.a. tekið upp þann
umhverfisvæna hátt að hjóla í bruna-
útköll. Stóri óvinurinn er síðan stór-
fyrirtækið Huckabees, sem stýrt er
af hinum sjálfsörugga Brad (Jude
Law) sem slæðist einnig í meðferð til
tilvistarspekinganna ásamt kærust-
unni Dawn (Naomi Watts). Úr þessu
kostulega persónugalleríi spinnur
leikstjórinn bráðfyndna kómedíu,
skemmtilegan farsa sem heldur
öruggum dampi út í gegn, en nær á
sinn kaótíska hátt að slá einhvern
innilegan tilvistarspekilegan tón mitt
í allri gamanseminni.
Tilvistarlegt öngþveiti
KVIKMYNDIR
Regnboginn: IIFF
Leikstjórn: David O. Russell. Handrit:
D.O. Russell og Jeff Baena. Aðal-
hlutverk: Dustin Hoffman, Lily Tomlin,
Jason Schwarzman, Jude Law, Mark
Wahlberg, Isabelle Huppert og Naomi
Watts. Bandaríkin, 106 mín.
Ég hjarta Huckabees (I Heart Huckabees)
Heiða Jóhannsdóttir
Mark Wahlberg og Jude Law.